Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Ein gata, eitt hverfi
eða allur bærinn
www.postur.is
Kortleggðu næstu markaðssókn
með Fjölpósti.
VETRARSÓLIN skapar oft skemmtilega
stemningu og varpar skuggum á skrautlegt og
iðandi mannlíf. Dýrin koma þar einnig inn í
myndina líkt og þessi ágæti hundur sem hefur
komið sér fyrir úti í glugga og fylgist með
unga mannfólkinu – og ljósmyndaranum.
Morgunblaðið/RAX
Dýr og menn í vetrarsól
NIÐURSTÖÐUR nýrrar rannsókn-
ar gefa til kynna að vændi meðal ungs
fólks á Íslandi birtist í ýmsum mynd-
um. Bæði stelpur og
strákar skipta þannig á
kynmökum fyrir til dæm-
is vímuefni, mat, gistingu
eða peninga. Um er að
ræða skipulagt og
óskipulagt vændi innan
félagahópsins sem utan.
Samkvæmt könnun
meðal 16–19 ára fram-
haldsskólanema sagðist
131 nemandi, tæp 2% af
þeim er svöruðu spurn-
ingunni, hafa einu sinni eða oftar þeg-
ið greiða eða greiðslu í staðinn fyrir
kynmök. Var vændið algengara með-
al stráka en stelpna, eða 3,1% hjá
strákum á móti 1% hjá stelpum. Hafa
niðurstöðurnar þegar vakið athygli
erlendis, m.a. á nýlegri ráðstefnu í
Rússlandi þar sem þær voru kynntar.
Rannsóknina gerði Bryndís Björk
Ásgeirsdóttir hjá Rannsóknum &
greiningu og vann hún hana sem
meistaraverkefni í félagsfræði við
Háskóla Íslands, með styrk frá dóms-
málaráðuneytinu og Rannsóknarráði
Íslands. Bryndís Björk útskrifaðist
með BA-próf í sálfræði frá sama skóla
árið 1999 en rannsóknin
er í raun framhald ann-
arrar rannsóknar sem
Bryndís vann að ásamt
tveimur samstarfskon-
um sínum hjá Rannsókn-
um & greiningu, þeim
Hólmfríði Lydíu Ellerts-
dóttur og Ingu Dóru Sig-
fúsdóttur, fyrir dóms-
málaráðuneytið árið
2000 til 2001.
Markmið rannsóknar-
innar nú var annars vegar að leitast
við að lýsa vændi meðal ungs fólks á
Íslandi og athuga í hvaða myndum
það birtist. Hins vegar var markmiðið
að rannsaka með tölfræðilegum hætti
félagslegt umhverfi framhaldsskóla-
nema sem þegið hafa greiða eða
greiðslu í skiptum fyrir kynmök.
Tekin voru 42 viðtöl við sérfræð-
inga og einstaklinga sem þekktu til
vændis meðal ungs fólks og sem fyrr
segir var einnig unnið úr könnun
meðal nemenda í öllum framhalds-
skólum á Íslandi árið 2000. Þar voru
þátttakendur 7.239 nemendur á aldr-
inum 16 til 19 ára. Spurningunni um
greiðslur fyrir kynmök svöruðu 6.714
nemar.
Kynferðisleg misnotkun í
æsku eykur líkur á vændi
Bryndís Björk notaði þrjár fé-
lagsfræðilegar kenningar um fráviks-
hegðun til að draga fram félagslega
áhættuþætti vændis, þ.e. kenningar
um félagsnám, almennt álag og fé-
lagslegt taumhald. Reyndust allar
þessar kenningar leggja eitthvað af
mörkum til að skýra áhrif kynferð-
islegrar misnotkunar í æsku á vændi
meðal framhaldsskólanema. Segir
Bryndís Björk að á þann hátt auki
kynferðisleg misnotkun í æsku, and-
leg vanlíðan og lítil tengsl við skóla
líkur á vændi meðal framhaldsskóla-
nema. Einnig gefa niðurstöðurnar til
kynna að aðrir veigamiklir þættir hafi
sjálfstætt forspárgildi um vændi, s.s.
kyn, aldur, menntun föður og áfengis-
og vímuefnaneysla nemenda.
