Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson Útfararstjóri Sími 5679110, 8938638 Heimasíða okkar er www.utfarir.is Þar eru upplýsingar um allt er lýtur að útför: - Söngfólk og kórar - Erfidrykkja - Aðstoð við skrif minningargreina - Panta kross og frágang á leiði Nú er ég kveð þig, elsku tengdapabbi, koma ótal minningar upp í hugann frá því ég kom fyrst í heimsókn á Hofsvallagöt- una. Hvað mér var strax vel tekið eins og ég hefði alltaf verið í fjöl- skyldunni. Þið voruð svo ánægð er við Sverrir giftum okkur og ég tala ekki um þegar nafni þinn kom í heiminn, þú vildir alltaf vera með hann og ekki síður er dóttir okkar fæddist þá voruð þið svo ánægð. Þið Stína voruð mjög samrýnd hjón og fóruð í sund á hverjum morgni í Vesturbæjarlauginni. Fengu börnin okkar tvö að njóta þess er þau voru lítil að fara í sund með ömmu og afa. Tóku þau saman þátt í félagsstarfi aldraðra og höfðu gaman af að dansa og fara í ferðalög. Alltaf svo hress og við góða heilsu. Hannes fór oft til Eyja og fór svona einn túr á ári með Sverri Gunnlaugssyni, skipstjóra úr Eyj- um, meðal annars á Bergey og Jóni Vídalín. Síðasta ferð Hannesar til Vestmannaeyja var farin fyrir um hálfum mánuði. Hann tók þátt í mörgum sjóstangaveiðimótum og var hann gerður að heiðursfélaga í félaginu í Eyjum fyrir nokkrum ár- HANNES TÓMASSON ✝ Hannes GuðjónTómasson fædd- ist á Miðhúsum í Vestmannaeyjum 17. júní 1913. Hann lést á Elliheimilinu Grund við Hring- braut hinn 14. októ- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Neskirkju 24. október. um. Fór á skak með Jó- hannesi bróður sínum á Hannesi lóðs, trillu sem skírð er í höfuðið á móðurafa þeirra. Það má segja að orkan í Hannesi hafi verið engu lík. Í sumar héldum við upp á 90 ára afmælið þitt og varst þú svo glaður og ánægður hvað margir komu til að vera með á þessum merka degi. Ég veit að þú ert ánægður að vera kom- inn til Stínu þinnar sem þú saknaðir svo mikið, kannski er það dæmi um hvað samrýnd hjón þið voruð, að þú ert að kveðja þennan heim svo stuttu eftir að Stína þín dó, ekki nema rúmt ár síðan. Vil ég þakka þér allar góðu stundirnar er ég átti með þér, þú varst góður og höfðinglegur maður. Guð veri með þér, far þú í friði. Kveðja. Þín tengdadóttir, Helga Vallý Björgvinsdóttir. Elsku afi, aftur er ég sest hér við tölvuna og hugsa til baka. Minning- arnar streyma og ég brosi út í annað þegar ég hugsa til stundanna sem við áttum saman. Öll jól frá því ég man eftir mér sagðirðu sögur frá þínum yngri árum og var amma vön að draga heldur úr þegar þú varst far- inn að færa í stílinn. Þú kunnir svo vel að segja frá á áhugaverðan hátt. Lífsgleði, orka og kunningjafjöld einkenndu þig. Á ótrúlegustu stöð- um hef ég hitt fyrir fólk sem þekkti þig eða kannaðist við þig og minnt- ust allir á hversu lifandi karakter þú hefðir verið. Það tók á þegar amma fór svo skyndilega fyrir rúmu ári og fundum við það öll að þetta breytti ýmsu fyr- ir þig. Það er ekki auðvelt að missa svo mikilvægan part úr lífi sínu og þá sérstaklega eftir að hafa átt svo langt líf saman. Þið voruð bæði sér- staklega dugleg við að fara í sund- laugina á morgnana og hefur það án efa hjálpað ykkur að halda heilsunni allt