Morgunblaðið - 26.10.2003, Side 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í SUMAR voru sett bráðabirgða-
lög um breytingu á lögum um lax- og
silungsveiði og fleiri lögum í því skyni
að lögfesta efni til-
skipunar Evrópu-
sambandsins nr. 91/
67/EBE sem varðar
skilyrði á sviði heil-
brigðis eldisdýra.
Efni laganna er um-
deilt, en ekki síður að
landbúnaðarráðherra f.h. ríkisstjórn-
arinnar skuli hafa tekið sér lagasetn-
ingarvaldið. Ég tel að ekki hafi verið
færð fram rök fyrir því að rétt hafi
verið eða nauðsynlegt að setja bráða-
birgðalög og ef áfram verður gengið á
þessari braut þá geti ríkisstjórnin,
núverandi eða þær sem síðar munu
koma, með vísan til fordæmisins sem
sett var nú, rökstutt það að setja
bráðabirgðalög nánast að vild.
Alþingi verði kallað saman
Með breytingu á stjórnarskránni
1991 voru gerðar ýmsar breytingar á
starfsháttum Alþingis sem ætlaðar
voru til að styrkja löggjafarvaldið og
meðal annars breytt ákvæðum í
stjórnarskrá um heimild til að gefa út
bráðabirgðalög. Það hafði tíðkast í
verulegum mæli að ríkisstjórn tók sér
vald til þess að setja lög og vildu
menn breyta því. Helstu breytingar
voru að Alþingi situr nú allt árið og
getur hvenær sem er komið saman.
Rætt var um hvort afnema ætti alveg
heimild ríkisstjórnarinnar til útgáfu
bráðabirgðalaga en ekki var sam-
staða um það og því er heimildin enn í
stjórnarskrá. En bætt var við ákvæð-
um um að bráðabirgðalög skyldi
leggja strax fyrir Alþingi þegar það
kæmi saman að nýju og að lögin féllu
úr gildi að 6 vikum liðnum, ef Alþingi
hefði þá ekki samþykkt þau. Þessi
ákvæði afmörkuðu vissulega heimild-
ina betur en áður var, en aðalbreyt-
ingin var eftir sem áður í nýjum skiln-
ingi á því hvenær rétt væri að grípa til
þessarar heimildar.
Frumvarpið um stjórnarskrár-
breytinguna var lagt fyrir Alþingi
fyrir kosningarnar 1991 og samþykkt
og svo aftur á vorþinginu eftir kosn-
ingar eins og áskilið er að gera þegar
stjórnarskránni er breytt. Samstaða
náðist á Alþingi um breytinguna og
voru formenn allra þingflokka flutn-
ingsmenn málsins. Ólafur G. Ein-
arsson, formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, mælti fyrir málinu á
fyrra þinginu í neðri deild Alþingis. Í
ræðu sinni sagði hann m.a.: „Við þing-
flokksmenn höfum ekki uppi tillögur
um að breyta starfstíma Alþingis að
neinu verulegu leyti. Það verður að
þróast eftir sínum lögmálum á næstu
árum. En við leggjum til að þingið
verði sett 1. okt. og það starfi fram í
maí, lengur eða skemur eftir því sem
verkast vill. Þá sé þingfundum frest-
að til loka þingársins með því skilyrði
að það sé kallað saman ef nauðsyn
krefur, t.d. til þess að afgreiða aðkall-
andi löggjöf að ósk ríkisstjórnarinnar
eða efna til mikilvægra umræðna. Við
teljum þetta mikilsverða breytingu
sem treysti störf Alþingis og stöðu
löggjafarsamkundunnar í stjórnkerf-
inu. Alþingi er því starfhæft allt árið
og getur komið til funda mjög skjót-
lega ef þörf er á. Þessa breytingu ber
að nokkru leyti að tengja þeirri um-
ræðu sem verið hefur um bráða-
birgðalög nú upp á síðkastið.“
Síðar segir Ólafur frá því að ekki
hafi verið samstaða um að afnema
með öllu heimildina til að gefa út
bráðabirgðalög og „niðurstaða okkar
varð sú að gera nokkrar breytingar á
ákvæðunum um útgáfu bráðabirgða-
laga og meðferð þeirra á Alþingi, og
mun ég koma að þeim síðar, en jafn-
framt þessa breytingu á starfstíma
Alþingis í því skyni að ekkert stæði í
vegi fyrir því formlega að Alþingi
gæti komið saman til fundar með
stuttum fyrirvara ef eftir því væri
óskað og ríkisstjórn teldi það mik-
ilvægt. Þetta var sú niðurstaða sem
unnt var að fá með samþykki allra
nefndarmanna.“ Á síðara þinginu sem
breytingarnar voru til meðferðar tók
Ólafur, sem þá var orðinn mennta-
málaráðherra, aftur til máls og sagði
þá m.a.: „Í fyrsta lagi að þingið mun
starfa allt árið og í einni málstofu sem
auðvitað er mjög veigamikil breyting.
