Morgunblaðið - 17.12.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FORELDRAR drengs sem
greindist með hvítblæði aðeins tíu
vikna gamall, áttu ekki rétt á að fá
greidda sjúkdómatryggingu sem
þau höfðu keypt því hann var ekki
orðinn þriggja mánaða þegar hann
greindist. Drengurinn er með
yngstu börnum sem greinst hafa
með hvítblæði á Íslandi.
Móðir hans, Eygló Guðmunds-
dóttir, segir að sitt tryggingafélag,
sem og önnur tryggingafélög á Ís-
landi, tryggi ekki börn greinist
þau með sjúkdóma fyrir þriggja
mánaða aldur. „Það var mikið áfall
fyrir okkur að uppgötva þetta.
Auðvitað má segja að við hefðum
átt að lesa betur tryggingasamn-
inginn en þetta einfaldlega hvarfl-
aði ekki að okkur. Við héldum að
með kaupum á líf- og sjúkdóma-
tryggingu hefðum við tryggt fjöl-
skyldu okkar í bak og fyrir. Við
fengum að vita ýmsa vankanta,
t.d. um ákveðna sjúkdóma sem
tryggingin náði ekki yfir en okkur
var aldrei bent á þessa setningu í
samningnum.“
Mikið álag
Eygló segir að aðeins nokkrum
dögum eftir að sonur hennar
greindist hafi hún leitað til trygg-
ingafélags síns og sagt frá stöðu
mála. Vel hafi verið tekið í beiðni
hennar en nokkrum dögum síðar
gerði tryggingafélagið henni ljóst
að það væri ekki bótaskylt þar
sem barnið væri yngra en þriggja
mánaða. Tryggingafélagið bauð
foreldrunum eftir töluvert þref
ákveðna upphæð, án viðurkenn-
ingar á bótaskyldu, sem foreldr-
arnir samþykktu. „Það var mjög
mikið álag að ganga á eftir þessu.
Mér leið eins og ég væri að verð-
merkja barnið mitt,“ segir Eygló.
„Mér leið eins og ég væri að
reyna að fá peninga út á sjúkdóm
barnsins míns sem er ömurleg til-
finning. En þetta snýst ekki um
peninga heldur um það að sonur
minn er einstaklingur hvort sem
hann er tíu vikna eða þriggja mán-
aða. Ef börnin mín hefðu öll lent í
slysi hefðu þau eldri fengið bætur
en ekki hann, mér finnst þetta
mjög ósmekklegt og siðferðislega
rangt.“
Eygló segist hafa fengið þau
svör frá tryggingafélaginu að ein-
hvers staðar yrði að draga mörkin
hvað varðar tryggingar. „Þessi
rök eru fáránleg. Það gerir það
enginn að gamni sínu að eignast
veikt barn. Það er enginn sem
gerir það viljandi að eignast veikt
barn til að ná sér í tryggingafé.“
Hún segir líka fáránlegt til þess
að hugsa að það sem hugsanlega
getur aukið lífslíkur hans, þ.e. að
greinast snemma, sé það sama og
varð til þess að hann er ótryggður.
„Hefði ég beðið með að fara með
barnið mitt til læknis, sem ekkert
foreldri myndi nokkurn tímann
gera, hefði það komið betur út
varðandi tryggingar. Hversu
brjálæðislegt er það?“
Eygló segist vilja vekja athygli
á þessu ákvæði tryggingafélag-
anna þar sem það sé ekki kynnt
fólki. „Mér finnst þetta vera rétt-
lætismál og vil að aðrir viti af
þessu.“
Benjamín Nökkvi hefur legið á
sjúkrahúsi frá því 6. október sl.
Hann er í erfiðri krabbameins-
meðferð en stendur sig eins og
hetja að sögn Eyglóar. „Það sem
er erfiðast í þessu öllu er hvað
hann er ungur, það er ókostur því
ónæmiskerfið er svo veikt. En
hann er ótrúlega mikið hörkutól.