fram á seinasta dag. Afi minn, það eru ekki margir sem geta státað af því að hafa haldið bílprófi og sjón fram á seinasta dag og þá orðinn 90 ára. Ég er afar þakklát fyrir okkar seinasta fund þegar við gæddum okkur á lundanum sem þú komst með úr Eyjum. Enn og aftur sátum við kringum borðstofuborðið og þú sagðir skemmtilegar sögur en í þetta skipti frá elliheimilinu. Það er svo skrýtið hvernig maður stundum fær á tilfinninguna eitthvað sem koma skal. Þetta tiltekna lunda- veislukvöld sat það svolítið í mér hversu ólmur þú varst að láta taka myndir af okkur saman áður en ég færi heim. Nokkrum dögum síðar var ég stödd erlendis og í lok vinnu- dags sé ég að það eru 15 ósvöruð símtöl á farsímanum. Ég vissi strax að það var eitthvað sem ég helst ekki vildi heyra og þegar mér var sagt að þú værir orðinn veikur fann ég að þú mundir ekki liggja svoleiðis lengi því þú vildir flýta þér til ömmu. Það stóðst og þú kvaddir strax sama dag. Í hvert skipti sem við hittumst eft- ir að amma var farin, fann ég alltaf fyrir einhvers konar tómleika sem lesa mátti úr andliti þínu. Það var eitthvað sem vantaði! Elsku afi og amma, núna eruð þið komin á sama stað aftur og getið fyllt í eyður hvort annars. Það er skrýtin tilfinning að sakna einhvers sem er látinn og á sama tíma vera hamingju- söm fyrir hans hönd því ég veit að ykkur líður betur saman núna en sínu í hvoru lagi. Við sem eftir sitjum eigum góðar minningar sem ylja okkur í hjarta- stað. Kysstu ömmu frá mér. Kveðja. Sigurlaug. Látin er mæt vin- kona, Elín Árnadóttir, Ásavegi 5 í Vestmannaeyjum, löngum kennd við Skálholt. Við Elín ólumst báðar upp í Vest- mannaeyjum. Ljúfar minningar æsku- og unglingsáranna hrannast upp þegar litið er til baka á lífsferl- inum og komið er að kveðjustund. Leiðir okkar lágu saman þegar við gerðumst félagar í Skátafélaginu Faxa, sem var mjög líflegur og upp- byggjandi félagsskapur fyrir ung- linga þeirra ára en þar sungum við saman við gítarundirleik, ásamt öðr- um góðum vinkonum á fé- lagsskemmtunum og við varðelda í skátaútilegum. Einnig störfuðum við saman í verslun Önnu Gunnlaugsson sem þá var ein aðal vefnaðarvöru- verslunin í Eyjum með ótrúlegu vöru- úrvali eftirstríðsáranna, þegar lítið fékkst annars staðar, en þar var Elín góður leiðbeinandi fyrir byrjanda eins og mig. Börn Árna Sigfússonar og Ólavíu í Skálholti í Vestmannaeyjum voru mjög músíkölsk. Gaman var að koma á heimilið í Skálholti og heyra Ranný, systur Elínar, syngja og spila á org- elið og fá að taka undir með systr- ELÍN ÁRNADÓTTIR ✝ Elín Árnadóttirfæddist í Vest- mannaeyjum 18. sept- ember 1927. Hún andaðist á Heilbrigð- isstofnun Vestmanna- eyja að kvöldi þriðju- dagsins 7. október síðastliðins og var út- för hennar gerð frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 18. október. unum og síðar að fá að syngja í kvartett með Guðna, bróður þeirra, sem gat leikið hvað sem var á gítarinn sinn og raddsett sjálfur lögin sem við lærðum nótna- laust og sungum svo með hans undirleik á ýmsum félagsskemmt- unum. Í þeim kvartett naut falleg altrödd El- ínar sín vel. Nokkrar vinkonur og Eyjastelp- ur hafa haldið hópinn í saumaklúbbi gegnum árin og lengst af eftir gos var Elín