Morgunblaðið - 09.11.2003, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Ein gata, eitt hverfi
eða allur bærinn
www.postur.is
Kortleggðu næstu markaðssókn
með Fjölpósti.
„ÞETTA eru algjör
snilldartilþrif hjá Emil-
íönu. Textarnir hjá
henni eru skondnir,
áhugaverðir og gagn-
orðir,“ segir ástralska
söngkonan Kylie Min-
ogue í samtali við Morg-
unblaðið um textagerð
Emilíönu Torrini. Emil-
íana á tvö lög á vænt-
anlegri plötu Kylie, „Body Language“.
Söngkonan er ánægð með samstarfið við
Emilíönu og segir um söng sinn á lagi Em-
ilíönu „Slow“, að rödd hennar hafi aldrei
hljómað svona áður á plötu. Röddin sé
djúp og persónuleg.
Kylie Minogue
Snilldartilþrif
Emilíönu
Kylie Minogue
Eruð/49
og ástæða þess að þeir skoði nú aðra mögu-
leika sé að börnunum þeirra sé ekki kennt það
sem þau eigi að læra eins og „skuggalegur“ ár-
angur þeirra á samræmdu prófunum hafi sýnt.
Kaupum ekki endalaust myglað mjöl
„Hér er spurt spurningarinnar, hvað á að
gera varðandi stærðfræðikennsluna í grunn-
skólunum. Meirihluti barna getur ekki leyst
einföldustu dæmi og foreldrar eru búnir að fá
nóg. Menn kaupa ekki endalaust myglað mjöl,
það kemur að því að menn leiti að öðrum kaup-
manni.“
Haraldur segir að eftir að hann kom fram í
sjónvarpi og ræddi um stærðfræðikennsluna
FORELDRAR barna við marga grunnskóla
eru komnir í þá stöðu að vera farnir að hugsa
um að afþakka stærðfræðikennslu í grunnskól-
unum og leita annað. Þetta kom fram á árs-
fundi SAMFOKS (Sambands foreldrafélaga og
foreldraráða í grunnskólum Reykjavíkur).
Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur og
stjórnarmaður í SAMFOK, sem ræddi í fram-
söguerindi um árangur grunnskólanema í
Reykjavík á samræmdum prófum í stærðfræði,
gagnrýndi bæði námsefni og kennslu kennara í
stærðfræði og sagði það ekki heldur rétt, sem
haldið hefði verið fram, að allt væri í lagi í
neðri bekkjum grunnskólanna.
Haraldur segir þolinmæði foreldra á þrotum
hafi rignt yfir hann skeytum og símtölum.
Þetta er orðið margfalt, margfalt meira en ég
hef nokkurn tíma fengið allar götur frá því ég
fór að flytja fréttir af veðri og er þó fólk alltaf
að gera athugasemdir við það. Ég hef ekki
lengur tölu á skeytunum og símtölunum og er
hættur að geta svarað. Þetta eru fyrst fremst
foreldrar sem segja mér að halda áfram.
Margir þeirra segja sögur af því að þeir hafi
þurft að kenna börnunum allt sem þau kunna í
stærðfræði.“
Haraldur sagðist eiga von á að fulltrúi frá
Íslensku menntasamtökunum myndi koma
með tilboð til foreldra og skóla um að kenna
stærðfræði.
Stærðfræðikennsla í grunnskólunum gagnrýnd á ársfundi SAMFOKS
Foreldrar munu leita
út fyrir grunnskólana
SÉRSTÖK minningarathöfn var haldin í gær á
vegum Félags landhelgisgæslumanna í minn-
ingu áhafnar þyrlunnar TF-RÁN, sem fórst í
Jökulfjörðum 8. nóvember árið 1983, en með
henni fórust fjórir menn.
Athöfnin fór fram við minningaröldurnar
við Fossvogskapellu, sem sjómannadagsráð
lét reisa til að minnast þeirra sem farist hafa á
sjó, en jarðneskar leifar áhafnar þyrlunnar
hafa ekki fundist. Þannig var um Björn Jóns-
son, flugstjóra TF-RÁN, en nafn hans hefur
verið sett á eina ölduna.
Í stuttu minningarávarpi Hafsteins Haf-
steinssonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar,
sagði hann meðal annars: „Mesti auður Land-
helgisgæslunnar er og hefur verið vel hugs-
andi og árvakrir starfsmenn, sem lagt hafa sig
fram, oft við mjög erfiðar aðstæður. Þegar
hendir sorg við sjóinn syrgir, tregar þjóðin öll.
