Morgunblaðið - 26.10.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
OLÍURISI HANDTEKINN
Rússnesk yfirvöld létu í gær
handtaka Míkhaíl Khodorovskí, for-
stjóra Yukos-olíurisans, en saksókn-
arar hafa um langt skeið rannsakað
Yukos á grundvelli grunsemda um
skattsvik og þjófnað á eigum rík-
isins. Margir telja þó að handtakan
sé liður í pólitískri herferð gegn
Yukos.
Vændi meðal ungs fólks
Samkvæmt nýrri rannsókn Bryn-
dísar Bjarkar Ásgeirsdóttur hjá
Rannsóknum & greiningu birtist
vændi meðal ungs fólks í ýmsum
myndum. Bæði stelpur og strákar
skipta þannig á kynmökum fyrir t.d.
vímuefni, mat, gistingu eða peninga.
Um er að ræða skipulegt og óskipu-
legt vændi.
N-Kóreumenn mildast
Norður-Kóreumenn hafa mildað
afstöðu sína í deilunni við Banda-
ríkjamenn um kjarnorkuáætlanir
stjórnvalda í Pyongyang. Þeir segj-
ast nú reiðubúnir að íhuga tilboð
Bandaríkjamanna um að ef þeir
leggi áætlanir sínar til hliðar séu
Bandaríkin tilbúin að gefa út skrif-
leg fyrirheit um að ekki standi til að
efna til hernaðar gegn N-Kóreu.
Rannsókn tilkynnt formlega
Ríkissaksóknari hefur tilkynnt
Samkeppnisstofnun með formlegum
hætti að lögreglurannsókn sé hafin á
meintum brotum olíufélaga og
starfsmanna þeirra á samkeppn-
islögum. Bogi Nilsson ríkissaksókn-
ari telur að Samkeppnisstofnun
verði eftir þetta að taka tillit til
hagsmuna lögreglurannsókn-
arinnar.
Lækkun á fargjöldum
Flugleiðir eru að taka upp nýtt
fargjaldakerfi og býður m.a. allt að
38% lækkun á viðskiptafargjöldum.
Að sögn upplýsingafulltrúa Flug-
leiða, Guðjóns Arngrímssonar, er
lækkunin til frambúðar. Boðnir
verða þrír verðflokkar, tveir í Evr-
ópu og einn í Bandaríkjunum.
Sunnudagur
26. október 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 9.196 Innlit 17.265 Flettingar 70.460 Heimild: Samræmd vefmæling
Bíldshöfða 16 - 110 Rvík - Sími 550 4600 - Fax 550 4610
Netfang: vinnueftirlit@ver.is - Heimasíða: www.vinnueftirlit.is
Vinnueftirlit ríkisins starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustað nr. 46/1980. Markmið stofnunarinnar
er að stuðla að fækkun slysa, atvinnutengdra sjúkdóma og góðri
líðan starfsmanna á vinnustað.
Lögfræðingur
Laust er til umsóknar starf lögfræðings hjá
Vinnueftirlitinu. Starfshlutfall 100%.
Starfið felur í sér eftirfarandi:
Undirbúning reglna og reglugerða skv. lög-
um nr. 46/1980.
Ýmis lögfræðileg úrlausnarefni er varða
framkvæmd laga og reglna á verksviði
Vinnueftirlitsins.
Umfjöllun um EES reglur á undirbúnings-
stigi.
Samskipti við eftirlitsstofnun EFTA og fleiri
alþjóðastofnanir.
Æskilegt er að umsækjandi hafi sérmenntun
og/eða reynslu á sviði vinnuréttar og einnig
sérmenntun og/eða reynslu á sviði Evrópurétt-
ar. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja
um starfið.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknum, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, skal skila til Vinnu-
eftirlitsins, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík, fyrir
15. nóvember 2003. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Ekki eru notuð umsóknareyðublöð.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyjólfur
Sæmundsson, forstjóri, í síma 550 4600.
Lögfræðingur óskast
Jafnréttisstofa óskar að ráða til sín lögfræðing
í hálft starf frá og með næstu áramótum
eða skv. samkomulagi.
