Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
færu aldrei í hafbeit eða til eldis í
sjókvíum við strendur Íslands. Nú
væri landbúnaðarráðherra búinn að
rifta samkomulaginu og virða að
vettugi þennan mikilvæga sáttmála.
„Ég held ég tali fyrir hönd allra
sem starfa við stjórnun laxveiði-
mála á Íslandi,“ segir Orri. „Allt frá
því að laxeldismálin komu aftur á
dagskrá árið 2000 hefur landbún-
aðarráðuneytið unnið eins og eftir
forskrift að því að opna laxeldis-
mönnum allar gáttir og ganga þvert
á allar tillögur um verndun og var-
færni.“
NASF, verndarsjóður villtra
laxastofna, hefur ásamt veiðifélög-
um Selár, Hofsár og Haffjarðarár
farið fyrir þeim sem telja laxeldi
ógna villta íslenska laxastofninum
og hafa lagt fram kærur á öllum
stigum undirbúningsferlis eldisins.
„En allt kemur fyrir ekki, landbún-
aðarráðherra hefur hafnað öllu sem
við höfum til málanna að leggja.
Fyrst var brotið loforð um tveggja
ára rannsóknir umhverfisþátta við
Reykjanes, síðan er Vestmannaey-
ingum boðin 15 metra eldiskví þar
sem dýpið er aðeins 10 metrar, lág-
marks þolprófunum á Austfjörðum
er hafnað, fagnefnd hagsmunaaðila
er lögð niður, opnað fyrir innflutn-
ing brunnbáta frá sýktum svæðum
og síðan gefin út rekstrarleyfi án
vandaðs undirbúnings, án fag-
mennsku, án nauðsynlegs eftirlits
allt gegn óskum og tillögum hags-
munaaðila villtra laxastofna.
Það er lítt skiljanlegt hvers
vegna landbúnaðarráðherra lætur
viðgangast að ráðist er með þessum
hætti til atlögu gegn þeirri einu
grein íslensks landbúnaðar sem er í
broddi fylkingar á alþjóðavettvangi
og þeirri einu sem gefur íslenskum
bændum afburðatekjur.
Flest bendir til að það sé land-
búnaðarráðherra sjálfur sem ber
ábyrðina á því hve illa hefur verið
haldið á þessum málum. Laxveiði-
Í NÝLEGRI grein í hinu virtavísindatímariti NationalGeographic er Orra Vigfús-syni, formanni Verndarsjóðsvilltra laxastofna, lýst sem
krossfara sem helgað hefur líf sitt
baráttunni fyrir verndun villtra
laxastofna í Atlantshafi. Orri hefur
frá því síðla á 9. áratugnum staðið
fyrir herferð til að kaupa upp neta-
lagnir víða í Atlantshafinu. Sjóður-
inn hefur safnað sem nemur 2,5
milljörðum króna sem varið hefur
verið til að greiða sjómönnum fyrir
að taka upp net sín og snúa sér að
öðrum veiðum eða skipta um starfs-
vettvang. Orri hefur fram til þessa
einkum einbeitt sér að því að draga
úr netaveiðum á laxi við Ísland,
Færeyjar, Grænland og Wales með
góðum árangri og fram undan eru
sams konar verkefni við Írland,
England og Noreg.
En Orri segir nú aðra ógn steðja
að íslenska laxastofninum, ógn sem
annars vegar holdgervist í Guðna
Ágústssyni landbúnaðarráðherra
og hins vegar í erlendum laxastofn-
um sem nú er, samkvæmt nýsam-
þykktum bráðabirgðalögum, heim-
ilt að flytja lifandi til landsins til
frekara eldis.
