Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 41

Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 41
af dugnaði og hugrekki haldið áfram þrátt fyrir áföll. Hetja í dag- legu lífi, ekki aðeins nú þessi síð- ustu ár heldur alla tíð. Þannig minnist ég hennar allt frá því ég kynntist henni fyrst þegar hún var nemandi minn í grafíkdeild Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands og í gegnum öll okkar samstarfsár. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með Þorgerði bæði sem persónu og listamanni. Sem lista- maður óx hún og þroskaðist með hverju ári. Lífið gaf henni misjöfn spil en lofsvert var hvernig hún tókst á við þær misjöfnu aðstæður. Veikindin og önnur áföll virtust ekki hindra hana, hún varð jafnvel enn sterkari og öflugri í verkum sínum þegar aðrir hefðu ef til vill bugast. Hún sýndi verk sín sem aldrei fyrr nú þessi síðustu ár og jafnvel fram á síðustu stundu sá hún um að setja upp sýningu í kirkju á verkum sínum. Fallegur endir á annars farsælu myndlist- arstarfi og í hennar anda, en kristin trú var alla tíð mikilvæg fyrir Þor- gerði sem hún túlkaði með ýmsu móti í verkum sínum. Það er þó fyrst og fremst persón- an Þorgerður sem ég minnist allra mest, og sakna dýpst. Þessarar konu sem var ætíð heiðarleg og hugrökk, djúp og sterk, hlý og gef- andi. Sterkur persónuleiki og bráð- vel gefin kona sem mikill missir er af. Fegurð sálar hennar og persónu kemur skýrt fram í hennar eigin ljóði úr ljóðabók hennar „Í fjörutíu daga“ sem skrifuð var sem andsvar við erfiðum tíma í lífi hennar. Sái ég með tárum uppsker ég sorg. Sái ég með brosi uppsker ég kærleika. Ég sái í sama reitinn, í sömu moldina. Hvenær er tími uppskerunnar? Verk Þorgerðar og minning er sú uppskera sem aldrei mun gleymast okkur sem hana þekktum og áttum þess kost að starfa með henni. Guð varðveiti minningu Þorgerð- ar Sigurðardóttur. Ég sendi sambýlismanni, syni og fjölskyldu Þorgerðar mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Valgerður Hauksdóttir. Í borðstofunni okkar hangir mynd. Það er hvít grafíkmynd, af fornum brauðmótum frá Byggða- safninu á Grenjaðarstað með út- skurði og áletraðri borðbæn Hall- gríms Péturssonar; Þurfamaður ert þú mín sál. Sterk mynd og stílhrein eins og sú sem vann hana. Þorgerður var okkur kær vinur, fyrst frá unglingsárum til háskóla- ára og nú síðast einnig sem ná- granni. Það eru ófáir kaffibollar okkar megin og gómsætir réttir þeirra megin sem glatt hafa geð og styrkt vináttu við þau Ólaf hér í Auðarstrætinu. Í hvert sinn er við fluttum búferl- um var beðið þangað til Þorgerður gat komið og verið listrænn stjórn- andi við upphengingu mynda. Hún hafði hvorki mörg orð né fyrirgang en alltaf kom hún með djarfar til- lögur sem settu bæði verk og veggi í nýtt samhengi. Við eigum sama afmælisdag og göntuðumst oft með hve margt væri líkt með því sem við hefðum tekið okkur fyrir hendur. Það var gaman og uppbyggilegt að eiga samfélag við Þorgerði og húmor hennar var bæði ferskur og beittur. Ég dáðist að rósemi hennar og styrk og staðfestu við lífið og listina, ekki síst nú síðustu ár þegar hún glímdi við sjúkdóm sinn. Mynd- irnar hennar bera með sér þennan styrk og þá hógværð sem aðeins sí- fellt vaxandi listamaður býr yfir. Hún gaf okkur mikið í sjóð minn- inganna og í gegnum sorgina sér í þakklæti og gleði yfir því að hafa orðið gjafa hennar aðnjótandi. Við