Í starfinu felst m.a. eftirlit með framkvæmd
laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla og leiðbeiningar og ráðgjöf
til einstaklinga, stofnana og fyrirtækja.
Umsækjendur skulu hafa grundvallarþekkingu
á jafnréttismálum kvenna og karla, búa yfir
tölvufærni og góðri þekkingu á ensku og Norð-
urlandamáli. Starfið krefst lipurðar í samskipt-
um og sjálfstæðra vinnubragða.
Nánari upplýsingar veitir Margrét María
Sigurðardóttir á Jafnréttisstofu í síma 460 6200
eða 862 0414. Upplýsingar um Jafnréttisstofu
er einnig að finna á heimasíðu stofunnar:
www.jafnretti.is
Laun greiðast samkvæmt samningi fjármála-
ráðuneytis og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist til Jafnréttisstofu,
Hvannavöllum 14, 600, Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 17. nóvember nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Sunnudagur
26. október 2003
Barði
engumháður
Ljósmynd/Bernard Benant
Sumum þykir Barði Jóhannsson
sérvitur, en enginn frýr honum
hæfileika. Árni Matthíasson
ræddi við Barða um tón-
listarferil hans sem er um
margt óvenjulegur. 2
Masca „Þorpið liggur í djúpum dal sem er umkringdur þverhníptum klettabeltum“ / 10
Foringi og fræðimaður
Sjálfstæðishetjan Jón Sigurðsson
Philippe
Girardon
galdrar fram
ljúfa rétti á
Holtinu.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Yf ir l i t
Í dag
Skissa 6 Myndasögur 42
Sigmund 8 Bréf 42/43
Listir 23/27 Hugvekja 43
Af listum 28 Dagbók 44/45
Forystugrein 32 Krossgáta 46
Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 48
Skoðun 30/35 Fólk 48/53
Þjónusta 37 Bíó 50/53
Kirkjustarf 37 Sjónvarp 54/55
Minningar 38/41 Veður 55
* * *
MÓTSSTJÓRN Íslandsmóts skák-
félaga, Flugfélagsmótsins, úrskurð-
aði í gærmorgun að a-sveit Hróks-
ins hefði verið ólögleg í fyrstu
umferð, Faruk Tairi var úrskurð-
aður ólöglegur og skák hans dæmd
töpuð.
Hrókurinn tefldi fram fimm er-
lendum ríkisborgurum í átta
manna sveit sinni gegn Taflfélagi
Vestmannaeyja, en samkvæmt lög-
um mótsins skal að minnsta kosti
helmingur liðsmanna sveita vera ís-
lenskir ríkisborgarar eða hafa haft
lögheimili sitt á Íslandi undanfarið
ár. Mótsstjórnin úrskurðaði að
fimmti erlendi ríkisborgarinn í a-
sveit hróksins, talið frá fyrsta
borði, væri ólöglegur.
Hrafn Jökulsson, forseti Hróks-
ins, segir að þessu máli sé ekki lok-
ið. „Hér hefur verið unnið mikið
óhappaverk og nú kallar hin gamla
skákhreyfing yfir sig mjög alvar-
legar umræður um allt sem lýtur að
þeirra sjónarmiðum og vinnu-
brögðum á síðustu árum.“
Forseti Hróksins segir að það sé
miður hvernig umræðan hafi
þróast en úr því sem komið sé verði
Hrókurinn að taka þátt í henni og
minna á kjörorð alþjóðahreyfing-
arinnar, Við erum ein fjölskylda.
„Nú hefur einn úr fjölskyldunni
verið tekinn og honum úthýst og
það munum við félagar hans að
sjálfsögðu ekki líða,“ segir Hrafn.
„Ég minni á að þessir erlendu skák-
meistarar okkar hafa gert meira
fyrir íslenskt skáklíf en að minnsta
kosti samanlögð stjórn Skák-
sambandsins síðustu fimm árin og
við neyðumst til að hefja umræður
um störf Skáksambandins á und-
anförnum árum.“
Skákmaður Hróksins ólöglegur
Morgunblaðið/Ómar
Milli 300 og 400 skákmenn á öllum aldri keppa á Íslandsmóti skákfélaga, Flugfélagsmótinu, sem Þórdís Björk Sig-
urbjörnsdóttir frá Flugfélagi Íslands setti á föstudagskvöld. Hér er F-sveit Hróksins að etja kappi við H-sveit Tafl-
félags Reykjavíkur. Fremst eru þau Júlía Rós Hafþórsdóttir og Smári Eggertsson að tafli.
