Morgunblaðið - 26.10.2003, Qupperneq 21
Picture? er 34. platan sem Morrison
sendir frá sér. Plötur hans eru flest-
ar prýðilegar, margar snilldarskífur,
en þær sem komu út á tíunda ára-
tugnum eru með því sísta sem hann
hefur sent frá sér. Þær voru reyndar
svo klénar margar að þær raddir
urðu háværar sem sögðu að Van
Morrison væri búinn að lifa sjálfan
sig sem tónlistarmann, en hann er
óútreiknanlegur; The Skiffle Sess-
ions sem kom út 2000 var skemmti-
leg upprifjun á gömlu stuði og næstu
plötur, You Win Again, sem kom
einnig út 2000, og Down the Road
sem kom út 2002, voru bráðgóðar,
sérstaklega sú síðarnefnda.
Litið um öxl
Á Down the Road má segja að
Morrison sé að líta um öxl, velta fyr-
ir sér þeim tónlistarstefnum sem
mótuðu hann í æsku og hafa orðið
efniviður í mörg af hans helstu verk-
um. Hann bregður fyrir sig rytm-
ablús, þjóðlagatónlist, skiffle, blús
og djass, sem var nasasjón af plöt-
unni nýju What’s Wrong With This
Picture?
Eins og getið er kemur platan út á
vegum Blue Note útgáfunnar góð-
kunnu sem er kynnt annars staðar á
síðunni. Tónlistarfróðum þykja
þetta mikil tíðindi, en kemur ekki á
óvart þegar hlustað er á skífuna, hún
er hlýleg og aðgengileg djassplata
þar sem Morrison fer á kostum í
söng og lagasmíðum – unnendur
Norah Jones taki eftir.
Morrison segist aldrei hafa dottið
í hug að hann ætti eftir að verða Bue
Note listamaður í æsku, honum hafi
ekki einu sinni dottið í hug að hann
ætti nokkurn tímann eftir að taka
upp plötu. „Það er miklu betra að
vera á Blue Note en poppútgáf-
unum, mig langaði til að vera hjá út-
gáfu fyrir fullorðna. Það er ekkert
vit í því að ég sé hjá poppútgáfu því
menn þar kunna ekki að selja plötur
með mér, vita ekki hvernig þeir eiga
að fara að því að kynna þær. Ég vil
vera á mála hjá útgáfu fyrir full-
orðna sem spáir í tónlist en ekki
poppdót fyrir krakka. Ég hefði átt
að vera búinn að skipta fyrir löngu,
en endaði alltaf hjá einhverjum
poppútgáfum sem höfðu engan
áhuga á tónlistinni, vildu bara hafa
mig hjá sér út af nafninu.“
Afkastamikill
Síðustu ár hefur Morrison verið
afkastamikill og hann segist reyndar
sífell vera að taka upp, nefnir sem
dæmi What’s Wrong With This Pict-
ure? sem tekin hafi verið upp á
tveimur og hálfu ári meðfram öðrum
verkefnum. „Lögin koma meira og
minna af sjálfu sér, það er engin sér-
stök pæling í gangi með það, ég fer
aldrei í hljóðver með það fyrir aug-
um að taka upp plötu. Þegar búið
var að taka upp þrjátíu lög fórum við
svo að spá í hvort ekki væri rétt að
tína þau saman í plötu.“
Tónlistarspekúlöntum finnst
merkilegt að Morrison skuli vera að
gefa út á vegum djassútgáfunnar
miklu Blue Note, en þrátt fyrir það
og að tónlistin sé vissulega djass-
skotin segir að ekki sé hægt að kalla
What’s Wrong With This Picture?
djassskífu. „Ég myndi kalla það
blúsdjass eða eitthvað í þá áttina.
Fyrir mér vakti að vinna sem mest
með mönnum sem væru ekki bara
færir djassleikarar heldur sem
þekktu rytmablúsinn, djassaðan
rytmablús. Það er ákveðinn vandi að
hitta á rétta gerð af hljóðfæraleik-
urum. Í gegnum árin hef ég yfirleitt
unnið með framúrskarandi rokk-
tónlistarmönnum eða frábærum
djassleikurum en því miður er erfitt
að hafa uppi á góðum hljóðfæraleik-
urum sem falla þar á milli, en þar er
ég einmitt, þannig tónlist vil ég.
Ég er enginn nýgræðingur í
þessu, veit að maður á að leyfa
djassleikurum að spila innan ramma
lagsins; ég hef áður gert djassplötur,
Astral Weeks var djassplata og
Moondance er orðin það í dag í með-
förum fjölda djasstónlistarmanna,
það eru hrein djasslög á Poetic
Champions Compose og svo má
telja, það er ekki eins og ég sé að
gera eitthvað nýtt. Ég söng á sínum
tíma með djassstórsveitum áður en
ég ákvað að stofna rytmablússveit
og það má því segja að ég sé að snúa
aftur í djassinn.“
arnim@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 21
Talnámskeið
www.enskuskólinn.is
Ný námskeið hefjast
29. október
Okkar vinsælu 7 vikna námskeið.
Kennt á mismunandi stigum.
Frítt kunnátttumat.
Námskeiðin metin hjá
stéttarfélögum.
Skráning í síma 588 0303
Range Rover Voguge
Einn með öllu.
4/2002, ekinn 25 þús. km.
20" dekk + 18" fylgja, leður, lúga,
Navi og sjónvarp og margt fleira.
Upplýsingar í símum 533 4000
og 820 3373
Sjá myndir á
www.bilasalan.is