Morgunblaðið - 01.11.2003, Page 22
AKUREYRI
22 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á bls. 25 vantar á starfsheiti greinarhöfunds, það á að vera Kristján M. Ólafsson. Höfundur er
hagverkfræðingur og starfar sem framkvæmdastjóri EAN á Íslandi. Er beðist velvirðingar á þessu.
Vörustjórnunarfélag Íslands gefur
út blað sem dreift er með
Morgunblaðinu í dag
Jörðin Ytra Fell í Eyjafjarðarsveit er til sölu ásamt bústofni,
tækjum og framleiðslurétti. Á jörðinni er gott einbýlishús, byggt
árið 1955 og fjós endurnýjað árið 2000.
Ræktað land er 25 ha. Jörðinni fylgir liðlega 173.000 lítra
framleiðsluréttur í mjólk. Jörðin er vel staðsett, einungis
í um 20 km fjarlægð frá Akureyri.
Allar frekari upplýsingar eru veittar fasteignasölunni
BYGGÐ (Björn), Strandgötu 29, Akureyri,
s. 462 1744 og 462 1820. Tölvupóstur; bjorn@byggd.is
Jón Kr. Sólnes hrl., lögg. fasteignasali
Ytra Fell, Eyjafjarðarsveit
Til sölu bújörð í fullum rekstri
Síðasta sýningarhelgi | Sýningu
Guðnýjar Þórunnar Kristmanns-
dóttur í Kompunni í Grófargili á Ak-
ureyri lýkur á morgun, sunnudaginn
2. nóvember. Þetta er þriðja einka-
sýning hennar. Guðný stundaði nám
í Myndlista- og handíðaskóla Íslands
og brautskráðist frá málaradeild
1991. Sýningin er opin kl. 14–17 alla
sýningardagana.
Þrjú innbrot | Þrjú innbrot voru
tilkynnt til lögreglu á Akureyri í vik-
unni. Brotist var inn í aðstöðu
Hringrásar við Krossanes, farið inn í
vinnuskúr við Brekkuskóla og þaðan
stolið örbylgjuofni og farsíma og
loks var brotist inn í dráttarvél við
Fjölnisgötu og úr henni stolið tal-
stöð.
Tíð óhöpp í hálkunni | Þrettán um-
ferðaróhöpp urðu á Akureyri í vik-
unni og má rekja flest þeirra til hál-
kunnar sem seint í vikunnar gerði
óþægilega vart við sig í bænum.
Margir voru enn með sumardekk
undir bílum sínum og því hált á svell-
inu í orðsins fyllstu merkingu, segir í
dagbók lögreglunnar.
Lítil slys urðu á fólki, en í tveimur
tilvika var fólk flutt á slysadeild til ör-
yggis. Talsvert eignatjón varð í þess-
um árekstrum.
Lögregla kærði átta ökumenn fyrir
of hraðan akstur, fimm fyrir vanbú-
inn ljósabúnað og einn fyrir notkun
farsíma án handfrjáls búnaðar.
Valt við Fagraskóg | Bifreið valt á
Ólafsfjarðarvegi, við Fagraskóg, á
fimmtudagsmorgun. Engin meiðsl
urðu á fólki, en ökumaður var fluttur
á heilsugæslustöðina á Dalvík til
skoðunar.
þeir Gunnar Sigtryggsson, Sveinn
Rafnsson og Birgir Torfason. Þeir
félagar standa jafnframt að rekstri
Ali Sportbar við Skipagötu, ásamt
eigendum Sjallans.
VÉLSMIÐJAN er heiti á nýjum
skemmtistað, sem verður opnaður á
Strandgötu 49 föstudaginn 7. nóv-
ember nk., þar sem veitingastaður-
inn Við Pollinn var áður til húsa.
Einkahlutafélagið GSB veitingar
hefur tekið húsnæðið, sem er tæpir
700 fermetrar að stærð, á leigu af
Landsbankanum, en að því standa
Umfangsmiklar endurbætur
Að sögn Sveins Rafnssonar hafa
staðið yfir umfangsmiklar endur-
bætur innanhúss á húsnæði Vél-
smiðjunnar. Búið að brjóta niður
vegg og arin vestast í húsinu,
stækka svið og dansgólf, „en barinn
er enn á sínum stað,“ sagði Sveinn.
