Morgunblaðið - 20.11.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Jón er kominn til að segja bæ bæ.
Athafnakonur – sýning og ráðstefna
Auka umræðu
og sýnileika
Undanfarnar vikurhefur ráðstefnu-og sýningaröðin
Athafnakonur farið um
landið. Þar sýna fyrirtæki
sem eru í eigu kvenna og
fengið hafa styrk úr
Kvennasjóði starfsemi
sína og framleiðslu. Sam-
hliða hafa verið haldnar
ráðstefnur um atvinnu-
þátttöku kvenna og fyrir-
tækjastofnun þeirra. Á
morgun og laugardaginn
lýkur hringferðinni um
landið í Ketilshúsinu á Ak-
ureyri. Helga Björg Ragn-
arsdóttir er í forsvari fyrir
uppákomuna.
– Segðu okkur eitthvað
nánar frá því hvað hér er
á ferðinni …
„Síðasta áratug hefur
félagsmálaráðuneytið veitt fé til
kvennafyrirtækja eða til kvenna
með viðskiptahugmyndir í þeim
tilgangi að auðvelda aðgengi
kvenna að fjármagni. En reynsl-
an hefur verið sú til langs tíma að
konur í atvinnurekstri njóta oft
ekki sama stuðnings og karlar í
atvinnurekstri. Ástæður þessa
eru sjálfsagt margar og marg-
víslegar. Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, þáverandi félagsmálaráð-
herra, þótti ástæða til að
eyrnamerkja atvinnurekstri
kvenna einn sjóð og er Kvenna-
sjóður þannig tilkominn. Í gegn-
um tíðina hafa styrkir úr sjóðnum
nýst mörgum fyrirtækjum vel og
hefur framlag úr sjóðnum í ein-
hverjum tilfellum jafnvel ráðið
úrslitum um að viðskiptahug-
myndir hafa orðið að veruleika.
Sú hugmynd hefur verið á lofti
undanfarin ár að sjóðurinn standi
fyrir sýningu þar sem kvenfyr-
irtæki sem fengið hafa styrk úr
sjóðnum kynna starfsemi sína og
framleiðslu og samhliða efna til
málþinga um atvinnumál kvenna.
Nú er þessi hugmynd orðin að
veruleika því um helgina lýkur
hringferð sýninga- og ráðstefnu-
raðarinnar Athafnakonur um
landið. Síðasta sýningin verður
haldin í Ketilhúsinu á Akureyri.
Samhliða verður ráðstefnan
Frumkvöðlakonur haldin í Deigl-
unni og má því segja að við leggj-
um Listagilið undir okkur þessa
helgi.
Sýninga- og ráðstefnuröðin
hófst á Seyðisfirði 10. október sl
og hefur nú þegar komið við í
Þorlákshöfn og Borgarnesi og
lýkur eins og áður segir á Ak-
ureyri dagana 21.–22. nóvember.
Að Athafnakonum standa
Kvennasjóður félagsmálaráðu-
neytisins, Kvenréttindafélag Ís-
lands og atvinnu- og jafnréttis-
ráðgjafar Norðaustur- og
Suðurkjördæmis. Sýningin verð-
ur opnuð á morgun klukkan 16 og
verður opin til klukkan 18. Opið
er á laugardaginn svo frá 13 til
18. Samhliða er boðið upp á ör-
námskeið fyrir konur í rekstrar-
fræðum og verður námskeiðið
haldið í Deiglunni klukkan 10 á
laugardagsmorguninn.
Námskeiðið er opið öll-
um konum sem hafa
áhuga á að efla rekstr-
arþekkingu sína og er
aðgangur ókeypis. Auk
þess er haldin ráðstefna í Deigl-
unni á laugardaginn þar sem við-
fangsefnið er Frumkvöðlakonur.
Á þessari ráðstefnu koma saman
aðilar frá Byggðastofnun, Jafn-
réttisstofu, Viðskiptaháskólanum
á Bifröst, Háskólanum á Akur-
eyri, Jafnréttisráðgjafi Akureyr-
arbæjar, sveitarstjóri Raufar-
hafnarhrepps og tveir frum-
kvöðlar og ræða atvinnumál
kvenna og þá sérstaklega stöðu
kvenna sem frumkvöðla. Þess má
geta, að alls hafa 700 manns séð
sýningarnar og á sjötta tug sótt
ráðstefnurnar.“
– Áherslur og tilgangur?
„Tilgangur þessarar sýninga-
og ráðstefnuraðar má segja að sé
margþættur. Í fyrsta lagi er mik-
ilvægt að gera atvinnurekstur
kvenna sýnilegan. Í öðru lagi að
auka umræðu um konur í at-
vinnurekstri, en opinber umræða
um atvinnumál er og hefur verið
til langs tíma einsleit þar sem
horft er fram hjá því að konur í
atvinnurekstri standa hvergi
nærri jafnvel að vígi og karlar
þegar kemur að aðgengi að fjár-
magni. En Sigríður Elín Þórð-
ardóttir, sérfræðingur á þróun-
arsviði Byggðastofnunar, mun
einmitt fjalla um þetta ójafna að-
gengi í erindi sínu á laugardeg-
inum. Að lokum má segja að sýn-
ingarhald eins og þetta, sem
krefst mikillar skuldbindingar af
sýnendum þar sem sýningin
ferðast um landið, styrki tengsl-
anet þessara kvenna, auki um-
ræðu um atvinnumál meðal
þeirra og styrki þær í sínu starfi
og svo má auðvitað ekki gleyma
að þetta er heilmikil markaðs-
setning fyrir fyrirtækin.“
– Hvernig er þátttakan?
„Yfir 40 fyrirtæki sýna og
kynna starfsemi sína og fram-
leiðslu á sýningunum. Fyrirtækin
eru margvísleg en á sýningunni
má finna áhugaverða hugbúnað-
argerð, nytjalist, ný-
sköpun í ullarvinnslu,
heilsuvörur og margt
fleira. Konurnar sem
standa á bak við fyr-
irtækin hafa margar
hverjar mikla reynslu af atvinnu-
rekstri og hafa jafnvel rekist á
margar hindranir á leið sinni. það
er mín reynsla að Athafnakonur
sem kynna fyrirtæki sín á sýning-
unni eru atorkumiklar konur sem
oft og tíðum byrjuðu með tvær
hendur tómar og hafa náð að
byggja upp sterk fyrirtæki á
reynslu, þekkingu og þraut-
seigju.“
Helga Björg Ragnarsdóttir
Helga Björg Ragnarsdóttir er
fædd 1. janúar 1973 á Akureyri.
Hún er BA í félagsfræði frá HÍ
1999 og MS í viðskiptafræði frá
HÍ 2003. Hún á tvo syni, Ragnar
Steinþórsson 4 ára og Þorstein
Elvar Þórsson 3 ára. Helga er at-
vinnu- og jafnréttisráðgjafi í
Norðausturkjördæmi, en
Byggðastofnun og félagsmála-
ráðuneytið standa sameiginlega
að þeirri stöðu sem ætlað er að
vinna að því að bæta efnahags-
lega og félagslega stöðu kvenna í
kjördæminu, fjölga atvinnutæki-
færum o.fl.
Hafa jafnvel
rekist á marg-
ar hindranir