Morgunblaðið - 26.10.2003, Qupperneq 53
og lagasmiðnum Benjamin Biolay.
Þau voru ekki búin að þekkjast lengi
er þau tóku að semja lög sem urðu að
fyrstu sólóskífu Keren Ann, breið-
skífunni La Biographie de Luka
Philipsen, en nafnið er fengið frá lagi
eftir eitt helsta átrúnaðargoð Keren
Ann, Suzanne Vega, og eftirnafni
ömmu Keren Ann, Philipsen. Hún
segir reyndar að upphaflega hafi hún
aðeins verið að vísa í nafn ömm-
unnar, Lurs Philipsen, en þegar
blaðamenn hafi farið að skrifa um
tengslin við Luka og Suzanne Vega
hafi henni þótt það hið besta mál.
Safn smámynda
La Biographie de Luka Philipsen,
safn af smámyndum úr ævi ímynd-
aðrar persónu, eins og Keren Ann
lýsir plötunni sjálf, kom út í apríl
2000 og seldist bráðvel í Frakklandi.
Tónlistin var einskonar bræðingur af
triphopi, þjóðlagatónlist og
franskri popptónlist, en hún hef-
ur líka verið dugleg að vitna í
ýmisleg bókmenntaleg minni
og höfunda sé hún beðin að
nefna áhrifavalda.
Þá um haustið héldu þau
Keren Ann og Biolay til
Taílands að semja lög
á nýja skífu. Vinnan
gekk svo vel að þau
voru aflögufær um lög
fyrir plötu Henri
Salvador,
Chambre avec
vue, sem kom út í
október það ár.
Sú plata seldist
metsölu í Frakk-
landi, yfir 600.000
eintökum, og jók
orðstír Keren Ann
svo um munaði.
Árið 2001 fór að
mestu í að semja lög
fyrir næstu sóló-
skífu og taka hana
upp, en einnig samdi
hún lög með Biolay fyr-
ir plötu hans Rose
Kennedy. La Disp-
arition kom svo út í
apríl 2002. Samhliða
upptökum á la Disp-
arition vann hún að
fyrstu plötu sinni á ensku sem kom
svo út undir nafninu Not Going
Anywhere í nýliðinni viku.
Frægðin ekki eftirsóknarverð
Eins og nafnið ber með sér er Not
Going Anywhere á ensku, ekki síst til
að reyna að ná eyrum fleiri en
Frakka. Þó Keren Ann hafi alist upp
við ensku og ekki lært frönsku fyrr
en ellefu ára gömul segir hún að sér
hafi aldrei dottið í hug að syngja
nema á frönsku, hún búi í Frakklandi
og haldi mikið upp á tungumálið. La
Biographie de Luka Philipsen, fyrsta
sólóplatan, var þó upphaflega samin
á ensku, en svo fannst henni rétt að
hafa hana á frönsku, ekki síst vegna
þess að hún var undir svo sterkum
áhrifum frá frönskum tónlist-
armönnum.
„Það var þó gaman að spreyta sig
á enskri plötu, en mér finnst ekki lík-
legt að ég eigi eftir að slá í
gegn í Bandaríkjunum
eða Bretlandi. Mér
finnst það fyrir mestu
að platan seljist það
vel að ég fái að gera
aðra plötu. Mér
finnst frægðin ekki
eftirsóknarverð í
sjálfu sér og allt það
sem fylgir henni, viðtöl
og kynningarferðir,
varir vonandi
bara skamma
hríð svo ég fái
frið til að taka
upp næstu plötu.
Mér finnst
skemmtilegast
að gera plötur, að
taka upp lög jafn-
óðum og þau verða
til, en nú orðið
kann ég líka vel
við það að koma
fram, leika á tón-
leikum. Mér fannst
það skelfileg reynsla
til að byrja með, en
svo áttaði ég mig á
því að þegar ég er á
sviðinu með hópi tón-
listarmanna er eins
og ég sé í lítilli fjöl-
skyldu.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 53
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.55, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Kl. 2, 4 og 6.
KRINGLAN
Kl. 2, 4 og 6.
AKUREYRI
Kl. 2 og 4.
KEFLAVÍK
Kl. 2 og 4.
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 4.
KRINGLAN
Sýnd kl. 2.
AKUREYRI
Sýnd kl. 2 og 4.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2.
KRINGLAN
Sýnd kl. 2 og 4.. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2.. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. B.i.10
ÁLFABAKKI
Kl. 1.30, 3.40, 5.50 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10. B.i. 6.
ÁLFABAKKI
kl. 5.45, 8 og 10.15.
Frábær teiknimynd byggð á sígildu þjóðsögu
um Tristan og Ísold.
r r t i i í il j
ri t Í l .
Með hinum hressa Seann William Scott úr
“American Pie” myndunum og harðjaxlinum
The Rock úr “Mummy Returns” og
“The Scorpion King.”
Beint átoppinn
í USA
Ævintýraleg spenna, grín og hasar
NÝJASTA MYND COEN BRÆÐRA.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine
Zeta-Jones fara á kostum í myndinni.
Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.
MEÐ ÍSLENSKU TALI
Miðaverð500 kr.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.15.
KEFLAVÍK
kl. 3.40, 5.45 og 8.
ROGER EBERT
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
NÝJASTA MYND COEN BRÆÐRA.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine
Zeta-Jones fara á kostum í myndinni.
Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
MEÐ ÍSLENSKU TALI
SG DV HJ MBL
DEILU hljómsveitarinnar múm og hljómplötuútgáfu,
sem gaf út eina af breiðskífum hljómsveitarinnar, lauk
í vikunni með því að Hæstiréttur kvað upp úr um að
hljómsveitinni hefði verið heimilt að grípa til aðgerða
vegna vanefnda á útgáfusamningnum. En með því að
gera samkomulag við plötuútgáfuna vegna vanefnd-
anna hafi múm fyrirgert rétti sínum til að rifta útgáfu-
samningnum síðar. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
áður komist að þeirri niðurstöðu að múm hefði verið í
fullum rétti að rifta samningnum.
Deilan snerist um samning plötuútgáfunnar Platna
við bandaríska lögmannastofu um að Sony fái afnot af
laginu „I’m 9 Today“. Samkvæmt samkomulaginu
mátti Sony nota lagið án takmarkana í sjónvarps- og
útvarpsauglýsingum, á Netinu sem og í leikhúsi og til
iðnaðarþarfa.
Í kjölfarið gerði útgáfufyrirtækið samkomulag við
múm um að hljómsveitin fengi öll leyfi til að nýta um-
rætt lag til kynningar á vörum Sony um alla framtíð.
Einnig fékk múm heimild til að hirða allar tekjur
vegna leyfisveitingarinnar án skuldbindinga til að
greiða plötuútgefandanum hluta þeirra og í þriðja lagi
hét útgáfan því að hafa ekki uppi neinar kröfur á
hendur múm eða öðrum af þessu tilefni.
Fjórum dögum eftir að bréf, þar sem þetta sam-
komulag var staðfest, var lagt fram, ritaði lögmaður
múm hljómplötuútgáfunni bréf og lýsti því yfir að út-
gáfusamningnum hefði verið rift, fyrst og fremst
vegna samkomulagsins við bandarísku lögfræðistof-
una. Þessa riftun á útgáfusamningnum hefur Hæsti-
réttur nú ógilt.
Snúið dómsmál leitt til lykta
Morgunblaðið/Jim Smart
Hljómsveitin múm ásamt gestaleikurum.
Múm á sig sjálf