Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 11
Þannig hefur einungis menntun
föður marktæk tengsl við vændi
meðal ungmenna á þann hátt að
með minnkandi menntun föður
aukast líkur á að framhaldsskóla-
nemar á Íslandi hafi skipti á greiða
eða greiðslu fyrir kynmök. Hins
vegar tengist menntun móður og
sambýlisstaða foreldra því ekki
marktækt hvaða ungmenni í fram-
haldsskólum eru líklegri en önnur
til að leiðast út í vændi. Þannig
virðast börn einstæðra foreldra eða
börn fráskilins foreldris og stjúp-
foreldris ekki líklegri til að hafa
leiðst út í vændi en börn sem búa
hjá báðum foreldrum. Þetta er sér-
staklega athyglisvert í ljósi þess að
í íslenskum rannsóknum á fráviks-
hegðun 9. og 10. bekkinga hafa slík
tengsl meðal annars komið fram í
rannsóknum á vímuefnaneyslu og
ofbeldi.“
Kynferðisleg misnotkun í æsku
eykur líkur á vændi
Séu einstakar niðurstöður varð-
andi félagslega þætti skoðaðar í
rannsókn Bryndísar þá kemur ber-
lega í ljós að kynferðisleg misnotk-
un í æsku eykur verulega líkurnar
á að strákar og stelpur leiðist út í
vændi af einhverju tagi. Þannig eru
strákar sem hafa orðið fyrir kyn-
ferðislegri misnotkun í æsku (0–15
ára) fimm sinnum líklegri en aðrir
strákar til að hafa stundað vændi,
þ.e. 16,7% af þeim sem orðið hafa
fyrir kynferðislegri misnotkun hafa
farið út í vændi á meðan 2,9% af
þeim sem ekki hafa verið kynferð-
islega misnotaðir hafa stundað
vændi. Til nánari útskýringar þýðir
þetta að rúm 83% þeirra sem segj-
ast hafa orðið fyrir kynferðislegri
misnotkun í æsku hafa ekki verið í
vændi og rúm 97% þeirra sem ekki
hafa verið kynferðislega misnotaðir
hafa heldur ekki leiðst út í vændi.
Þessi hlutföll hækka heldur hjá
þeim er svara til um kynferðislega
misnotkun á unglingsárum, þ.e. á
16–19 ára aldri. Oftast er þá um
nauðgun að ræða. Þá fer hlutfall
stráka sem hafa verið kynferðis-
lega misnotaðir upp í 23,1% ef þeir
hafa stundað vændi og 4,1% hjá
stelpum.
Bryndís Björk segir að kenning-
arnar þrjár um frávikshegðun ungs
fólks leggi allar eitthvað af mörk-
um til að skýra áhrif kynferðislegr-
ar misnotkunar í æsku á vændi
meðal framhaldsskólanema. Rann-
sóknin leiði skýrt í ljós þær alvar-
legu afleiðingar sem kynferðisleg
misnotkun í æsku hafi á börn og
ungmenni. Samkvæmt niðurstöðun-
um sé ljóst að áhættuþættir vændis
séu margir. Þannig gefi þessi
greining til kynna að kynferðisleg
misnotkun í æsku geti leitt til
vændis á þrjá vegu. Slík misnotkun
geti í fyrsta lagi haft bein áhrif á
vændi. Þannig eigi félagsnám sér
stað þegar börn verða fyrir kyn-
ferðislegri misnotkun sem síðar
geti leitt til vændis. Vera megi að
barni eða ungmenni lærist á þenn-
an hátt ákveðið viðhorf og réttlæt-
ing fyrir hegðun sinni, sem við-
heldur henni og eykur líkur á að
það sýni hana eða svipaða hegðun
síðar á lífsleiðinni. Niðurstöður gefi
til kynna að slíkur lærdómur ætti
að eiga sér stað óháð bakgrunni,
andlegri líðan og taumhaldi.