Við sem hér erum munum hve hjálparvana við
vorum þegar TF-RÁN fórst.“
Við athöfnina lék Sigurður Heiðar Wium,
flugmaður hjá Landhelgisgæslunni, á trompet
lagið Móðir vængur eftir Línu Sandell. Séra
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur flutti
blessunarorð. Að lokum lék Sigurður lag eftir
Peter Warlock, úr Pavane capriol-svítunni.
Morgunblaðið/Sverrir
Minntust fallinna félaga á TF-RÁN
ENSKA rokk-
hljómsveitin Muse er á
leið hingað til lands og
leikur í Laugardalshöll
10. desember næstkom-
andi. Hljómsveitin nýtur
mikilla vinsælda hér á landi, en skammt er
síðan hún sendi frá sér plötuna Absolution
sem hefur selst vel.
Muse er tríó og leikur rokktónlist í
þyngri kantinum, en hljómsveitinni hefur
meðal annars verið líkt við Radiohead. Tón-
leikarnir hér á landi eru liður í tónleikaferð
hljómsveitarinnar um heiminn til kynn-
ingar á Absolution. Meðlimir hljómsveit-
arinnar hafa verið áhugasamir um að koma
til Íslands um hríð að sögn skipuleggjanda
tónleikanna, Þorsteins Stephensen.
Muse til Íslands
♦ ♦ ♦
BRENNUVARGUR fór um og kveikti í húsum
og bifreiðum aðfaranótt laugardags í hverfi Ís-
lendinga í danska bænum Horsens á Jótlandi.
Ekki urðu slys á mönnum svo vitað sé en mikil
ónægja var með viðbrögð og framgang slökkvi-
liðsins á staðnum. Um 300 Íslendingar búa í
hverfinu og eru þeir um 40% íbúanna þar þann-
ig að hverfið er einatt kallað „litla Reykjavík“.
Ekki var kveikt í húsum Íslendinganna en þeir
eru mjög uggandi vegna málsins enda mun
brennuvargur tvisvar sinnum áður hafa kveikt
í í hverfinu.
Rannsóknarlögreglan í Horsens segist hafa
handtekið sautján ára gamlan mann vegna
brunans og að hann hafi væntanlega áður
kveikt í í hverfinu. Hún segir menn ekki vita
hvað manninum gekk til með íkveikjunni og
ekkert liggi fyrir um hvort það tengist því að
margir Íslendingar búa í hverfinu.
„Það brunnu einar sex íbúðir í hverfinu en
hér er um 300 manna byggð Íslendinga, nær
allt námsmenn. Þetta hverfi er eyrnamerkt Ís-
lendingum og kallað litla Reykjavík.
Það fóru fjórar íbúðir í einni raðhúsalengju
og svo tvær í annarri en auk þess var kveikt í
bílum og bílskýlum. Það má nánast segja að
kjarni íbúðahverfisins hér sé í rúst. Fyrir utan
húsin brunnu einir sex–sjö bílar til kaldra kola.
Við höfum heyrt orðróm um að þarna hafi verið
að verki drengur sem hefur tvisvar sinnum áð-
ur kveikt í og að hann hafi verið í „helgarfríi“
frá einhverri stofnun. Það er hrein lukka að
íbúðir Íslendinga brunnu ekki,“ segir Guð-
mundur Hreinsson sem býr í hverfinu.
Hann segir að erfiðlega hafi gengið að
slökkva í húsunum. „Menn voru hneykslaðir á
slökkviliðinu hérna, þeir létu nánast eina
lengju alveg fara. Það var nánast vatnslaust og
þeir réðu ekkert við þetta og á tímabili héldu
menn að stór hluti hverfisins myndi fara.“
Kveikt í sex húsum
í „litlu Reykjavík“
Kveikt var í sex húsum, mörgum bifreiðum og bílskýlum í „litlu Reykjavík“ í Horsens.
SIGGA Beinteins söngkona hefur gert
sönginn að útflutningsvöru. Hún hefur
stofnað söngskólann ToneArt í Noregi og
kennir þar Norðmönnum á aldrinum 4½ til
32 ára að syngja. „Í Noregi voru bara klass-
ískir söngskólar fyrir 18 ára og eldri. Eng-
inn skóli bauð almenningi, frá barnsaldri og
upp úr, að koma og læra að syngja uppá-
haldslögin sín. Við Dóra systir mín, sem er
búsett í Noregi, ákváðum því að stofna slík-
an skóla, þar sem fólk á öllum aldri fær
þjálfun í popp- og dægurlagasöng.“
Skólinn tók til starfa 20. ágúst sl. og nem-
endur eru nú 80 talsins.
Stofnaði söng-
skóla í Noregi
Ný plata/14
♦ ♦ ♦