Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 45 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbörn dagsins: Þú ert gædd/ur skynsemi, ábyrgðartilfinningu og löng- un til að bæta heiminn. Það verða mikilvægar breyt- ingar í lífi þínu á komandi ári. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú átt einstaklega auðvelt með að finna raunhæfar lausnir á þeim vandamálum sem upp koma. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þetta er rétti tíminn til að setjast niður og gera lang- tímaáætlanir. Þú verður þó að taka tillit til þeirra miklu breytinga sem eru að verða í lífi þínu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það sem þú kaupir í dag mun sennilega endast í langan tíma. Þú verslar af skynsemi og hagsýni. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Dagurinn hentar vel til að gefa þeim sem yngri eru góð ráð. Bentu þeim á að flestar gerðir okkar hafa mestar afleiðingar fyrir okkur sjálf. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nú er rétti tíminn til að taka ákvarðanir um bú- ferlaflutninga og annað sem tengist fjölskyldunni. Þú setur hagkvæmni ofar útliti og ánægju. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það ber vott um visku að hlusta á ráðleggingar þeirra sem eru reyndari en við. Það er kjánalegt að þykjast kunna það sem maður kann ekki. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að endurskoða stefnu þína í lífinu og það hvernig þú getur nýtt eigur þínar til að ná takmarki þínu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ættir að gera alvöru úr hugmyndum þínum um ferðalög, framhalds- menntun eða búferlaflutn- inga. Næstu fjögur til fimm ára verða þér mjög hag- stæð. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þetta er góður dagur til rannsókna þar sem þú hef- ur áhuga á því óþekkta og það er líklegt að þú komist að einhverju óvæntu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það getur oft verið erfiðara að ákveða hlutina en fram- kvæma þá. Segðu vinum þínum frá hugmyndum þín- um og kannaðu viðbrögð þeirra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur notið mikillar við- urkenningar að undanförnu. Njóttu þess en gleymdu þó ekki að það liggur mikil vinna að baki velgengni þinni. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur lengi fundið fyrir eirðarleysi og löngun til að breyta til. Kannaðu mögu- leika þína en gættu þess þó að gera ekkert í fljótfærni. LEGGÐU ÞIG Á LÁÐIÐ Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina. Horfðu á jörð og himinsfar, hafsins firna díki. Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki. Við þá skoðun vinur minn, verður lyndið hægra, og daginn þann mun drambsemin duftinu hreykja lægra. Sigurður Breiðfjörð LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 13. september sl. í Háteigskirkju af sr. Tómasi Sveinssyni þau Rattana H. Knudsen og Knútur E. Knudsen. Heimili þeirra er í Hraunbæ 174, Reykjavík. Með þeim á myndinni eru Hrafn og Donni. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. júlí sl. í Digra- neskirkju af sr. Sigfinni Þorleifssyni þau Jóhanna Kristófersdóttir og Pálmi Vilhjálmsson. Heimili þeirra er í Furugrund 18. ÍTALIR unnu Svía á sann- færandi hátt í 48 spila úr- slitaleik um Evrópubikar bridsklúbba, sem fram fór í Róm fyrir stuttu. Nið- urstaðan var svolítið dap- urleg fyrir sænska liðið, því það hafði valtað yfir Ítalina í undankeppninni þegar úr- slitin skiptu engu máli, þar sem báðar þjóðir höfðu unn- ið sér rétt til áframhaldandi þátttöku. Spilið að neðan er úr hinni fyrri viðureign lið- anna: Norður gefur; NS á hættu. Norður ♠ D97 ♥ D84 ♦ 1092 ♣ÁD86 Vestur Austur ♠ Á43 ♠ K5 ♥ G5 ♥ 109632 ♦ G7654 ♦ ÁD ♣753 ♣G1094 Suður ♠ G10862 ♥ ÁK7 ♦ K83 ♣K2 Opinn salur: