Morgunblaðið - 03.12.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hin magnþrungna
spennusaga um
Árna Magnússon
er ein mest selda
bókin á
Norðurlöndum.
Árni elst upp í
klaustri á 12. öld,
lærir vopnaburð
og verður stríðsmaður.
Leiðin til Jerúsalem
er framundan.
MILLJÓN EINTÖK SELD
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
VIÐ erum eins misjöfn og mennirnir
eru margir og blessunarlega eru eng-
ir tveir einstaklingar eins. Það er
fjölbreytnin sem skapar verðmætan
drifkraft í samfélagi okkar og öll
bætum við hvert annað upp. Þegar
við skoðum mannlífið og efnahagslíf-
ið í þessu ljósi verða mörkin ekki eins
skýr á milli þess hver er heilbrigður
og hver er fatlaður, þótt við teljum
okkur yfirleitt vera nokkuð viss hvar
þess lína liggur,“ sagði Finnur Geirs-
son, forstjóri Nóa-Síríusar hf., á mál-
þingi í hátíðarsal Háskóla Íslands í
gær um málefni fatlaðs fólks.
Yfirskrift fundarins var: „Ríki
mennskunnar. Eitt samfélag fyrir
alla. Siðferðileg áhersla 21. aldarinn-
ar“. Ræddu fundarmenn meðal ann-
ars hvað atvinnulífið gæti lagt af
mörkum til þess að fatlaðir yrðu ekki
óvirkir þiggjendur heldur virkir gef-
endur og fullgildir þátttakendur í at-
vinnulífi og verðmætasköpun.
Meiri kraftur í ólíku starfsfólki
Finnur tók dæmi af fyrirtæki sínu
þar sem um 120 manns vinna. „Störf-
in eru mjög fjölbreytileg og það er
mannskapurinn einnig. Hjá fyrir-
tækinu vinna saman ófaglærðir eða
lítt menntaðir og svo ágætlega eða
vel menntaðir einstaklingar, eða nán-
ast eins og um væri að ræða þver-
skurð af samfélaginu sem við búum
í.“ Hann sagði auðvitað sitt sýnast
hverjum þegar ólíkir einstaklingar
kæmu saman og vissulega væri tekist
á þegar hin ýmsu verkefni væru ann-
ars vegar. „Hins vegar höfum við
borið gæfu til að virkja þann kraft
sem í þessum ólíku einstaklingum
býr til að vinna farsællega að sameig-
inlegu markmiði okkar allra sem
vinnum í fyrirtækinu. Ég vil meina að
þessi kraftur sé jafnvel meiri en ella
vegna þess hversu ólíkt starfsfólkið
er,“ sagði forstjóri Nóa-Síríusar.
„Á meðal okkar hafa verið nokkrir
fatlaðir einstaklingar um langt árabil
og verður ekki annað sagt en að
reynslan hafi verið góð. Sumir hafa
haft starfsgetu á við heilbrigt fólk á
meðan aðrir hafa þurft á vissu eft-
irliti að halda og starfsgeta þeirra
verið bundin við afmarkað vinnuferli.
Vinnuumhverfi Nóa-Síríusar hefur
verið það fjölbreytt að yfirleitt hefur
verið hægt að finna vettvang þar sem
starfskraftar fólksins nýtast,“ sagði
Finnur.
Finna til ábyrgðar
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
framkvæmdastjóri útflutningssviðs
Pharmaco hf., tók undir einkunnar-
orð Evrópuárs fatlaðra, eitt samfélag
fyrir alla.
Hún sagði stjórnendur Pharmaco
finna sérstaklega til ábyrgðar hvað
þetta varðaði. Fyrirtækið væri stórt
og öflugt og starfaði í heilbrigðisgeir-
anum við að létta líf fólks víðs vegar
um heiminn með framleiðslu lyfja.
„Það er því við hæfi að við leggjum
okkar af mörkum til þess að koma til
móts við þarfir allra um atvinnu og
það hyggjumst við svo sannarlega
gera með því að móta og fylgja eftir
jafnréttisáætlun.“ Í henni er kveðið á
um jafnrétti fólks án tillits til kyn-
ferðis, þjóðernis, litarháttar eða fötl-
unar. Guðbjörg sagði einstaklinga
verða fyrst og fremst að breyta við-
horfum okkar sjálfra og ekki þýddi
að ræða þetta mál á almennum nót-
um.
„Mannauðurinn er dýrmætasta
auðlind hverrar þjóðar og smáþjóð
eins og við Íslendingar hefur einfald-
lega ekki efni á að úthýsa einum né
neinum í því að taka þátt í atvinnulíf-
inu og verðmætasköpuninni.“
Jákvæð mismunun lykilatriði
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra sagði hugmyndafræðina, um
réttinn til þeirrar aðstoðar sem þörf
væri á, leggja áherslu á að hver og
einn einstaklingur fengi stuðning
sem gerði honum kleift að taka þátt í
lífi og starfi samfélagsins á svipuðum
forsendum og aðrir.