hér á Snorrabrautinni biðjum Guð að styrkja alla ástvini hennar nú og ævinlega. Margrét Bóasdóttir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 41 Mig langar að minnast Nonna tengdaföður míns í nokkrum orðum. Nonni, eins og hann var oftast kallaður, var rólegheitamaður, geðgóður og sá yfirleitt góðu hliðarnar á flest- um mönnum. Skaplaus var hann þó ekki og sagði sína skoðun á mönnum og málefnum og lét í sér heyra ef honum líkaði ekki. Í upp- hafi okkar kynna hefðu þau Rúna sjálfsagt viljað kasta mér út í hafs- auga. Ég var að fara á fjörurnar við litlu prinsessuna þeirra á Brekkubrautinni, sem var alltof ung og myndarleg fyrir svona Nobbara. Brátt var ég þó orðinn einn af fjölskyldunni. Nú sit ég hér, 21 ári síðar, hugsa til baka og það koma aðeins góðar minningar fram í hugann. Það var mikið hlegið á Brekku- brautinni og þar var ýmislegt látið flakka. Þarna voru húmoristar fram í fingurgóma og lumaði Nonni oft á góðum sögum. Best af öllu var að menn gátu gert grín að sjálfum sér. Mér er minnisstætt fyrst þegar ég sá enska boltann með Nonna og Rúnu. Nonni sparkaði með vinstri og hægri og gaf dómara leiksins tóninn og Rúna lét ekki sitt eftir liggja. Þá varð mér litið á Kadý. Hún yppti öxlum og gaf til kynna að svona væri þetta alltaf þegar hjónin horfðu á fótbolta. Þær voru margar góðar stundirnar í stofunni þar sem spjallað var um daginn og veginn, en mest þó um fótbolta, ættfræði og svo um hesta og hestamennsku. Nonni var úrvalskokkur en ég er ekki viss um að ég hafi fengið JÓN S. JÓNSSON ✝ Jón SigurðssonJónsson fæddist á Akranesi 20. jan- úar 1925. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 18. október síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Akranes- kirkju 24. október. sama réttinn tvisvar hjá honum. Þegar ég spurði út í það svaraði karlinn að maður yrði alltaf að prófa eitt- hvað nýtt. Nonni var alltaf með vaðið fyrir neðan sig og tefldi engu í tvísýnu ef því væri við komið. Honum leist t.d. ekkert á þessa Dani, sagði að þeir væru eintómir bófar og glæpamenn. Hann spurði hvað við vær- um eiginlega að þvælast þarna úti hjá þessum Baunum. En við sökn- uðum ykkar líka og reyndum að verja sem flestum fríum á Íslandi. Við vorum búin að panta far heim um jólin og hlökkuðum mikið til að hitta ykkur öll saman. Það var harmafregn er við fréttum að þú værir alvarlega veikur, karlinn minn. Við náðum að kveðjast síð- ustu dagana þína á sjúkrahúsinu á Akranesi. Það var erfiður en ómet- anlegur tími fyrir mig. Það er stutt stórra högga á milli, fyrst Ægir heitinn og nú þú, Nonni minn. Eftir situr fjölskylda, vinir og vandamenn með söknuð og sorg í hjarta. En svona er lífið þótt erfitt sé að sætta sig við það. Ég vil þakka þér kynnin, Nonni minn, þú veist að þú átt nú tölu- vert í mér. Ég vil ljúka þessum fátæklegu línum með smálífsspeki úr Háva- málum: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Elsku Rúna, Alli, Doddi, Siggi, Peta og Kadý mín. Fjölskylda, vin- ir og vandamenn. Við stöndum saman í sorginni, styðjum og styrkjum hvert annað. Er hjá ykk- ur öllum. Hörður. ✝ Júlíus KristinnEiríksson vél- stjóri fæddist í Mið- koti í Miðneshreppi 1. júlí 1916. Hann lést á Heilsustofnun Suðurnesja 16. