Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 25
Sauðárkróki | Rétt fyrir klukkan
fimm að morgni miðvikudags til-
kynnti Ne,yðarlínan um eld í húsinu
númer 12 við Suðurgötu á Sauð-
árkróki, eftir að starfsmaður frá Ör-
yggisþjónustu Skagafjarðar hafði
tilkynnt um eldsvoða.
Slökkviliðið var komið á staðinn
innan örfárra mínútna, en komst
ekki inn í húsið vegna ofsahita, enda
mun eldurinn hafa kraumað í húsinu
lengi. Í fyrstu var talið að húseig-
andi, sem býr einn í húsinu, væri
heima, en eftir að reykkafarar kom-
ust inn kom í ljós að húsið var mann-
laust. Einnig kom þá á sama tíma til-
kynning frá Neyðarlínunni um að
búið væri að hafa uppi á eigand-
anum, sem staddur var utanbæjar.
Talið er fullvíst að kviknað hafi í
út frá sjónvarpi, og er tjón mjög
mikið, nánast allt ónýtt inni í húsinu,
bæði innbú og innréttingar.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Á vettvangi: Starfsmenn lögreglu
og slökkviliðs á brunastað.
Mikið tjón í enn ein-
um sjónvarpsbruna
Kæra til kærunefndar | Grund-
arfjarðarbær hefur kært fram-
kvæmd samkeppninnar um rafrænt
samfélag til kærunefndar útboðs-
mála. Eru m.a. gerðar athugasemdir
við breytingar á valmælikvörðum
samkeppninnar, sem bitnuðu sér-
staklega illa á umsókn og hug-
myndum Grundfirðinga um rafrænt
samfélag, segir á heimasíðu sveitar-
félagsins. Umsókn Grundarfjarð-
arbæjar var byggð á hugmynda-
vinnu undirbúningshópa sem
tryggðu víðtækt samráð við íbúana.
Búst er við að kærunefndin taki
málið fyrir innan tíðar.
Stykkishólmi | Íbúaþing verður
haldið í Stykkishólmi í dag, laug-
ardag, og hefst það kl. 10. Und-
irbúningur fyrir þingið hefur staðið
frá því í vor. Nú er komið að grunn-
skólabörnum að taka þátt í verkefn-
inu sem heitir „Tökum höndum
saman“.
Nú stendur yfir þemavika í
grunnskólanum tengd verkefninu.
Nemendum er skipt upp eftir ald-
ursstigum. Yngsti hópurinn á að
finna svör við spurningunni: Hvað
er gott við að búa í Stykkishólmi?
Þetta er athyglisverð spurning og
misjöfn svör. Þá er þeim falið að
koma með tillögur um hvað betur
mætti fara í bænum. Miðstigið
fjallar um íþróttir og tómstundir.
Elsta stigið eru nemendur í 8.–10.
bekk. Nemendurnir í þessum hópi
völdu sér þrjú viðfangsefni: Skól-
inn, bærinn og þjónustan við
íbúana.
Á íbúaþinginu munu fulltrúar
nemenda koma fram og kynna nið-
urstöður vinnu sinnar og einnig
munu vera til sýnis ýmis verk sem
nemendur hafa unnið á þemadög-
um í kringum þessa miklu dagskrá.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Framtíðin: Aníta Rún, Rebekka Rán og Elín í 2. bekk vinna að tillögu að
framtíðarsundlaug. Vatnsrennibrautin skal vera sú stærsta hér á landi.
Skólabörnin
undirbúa íbúaþing
www.thjodmenning.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
#7 BLÁA LÓNI‹
ICELAND REVIEW
ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517
askrift@icelandreview.com
HVERS VEGNA ÍSLAND?
40 ÁSTÆ‹UR
13 101 REYKJAVÍK
Þegar þú ferðast
ferðastu þá með AVIS
Verð pr. dag kr. 3.600
M.v. lágmarksleigu 7 daga Opel Corsa eða sambærilegur
Við gerum betur
Kaupmannahöfn
AVIS Sími 591 4000
www.avis.is