Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 27
GERRIT Schuil, píanóleikari og
hljómsveitarstjóri, mun á síðdeg-
istónleikum í Tónlistarhúsinu Ými í
dag kl. 16 leika á píanó, auk þess að
ræða við Bergþóru Jónsdóttur tón-
listarfræðing og gagnrýnanda um líf
sitt og tónlistarferil. Tónleikarnir eru
liður í langri röð menningar- og list-
viðburða í tilefni aldarfjórðungs af-
mælis Samtakanna 7́8 á þessu ári.
„Þegar kom að því að skipuleggja 25
ára afmæli Samtakanna 7́8 um síð-
ustu áramót fannst okkur mikilvægt
að vekja athygli á hinum ólíku þátt-
um menningar og lista samkyn-
hneigðra,“ segir Þorvaldur Krist-
insson, formaður Samtakanna 7́8 og
aðalskipuleggjandi afmælishátíð-
arinnar, spurður um tilefni tón-
leikanna.
„Auk þess ákváðum við að efna
m.a. til nýrrar fyrirlestraraðar þar
sem talað væri um eitt og annað sem
tengist samkynhneigð af fólki úti í
samfélaginu og í því samhengi bað ég
Gerrit að segja frá lífi sínu og list. En
svona tónleikar með spjalli eru ný-
lunda á Íslandi, að því er ég best veit.
Gerrit tók afskaplega vel í hugmynd-
ina og lýsti því yfir að sér væri heiður
að styrkja hátíðahöld samkyn-
hneigðra, heiðra þessa óvenjulegu
hreyfingu sem hefur náð meiri ár-
angri en nokkur önnur mannrétt-
indahreyfing á Íslandi á svo skömm-
um tíma.
Nú er jafnvel svo komið að litið er
til samkynhneigðra á Íslandi utan úr
heimi fyrir árangur þeirra. Mér
finnst auðvitað mjög ánægjulegt að
listamaður á heimsmælikvarða á
borð við Gerrit skuli vilja hjálpa til
við að gera þetta að eftirminnilegu
ári.“
Kallar á annars
konar einbeitingu
Gerrit segir að enginn munur sé á
undirbúningi fyrir þessa tónleika
hvað tónverkin sjálf varðar. „En auð-
vitað er allt öðruvísi að þurfa að sitja
á sviðinu og tjá sig um líf sitt og list.
Og ég verð að viðurkenna að ég kvíði
því aðeins, því ég hef aldrei gert neitt
í þessa áttina áður. Fyrirkomulag
tónleikanna kallar á allt annars kon-
ar einbeitingu og ég hef ekki hug-
mynd um hver útkoman verður. En
það er mjög spennandi að gera eitt-
hvað svona nýtt og ég vona bara að
áheyrendur hafi gaman af því að
kynnast mér aðeins betur,“ segir
Gerrit Schuil.
Bergþóra Jónsdóttir tekur undir
þessi orð Gerrits. „Á tónleikum er
áherslan alltaf á músíkina, tón-
skáldin og túlkun listamannsins, en á
tónleikunum í dag gefst vonandi
tækifæri til þess að kynnast lista-
manninum sjálfum aðeins betur.
Gerrit hefur komið víða við, ekki
bara sem konsertpíanisti heldur líka
sem hljómsveitarstjóri, auk þess hef-
ur hann spilað með þekktu fólki, þar
á meðal fjölda söngvara. Hann hefur
starfað mikið erlendis og kemur
hingað með svolítið aðra strauma en
við þekkjum hér.
Óhætt er að segja að það hafi verið
mikil vítamínsprauta fyrir okkur Ís-
lendinga að fá hann hingað til starfa.
Ég nefni nú bara Schubert-hátíðina
sem hann hélt í Garðabæ fyrir
nokkrum árum. Þannig að ég vona að
það verði bara gaman fyrir fólk, sem
hefur verið duglegt að sækja tónleika
Gerrits, að fá að kynnast honum á
svolítið annan hátt,“ segir Bergþóra.
Mikilvægt að vera vandlátur
Inn í samræður þeirra Bergþóru
fléttar Gerrit nokkur píanóverk sem
eru honum kær og lýsir því hvaða
þýðingu þau og tónskáldin hafa haft
fyrir hann á þroskabraut tónlistar-
mannsins. Verkin eru eftir Beetho-
ven, Schubert, Schumann og Chopin.
Spurður hvers vegna þessi tónskáld
hafi orðið fyrir valinu segir Gerrit
ýmsar ástæður fyrir því. „Ég valdi
verk eftir Schubert vegna þess að
það var fyrsta verkið sem ég spilaði
opinberlega þegar ég var níu ára
gamall og það er ágætis byrjun á
prógramminu. Beethoven er nátt-
úrlega stórhetjan mín og mér finnst
verk Schumanns hreint frábær.
Chopin valdi ég vegna þess að hann
er mér ávallt mikil áskorun.
Oft spyr fólk hvert sé uppáhalds
tónskáldið mitt og ég á alltaf afar erf-
itt með að svara því, vegna þess að ég
veit það satt að segja ekki. Kannski
eru þrjú tónskáld sem komast næst
því að vera í uppáhaldi, en þau eru
Beethoven, Mahler og Shostakovitsj.
En svo má ég auðvitað ekki gleyma
að nefna Schubert, því ég gæti hrein-
lega ekki lifað án hans.“
Gerrit segist með aldrinum hafa
leyft sér að spila aðeins verk tón-
skálda sem sér finnist nógu góð.
„Þegar maður er að byrja ferilinn
sinn getur maður auðvitað ekki leyft
sér það og ég hef gegnum tíðina bæði
stjórnað og spilað alveg hreint ótrú-
lega miklu magni af drasli, en ég geri
það ekki lengur. Í dag segi ég bara
nei. Ég held að það mikilvægasta
sem ég hafi lært á ferli mínum sé að
vera vandlátari. Hins vegar getur
verið mjög erfitt að segja nei því það
þýðir að stundum er maður atvinnu-
laus. En ég vil hins vegar aðeins
flytja og stjórna verkum sem ég hef
trú á. Ef verkið hefur enga meiningu
og tilfinningu fyrir manni þá á maður
ekki að flytja það,“ segir Gerrit.
Nýstárleg-
ir afmælis-
tónleikar
Morgunblaðið/Kristinn
Gerrit Schuil og Bergþóra Jónsdóttir ræða um líf og list Gerrits í Ými.
silja@mbl.is
Hamraborg 552 3636
20% afsláttur
peysur, buxur, bolir, jakkar, pils og kjólar
frá fimmtudegi til sunnudags
1 árs afmæli
í Hamraborg
Opi› í dag sunnudag kl. 13-16
Heppinn viðskiptavinur fær
20.000 króna gjafabréf.
Tilbo›s helgi allt a› 30% afsl.
TVE IR MÁNUÐ IR Á VERÐ I E INS
EKKERT S TOFNGJALD
Allir þeir sem gerast áskrifendur
að SKJÁTVEIMUR fyrir 1. nóvember
fá myndlykil og 2 mánuði í áskrift
fyrir aðeins 2.995 kr.
eða 2.495 kr.
með áskriftarpökkum Símans.
www.skjar2.is
Tryggðu þér áskrift í síma 800 7474
eða í verslunum Símans.