Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#
$
%
&
'
( '
)
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDIRRITAÐUR hefur í mörg
ár leitað ljósmynda af norska
skáldinu Nordahl Grieg og skó-
sveini hans, Knut Johannes Aspe-
lund, sem nokkur íslensk ung-
menni tóku sumarið 1942 í og við
sumarbústað í nágrenni Akureyr-
ar. Hingað til hefur þessi leit ekki
borið árangur og þess vegna leita
ég nú til lesenda Morgunblaðsins
eftir hjálp.
Vinur minn, Knut J. Aspelund,
sem nú er látinn, var hermaður í
norska herfylkinu sem sent var til
Íslands sumarið 1940. Hann var 23
ára gamall þegar hann kom til
Reykjavíkur 25. júní 1940. Mestan
hluta stríðsáranna var Aspelund
hins vegar á Jan Meyen. En í eitt
skiptið sem hann dvaldi á Íslandi, í
júní 1942, bjó hann í herbúðum í
nágrenni Akureyrar. Þar fékk
hann dag einn skipun um að vera
skósveinn skáldsins Nordahl Grieg
sem dvaldist löngum á Íslandi á
þessum tíma. Áttu þeir Grieg og
Aspelund, að hans sögn, að halda
til í frekar stórum sumarbústað í
nágrenni herbúðanna, en eigandi
bústaðarins var frá Reykjavík.
Dag nokkurn komu fimm íslensk
ungmenni að bústaðnum þar sem
þau ætluðu að búa í fríi sínu. Þar
sem hann var upptekinn slógu þau
upp tjaldbúðum í nágrenninu.
Sagði Aspelund mér að unga fólkið
hefði í fyrstu verið svolítið ergilegt
við „hústökumennina“, en þegar
hann hafi sagt þeim að það væri
norska skáldið Nordahl Grieg sem
byggi í bústaðnum vildi það endi-
lega fá að heilsa upp á hann. Grieg
bað skósveininn sinn, Aspelund, að
bjóða unga fólkinu í kaffi og með-
læti og þarna áttu þau saman góða
stund. Og á báða bóga voru marg-
ar myndir teknar. Eftir nokkra
stund bað Grieg gestina um að
hafa hann afsakaðan og settist
hann við skrifborðið sitt á annarri
hæð bústaðarins. Hann sagðist
störfum hlaðinn og bað Aspelund
um að annast gestina. Áður en
unga fólkið yfirgaf bústaðinn bauð
það Grieg og Aspelund að heim-
sækja sig seinna í tjaldbúðirnar.
En einungis Aspelund hafði tíma
til þess og upplifði hann ánægju-
lega kvöldstund og fagra sumar-
nótt með unga fólkinu.
Rúmlega einu ári áður en Aspe-
lund andaðist (2001) bað hann mig
um að reyna að hafa upp á þessu
fólki í von um að það ætti kannski
ennþá myndirnar af honum og
Grieg og reyna að fá afrit af þeim.
Unga fólkið var allt um tvítugt en
Aspelund var 25 ára. Honum hafði
verið lofað að hann fengi kópíur af
myndunum en þar sem hann var á
sífelldu flakki þegar hann var á Ís-
landi og dvaldi síðan langdvölum á
Jan Meyen til sumarsins 1945,
reyndist honum ómögulegt að við-
halda sambandinu við fólkið.
Myndirnar sem hann sjálfur tók
glötuðust einnig af sömu ástæðum.
Áður en leiðir skildi gaf unga
fólkið honum myndir af Reykjavík.
Á bakhliðina hafði það skrifað
nöfnin sín: Hjördís Guðmundsdótt-
ir, Guðrún Guðmundsdóttir, Gunn-
ar Jóhannesson, Hjálmar Guð-
mundsson og Hulda
Guðmundsdóttir.
Er einhver lesandi sem þarna
þekkir sjálfan sig eða eitthvert
þessara nafna?
Ég væri ákaflega þakklátur ef
einhver gæti hjálpað mér að hafa
upp á þessum ljósmyndum. Minn
gamli vinur og nágranni, Knut, er
genginn sinn veg, en eiginkona
hans er á lífi og hefur mikinn
áhuga á að leit mín beri árangur.
Og ég lofaði Knut að ég skyldi
leita þar til öll von um að finna
myndirnar væri úti.
Nordahl Grieg fórst eins og
kunnugt er þegar sprengjuflugvél
bandamanna sem hann var í var
skotin niður yfir Berlín aðfaranótt
3. desember 1943. Aspelund var þá
á Jan Meyen og var sá fyrsti sem
fékk fregnir af andláti Griegs. Þeir
urðu góðir vinir í kjölfar samver-
unnar í bústaðnum og höfðu sam-
mælst um að hittast á eyju í Norð-
ur-Troms að stríðinu loknu. Meðal
annars þess vegna var Aspelund
svo umhugað um að fá umræddar
myndir.
Ég hef skrifað fólki sem ég
kynntist þegar ég dvaldi á Íslandi
í hálfan mánuð fyrir 15 árum en
því miður hef ég ekki fengið svar
frá því. Þá hef ég verið í sambandi
við norska sendiráðið og skrifað
Norðmanni sem hefur verið bú-
settur á Íslandi síðan 1945. Og ég
hef reynt að finna aðila til að fjár-
magna að hluta til leitarferð til Ís-
lands en það hefur ekki tekist. Það
er því spurning hvort lesendur
Morgunblaðsins séu síðasta vonin?
TORLEIF LYNGSTAD,
Kåfjorddalsvn. 35,
N-9147 BIRTAVARRE,
NORGE.
Myndir af
Nordahl Grieg og
Knut J. Aspelund
á Íslandi 1942
Frá Torleif Lyngstad
torleif.lyngstad@c2i.net