Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 25
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Njóttu lífsins í Karíbahafinu við ótrúlegar aðstæður í febrúar á þessari fögru
paradísareyju, Dóminíska lýðveldinu. Önnur stærsta eyja Karíbahafsins býður
stórkostlegar aðstæður fyrir ferðamanninn,
fagrar strendur, einstaka tónlistarmenningu
og glæsileg hótel, þar sem þú getur valið
um hvaða afþreyingu, íþróttir eða skemmt-
un sem hægt er að hugsa sér. Heimsferðir
bjóða nú ótrúlegt tilboð. Þú kaupir tvö flug-
sæti í Karíbahafið, en greiðir aðeins fyrir
eitt. Að auki getur þú valið um úrval góðra
gististaða á meðan á dvölinni stendur.
Sérflug Heimsferða • Síðustu sætin 24 sætin
Verð kr. 39.990
M.v. 2 fyrir 1 tilboð. Flugsæti kr.
68.600/2 = 34.300. Skattar kr. 5.690.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.900 til
Juan Dolio.
4 stjörnu hótel frá kr. 3.400 kr. á
mann per nótt.
Karíba-
hafið
13.–20. nóvember
frá kr. 39.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
SCHOLA cantorum, kammerkór
Hallgrímskirkju, og stjórnandi kórs-
ins, Hörður Áskelsson, hafa þekkst
boð um að taka þátt í alþjóðlegri
kórakeppni í Tolosa á Norður-Spáni,
sem haldin verður dagana 29. októ-
ber til 2. nóvember nk. Þessi keppni
á sér langa sögu og er nú haldin í 35.
skipti en þetta er í fyrsta skipti sem
íslenskur kór er meðal þátttakenda.
Þessi keppnisferð er hin þriðja sem
Schola cantorum leggur í, en árið
1998 bar kórinn sigur úr býtum í al-
þjóðlegri keppni í Frakklandi.
„Það eru kórar frá öllum heims-
hornum sem taka þátt í keppninni,
allt frá Nýja-Sjálandi til Íslands,“
segir Guðrún Finnbjarnardóttir,
formaður Schola cantorum. „Það er
mikil stemming og tilhlökkun í kórn-
um okkar og fólk vill gera sitt besta.
Það er ekki hægt að neita því að það
er spenna í loftinu.“
Fyrir þessa keppni eru sér-
staklega valdir kórar til þátttöku.
„Við tókum þátt í kórakeppninni í
Gorizia á Ítalíu á sl. ári og þá voru
forráðamenn keppninnar með „út-
sendara“ og buðu okkur þátttöku í
þessari keppni. Þetta er mikill heið-
ur og við höfum svo sannarlega upp-
skorið laun erfiðisins. Við keppum
nú í tveimur flokkum kammerkóra
með 16 söngvurum eða færri, annars
vegar með kirkjulega og hins vegar
með veraldlega efnisskrá. Við erum
ekki vön að syngja veraldlega tónlist
en okkur þykir afskaplega skemmti-
legt að takast á við það. Við urðum
að taka verk frá helstu tímabilum,
frá 15. öld og allt fram á okkar tíma.
Við flytjum mjög fjölbreytt efni,
madrigala, þjóðlög og mótettur eftir
Passerau, Wilbye, Gesualdo,
Brahms, Bruckner og Poulenc.
Einnig erum við með íslenskt tón-
skáld, Hjálmar H. Ragnarsson, í
kirkjuflokknum og íslensk þjóðlög í
útsetningu Hafliða Hallgrímssonar.“
Auk þess að taka þátt í keppninni
heldur kórinn þrenna tónleika í
borgum í nágrenni Tolosa, m.a. í San
Sebastian, og kemur fram með öðr-
um kórum á samkomum á vegum
keppninnar.
Keppnisverkin flutt í
Hallgrímskirkju
Þeim sem vilja heyra Schola cant-
orum flytja keppnisverkin gefst
kostur á því í Hallgrímskirkju í dag
kl. 17. Þar mun kórinn auk þess
flytja nokkur kórlög af tónleikaefn-
isskrá Spánarferðarinnar, íslenskar
kórperlur eftir Atla Heimi Sveins-
son, Báru Grímsdóttur og Hjálmar
H. Ragnarsson, svo og mótettuna
Warum ist das Licht gegeben eftir
Brahms.
Morgunblaðið/Jim Smart
Schola cantorum á æfingu í Hallgrímskirkju. Kórinn kemur þar fram á tónleikum í dag, sunnudag, kl. 17.
„Útsendarar“ tóku eftir
kórnum á Ítalíu
Schola cantorum tekur þátt í alþjóðlegri kórakeppni
Eyjadís er fyrsta
barnabók Unnar
Þóru Jök-
ulsdóttur. Eyjadís
er dularfull æv-
intýrasaga.
Draumar eru það
dýrmætasta sem
við eigum, er
pabbi Eyjudísar
vanur að segja. Samt kemst Eyjadís
að því að hann á sér engan draum
lengur og ásamt vinum sínum leggur
hún upp í mikla háskaför yfir úthafið
mikla til að bæta úr því. En er hægt
að finna týndan draum?
Unnur Þóra hefur sjálf lent í æv-
intýrum á úthöfunum, eins og hún
lýsti í bókum sínum Kjölfari Kríunnar
og Kría siglir um Suðurhöf.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 160 bls., prentuð í Prentsmiðj-
unni Odda hf. Guðjón Ketilsson mynd-
skreytir bókina og gerir kápu. Verð:
2.690 kr.
Börn
Listasafn Íslands kl. 15–16
Rakel Pétursdóttir deildarstjóri
fræðsludeildar gengur með gestum
safnsins um sýninguna Vefur lands
og lita –Yfirlitssýning á verkum Júl-
íönu Sveinsdóttur. Sýningin sam-
anstendur af málverkum og mynd-
vefnaði og spannar allan feril
Júlíönu sem er einn af frumkvöðl-
unum í íslenskri myndlist og ein
fyrsta íslenska konan sem gerði
myndlist að ævistarfi sínu.
Sýningin er framlengd til 2. nóv-
ember.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is