FYRIRHUGAÐ er að hefja fram-
kvæmdir við tvöföldun Vesturlands-
vegar, frá Víkurvegi í Reykjavík að
Skarhólabraut í Mosfellsbæ, á
næsta ári. Skipulagsstofnun hefur
tekið til athugunar umhverfisáhrifin
af þessum framkvæmdum. Sam-
kvæmt samþykktri vegaáætlun
verður 100 milljónum króna veitt í
verkefnið í ár, 300 milljónum á
næsta ári og 100 milljónum króna
árið 2005.
Ennþá er verið að hanna end-
anlegt útlit á veginum eftir að hann
hefur verið breikkaður. Allur kostn-
aður liggur ekki enn fyrir. Sam-
kvæmt upplýsingum Vegagerðar-
innar er markmið framkvæmdanna
að lækka slysatíðni á þessum veg-
kafla og greiða fyrir umferð.
Vegurinn mun að mestu liggja í
núverandi veglínu yfir Úlfarsá. Þar
verður vegurinn færður fjær ánni á
tæplega 2 km vegkafla. Þá fer hann
aftur sömu línu og núverandi Vest-
urlandsvegur, í boga meðfram hlíð-
um Úlfarsfells að Skarhólabraut.
Byggð verða tvenn ný gatnamót
á þessum vegkafla með tvöföldu
hringtorgi. Annað verður í Mos-
fellsbæ undir hlíðum Úlfarsfells,
þar sem Korpúlfsstaðavegur mun
tengjast inn á Vesturlandsveg. Hitt
er í Reykjavík og mun tryggja að-
komu að þeirri starfsemi sem nú er
við Vesturlandsveginn og tengingu
við núverandi Hafravatnsveg. Eru
hringtorgin hugsuð sem bráða-
birgðagatnamót þar til mislæg
gatnamót verða reist. Þau eru á
samgönguáætlun á tímabilinu 2007
til 2014.
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar fara um 17 þúsund
bílar á dag um Vesturlandsveg.
Umferðarspár gera ráð fyrir að um-
ferðin aukist í um 37 til 43 þúsund
bíla árið 2024. Segir að núverandi
vegur anni núverandi umferð illa og
tvöföldun hans auki umferðarrýmd
verulega. Um veginn geti farið vel
yfir 50 þúsund bíla á dag eftir gerð
mislægra gatnamóta.
Úlfarsá í nýjan farveg
Búa þarf til nýjan farveg Úlfars-
ár á kafla við nýju brýrnar. Veiði-
málastofnun sér um að hanna þenn-
an nýja árfarveg í samvinnu við
brúahönnuði til að tryggja að þar
skapist góð uppeldisskilyrði og
hrygningarsvæði laxa. Fram-
kvæmdirnar verða tímasettar með
það í huga að ekki verði neinu
breytt á ánni á göngu- og hrygning-
artíma. Þá verður lögð áhersla á að
framkvæmdirnar trufli ekki veiði-
menn.
Tillaga um þessa framkvæmd
liggur fyrir til kynningar til 5. des-
ember nk. Allir hafa rétt til að
leggja fram athugasemdir fyrir
þann tíma og skulu þær berast
skriflega.
Tvöfaldur Vesturlands-
vegur í umhverfismat
DÆLINGU er lokið á kísilgúr úr
Mývatni þetta árið.
Dæluprammi og leiðslur hafa
verið dregin á land til vetr-
argeymslu. Hér standa við ranann
sem sker og sýgur gúrinn af botn-
inum þeir Axel Stefánsson og
Magnús Ómar Stefánsson. Þeir eru
að ganga frá dælubúnaðinum í
haustblíðunni.
Morgunblaðið/BFH
Dælingu lokið í ár