Bryndís segir að í öðru lagi geti
kynferðisleg misnotkun haft óbein
áhrif á að ungmenni leiðist út í
vændi síðar á lífsleiðinni. Annars
vegar vegna þess að kynferðisleg
misnotkun í æski hafi neikvæð
áhrif á félagslegt taumhald barna
og ungmenna og hins vegar vegna
þess að kynferðisleg misnotkun í
æsku hafi neikvæð áhrif á líðan
þeirra. Loks gefi niðurstöðurnar til
kynna að reiði nemenda, tengsl
þeirra við skólann og áfengis- og
vímuefnaneysla hafi sjálfstætt for-
spárgildi um það hvort framhalds-
skólanemar hafi þegið greiða eða
greiðslu fyrir kynmök þegar tillit
hafi verið tekið til svonefndra bak-
grunnsbreyta; kynferðislegrar mis-
notkunar í æsku, félagslegs taum-
halds, andlegrar líðanar og áfengis-
og vímuefnaneyslu.
Rannsóknin sýnir einnig að eftir
því sem ungmennin drekka oftar
áfengi eða neyta ólöglegra vímu-
efna þá aukast líkurnar á vændi
meðal þeirra. Tengslin koma fram
hjá báðum kynjum. Nemendur sem
hafa notað hass 40 sinnum eða oft-
ar um ævina eru nærri fimm sinn-
um líklegri til að segjast hafa
stundað vændi en þeir sem aldrei
hafa notað hass. Hafi ungmennin
neytt amfetamíns í óhófi eru þau
sex sinnum líklegri. Þetta á einnig
við um óalgengari vímuefni eins og
sniff, kókaín og E-pilluna.
Vændið skipulagt og óskipulagt
Í rannsókninni er einnig komist
að þeirri niðurstöðu að vændið sé
bæði skipulegt og óskipulegt, innan
félagahópsins sem utan. Innan
hópsins vísar til þess félagahóps
sem ungmennin eru í samskiptum
við. Miðað er þá við lífsstíl frekar
en aldur, til dæmis þátttaka í partí-
um og neysla vímuefna. Að sögn
viðmælenda Bryndísar Bjarkar út-
vega sumir þeirra sér vímuefni,
húsnæði eða jafnvel mat á þennan
hátt í skiptum fyrir kynmök við fé-
lagana. Um þetta atriði segir m.a. í
skýrslunni:
„Flest þessara ungmenna líta, að
sögn heimildarmanna, ekki á þetta
sem hið hefðbundna vændi þar sem
oft er um að ræða þögult sam-
komulag milli tveggja aðila og oft
eru ekki beinharðir peningar á
borðinu. Einnig liggur ekki alltaf
ljóst fyrir hvort tilfinningasamband
sé til staðar milli einstaklinganna
eða ekki. Þannig geti skilin milli
þess, hvað telst til slíkra skipta á
kynmökum fyrir greiða eða
greiðslu og hvað ekki, verið nokkuð
óljós.“
Í viðtölum Bryndísar við ungt
fólk og sérfræðinga kemur fram að
vændi eigi sér stað meðal ungs
fólks utan félagahópa þeirra. Þann-
ig á sér stað að fullorðið fólk tæli
ungmenni til við sig með ýmsum
leiðum og bjóði þeim hitt og þetta í
skiptum fyrir kynmök. Í sumum til-
vika skipuleggi þessir aðilar jafnvel
skipti á kynmökum fyrir greiða eða
greiðslu við enn aðra og séu þar
með orðnir milligöngumenn um
skipulegt vændi. Í slíkum tilvikum
eru kaupendur eldri og betur stæð-
ir einstaklingar, á aldrinum 20–50
ára, sem útvega yngra fólki pen-
inga, vímuefni, húsaskjól, mat og
eftirsóknarverða hluti eða jafnvel
bílfar í skiptum fyrir aðgang að lík-
ama þeirra. Á þetta bæði við um
stelpur og stráka, segir í rannsókn-
inni.
