Morgunblaðið - 11.10.2003, Side 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 55
Jafnræði var með liðunum frameftir öllum leik en í þeim fjórða
virtust heimamenn ætla að stinga af
en Njarðvíkingar
neituðu að gefast
upp og náðu að jafna
með síðustu körfu
leikhlutans 91:91 eft-
ir venjulegan leiktíma en þá höfðu
heimamenn misst sinn besta mann af
velli, þ.e. Darrel Lewis. Framlengja
þurfti því leikinn og enn var jafnt að
þeim fimm mínútum liðnum, 99:99.
Önnur framlenging bættist því við.
Gestirnir virtust í byrjun hennar
ætla að vinna leikinn því þeir settu
niður fyrstu fjögur stigin en heima-
menn neituðu að gefast upp og Páll
Axel Vilbergsson, fyrirliði Grindvík-
inga, setti niður þriggja stiga körfu
langt fyrir utan þriggja stiga línuna
og kom sínum mönnum yfir 104:103.
Njarðvíkingar fengu tækifæri til að
svara fyrir sig en það gekk ekki og
heimamenn fögnuðu sigri í spennu-
leik, 105:103.
„Þetta var svakalegur körfubolta-
leikur. Menn spiluðu á síðustu bens-
índropunum og í raun tilviljun ein
sem réð því hvorum megin sigurinn
lenti. Ég kvíði ekki vetrinum með
þennan mannskap, er með ungt og
skemmtilegt lið,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga.
„Þetta var rosalegur körfubolti, hátt
skemmtanagildi fyrir áhorfendur og
lofar góðu. Margir í báðum liðum
geta mun betur,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur.
Tvífram-
lengt í
Grindavík
ÞAÐ var aldeilis stórleikur sem
nágrannaliðin Grindavík og
Njarðvík sýndu í gærkveldi er
þau áttust við í úrvalsdeild karla
í körfuknattleik. Tvíframlengdur
leikur og mikil dramatík. Leikn-
um lauk með sigri Grindvíkinga
sem skoruðu 105 stig gegn 103
stigum gestanna.
Garðar Páll
Vignisson
skrifar
Fyrstu mínúturnar spiluðu heima-menn sterka pressuvörn en eins
og svo oft áður leyfðu þeir sér að
slaka á klónni og í
hvert sinn náðu
Hvergerðingar að
saxa á forskotið.
Forskotið var samt
alltaf meira en 20 stig, allt þar til
snemma í þriðja leikhluta þegar
Hamarsmenn gáfu allt sem þeir áttu
til að jafna metin. Það dugði til að
minnka forskotið úr 21 í 8 á sex mín-
útum en þá höfðu þeir líka gefið allt.
Keflvíkingar gengu á lagið enda nóg
púður eftir í þeirra breiða hópi.
„Við slökuðum á um tíma í þriðja
leikhluta en náðum að keyra hrað-
ann aftur upp í þeim fjórða og spila
eins og við viljum,“ sagði Falur
Harðarson, leikmaður og annar
þjálfari Keflvíkinga. Derrick Allen
skoraði 27 stig og tók 16 fráköst en
Nick Bradford var með 23 stig og 7
fráköst. „Ég er mjög ánægður með
útlendingana okkar, þeir eru einmitt
eins og vildum hafa þá. Við leituðum
að leikmanni eins og Damon John-
son, sem lauk mörgum sóknum okk-
ar. Við viljum frekar að menn spili
sem hluti af heild.“
Keflvík-
ingar
sterkir
GÓÐ barátta Hamarsmanna frá
Hveragerði í þriðja leikhluta
dugði skammt í gær í Keflavík,
af öllum stöðum. Margfaldir
meistarar Keflavíkur, sem keyrt
höfðu á aðeins meira en hálfum
hraða, tóku rækilega við sér í
fjórða leikhluta og juku for-
skotið úr 8 stigum í 28, sem
skilaði 100:72-sigri.