„Jákvæð mismunun er lykilatriði í
þessu samhengi. Þeir einstaklingar
sem hafa sérstakar þarfir eiga að fá
nauðsynlegan stuðning til að þessar
þarfir verði þeim sem minnst hindr-
un í að takast á við lífið. Mismununin
er jákvæð vegna þess að hún gerir
þeim kleift, sem ekki hafa sömu for-
sendur og aðrir, að njóta þeirra gæða
sem samfélagið býður upp á,“ sagði
félagsmálaráðherra.
„Að bregðast við áhrifum fötlunar
er ekki bara á ábyrgð þeirra sem eru
fatlaðir heldur einnig og miklu frekar
á ábyrgð samfélagsins sem er þannig
úr garði gert að þeir einstaklingar
sem lifa í því þurfa stöðugt að vera að
takast á við hindranir sem rýra
möguleika þeirra á öllum sviðum,“
sagði Árni og sagði það skýrt mark-
mið að fatlaðir væru þátttakendur á
almennum vinnumarkaði að svo
miklu leyti sem þess væri nokkur
kostur.
„Við þurfum að vera meðvituð um
það að öll höfum við þurft stuðning,
mismikinn eftir aðstæðum, til þess að
geta skilað þeim verkum sem okkur
eru falin. Það er mikilvægt að stuðn-
ingnum sé þannig háttað að honum
ljúki ekki um leið og viðkomandi hef-
ur stigið sín fyrstu skref úti á vinnu-
markaðnum. Það er raunar þá sem
hann skiptir hvað mestu máli til að
árangur náist. Stuðningurinn felst
því ekki einungis í því að fá vinnu
heldur halda henni til langframa,“
sagði Árni Magnússon.
Siðferðileg fötlun
Páll Skúlason rektor sagði í ávarpi
sínu að siðferðileg fötlun einstaklinga
væri staðreynd. Annars vegar
dreymdi okkur um siðferðilega full-
komnun, en hins vegar einkenndust
raunverulegar athafnir okkar iðu-
lega af skammsýni og stefnuleysi.
Partur af okkar siðferðilega raun-
veruleika væri að reyna að bæta sið-
ferðið í átt að hugsjóninni um „eitt
samfélag fyrir alla“. Til þess væru
tvær leiðir sem einkenndust af
reglum, yfirlýsingum og stefnuskrá.
Hin væri „Ný byrjun“: Vitundar-
vakning.
„Við þurfum róttæka vitundar-
vakningu ef við eigum að ná árangri,“
sagði Páll og þetta væri á réttri leið.
Taldi hann þessa vakningu fara um
heiminn eins og alþjóðavæðinguna.
Það smitaði síðan út frá sér inn í heim
stjórnmála. Mestu vonirnar í þessum
efnum værubundnar við ríkisvaldið.
Þátttaka fatlaðra sögð mikilvæg í verðmætasköpuninni
Virkjum
kraft ólíkra
einstaklinga
Á málþingi í Háskóla Íslands í tilefni Evrópuárs
fatlaðra var spurt hvort við værum tilbúin að veita
öllum manneskjum hlutdeild í samfélagi okkar.
Sjónum fólks var sérstaklega beint að ávinningi af
þátttöku fatlaðra í atvinnu og verðmætasköpun.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjöldi fólks tók þátt í málþingi rektors HÍ um málefni fatlaðra undir yf-
irskriftinni Ríki mennskunnar og velti upp áleitnum spurningum.
JÓN Hlöðver Áskelsson, tónlist-
armaður frá Akureyri, gekkst undir
höfuðaðgerð árið 1989, þá 44 ára
gamall, sem veitti
honum tækifæri
til lengra lífs en
með breyttum
formerkjum.
Hvernig líf tæki
við hafði hann
ekki hugmynd
um. Eftir aðgerð-
ina lamaðist hann
öðrum megin í
andliti, jafvæg-
isskynið skertist
sem og tilfinningin fyrir hreyfingu í
vinstri hluta líkamans. „Þetta er
eitthvað sem ég bý við, en ég get
hins vegar unnið að því að styrkja
aðra þætti þannig að ég nái sem
mestu úr þessu sem hindrar mig,“
segir Jón.
Hann segist hafa öðlast nýja sýn
og annað gildismat á þessum 14 ár-
um og í lífi hans hafi skipst á skin og
skúrir. Fljótlega fann hann að tor-
velt reyndist að sanna sig á þessari
nýju lífsbraut þótt kunnáttan, hæfn-
in og sjálfstraust væri lítt skert. Áð-
ur hafði hann verið skólastjóri Tón-
listarskólans á Akureyri og óskaði
hann eftir að hefja störf aftur með
aðstoðarstarfsmann sér við hlið.
Fékk hann þau svör að skipurit bæj-
arsins heimilaði aðeins stjórnendur í
100% starfi. Aðspurður sagðist hann
ekki vera viss hvort sömu reglur
giltu í dag en vildi gjarnan að búið
væri að lagfæra þessar reglur.
„Það var mitt lán að ég var mennt-
aður í tónlistinni og gat lagað mitt
starf að fötluninni. Það háði mér því
minna miðað við ef ég hefði stundað
önnur störf. Ég gat unnið við tölvu,
samið tónlist og útsett hana,“ segir
Jón. Hann segir að þátttaka í fé-
lagsmálum hafi einnig skipt miklu.
