Morgunblaðið - 11.10.2003, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
Í DAG rennur upp stóra stundin
hjá íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu þegar flautað verður til
leiks liðsins við Þjóðverja á AOL-
leikvanginum í Hamborg kl. 15
en um er ræða lokaleik þjóðanna
í undankeppni Evrópumótsins.
Úrslit leiksins skipta miklu máli
fyrir báðar þjóðir því þau geta
skorið úr um hvor þjóðin tryggir
sér keppnisrétt á Evrópumótinu
sem fram fer í Portúgal á næsta
sumri. Íslenska landsliðið hefur
aldrei komist nær því en nú að
vinna sér keppnisrétt á stórmóti í
knattspyrnu. Undirbúningur
liðsins hefur staðið yfir í Ham-
borg undanfarna daga og í gær
æfði liðið í tvígang auk þess sem
það fór yfir hernaðaráætlun sína
á fundum.
Meiðsli hafa sett strik í reikn-
inginn hjá landsliðsþjálfurunum
við undirbúninginn og í gær
gekk Pétur Hafliði Marteinsson
úr skaftinu er hann tognaði á
hægri ökkla. Góðu fréttirnar eru
þær að Hermann Hreiðarsson og
Rúnar Kristinsson hafa jafnað
sig á meiðslum og geta tekið þátt
í leiknum.
Á meðfylgjandi mynd eru Pét-
ur Hafliði, Bjarni Guðjónsson,
Þórður Guðjónsson og Brynjar
Björn Gunnarsson að berjast um
knöttinn á æfingu landsliðsins
síðdegis í gær en auk þeirra eru
Veigar Páll Gunnarsson og Birk-
ir Kristinsson við öllu búnir.
Stóra stundin rennur upp
Morgunblaðið/Einar Falur
Undirbúningi íslenska landsliðsins í Hamborg lokið
Þýskaland – Ísland/
52, 53, 55
ÞÝSKA útgáfufyrirtækið Bastai-Lübbe
hefur gert Arnaldi Indriðasyni rithöfundi
tilboð í allar bækur hans. Í tilboðinu felst að
forlagið vill gefa út þrjár
næstu bækur hans sem
enn eru óskrifaðar.
Á bókamessunni í
Frankfurt, sem nú
stendur yfir, var gengið
frá útgáfusamningi á
bók hans Mýrinni til
Japans, en það er tíunda
landið utan Íslands sem
gefur bókina út. Mýrin
var gefin út í byrjun árs
í Þýskalandi. Bókin hef-
ur þegar selst þar í um 110 þúsund eintök-
um sem þykir mikið fyrir fyrstu bók
óþekkts erlends höfundar. Pétur Már
Ólafsson, útgáfustjóri hjá Eddu, er staddur
á Bókamessunni og segir að í tilboði Bastai-
Lübbe felist útgáfa á næstu þremur bókum
Arnaldar þar í landi, en þegar höfðu náðst
samningar um kaup útgáfunnar á öllum áð-
ur útgefnum bókum hans. „Samningurinn
um útgáfu á bókum Arnaldar sem koma út
á næstu þremur árum er byggður á þeim
samningum sem hafa verið í gangi, en
Lübbe borgar mun meira fyrir Arnald nú
en áður. Það þýðir það að þeir ætla sér
greinilega að byggja hann mun betur upp í
Þýskalandi en þeir hafa þó þegar gert.“
Grafarþögn í mars
Grafarþögn kemur út hjá Lübbe í mars
og segir Pétur Már að fyrsta prentun á
henni verði 60 þúsund eintök. Röddin kem-
ur svo út innbundin næsta haust. „Þeir hafa
nú þegar sent sex þúsund kynningareintök
af Grafarþögn til bóksala í Þýskalandi til að
undirbúa jarðveginn, og hafa fengið mjög
jákvæð viðbrögð. Mér skilst að einhver
þessara eintaka séu nú komin á uppboð hjá
netuppboðsfyrirtækinu Ebay. Það sýnir
hvað áhuginn á Arnaldi er mikill. Það er bú-
ið að vera mjög skemmtilegt að fylgjast
með því hve vegur hans hefur aukist í
Þýskalandi undanfarna mánuði. Nú ætlar
Bastai-Lübbe greinilega að tryggja sér að
útgáfa á bókum hans í Þýskalandi fari ekk-
ert annað næstu árin.“
Pétur Már segist finna fyrir miklum
áhuga á íslenskum rithöfundum á Bóka-
messunni.
Bjóða í óskrif-
aðar bækur
Arnaldar
Arnaldur
Indriðason
VILHJÁLMUR Stefánsson landkönnuður
trúlofaði sig áður en hann fór í fyrsta leið-
angur sinn. Þetta hefur legið í þagnargildi
en kemur fram í bókinni
Frægð og firnindi, ævi
Vilhjálms Stefánssonar,
eftir Gísla Pálsson pró-
fessor, en bókin kom út í
gær.
