Vísir - 06.12.1980, Blaðsíða 23
Laugardagur 6. desember 1980
23
Islenskir athafnamenn
Bragi Einarsson i Eden. Allir þekkja
það fræga fyrirtæki en færri manninn,
sem stendur að baki athöfnunum. At-
hafnaþrá, bjartsýni og dugnaður var
eina veganestið og oft hefur Bragi og
þau hjón, þurft aö beygja bakið á fyrstu
árunum. Erfiðleikarnir létu ekki á sér
standa, en ekki var bugast og árangur-
inn blasir við.
Helgi Eyjölfsson.byggingameistari.
Hagsýni og dugnaður eru þungamiðja
hans starfssögu. Honum hefur verið sú
list lagin að framkvæma hlutina á hag-
kvæmari hátt en aðrir og oft hefur hann
gert það sem flestir töldu öfært. Má þar
m.a. nefna byggingu verksmiðjanna á
Djúpuvik og Hjalteyri, sem hann byggði
við aðstæður sem vægast sagt voru ekki
aölaðandi. En Helgi fann ráð viö öllum
vanda og svo hefur verið um allar hans
athafnir.
Kristmundur Sörlason. Fátækur sveita-
strákur af Ströndum. Byrjaði sinar at-
hafnir i smáskúr, eftir ýmiskonar svalk
á sjó og i landi. Hefur nú ásamt Pétri
bróðursinum, komiðá fót umsvifamiklu
fyrirtæki, Stálveri h/f, sem hefur fitjað
uppá ýmsum nýungum. M.a. smiðað vél
sem framleiðir is úr sjó og margt fleira
mætti teija sem aðhafst er á þeim bæ.
Aþreifanlegt dæmi þess, hverju vilji og
dugnaður fær áorkað.
Páll Friðbcrtsson forstjóri, Súganda-
firöi. Hann er að segja má fæddur inni
sitt hlutverk. Faðir hans var forustu-
maður um atvinnumál og það hefur fall-
ið i hlut Páls að halda uppi merkinu. Oft''
hefur verið þungt fyrir fæti, en nú hefur
fyrirtækinu, sem hann hefur stjórnað,
tekist að koma á fót einu best búna
frystihúsi á iandinu og eignast nýjan
skuttogara. Páll hefur átt þvi láni aö
fagna að eiga ágæta samstarfsmenn og
Súgfirðingar hafa staðið fast saman um
sin atvinnumál.
Soffanias Cesiisson, hefur nokkra sér-
stöðu i þessum hópi. Hann byrjaði for-
mennsku og fyrirvinnu heimilis i barn-
æsku. Var um árabil afburðafengsæll
skipstjóri. En hætta skal hverjum leik
þá hæst hann ber. Soffanias rekur nú
fiskvinnslufyrirtæki á Grundarfirði.
Hefur átt i ýmsum brösum við kerfið, en
ekki látiö undan siga. Temur sér ekki vil
eða vol. Litrik persóna sem gaman er að
kynnast þegar allt er undirlagt af böl-
sýni og barlóm.
Þorsteinn Matthiasson hefur skráð
þessa þætti, af sinni alkunnu háttvisi.
Honum er það helst til foráttu fundið
að hann leitar fremur eftir því betra I
fari sinna viðniælenda. Málshátturinn
„Fár bregður þvi betra ef hann veit
hið verra” er honum viösfjarri. Hann
er ekki i nýtiskulegri ieit að ávirðing-
um og hneykslismálum. Það er óhætt
að f ullvrða að þessi bók er lærdómsrik
og auk þess skemmtilcg og myndum
pr>dd- Ægisutgáfan
Húsgagnaverslun Guðmundar
Smiðjuvegi 2 — Kópavogi
Opið í dag til k/. 16.00
Húsgagnasýning á morgun — sunnudag kl. 15-18
800 fermetra sýningasalur með úrvali af húsgögnum á góðu verði
með greiðsluskilmcilum, sem flestir ráða við
Það er komin ný plata hjá Samhjálp
METSÖLUPLATA?
Fíladelfíukórinn undir stjóm 'Ama
Arínbjarnarsonar, Ágústa Ingimarsdóttir
og hljómsveit
Allur ágóði af plötunni rennur til hjálparstarfsins
Platan fœst í afgreiðslu Samhjálpar,
Hverfísgötu 42 — Opið 1-6
Sunnudagskvöldið, þann 7. des. klukkan 20,
verður Samhjálparsamkoma í Fíladelfíu, Hátúni 2.
Þar syngur kórinn lög af plötunni, og Ágústa
Ingimarsdóttir syngur einsöng.
Einnig verða ávörp og almennur söngur.
Stjómandi samkomunnar verður óli 'Agústsson,
og eru allir hjartanlega velkomnir
fíunhjálp
r
NY