Orri er eldheitur andstæðingur
laxeldis og hefur um árabil talað
fyrir því að við uppbygginu laxeldis
hér á landi beri að stíga varlega
fram, en lengst af talað fyrir dauf-
um eyrum að eigin sögn. Allt frá ár-
dögum fiskeldis hér á landi hafi
veiðiréttareigendur, stangveiði-
menn og verndarsinnar lagst hart
gegn öllum áformum sem ógnað
gætu íslenskri náttúru. Þannig hafi
árið 1988 nefnd á vegum þáverandi
landbúnaðarráðherra, sem fjallaði
um ógöngur fiskeldisins, komist að
þeirri niðurstöðu að ekki væri fært
að taka neina áhættu sem skaðað
gæti íslenska náttúru og náð heið-
ursmannasamkomulagi um að
norskættuð hrogn, seiði eða lax
geirinn skapar 1.860 lögbýlum um-
talsverðar tekjur vegna faglegrar
uppbyggingar, virðingar fyrir nátt-
úrunni, sjónarmiða verndunar og
varúðar. Við sem höfum í áratugi
staðið í því að hámarka sjálfbærni
og arðsemi í þessari grein og skapa
jákvæða ímynd íslenska laxins á al-
þjóðagrundvelli erum undrandi.“
En hvaða hagsmuni eru Orri og
skoðanabræður hans að verja? Eru
hagsmunir laxeldisframleiðenda
ekki meiri til lengri tíma litið en
hagsmunir stangveiðimanna? Orri
þvertekur fyrir að svo sé og bendir
á að stangveiðin velti árlega hátt í
fjórum milljörðum króna inn í ís-
lenskan efnahag og segir hæpið að í
komandi framtíð verði íslenskur
eldislax samkeppnisfær við lax sem
alinn er við mun hagstæðari að-
stæður, svo sem í Chile.
Og nú kemst Orri á flug, hann
þjáist ekki af vanmáttarkennd fyrir
hönd íslensku laxveiðiánna. Hann
telur upp hverja perluna á fætur
annarri; Laxárnar allar, Norðurá,
Langá, Grímsá, Þverá, Miðfjarðará,
Haffjarðará, Selá, Hofsá og marg-
ar, margar fleiri. „Þessar ár eru
okkar merkjavara, vitnisburður
mikilla gæða rétt eins og heims-
fræg vörumerki á borð við Armani,
Cartier eða Rolls Royce. Þessar ár
hafa verið nytjaðar frá ómunatíð án
þess að valda tjóni en hæfileg nýt-
ing hefur tryggt sjálfbæran og eðli-
legan viðgang þeirra. Þær eru
markaðssettar á faglegan hátt eins
og frægu vörumerkin í hágæða-
flokki bæði á röksemdum og tilfinn-
ingum. Um nýtinguna gilda strang-
ar siðareglur, veiði og verndun eiga
eðlilega samleið, sjálfbærni og sam-
spil lífríkis og samfélags.“ Orri seg-
ir að stefna og verklag landbúnað-
arráðherra eigi hins vegar enga
samleið með þeim sem vinni faglega
að því að auðga þessa atvinnugrein.
„Fagleysi og fornaldarleg vinnu-
brögð hans skemma þann orðstír
sem okkur er nauðsynlegur í bráð
og lengd. Ég þykist viss um að
flestir veiðiréttareigendur á Íslandi
líta á ráðherrann sem sinn hættu-
legasta andstæðing og ég þekki
engan sem lítur á hann sem sam-
herja. Aðför hans að náttúru Ís-
lands er sú versta frá því minknum
var hleypt inn í landið. Hvoru
tveggja eru óafturkræfar aðgerð-
ir.“
Ótal hættur
Og Orri segir ótal hættur sam-
fara laxeldi. Skaðlegastur sé farald-
ur af völdum sjávarlúsar en laxeld-
inu fylgi einnig veruleg mengun af
úrgangi, sjúkdómar af völdum
baktería og vírusa, auk þess sem lyf
og skaðleg efni fari út í náttúruna.
Þá sýni dæmin að eldislaxar valdi
skemmdum á hreiðrum villtra laxa í
ám. Síðast en ekki síst sé hætta á
erfðamengun til lengri tíma.