Koníaksstofa verður í vesturenda
hússins, efri hæðin verður einnig
opin og þar verður m.a. boðið upp á
veisluþjónustu, að sögn Sveins.
Hann sagði að húsið væri með B-
friðun og því væri leyfilegt að gera
þar breytingar innanhúss en ekki
utanhúss.
„Við verðum með lifandi tónlist
um helgar og mun hljómsveit Pálma
Gunnarssonar ríða á vaðið og leika á
staðnum fyrstu helgina. Við
stefnum að því að hafa opið þrjú
kvöld í viku og vera þá menning-
artengdir á fimmtudögum og bjóða
upp á djass, blús og ýmislegt fleira.
Allt mun þetta þó ráðast af því
hvernig undirtektir verða,“ sagði
Sveinn.
Engin starfsemi hefur verið í hús-
inu frá því í vor. Hlutafélagið Ós,
sem rekur veitingahúsið Oddvitann
örlítið neðar í Strandgötu, keypti
Pollinn sl. vetur af Landsbankanum
en salan gekk til baka á vordögum.
Skemmtistaðurinn
Vélsmiðjan opnaður
Barinn verður
áfram á sínum stað
RÍFANDI stemmning var í Íþróttahöllinni á Akureyri í gærmorgun en
þar voru nemendur og kennarar í Brekkuskóla, á sjötta hundrað
manns, að ljúka þemadögum, undir yfirskriftinni „heilsa, hollusta,
hreyfing“. Krakkarnir fengu góða gesti að sunnan í heimsókn, þær
Sollu stirðu og Höllu hrekkjusvín úr Latabæ, sem skemmtu þeim um
stund með söng og dansi. Einnig kom einn fyrsti bekkur í Oddeyr-
arskóla í heimsókn. Solla og Halla stóðu m.a. fyrir rokkdanskeppni á
milli árganga skólans, þar sem þau yngstu þóttu standa sig best, auk
þess sem starfsmenn skólans fengu að spreyta sig á nokkrum ball-
ettsporum við mikinn fögnuð nemenda. Í lokin fór svo hópur nemenda
niður á gólf og fékk þar kennslu í línudansi, undir stjórn Aðalbjargar
Hafsteinsdóttur.
Þemadagarnir stóðu yfir í þrjá daga og heppnuðust mjög vel, að
sögn Karls Erlendssonar skólastjóra. Karl sagði að skólinn hefði feng-
ið styrk frá Búnaðarbankanum, Norðurorku og Norðurmjólk í
tengslum við dagskrána í Íþróttahöllinni og hann var að vonum
ánægður með stemmninguna í húsinu.
Heilsa, hollusta og hreyfing, yfirskrift þemadaga í Brekkuskóla
Dansinn dunar: Yngsta kynslóðin í línudansi í Íþróttahöllinni með Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur.
Rífandi stemmning í Höllinni
Glatt á hjalla: Krakkarnir skemmtu sér konunglega á áhorfendapöllunum
og tóku virkan þátt í dansi og söng gestanna skringilegu frá Latabæ.
Morgunblaðið/Kristján
Söngur og dans: Halla hrekkjusvín og Solla
stirða frá Latabæ skemmtu í Brekkuskóla.
Brekkuskóli: Nemendur einbeittir í línudansi.
Listasafnið | Þjóð í mótun: Ísland
og Íslendingar fyrri alda er heiti á
sýningu sem nú stendur yfir í Lista-
safninu á Akureyri. Sýningunni lýk-
ur nú um helgina.
Sýningin er samstarfsverkefni
Þjóðminjasafns Íslands og Lista-
safnsins á Akureyri. Tilefnið er tvö-
falt, á árinu fyllir Þjóðminjasafn Ís-
lands, elsta safn landsmanna,140 ár
og Listasafnið á Akureyri, eitt af
yngstu söfnum á landinu, verður tíu
ára. Þetta er í fyrsta sinn sem haldin
er heil sýning á gripum úr muna-
safni Þjóðminjasafnsins í listasafni
og í fyrsta sinn sem þessir munir eru
sýndir norðan heiða. Sýningarstjóri
er Þóra Kristjánsdóttir, listfræð-
ingur á Þjóðminjasafni Íslands.