Gísli Pálsson segir að
fyrir um ári hafi hann
rekist á einkabréf sem
hafi varpað nýju ljósi á
sögu Vilhjálms og tog-
streituna í lífi hans.
„Forvitnilegasta sagan er sú að Vilhjálm-
ur var trúlofaður ungri stúlku, Orphu Cecil
Smith, leiklistarnema í Boston, áður en
hann hélt á vettvang í ferðir sínar á norð-
urslóðir Kanada,“ segir Gísli og áætlar að
þau hafi trúlofast árið 1906. „Orpha Cecil og
Vilhjálmur héldu bréfasambandi af og til í
um 15 ár, eða nánast allan tímann sem leið-
angrar Vilhjálms stóðu yfir, og það má því
segja sem svo að þessi kærasta Vilhjálms
hafi verið með í ferðum.“
Ástamál flæktu
líf Vilhjálms
Stefánssonar
Orpha Cecil Smith
Eitt af helstu/6
HLJÓMSVEITIN Stuðmenn er
með nýja plötu í smíðum sem hún
hyggst senda frá sér um miðjan nóv-
ember en auk nýju plötunnar eru
fjórir núverandi hljómsveitarmeð-
limir að gefa út sólóplötu. Þá er einn
fyrrverandi meðlimur einnig að
senda frá sér plötu.
Þannig var Ásgeir Óskarsson
trommari að senda frá sér plötuna
Áfram, Egill Ólafsson söngvari gefur
út tvær plötur: Brot með tónlist úr
leikhúsinu og tangóplötu ásamt Le
Grand Tangó og Jakob Magnússon
hljómborðsleikari er að senda frá sér
píanóplötu. Þá er fyrrverandi stuð-
maðurinn Valgeir Guðjónsson einnig
að gefa út plötu ásamt Diddú.
Stuðmenn
með sex plöt-
ur fyrir jól
Ný tólf/59
Morgunblaðið/Sverrir
OPINBER heimsókn Adrienne Clarkson, land-
stjóra Kanada, hófst í gær og stendur fram í
miðja næstu viku en megináherslur heimsókn-
arinnar verða málefni norðurslóða og sam-
vinna ríkjanna í norðri, umhverfisvæn orka,
nýting sjávarauðlinda og sameiginlegur
menningararfur Íslands og Kanada.
Clarkson vék sérstaklega að sagnahefð Ís-
lendinga í ræðu í hátíðarkvöldverðarboði for-
seta Íslands í gærkvöldi: „Íslendingasögurnar
opna ykkur sýn á fortíðina. Fortíðin er ykkar
nútíð og það er öfundsvert fyrir allar þjóðir
sem kunna að meta menningu. Flestar þjóðir
glíma við að muna ekki almennilega hvað þær
gerðu í fortíðinni og geta því ekki dregið lær-
dóm af henni. Þið glímið ekki við slíkan
vanda,“ sagði landstjórinn.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
ræddi m.a. um hvern þátt Kanada átti við
sköpun íslensks nútímasamfélags: „Okkur Ís-
lendingum hefur verið tamt að líta fyrst og
fremst til Norðurlanda þegar við metum
frændsemi og söguleg bönd en samt er Kan-
ada að sumu leyti okkur nákomnara, einkum
við sköpun þess nútímasamfélags sem við höf-
um eignast, ógerningur er að rita sögu Íslands
á fyrri hluta síðustu aldar án þess að hlutur
Vestur-Íslendinga verði þar gildur, jafnt í
menningu sem atvinnulífi,“ sagði forsetinn.
„Fortíðin er ykkar nútíð“
Clarkson/4
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
tvítugan mann í gær, grunaðan um að
hafa nauðgað sautján ára gamalli
stúlku úti við í Víðidal í fyrrinótt.
Íbúar í nærliggjandi húsum heyrðu
neyðaróp stúlkunnar um kl. 3.30 og
létu lögregluna vita. Stúlkan var flutt
á neyðarmóttöku fyrir þolendur kyn-
ferðisofbeldis og leit strax hafin að
manninum. Hún bar árangur í gær og
viðurkenndi hann við yfirheyrslur að
hafa nauðgað stúlkunni.
Talið er að stúlkan og maðurinn
hafi kynnst í gegnum spjallrásir á
Netinu, en þar fyrir utan þekktust
þau ekkert. Þau munu hafa hist á
fimmtudagskvöld og farið saman í bíl
upp í Víðidal, þar sem stúlkunni var
nauðgað og hún síðan yfirgefin.
Þegar lögreglan kom á staðinn gat
stúlkan takmarkaðar lýsingar gefið á
bílnum sem maðurinn var á. Lögregl-
an hafði samt uppi á manninum og
handtók hann eins og fyrr gat. Ekki
fæst uppgefið hvort hann hefur komið
við sögu lögreglunnar áður.
Nauðgað
eftir kynni
á Netinu