þar með okkur eða þar til þau fluttu aftur til Vestmannaeyja. Við sáum mjög eftir henni þá en nú er hún treguð af okkur öllum og hennar sárt saknað. Elín skrifar í afmælisdagabók sem hún færði mér 1945: Þessi bók á að verða minjagripur um okkar skemmti- legu samverustundir síðan við kynnt- umst. Það er ekki víst að við eigum allt- af eftir að vera hér í Eyjum en í hvert sinn sem þú opnar bókina á hún að minna á eitthvað af okkar mörgu skemmtilegu atvikum. Hún reyndist sannspá, stuttu seinna breyttist búseta með giftingum og barneignum og varð þannig um árabil eða þar til þau Gunnar fluttu til Reykjavíkur eftir Heimaeyjargosið en afmælisdagabókin góða hefir alltaf átt sinn sess á mínu heimili sem minning um Ellu okkar Árna, eins og við köll- uðum hana oftast. Kæri Gunnar og fjölskylda sem haf- ið borið Elínu á höndum ykkar í veik- indum hennar undanfarin ár, við Guð- mundur vottum ykkur innilega samúð og sendum ykkur kærar kveðjur. Ásta S. Hannesdóttirfrá Hæli. Nú þegar hún amma mín er gengin leitar hugur minn að öllum þeim góðu stundum sem ég hef átt með henni síðastliðin tæp þrjátíu ár. Hún amma var skemmtileg kona, mikill húmoristi og var jafnan stutt í glensið – og það féll ungum dreng vel. Ég var búsettur fjarri ömmu minni lengi framan af en geymi þó vel í minni þau skipti þegar ég, eða við fjölskyldan öll, fórum suð- ur að heimsækja fólkið okkar þar. Í þessum ferðum var oft gist hjá ömmu og afa og stundum tók hún mig með í leikhús, óperuna eða í bæinn sem var nokkuð framandi fyrir ungan pilt ut- an af landi. Æskuminningar mínar um ömmu mína eru fáar en mjög góð- ar. Ég varð svo þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast henni ömmu minni vel, þá sem hálffullorðinn maður, þeg- ar ég fór að sækja nám til Reykjavík- ur um miðjan tíunda áratuginn. Ég er RAGNHILDUR HELGA MAGNÚSDÓTTIR ✝ RagnhildurHelga Magnús- dóttir fæddist á Efri- Sýrlæk í Flóa 16. ágúst árið 1920. Hún lést á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund 1. október síð- astliðinn og fór útför hennar fram í kyrr- þey. mjög þakklátur fyrir að hafa fengið þetta tæki- færi og heimsóknirnar til ömmu og afa á náms- árunum voru alltaf ein- staklega ánægjulegar. Amma var mikil hús- móðir og eldaði dýrindis mat fyrir okkur afa og ekki voru samræðurnar síðri, gamanmál og fróðleikur á víxl. Ég minnist þessara stunda með trega en jafnframt gleði yfir því að hafa fengið að njóta samvista við hana þessi ár. Síðustu ár ævi sinn- ar bjó hún amma mín á Grund og kom ég stundum við hjá henni. Heimsókn- irnar voru að sjálfsögðu of fáar eins oft vill verða en samt einstaklega ánægjulegar. Það var gaman að verða vitni að því hvað hún hélt húmornum og gat alltaf gert að gamni sínu þrátt fyrir slæma heilsu. Í síðasta skiptið sem ég sá hana ömmu mína, aðeins nokkrum dögum áður en hún kvaddi, gerði hún að gamni sínu, alltaf glöð í hjarta. Hennar lífsviðhorf, gaman- semi og dugnaður, er okkur hinum hvatning og fyrirmynd. Ég sakna hennar ömmu minnar en gleðst þó vitandi það að hún er komin á góðan stað, hafandi lifað gæfuríku lífi innan um fólk sem þótti vænt um hana. Ágúst Torfi Hauksson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.