Vændi ungs fólks
í ýmsum myndum
Ný rannsókn hér á landi gefur til kynna að fleiri strákar
en stelpur hafi þegið greiðslur fyrir kynmök
DE
FDG
HIGJ
I
J
! %
I
J
IEJ
=' #+#6%#;#+
&!
;
Vændi/10–11
MEÐAL þeirra sem komnir eru áfram í úr-
slit í Idol-stjörnuleitinni á Stöð 2 er Karl
B. Guðmundsson, 27 ára kokkur og háseti
á netaveiðibátnum Sigga Magg frá Grinda-
vík. Ásamt Önnu Katrínu Guðbrandsdóttur
frá Akureyri fór Karl áfram eftir fyrstu
keppnina í 32 manna úrslitum, sem sýnd
var á föstudagskvöld. Þar hlaut Karl rúm-
lega 41% atkvæða í símakosningu þar sem
ríflega 51 þúsund áhorfendur hringdu inn.
Anna Katrín hlaut 37% atkvæða.
Morgunblaðið náði tali af Karli í gær-
morgun þar sem hann var að draga inn
netin um borð í Sigga Magg. Hann sagðist
skiljanlega vera ánægður með árangurinn,
markmið hvers keppanda væri að komast
alla leið. Þó að Karl sé til sjós hefur hann
nokkra reynslu af tónlist, bæði af flutningi
og tónsmíðum. Þannig samdi hann og flutti stuðningsmannalag
Grindvíkinga í knattspyrnu. Hann sagðist eiga sér þann draum að
hafa lífsviðurværi sitt af tónlist.
„Segja má að ég hafi verið sísyngjandi frá fæðingu. Amma mín í
Grundarfirði ýtti mér út í sönginn og tónlistina og ég fór að
glamra á hin ýmsustu hljóðfæri,“ segir Karl, sem er fæddur í
Reykjavík en bjó frá þriggja ára aldri til 14 ára í Grundarfirði. Síð-
ustu árin hefur hann búið í Grindavík og á þar konu, lítið barn og
fósturdóttur.
„Það spurðu mig margir eftir þáttinn hvort ég ætlaði ekki að
fara út á lífið og fagna árangrinum fram eftir morgni en ég þurfti
að vakna snemma til að fara að draga upp þorskanetin,“ sagði Karl
og var þar með stokkinn niður úr brúnni og út á dekkið.
Hásetinn á sér
draum um að
lifa af tónlistinni
Karl B. Guðmundsson
♦ ♦ ♦
NÝKJÖRINN ferðafrömuður ársins, Jón
Jónsson á Kirkjubóli á Ströndum, hefur
uppi ýmis áform um aukna þjónustu við
ferðamenn næsta sumar. Meðal þess er
meistaramót í hrútaþukli.
Jón segir í samtali við Morgunblaðið í
dag að Strandamenn hafi verið að fikra
sig áfram með fjölskylduvænar uppá-
komur eins og fjörudaga, hrútaskoð-
unardaga, dráttarvéladaga og leikjadaga,
svo dæmi séu tekin.
Þuklað á
hrútum
Nýjung í ferðaþjónustu
Sunnudagur/B9
FLUGLEIÐIR eru að taka upp nýtt far-
gjaldakerfi og bjóða meðal annars allt að
38% lækkun á viðskiptafargjöldum. „Þetta
er liður í aukinni vöruþróun og þjónustu,“
segir Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, og bætir við að ekki sé
tjaldað til einnar nætur heldur sé lækkunin
til frambúðar.
Guðjón segir að boðið sé upp á þrjá verð-
flokka, tvo í Evrópu og einn í Bandaríkj-
unum, og sé verðið frá 58.900 kr. Hann segir
að verð fari stöðugt lækkandi í flugi og
Flugleiðir takið mið af því í þessum verð-
breytingum. „Við viljum fá fleiri til að nota
þá þjónustu og þau þægindi sem fylgja
þessum fargjöldum,“ segir hann.
Nýtt fargjaldakerfi tekið
upp hjá Flugleiðum
Allt að 38%
lækkun á
viðskipta-
fargjöldum