Vestur Norður Austur Suður Angelini Bertheau Sementa Nyström – Pass Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu * Pass 2 grönd Pass 3 lauf Pass 3 tíglar Pass 3 grönd Allir pass Lokaður salur: Vestur Norður Austur Suður Sylvan Lauria Sundelin Versace – Pass Pass 1 spaði Pass 2 spaðar Allir pass Lauria og Versace spiluðu spaðabút og fengu níu slagi. Vestur hitti á eina útspilið til að bana fjórum spöðum – hjartagosa. Vörn- in hélt áfram með hjarta og byggði upp fjórða slaginn á stungu. Á hinu borðinu enduðu Bertheau og Nyström í þremur gröndum. Svar norðurs á tveimur hjörtum sýndi 8–11 punkta og stuðn- ing við spaðann og það dugði Nyström til að reyna við geim. Vestur kom út með tígul og Sementa í aust- ur tók á ásinn og spilaði drottningunni, eins og flest- ir hefðu gert. Nyström dúkkaði og kæfði þannig í fæðingu tilraun varnarinnar til að fríspila tígulinn. Aust- ur skipti yfir í hjarta og þá hafði Nyström nægan tíma til að sprengja spaðann og tryggja sér níu slagi. Í mótsblaðinu er talað um það sem „mistök“ hjá Sem- enta að setja ekki tígul- drottninguna í fyrsta slag. Vissulega hefði það verið hrein snilld, því suður gæti ekki dúkkað í þeirri stöðu, en mistök eru það varla. Þá eru kröfurnar orðnar ofur- mannlegar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 d5 2. Rf3 c5 3. dxc5 Rc6 4. e4 d4 5. c3 e5 6. Bb5 Bxc5 7. Rxe5 Rge7. Staðan kom upp í kvenna- flokki Evrópukeppni tafl- félaga sem lauk fyrir skömmu á Krít. Nana Dzag- nidze (2.452) hafði hvítt gegn Almiru Skripc- henko (2.460). 8. Rxf7! Þessa snotra fórn legg- ur svörtu stöðuna í rúst þar eð eftir 8. – Kxf7 9. Dh5+ vinnur hvítur manninn aftur með dágóðum vöxtum. Svartur reyndi þess í stað 8. – Db6 en varð að láta í minni pokann nokkru síðar. 9. Bxc6+ bxc6 10. Rxh8 dxc3 11. 0-0 cxb2 12. Bxb2 Dxb2 13. Dh5+ g6 14. Dxc5 Dxa1 15. Rc3 Db2 16. Dc4 Bg4 17. Rf7 Bh5 18. g4 Dd2 19. Hd1 Df4 20. Rd6+ Kd7 21. gxh5 gxh5 22. Rf5+ Rd5 23. Hxd5+ cxd5 24. Dxd5+ Kc7 25. Dxa8 og svartur gafst upp. 4. umferð Íslandsmóts skákfélaga hefst kl. 10 í MH í dag. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. YOGA •YOGA • YOGA YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, sími 588 5711 og 694 6103 www.yogaheilsa.is Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla. Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar. Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið 31. október og laugardaginn 1. nóvember í kórkjallara Hallgrímskirkju. Nánari upplýsingar og skráning í síma 553 8800. Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið Meðvirkni Stefán Jóhannsson, MA, fjölskylduráðgjafi Hverafold 1-3 • Torgið • Grafarvogi • Sími 577 4949 Opnunartími: Frá kl. 11-18 mánud.-föstud. og frá kl. 12-16 laugard. Leggjum metnað í glæsileika Full búð af nýjum vörum fyrir konur á öllum aldri í öllum stærðum Komið og njótið þjónustunnar Torginu, Grafarvogi Jólaskreytingar í sveitasælunni Eins dags námskeið sunnudaginn 2. nóvember frá kl. 10.00 - 18.00. Kennt verður: Aðventukransar, skreytingar og hurðakransar og annað eftir óskum. Sérnámskeið fyrir vinnustaði, saumaklúbba og hópa Skráning í s. 555 3932 Sæunn og 897 1876 Uffe. Uffe Balslev, blómaskreytir, Hvassahrauni. Farsæl leið til árangurs Leyfðu ljósi þínu að skína Guðbjörg Sveinsdóttir, fræðslu-miðill Fyrirlestur 28. október kl. 20.30 á Reykjavíkurvegi 64, 2. hæð (í miðju húsinu í sal Hlífar) Hafnarfirði. Allir velkomnir Aðgangseyrir kr. 1000 Ljósmynd/Halldór KolbeinssonSvipmyndir/Fríður MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 9. maí sl. í Akureyr- arkirkju af sr. Svavari A. Jónssyni þau Kolbrún Geirsdóttir og Guðmundur Sigurðsson. Þau eru til heimilis að Fellsmúla 7, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.