Þannig segjast sérfræðingar á
meðferðarstofnunum vita til stráka
í vændi. Slíkt tengist oft eiturlyfj-
um eins og hjá stelpunum en þeir
selja sig bæði konum og körlum.
Það sé því til í dæminu að eldri
konur taki unga stráka upp á sína
arma gegn skiptum á kynmökum
fyrir greiða eða greiðslu. Þá hafi
sumir strákar verið misnotaðir á
unga aldri af eldri konum en ekki
upplifað það endilega sem misnotk-
un.
Tekur bara þeim sem kemur
Sem fyrr segir byggði Bryndís
Björk rannsókn sína m.a. á við-
tölum við 20 sérfræðinga hjá lög-
reglunni, Barnaverndarstofu, með-
ferðar- og heilbrigðisstofnunun,
Félagsþjónustunni í Reykjavík,
Stígamótum, Rauða krossinum,
Kvennaathvarfinu og fleiri aðilum.
Að endingu skal hér vitnað í orð
lögreglumanns sem hefur haft af-
skipti af vændi meðal unglinga:
„Það er til vændi sem tengist
unglingum. Mjög ungu fólki, í flest-
um tilfellum með vandamál. Oftar
en ekki í vímuefnum, svo sem pill-
um, dópi og áfengi. Þetta er
kannski það sem er nöturlegast við
þetta allt. Það er til ungt fólk sem
selur sig öðrum sem er ekki í eit-
urlyfjum og svo ungt fólk sem selur
sig fólki í eiturlyfjum, það er vændi
innan hópsins. Það er ógeðfelldasti
þátturinn í þessu öllu saman. Öm-
urleikinn er svo mikill. Þetta fólk
hefur ekkert val um viðskiptavini,
það tekur bara þeim sem kemur,
alveg sama þótt það sé sextugur,
ógeðslegur og skítugur karl.“
jafnt sem stelpna
Morgunblaðið/Árni Torfason
NOKKRIR einstaklingar lýsa eigin reynslu í rannsókn Bryndísar, þeirra
á meðal ung kona sem var í vímuefnaneyslu og skipulögðu vændi.
Hér segir hún frá því er hún seldi sig í fyrsta sinn til að geta keypt
sér tvö grömm af amfetamíni:
„Ég var ekki þannig dópisti að þetta hafi verið félagsþrýstingur.
Þetta var bara ég ein, mér leið svo vel þegar ég sniffaði. Ég fann ekki
eins mikið fyrir mér þá. Þannig fannst mér ég komast einhvern veg-
inn frá líkamanum og frá mér allri. Ég varð meðvitundarminni. Fékk
frið, ró, gat allt í einu andað. Hugsaði að svona gæti mér liðið vel.
Þannig byrjaði það. Svo vafði það upp á sig. Ég kynntist hassi 16 ára,
byrjaði reyndar mjög fljótt að reykja mikið af því. Síðan fór ég svo að
prófa spítt, sýru og þetta allt saman.
Þegar ég seldi mig í fyrsta skipti þá var ég bara ein. Þá var ég að
taka stúdentsprófin. Ég var líka að vinna á hóteli á þeim tíma og það
var alltaf karl að hringja á hótelið, svona ógeðslegur dónakarl. Hann
sagði að hann myndi borga mér 10 þúsund kall fyrir að sofa hjá sér.