Ríkisstjórnin setti sl. sumar
bráðabirgðalög sem meðal annars
heimila innflutning á lifandi eldis-
laxi á milli landa, samkvæmt til-
skipun Evrópusambandsins. Lögin
eru nú í meðferð Alþingis. Orra
hitnar í hamsi þegar talið berst að
umræddum lögum og fer ekki leynt
með skoðun sína. Hann segir að vel
hefði mátt láta reyna á tilskipunina,
auk þess sem Stefán Már Stefáns-
son lagaprófessor hafi bent á ýmsar
leiðir sem banni innflutning á lif-
andi laxfiskum eða öðrum fiski sem
lifi í ósöltu vatni.
„Nýlega hefur komið í ljós van-
hæfi ráðherrans til að vernda laxinn
í sambandi við Evróputilskipanir.
Kannski fengu sérfræðingar hans
alls ekki að beita sér? Verklag
nokkurra undirmanna ráðherrans
er ámælisvert. Veiðimálastjóri hef-
ur til að mynda sótt hundruð fag-
legra ráðstefna á erlendri grund
þar sem lögð er áhersla á verndun
laxastofna og hættuna sem stafar af
laxeldi. Allar hans embættisfærslur
ganga þvert á þær ábendingar og
tillögur sem hann hefði þar átt að
tileinka sér. Yfirdýralæknir fisk-
sjúkdóma hefur þær yfirlýstu skoð-
anir að hættur fiskeldis séu hrein-
lega ekki fyrir hendi þrátt fyrir
stöðug slys og misferli. Hvað getur
það gengið lengi að þessir tveir
embættismenn sem eru valdir til að
vernda íslenska náttúru hafi í einu
og öllu þveröfugt mat á skoðunum
allra íslenskra hagsmunaaðila og
fagaðila hjá öllum náttúru- og um-
hverfisstofnunum Íslands? Það má
benda á í þessu sambandi að allir
sérfræðingar Veiðimálastofnunar
eru í öllum megin atriðum á önd-
verðum meiði við þessa tvo menn.“
Fáfræði og úrelt sjónarmið
Orri telur að ekki aðeins hafi
landbúnaðarráðherra gerst sekur
um forystuleysi, heldur sé ábyrgð-
ar- og fyrirhyggjuleysi hans algert
og bendi til fáfræði og úreltra sjón-
armiða. Orri bendir á að Margot
Wallström, ráðherra Evrópusam-
bandsins í umhverfismálum, hafi
meira að segja bent á einfaldar og
faglegar leiðir til úrbóta. Og Orri
spyr: „Hvað rekur landbúnaðarráð-
herra til að plata samráðherra sína
til að skrifa upp á ónauðsynleg
bráðabirgðalög? Er verkefnið hon-
um ofviða? Ef ráðherrann hefði haft
fyrir því að hlusta á okkur hefðum
Morgunblaðið/Ásdís
’ Það virðast allir Ís-lendingar nema land-
búnaðarráðherra og
laxeldismenn vera
sammála um að
vernda villta laxa-
stofna á Íslandi, ekki
bara á grundvelli sjúk-
dóma heldur líka til
að koma í veg fyrir
erfðamengun. ‘
’ Árið 2000 benti églandbúnaðarráðherra
á að fátt væri skelfi-
legra en fyrirhyggju-
laus framtakssemi.
Þetta hefur nú gengið
eftir og eldislaxar
hans eru þessa dagana
að eyðileggja hreiður
villtra laxa í Selá og
Hofsá. Auðvitað á að
fara fram opinber
rannsókn á stöðu
þessara mála. ‘
Íslenski
laxinn er
Rolls Royce
’ Laxveiðigeirinnskapar 1.860 lögbýl-
um umtalsverðar
tekjur vegna faglegrar
uppbyggingar, virð-
ingar fyrir náttúrunni,
sjónarmiða verndunar
og varúðar. ‘
Orri Vigfússon hefur um árabil verið í fylkingar-
brjósti þeirra sem berjast fyrir verndun villtra
laxastofna. Hann óttast nú mjög um afdrif íslenska
laxastofnsins verði af stórfelldu eldi á norskum
laxi hér við land. Í spjalli við Helga Mar Árnason
sakar Orri landbúnaðarráðherra um aðför að
íslenska laxastofninum, ábyrgðarleysi, fáfræði
og úrelt vinnubrögð.