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Eiríkur Jónsson tré- smíðameistari, f. 21. janúar 1884, d. 22. ágúst 1940, og Sveinbjörg Orms- dóttir húsfreyja, f. 23. október 1889, d. 3. júní 1990. Systkini Júlíusar eru: Vilborg, f. 23. desember 1912, látin, Sóley, f. 10. júlí 1914, látin, Jónína Sóley, f. 9. júlí 1915, látin, Gunnhildur Fjóla, f. 3. júní 1919, Jón, f. 28. febrúar 1921, lát- inn, Sveinbjörn, f. 25. ágúst 1923, Ei- ríkur, f. 8. nóvem- ber 1925, Sigrún Lilja, f. 28. desem- ber 1927, Sigurður, f. 8. september 1929, Hildur, f. 25. janúar 1932, og Reynir, f. 13. jan- úar 1935. Júlíus kvæntist 20. desember 1941 Þuríði Þórarins- dóttur frá Stein- boga í Garði, f. 18. febrúar 1908, d. 27. september 1997. Þau voru barnlaus. Útför Júlíusar var gerð frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði 24. október. Kæri frændi eða Júlli „bróðir“ eins og við í minni fjölskyldu vorum vön að kalla þig, en þú varst bróðir hans pabba, Sigurðar. Nú er þessum tíma þínum hér á jörðinni lokið og ég trúi því að annað líf taki við á öðrum stað. Þar hefur þú nú hitt hana Þuru, ömmu Svein- björgu, afa og systkini þín sem nú þegar eru farin. Það verður skrítið að fara framhjá húsinu þínu við Uppsalaveginn og vita að þú ert þar ekki lengur. Það var alltaf spennandi að leika sér í garðinum þínum þegar við systkinin vorum krakkar og komum í heim- sókn til ykkar Þuru. Sérstaklega fannst okkur bóndabærinn flottur. Einnig á ég í minningunni kvöld- stund sem við áttum ekki alls fyrir löngu. Þá var ég að taka saman ævi- ágrip ömmu og afa. Þá leitaði ég til þín og þú rifjaðir upp og sagðir mér frá æviferli ömmu og afa. Við fjölskyldan erum þakklát fyrir að hafa kynnst þér og átt með þér góðar stundir. Það þótti orðið sjálf- sagt að þú borðaðir með okkur á há- tíðisdögum og ef þú komst ekki spurðu krakkarnir alltaf hvort Júlli „bróðir“ yrði ekki í mat. Elsku pabbi, við vottum þér, systkinum þínum og fjölskyldum samúð okkar. Sigríður Hanna og fjölskylda, Norðurkoti. JÚLÍUS KRISTINN EIRÍKSSON Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SESSELJU JÓNSDÓTTUR, Mánabraut 6, áður Hamraborg 16, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð fyrir kærleiksríka umönnun. Hörður Jónasson, Sigrún Eliseusdóttir, Guðfinna Sesselja Solvåg, Halvdan Solvåg, Guðmundur Þorvar Jónasson, Sigrún Sigvaldadóttir, Jón Hersteinn Jónasson, Anna Kristjánsdóttir, Þorvaldur Rúnar Jónasson, Ragnhildur Karlsdóttir og öll ömmubörnin. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, teng- daföður og afa, ÞORSTEINS SIGURBJÖRNS JÓNSSONAR frá Ólafsfirði, Bogahlíð 15, Reykjavík. Hólmfríður Jakobsdóttir. börn, tengdabörn og barnabörn Systir mín, GUÐRÚN ÞORVALDSDÓTTIR, sem lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 17. október, verður jarðsungin frá Bústaða- kirkju þriðjudaginn 28. október kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Björg Hafsteins. Bróðir okkar, mágur og frændi, JÓAKIM ARASON frá Seljalandi, síðast til heimilis á Litlu-Völlum, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 27. október kl. 15.00. Jóhannes Arason, Arnfríður Aradóttir, Jón Hallsson og systkinabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN VILMUNDUR ÓSKARSSON vélstjóri, Beykilundi 2, Akureyri, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut fimmtudaginn 23. október. Ólöf Sveinsdóttir, Helga Guðný Jónsdóttir, Óskar Karl Guðmundsson, Óskar Sveinn Jónsson, Dóra Gísladóttir, Sveinbjörn Jónsson, barnabörn og langafabarn. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.