Morgunblaðið - 26.10.2003, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 26.10.2003, Qupperneq 35
mögulegt er að gefa út bráðabirgða- lög, þá getur Alþingi komið saman og samþykkt löggjöf. Það er ekki flókn- ara fyrir Alþingi að koma saman en ráðuneyti og forsetaembættið. Miklir hagsmunir í laxveiðum Í málinu eru ekki aðeins hagsmunir fyrirtækja sem framleiða hrogn og seiði til útflutnings. Stærstu hags- munirnir eru tengdir laxveiði verð- mætum sem því tengist. Réttindin og hlunnindi þeim tengd eru metin á um 30 milljarða króna og árlegar tekur eru taldar vera 3–4 milljarðar króna. Þessar tekjur gera það að verkum að búseta á mörgum jörðum er möguleg og án þeirra færu margar jarðir í eyði. Fulltrúar þessara hagsmuna eru uggandi um sinn hag og óttast þá breytingu að leyfa innflutning á lif- andi laxi, en fram að setningu bráða- birgðalaganna í sumar hefur gilt al- gert bann við slíkum innflutningi. Óttast er að erlendir laxastofnar blandist þeim stofnum sem ganga í laxveiðiárnar og það geti leitt til þess að veiði leggist af. Ef það gerist verða laxveiðihlunnindin lítils virði. Land- búnaðarráðherra segir að allt hafi verið gert til þess að draga úr hættu á erfðablöndun, sem gæti valdið tjóni á íslenska laxastofninum. Þrátt fyrir það er verið að ganga skref aftur- ábak, það hlýtur að vera minni hætta á skaða án innflutnings heldur með innflutningi og það skref bætist við annað ekki síður umdeilt sem stigið var fyrir 2–3 árum, að leyfa laxeldi í sjó. Spurningin er hvort sé hægt að við- halda innflutningsbanni og nú liggur fyrir álitsgerð Stefáns Más Stef- ánssonar prófessors um að slíkt sé mögulegt með því að vísa til þess að nauðsynlegt sé að vernda innlenda laxastofna. Í umsögn Bændasamtaka Íslands kemur fram, það mat stjórnar samtakanna að enginn vafi er á því, að þessar breytingar fela í aukna hættu á að fisksjúkdómar berist til landsins, sem geti valdið búsifjum og nátt- úruspjöllum. Bæði Veiðimálastofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands eru andsnúin því að heimila innflutning á laxfiskum og leggja áherslu á að tryggja verndun innlendu stofnanna. Hinir hagsmunirnir í þessu máli eru miklu minni en laxveiðihlunnindin gefa af sér. Útflutningur á lax- ahrognum var á síðasta ári um 130 milljónir króna og þar af um 94 millj- ónir króna til ESB-landa . Árið 2001 nam þessi útflutningur um 116 millj- ónum króna og þar af um 97 millj- ónum króna til ESB landa. Enginn útflutningur var á lifandi laxi þessi ár og hefur ekki verið síðan árið 2000 og þá í litlum mæli. Þótt sjálfsagt sé að gæta að útflutningshagsmunum þá má ekki gera það á kostnað þeirra hagsmuna sem í dag eru miklu stærri. Ástæða er til þess að taka sérstaklega fram að fiskeldi annað en laxeldi í sjó er í raun óviðkomandi deilunum. Framleiðsla og sala á hrognum, seið- um og öldum fiski svo sem lúðu og þorski hefur engin áhrif á laxastofna í íslenskum ám og er því málinu óvið- komandi, það er aðeins laxeldið í sjó sem talið er geta valdið hættu á erfða- blöndum við þá stofna sem fyrir eru í ánum. Reynslan er ólygnust Deilur um þetta eru ekki nýjar af nálinni, minna má á að norskur laxa- stofn hafi verið hér á landi í 20 ár. Um það voru miklar deilur af sömu ástæðu og nú og þáverandi landbún- aðarráðherra Jón Helgason skipaði nefnd til þess að gera tillögur til sátta. Nefndin varð sammála um að ekki þætti fært að taka