Og ég gerði það. Bara af fíkn. En ég sagði mér þá að þetta hefði ég
gert til að komast í gegnum stúdentsprófin. Sem sagt, ég var í síð-
ustu prófunum og átti ekki pening fyrir dópi sem ég virkilega þurfti,
ætlaði ég mér að komast í gegnum prófin. Mig vantaði 2 grömm.“
Hætti að selja mig eftir að hafa
verið nauðgað þrisvar
UNGUR strákur sem var í vímuefnaneyslu og vændi frá 15 til 18 ára
aldurs segir hér stuttlega frá reynslu sinni:
„Æska mín var rosalega erfið. Ég var beittur kynferðislegu ofbeldi
af fósturföður mínum. Ég byrjaði í neyslu 13 ára gamall og 15 ára var
ég fluttur að heiman. Ég gat bara ekki verið heima út af erfiðum
heimilisaðstæðum. Á þeim tíma var ég byrjaður að nota hass, E-
pilluna, kók, sveppi og allt þetta. Ég lenti í því að þurfa að selja mig
fyrir dóp 15 ára. Það var mjög erfið reynsla. Ég bjó hjá strák sem átti
mikinn pening en var ekki í neyslu eins og ég. Ég byrjaði með honum
út af því að hann átti fullt af peningum.
Á þessum tíma lenti ég í mörgu slæmu. Ég hætti að selja mig eftir
að hafa verið nauðgað þrisvar sinnum af einhverjum strákum. Ég man
lítið eftir þessu atviki en man bara að daginn eftir gat ég ekki gengið.
Þetta var fyrir tveimur árum. Eftir að ég hætti fór ég að brjótast inn í
staðinn. Ég stal til að fá pening fyrir dópi. Svo hætti ég að nota þessi
sterkari efni og fór í læknadóp. Ég hætti að hugsa um skrokkinn á
mér og byrjaði þá að borða mjög mikið. Á stuttum tíma fitnaði ég
mikið. Ég gerði þetta til að engan langaði að horfa á mig og til að
enginn hefði geð á að vera með mér kynferðislega.“
Algjörlega kominn á botninn
VANLÍÐAN og svartsýni einkennir oft aðstæður viðmælenda í rann-
sókninni, samanber eftirfarandi ummæli stráks sem var í vímu-
efnaneyslu og vændi:
„Ég reyndi margar sjálfsvígstilraunir. Reyndi náttúrulega oft að
fremja sjálfsmorð. Þá var ég búinn að selja mig fyrir peninga og dóp í
þrjú ár og var orðinn heimilislaus. Ég var algjörlega kominn á botninn,
orðin alger rúst. Var kominn með nóg af öllu, fjölskyldunni minni og
lífinu öllu. Þetta var bara svo sjúkt þegar maður var í neyslu.“
Lýsingar ungs fólks
á aðstæðum sínum
Morgunblaðið/Ásdís
Og ég gerði það – bara af fíkn
sóknir á vændi hafa staðið yfir seg-
ist Bryndís hafa fundið fyrir mikilli
viðhorfsbreytingu. Fyrst hafi verið
mjög erfitt að nálgast viðfangsefnið
og upplýsingar hafi verið torsóttar.
Eftir að fyrri skýrslan hafi komið út
árið 2001 segist Bryndís hafa fundið
fyrir allt öðru umhverfi meðal við-
mælenda sinna. Meiri umræða og
frekari upplýsingar hafi legið fyrir
og gert mörgum auðveldara að tjá
sig og takast á við vandamálið.
Mikilvægt að skoða
„hina hliðina“ næst
Bryndís segir að í framhaldi af
þessari rannsókn sé afar mikilvægt
að skoða „hina hlið“ vændisins, þ.e.
þá sem kaupa sér vændi, tæla ungt
fólk í vændi og sérstaklega þá sem
hafa milligöngu um vændi. Slíkar
rannsóknir hafi ekki farið fram enn.
Einnig þurfi að skilgreina betur þá
mælikvarða sem notaðir hafi verið.
Þá megi benda á mikilvægi þess að
athuga nánar afleiðingar vændis al-
mennt. Rannsókn hennar sé fyrsta
skrefið í öflun fræðilegrar þekk-
ingar um vændi meðal ungs fólks
sem nýst geti til stefnumótunar á
þessu sviði.
an heim
bjb@mbl.is