Stefán
Stefánsson
skrifar
ÞJÓÐVERJAR hafa endurbyggt
völlinn í Hamborg, sem Hamburger
SV leikur heimaleiki sína á og heitir
nýi völlurinn AOL Arena. Hann er
eins og dæmigerður völlur í Eng-
landi, þar sem áhorfendasvæðin eru
rétt við útlínur knattspyrnuvallar-
ins. Eini gallinn við völlinn, sem tek-
ur 51.000 áhorfendur, er að lítið loft
leikur um grasflötinn, þannig að
grasið nær illa að festa rætur. Skipt
er um gras þrisvar á ári og er kostn-
aður við hverja skiptingu er um 10
millj. ísl. kr. Fyrir landsleik Þýska-
lands og Íslands var hluti af vell-
inum tekinn upp og nýtt torf sett.
Mikill leir er í undirlagi vallarins,
þannig að hann er ekki góður er
hann er blautur, eins og hann er nú
eftir miklar rigningar í Þýskalandi
að undanförnu.
Þjóðverjar hafa leikið sjö lands-
leiki í Hamborg með leiknum sögu-
lega á HM 1974, þegar Austur-
Þjóðverjar unnu Vestur-Þjóðverja,
1:0. Af þessum sjö leikjum hafa
Þjóðverjar unnið þrjá, tapað fjór-
um. Sigurleikirnir eru gegn Austur-
ríki 1981, 2:0, gegn Dönum 1987 –
Rudi Völler, landsliðsþjálfari
Þýskalands, skoraði sigurmarkið,
1:0, og gegn Grikklandi í september
2000, 2:0. Völler var leikmaður í síð-
ustu tveimur tapleikjum Þýskalands
í Hamborg – 2:1 fyrir Hollandi 1988
og gegn Ungverjum 1985, 1:0.
Pétur fann fyrir meiðslum í ökklaog stífnaði upp. Því miður er
hann úr leik,“ sagði Ásgeir. Her-
mann Hreiðarsson
og Rúnar Kristins-
son voru með á full-
um krafti á æfing-
unni.
Ásgeir sagði að það væri alltaf erf-
itt þegar leikmenn í landsliðshóp
væru smávægilega meiddir, eða þá
að koma aftur eftir að hafa verið
meiddir í langan tíma – eins og til
dæmis Hermann Hreiðarsson, sem
lék sinn síðasta leik á Laugardals-
vellinum 6. september – þá gegn
Þjóðverjum.
„Við munum fylgjast vel með öll-
um leikmönnum okkar á lokasprett-
inum, ræða við þá einslega og í hóp-
um. Það er hlutverk okkar Loga,
Sigurjóns Sigurðssonar læknis, Stef-
áns Stefánssonar sjúkraþjálfara og
Guðmundar Jónssonar liðsstjóra, að
undirbúa þá sem best fyrir átökin,
sem verða hörð.
Við höfum fylgst vel með þeim á
æfingum. Ef við skynjum að leik-
menn séu ekki tilbúnir á lokadegi
munum við hiklaust breyta til og fara
nýjar leiðir.
Það getur alltaf verið erfitt fyrir
leikmenn sem lítið hafa leikið, að ná
upp góðum stíganda. Íslenskir
landsliðsmenn hafa ekki mikið verið í
sviðsljósinu og um síðustu helgi var
Eiður Smári Guðjohnsen eini Íslend-
ingurinn sem lék í Englandi og
helgina þar á undan lék enginn með
liðum sínum. Leikmenn okkar í
Belgíu, Þýskalandi og Noregi hafa
verið inni og úti, þannig að við höfum
þurft að fylgjast vel með til að meta
ástandið.
Við Logi höfum unnið þannig að
við höfum sett upp leikmannagrind
tveimur vikum fyrir leik. Síðan höf-
um við vonast til að fá leikmennina
heila.
Við höfum stillt þýska liðinu upp,
eins og við reiknum með að það verði
gegn okkur. Við höfum raðað leik-
mönnum okkar upp, eins og við telj-
um að henti okkur best gagnvart
mótherjunum.