Valinn bæjarlistamaður
Jón Hlöðver segir sér hafa brugð-
ið fyrst þegar hann fór að feta sig
áfram með skrykkjóttu hækju-
göngulagi á Akureyri. Í hans augum
var bærinn eins og fólkið þar sjálfu
sér líkt. Hins vegar hafi margir
„sjokkerast“ við að sjá hann því
minningin hafi verið um hinn gal-
vaska og hressa tónlistarmann
Jón hefur öðlast margháttaðar
viðurkenningar og hvatningu fyrir
störf sín í tónlistinni eftir að hann
gekkst undir aðgerðina. Hann var til
að mynda valinn bæjarlistamaður
Akureyrar og fékk starfslaun lista-
manna frá ríkinu í nokkur ár. „En ég
er þó sjálfur viss um að ég hefði get-
að nýst mínu bæjarfélagi betur
hefðu útilokunarreglur á stjórn-
endum í hlutastarfi ekki hindrað
það,“ segir Jón Hlöðver Áskelsson.
Tónlistin
var lán
mitt
Jón Hlöðver
Áskelsson.
STOFNAÐ verður starf lektors í fötlunarfræðum við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands. Páll Skúlason, rektor
HÍ, Ólafur Þ. Harðarson, forseti félagsvísindadeildar og
Árni Magnússon félagsmálaráðherra undirrituðu sam-
starfssamning þess efnis í gær.
Markmið samningsins er að efla kennslu og fræðistörf
á sviði fötlunarfræða og styrkja þannig rannsóknir,
framþróun og stefnumörkun á fræðasviðinu og í mál-
efnum fatlaðs fólks. „Þessi ákvörðun markar ákveðin
tímamót í þjónustu við fatlaða á Íslandi þar sem nú er
stofnaði til fyrsta starfs á þessu sviði, sem er ætlað að
efla og styrkja fræðastarf og hvetja til rannsókna og
framþróunar í málaflokki fatlaðra. Ég bind miklar vonir
við það að þessi ákvörðun eigi eftir að vera okkur öllum
til hagsbóta,“ sagði félagsmálaráðherra á málþingi um
málefni fatlaðra í Háskóla Íslands í gær og þakkaði
Rannveigu Traustadóttur dósent fyrir hennar þátt í
þessu máli.
Samningurinn felur í sér að félagsmálaráðuneytið
kostar starf lektorsins til fimm ára. Samningurinn mark-
ar tímamót því starf lektorsins er hið fyrsta sem sér-
staklega er merkt þessu nýja fræðasviði hér á landi.
Starfið er stofnað í tilefni af Evrópuári fatlaðs fólks og
mun lektorinn taka til starfa á miðju næsta ári.
Styrkir rannsóknir á
málefnum fatlaðs fólks
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Samninginn undirrituðu (frá vinstri): Árni Magnússon
félagsmálaráðherra, Páll Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, og Ólafur Þ. Harðarson prófessor.
Á MÁLÞINGINU var lögð fram
stefnuyfirlýsing til umræðu. Þar
segir: Stefnuyfirlýsing þessi bygg-
ist á þeirri sannfæringu að fyr-
irtækin í landinu og íslenskt sam-
félag í heild hafi margvíslegan
ávinning af atvinnu fatlaðs fólks,
atvinnu sem hæfir getu þess og
færni. Því vilja íslensk fyrirtæki og
samtök atvinnurekenda taka hönd-
um saman við stjórnvöld, samtök
launafólks, opinberar stofnanir og
samtök fatlaðra um að fatlað fólk
taki sem virkastan þátt í verðmæta-
sköpun samfélagsins.“
Margrét Björnsdóttir, for-
stöðumaður stofnunar stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála, Rannveig
Traustadóttir, dósent við fé-
lagsvísindadeild, og Jón Hlöðver
Áskelsson tónlistarmaður sátu í
undirbúningshópi að þessari yf-
irlýsingu ásamt Páli Skúlasyni
rektor. Rannveig segir raunveru-
legan ávinning í málefnum fatlaðra
ekki nást nema allir þessir aðilar
komist að sameiginlegri niðurstöðu
um markmið til að auka aðgengi
fatlaðra að atvinnulífinu. Stefnu-
yfirlýsingin hafi fengið umsögn
víða en þó eigi eftir að samþykkja
hana formlega.
„Til að nýta dýrmætt vinnu-
framlag fatlaðra, skapa þeim jöfn
tækifæri á við aðra og tryggja að
þeir njóti jafnræðis er mikilvægt að
nýta alla þá þekkingu sem tiltæk er.
Í þessu sambandi ber að hafa í huga
að sértækar jákvæðar aðgerðir sem
miða að því að veita fötluðu fólki
full réttindi á vinnustað eru ekki
taldar mismunum gagnvart öðru
starfsfólki,“ segir í yfirlýsingunni.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, tók jákvætt
í efnisinnihald þessarar yfirlýs-
ingar í pallborðsumræðum á mál-
þinginu.
Vilja vettvang til samstarfs