neina áhættu sem skaðað gæti íslenska náttúru í bráð og lengd. Samkomulag varð um að norskættuð hrogn, seiði eða lax færu aldrei í hafbeit eða til eldis í sjókvíum við strendur Íslands vegna þess að menn óttuðust erfðablöndun við ís- lenska laxastofna. Nú hefur nýlega verið frá þessu brugðið, leyft sjókvía- eldi með þeim afleiðingum að norskir laxar hafa sloppið úr kvíunum og gengið upp í laxveiðiár. Þessi reynsla vísar til þess að skynsamlegast sé að halda sig við fyrri ákvörðun. Þess vegna er óhjákvæmilegt að finna betri lausn en landbúnaðarráðherra lagði til í frv. sínu í mars sl. og lögfest var í sumar. Að því er unnið. Höfundur er alþingismaður. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 35 Sími 552 1400 fax 552 1405 Laugavegi 170, 2. hæð, 105 Reykjavík Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur löggiltur fasteignasali Heimasíða: www.fold.is - Netfang: fold@fold.is 20 íbúðir - 2ja, 3ja og 4ra herbergja Okkur hefur verið falið af opinberum aðila að útvega 20 íbúðir, 2ja, 3ja og 4ra herbergja, í Reykjavík. Staðgreiðsla í boði fyrir réttar eignir. Skoðun og kaup ganga mjög hratt fyrir sig. Áhugasamir hafi samband við sölumenn Foldar fasteignasölu í gsm-síma sölumanna: Böðvar 892 8934, Ævar 897 6060, Þorri 897 9757, Helgi 897 2451. GLAÐHEIMAR 8 - SÉRHÆÐ ÁSAMT BÍLSKÚR - OPIÐ HÚS Í DAG Vantar allar gerðir eigna á skrá! sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Falleg og mjög mikið endurnýjuð um 136 fm sérhæð með sérinngangi og um 23 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í 3-4 herbergi og 2-3 stofur. Gegn- heilt parket á allri íbúðinni. Glæsileg nýleg eldhúsinnrétting. Nýlegt gler og gluggar, endurnýjað rafmagn. o.fl. o.fl. Tvennar svalir. Vönduð og fal- leg eign. Mjög góð staðsetning í rólegu hverfi. Nánari uppl. veitir Finnbogi í síma 895 1098. Opið hús í dag frá kl. 15-17, Björk og Sveinn taka vel á móti fólki. MI‹SVÆ‹IS Á HÖFU‹BORGARSVÆ‹INU EINSTAKT TÆKIFÆRI Um er a› ræ›a fágætan möguleika ólíkan ö›rum, bæ›i hva› var›ar sta›setningu og stær›. Eignin er mi›svæ›is á höfu›borgarsvæ›inu en utan erils mi›bæjarins. Grei› lei› er a› svæ›inu og möguleiki á fjölda bílastæ›a/bílakjallara. Eignin er sta›sett efst á Ártúnshöf›anum og b‡›ur upp á stórkostlegt úts‡ni. Ón‡ttur byggingarréttur um 16 flús. fm. Til sölu er húsnæ›i Hampi›junnar a› Bíldshöf›a 9. Fasteignin er i›na›ar- og skrifstofuhúsnæ›i á tveimur hæ›um, samtals 9.700 fermetrar a› gólffleti. Ló›in er 3,7 hektarar a› stær› me› miklum byggingarrétti. Möguleiki er a› n‡ta eldri byggingar ásamt n‡byggingum í einni heild e›a sér. ... stórkostlegt úts‡ni af Ártúnshöf›anum FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf Óðinsgötu 4 • S. 570 4500 Jón Guðmundsson, lögg. fasteignasali Nánari uppl‡singar veitir Jón Gu›mundsson, löggiltur fasteignasali hjá Fasteignamarka›inum ehf. N O N N I O G M A N N I IY D D A • N M 1 0 4 7 5 /s ia .is N†BYGGINGAR N†BYGGINGAR Brauðgerð til sölu Upplýsingar veitir Ásmundur GSM 894 0559. Hóll á Reyðarfirði. Við höfum til sölu vel tækjum búna brauðgerð, staðsetta í Neskaupstað. Hér er um að ræða fyrirtæki í fullum rekstri með markað í Fjarðabyggð. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þann, sem vill taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem framundan er vegna framkvæmda við álver í Reyðarfirði. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.