Það getur alltaf farið svo að við
þurfum jafnvel að gera breytingar
rétt fyrir leik. Það fer eftir því hvort
leikmenn okkar hafi losnað við
meiðsli, eða þá náð sér fullkomlega
góðum eftir meiðsli. Þá þurfum við
að gera breytingar og færa menn til.
Þessi vinna við að púsla saman liði
getur orðið strembin, ef við þurfum
að vinna hana nánast á síðustu
stundu fyrir hinn þýðingarmikla
landsleik, eins og nú er fyrir hönd-
um,“ sagði Ásgeir.
Verðum að leysa öll
mál fljótt og vel
Ásgeir segir að hann reikni fast-
lega með að Þjóðverjar komi til með
að byrja leikinn með miklum hraða
og sækja hratt. „Þeir eru ekki þekkt-
ir fyrir að vera með langar sendingar
fram völlinn, heldur láta þeir knött-
inn ganga hratt manna á milli. Við
verðum að vera tilbúnir því að Þjóð-
verjar færi lið sitt framarlega strax í
byrjun.
Þeir reyna eflaust að komast á
milli miðju og varnar hjá okkur með
Bernd Schneider, Michael Ballack
eða Oliver Neuville. Þá hef ég það á
tilfinningunni að þeir reyni að brjót-
ast hratt upp kantana, þar sem þeir
vita að við leikum með þrjá miðverði.
Við eigum að vera með svar við öll-
um aðgerðum þeirra og verðum að
vera mjög vakandi – verðum að leysa
öll mál fljótt og vel, án þess að bakka
með lið okkar inn fyrir vítateig. Við
gerum okkur grein fyrir að við þurf-
um jafnvel að leysa ýmis mál með
skipunum inn á völlinn og stöðu-
breytingum.
Ég og Logi ætlum að vera vel vak-
andi fyrir byrjun Þjóðverja og sjá
fljótt hvort Þjóðverjar geri einhverj-
ar breytingar á leikskipulagi sínu.
Ef Þjóðverjar detta inn á góðan
dag, þá geta þeir orðið afar hættu-
legir. Því miður, ef það gerist, þá
getum við lítið gert. Miroslav Klose
er alltaf hættulegur – frábær skalla-
maður, sem erfitt er að ráða við ef
hann kemst á ferðina. Það höfum við
séð.
Þetta verður hörð rimma, sem
verður vonandi spennandi og endar
vel,“ sagði Ásgeir.
Það er mikill áhugi fyrir leiknum í
Þýskalandi og uppselt á völlinn – yfir
fimmtíu þúsund áhorfendur verða
saman komnir á AOL Arena og millj-
ónir Þjóðverja horfa á leikinn í sjón-
varpi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hermann Hreiðarsson beitti sér af fullum krafti á æfingu landsliðsins og virtist ekkert vera því til fyrirstöðu að hann léki með ís-
lenska landsliðinu í dag. Hér ver Hermann fyrirgjöf, Arnar Viðarsson, Veigar Páll Gunnarsson og Ólafur Örn Bjarnason fylgjast með.
Þjóðverjar byrja ör-
ugglega með látum
„AÐALMÁLIÐ hjá okkur að ná upp rétta stígandanum áður en við
göngum til leiks í rimmuna gegn Þjóðverjum. Það verður ekki ljóst
fyrr en rétt fyrir leikinn hvaða leikmenn byrja inn á – hverjir eru best
upplagðir fyrir orrustuna,“ segir Ásgeir Sigurvinsson, en hann og
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar í knattspyrnu, ætla sér að nota
tímann vel fyrir leikinn gegn Þjóðverjum til að sjá út sterkustu liðs-
heildina – hvaða leikmenn eru best tilbúnir í slaginn. Það jók enn á
vangaveltur þeirra félaga í gær þegar Pétur Hafliði Marteinsson
meiddist á ökkla á æfingu og verður ekki með í leiknum.
Eftir
Sigmund Ó.
Steinarsson
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson ætla sér að nýta
tímann fram á síðustu stundu til að finna rétta stígandann
Endurbyggður völlur í Hamborg