Ég tel líka að sú breyting út af fyrir
sig hafi það í för með sér að útgáfa
bráðabirgðalaga ætti því sem næst að
vera úr sögunni, ef ekki alveg.“
Þetta er alveg skýrt hjá 1. flutn-
ingsmanni málsins sem talaði fyrir
hönd allra þingflokka, ætlunin er að
Alþingi verði kallað saman ef þörf er
talin á löggjöf. Til frekari áréttingar
vil ég vitna til ummæla Margrétar
Frímannsdóttur, sem var 1. flutn-
ingsmaður málsins í neðri deild á síð-
ara þinginu : „Kjarni þess er að af-
nema deildaskiptingu Alþingis og að
Alþingi starfi framvegis í einni mál-
stofu. Jafnframt er reynt með ýms-
um hætti í frv. að styrkja stöðu Al-
þingis í stjórnkerfinu. Þannig mun
Alþingi starfa allt árið sem er tví-
mælalaust mikið framfaraspor. Það
mun annars vegar leiða til þess að
nefndir þingisins geta starfað allt ár-
ið í fullu umboði og hins vegar til þess
að Alþingi afsalar sér aldrei sínum
hluta löggjafarvaldsins yfir til fram-
kvæmdavaldsins eins og verið hefur.
Að vísu er það svo að ríkisstjórn mun
áfram hafa heimild til þess að leggja
til við forseta að gefa út bráðabirgða-
lög meðan þingfrestanir standa, en
það er skilningur allra sem að þessu
máli hafa staðið að til þess komi ekki
nema í sérstökum neyðartilvikum,
heldur verði tekinn upp sá nýi siður
að verði þörf á skjótri löggjöf utan
venjulegs starfstíma Alþingis, t.d. yf-
ir sumartímann, þá verði Alþingi
kallað saman til aukafunda til þess að
afgreiða hana með eðlilegum hætti.“
Alþingi aldrei kallað saman
Það fer ekki á milli mála að þessi
breyting hefur dregið mikið úr því að
bráðabirgðalög hafi verið sett. Að-
eins átta sinnum frá 1991 hefur verið
gripið til þessarar heimildar, sem er
mikil breyting frá því sem áður tíðk-
aðist. Engu að síður hefur verið
tregða hjá ríkisstjórn til þess að kalla
þing saman og í flestum þessara til-
vika tel ég að útgáfa bráðabirgðalaga
hafi ekki samrýmst yfirlýstum skiln-
ingi Alþingis. Það er greinilegt að til-
hneiging er hjá ríkisstjórninni til
þess að breyta túlkuninni til rýmk-
unar og sér í hag. Segja má að í sum-
ar hafi steininn tekið úr. Vissulega
eru það dómstólar sem eiga síðasta
orðið um það hvernig beri að túlka
þetta ákvæði stjórnarskrárinnar, en
við mat sitt hljóta þeir að hafa til hlið-
sjónar viðbrögð Alþingis hverju sinni
við bráðabirgðalagasetningunni. Ef
þingmenn fallast á að rétt hafi verið
að beita ákvæðinu í sumar er búið að
gerbreyta þeim skilningi sem lá til
grundvallar stjórnarskrárbreyting-
unni fyrir 12 árum. Það verður að
mínu mati að halda túlkuninni í því
horfi sem þá var samkomulag um,
því annars er verið að veikja stöðu
Alþingis.
Fordæmalaus lagasetning
Til þess að gefa út bráðabirgðalög
þarf brýna nauðsyn að bera til. Það
er mér mjög til efs að rök standi til
þess í þessu máli. Þar koma til mörg
atriði. Í fyrsta lagi er Alþingi starf-
hæft og gat komið saman í sumar, ef
ríkisstjórnin taldi þess þurfa. Í öðru
lagi hafði málið langan aðdraganda.
Það var vitað fyrir löngu að frestur
til að lögfesta efnisatriði reglugerðar
ESB rann út um mitt ár 2002 og
frumvarp var tilbúið í ráðuneytinu þá
um vorið. Í þriðja lagi var málið kom-
ið í þinglega meðferð. Það var lagt
fyrir Alþingi 6. mars 2003 eða 9 dög-
um áður en þingi lauk fyrir síðustu
alþingiskosningar. Landbún-
aðarnefnd Alþingis fékk þá málið til
meðferðar og komst að því að veru-
legur ágreiningur var um frum-
varpið. Ákveðið var að senda það til
umsagnar hagsmunaaðila og fresta
afgreiðslu þess. Í fjórða lagi kom Al-
þingi saman aftur í maílok sl. og þá
var hægur vandi að leggja málið fyrir
að nýju endurskoðað í ljósi framkom-
inna umsagna og athugasemda. Það
var ekki gert.
Ég veit engin dæmi þess að bráða-
birgðalagavaldi hafi verið beitt í máli
sem á sér langan aðdraganda, hefur
verið lagt fyrir Alþingi og það ekki
viljað gera að lögum að sinni. Ef
þetta verður talið ásættanlegt sýnist
mér að ríkisstjórn geti nánast að vild
gert frv., sem ekki fæst afgreitt á Al-
þingi, að lögum með því að setja
bráðabirgðalög við fyrsta tækifæri.
Full ástæða er til þess að sporna við
þessari þróun og halda fast við þann
skilning sem ákveðinn var í upphafi.
Raunar sé ég ekki þær aðstæður sem
geta réttlætt útgáfu bráðabirgða-
laga. Ef stjórnsýslan er það virk að
Bráðabirgðalög ekki réttlætanleg
Eftir Kristin H. Gunnarsson
Verslunarhúsnæði
- þjónusturými
Til leigu ca 50 fm atvinnuhúsnæði í
verslunarkjarna í Arnarbakka 2, Reykjavík.
Húsnæðið er laust nú þegar.
Upplýsingar gefur Kjartan Blöndal
í síma 588 1569 eða 694 1569.
Til leigu gott verslunarhúsnæði ásamt lager í kjallara, alls 574 fm. Til leigu í
einu lagi, eða sem skipta má í eftirfarandi einingar:
A. 189 fm verslun sem snýr út að Klapparstíg, ásamt 60 fm
geymsluplássi (eða 88 fm og 110 fm).
B. 156 fm verslun á horni Klapparstígs og
Hverfisgötu ásamt 169 fm lagerhúsn. í kjallara.
Laust um áramót.
KLAPPARSTÍGUR
Engjateigi 5 • 105 Reykjavík • S. 533 4200 og 892 0667,
arsalir@arsalir.is • Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Selfoss - Fossheiði
Til sölu 96,2 ferm. 3ja herb. íbúð á annarri
hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi.
Hagstæð áhvílandi lán.
Góð sameign.
Vinsæll staður.
Upplýsingar gefur sölumaður Hóls –
bújarðir Jón Hólm Stefánsson,
sími 896 4761.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Nýkomin í einkasölu skemmtileg 51
fm íbúð á 3ju hæð (efstu) í 5 íbúða
húsi við hliðina á Fæðingarheimil-
inu. Mikið endurnýjuð eign, m.a.
hús nýviðgert að utan, nýlegt gler
og gluggar o.fl. Frábær staðsetning
miðsvæðis. Laus strax. Verð 9,2
millj. 100617
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Eiríksgata - 2ja herb. - Reykjavík
Nýkomin í sölu á þessum góða stað
mjög falleg 137 fm neðri sérhæð í
tvíbýli, vel staðsett innst í botn-
langa. Sérinngangur. Parket og flís-
ar. Góður sólskáli. 3 svefnherbergi.
Fallegur skjólgóður barnvænn garð-
ur. Gott útsýni. Eignin er laus strax.
Verð 17,9 millj.
Fossvogur - Reykjavík - sérhæð
Falleg 3ja herb. 85,8 fm íbúð á
fyrstu hæð með sérgarði ásamt
stæði í bílageymslu. Tvö góð her-
bergi. Rúmgott baðherbergi.
Þvottahús í íbúð. HTH innrétting í
eldhúsi. Fallegt parket á gólfum.
Góð eign í snyrtilegu og vel við
höldnu fjölbýli. Verð 12,9 m.
Hrísrimi - Reykjavík
Fiskverkunarhús Hóps ehf. í Grindavík að Ægisgötu 1, er til
sölu.Í eigninni eru stórir fiskvinnslusalir, stór kælir, skrifstof-
ur, starfmannaaðstaða, matsalur, geymslur o.fl. Heildar-
stærð 3.200 m². Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Jónsson, hdl., löggiltur
fasteignasali, sími 421 2121,
asgeir@logbok.is, Lögbók ehf., Tjarnargötu 2, Keflavík
Til sölu fiskverkunarhús
Ægisgata 1, Grindavík
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Glæsileg 153 fm íbúð og innbyggður 26 fm bílskúr á góðum
útsýnisstað í Grafarvogi. Íbúðin er á tveimur hæðum, 4 góð
svefnherbergi, þvottahús í íbúðinni, eldhús með nýlegri Alno
innréttingu og tvær stofur. Stórar suðursvalir. Íbúðin er óvenju
glæsileg og húsið í góðu ásigkomulagi.
Opið hús í dag milli kl. 14 og 17, bjalla merkt 301.
OPIÐ HÚS Í DAG - VEGHÚS 23