Við hugsum einn dag í einu, annað
er ekki hægt.“
Foreldrar barns sem greindist með hvítblæði tíu vikna fengu ekki bætur
„Leið eins og ég væri að
verðmerkja barnið mitt“
Morgunblaðið/Jim Smart
Eygló Guðmundsdóttir með Benjamín Nökkva í fanginu en hann greind-
ist með hvítblæði tíu vikna og liggur á Barnaspítalanum.
RÍKISSTJÓRNIR Íslands, Liecht-
enstein og Noregs hafa útnefnt
Hannes Hafstein úr hópi þriggja
manna stjórnarnefndar Eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA) til að vera
forseti stofnunarinnar næstu tvö ár-
in.
Hannes hefur undanfarin ár átt
sæti í stjórnarnefnd ESA en var áð-
ur m.a. sendiherra Íslands í Brussel,
aðalsamningamaður Íslands um
Evrópska efnahagssvæðið og ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytisins.
Hannes
Hafstein
útnefndur
forseti ESA
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur framlengt gæsluvarðhald yfir
karlmanni sem handtekinn var á
Patreksfirði fyrir rúmri viku grun-
aður um kynferðisofbeldi gegn ung-
um drengjum í bænum.
Héraðsdómur féllst á kröfu ríkis-
lögreglustjóra um framlengingu
varðhaldsins til 19. desember.
Hinn 6. desember úrskurðaði hér-
aðsdómur sakborninginn í gæslu-
varðhald til föstudagsins 19. desem-
ber en sá úrskurður var kærður til
Hæstaréttar sem hinn 11. desember
stytti gæsluvarðhaldstímann til 15.
desember.
Við rannsókn málsins hefur lög-
regla m.a. gert húsleit á heimili
mannsins á Patreksfirði og í fé-
lagsmiðstöð bæjarins.
Gæslu-
varðhald
framlengt
VIÐRÆÐUFUNDIR hafa átt sér
stað milli Samkeppnisstofnunar og
olíufélaganna síðustu dagana þar
sem athugaðir hafa verið mögu-
leikar á að ljúka máli um meint
samráð olíufélaganna með sam-
komulagi og án tilstuðlan dóm-
stóla.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er samkomulag um það
að tjá sig ekki um þessa fundi olíu-
félaganna með Samkeppnisstofnun
þar sem kannaðar eru leiðir til að
reyna að ljúka málinu.
Olíufélögin þrjú fengu nýlega af-
hentan síðari hluta skýrslu Sam-
keppnisstofnunar og hafa frest
fram í febrúarmánuð til að skila
inn athugasemdum sínum við efni
skýrslunnar. Lögmenn olíufélag-
anna óskuðu eftir lengri fresti um
miðja síðustu viku og síðan hafa
ofangreindir viðræðufundir átt sér
stað.
Olíufélögin og Samkeppnis-
stofnun í viðræðum
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli hefur það sem af er árinu af-
hjúpað 57 fíkniefnasmyglara í Leifs-
stöð og tekið af þeim á annan tug
kílóa af fíkniefnum. Þótt desember
sé ekki nema hálfnaður, hefur toll-
gæslan samt mætt almesta fjölda
mála sem um getur hjá henni. Þrett-
án mál hafa komið upp hjá Tollgæsl-
unni Leifsstöð í desember einum,
sem jafngildir nærri einu máli á dag.
Sum málanna hafa verið stórfelld,
þar sem reynt hefur verið að smygla
allt að 2 kg af hassi í einu og nokkur
hundruð gr af kókaíni. Alls hefur
tollgæslan á Keflavíkurflugvelli tek-
ið 1 kg af kókaíni og 11–12 kg af hassi
áárinu. Að sögn Kára Gunnlaugsson-
ar, aðaldeildarstjóra, er venjulegur
fjöldi mála síðustu 3 ára á bilinu 40–
50 á ári og eru málin nú orðin 57 frá
áramótum. Þetta er þó nokkur fjölg-
un mála að sögn Kára. Nýlega var
tekinn torkennilegur vökvi á tveimur
flöskum af komufarþega, en ekki
hefur fengist staðfest hvað er í flösk-
unum. Málið er í rannsókn hjá lög-
reglunni á Keflavíkurflugvelli.
Tollgæslan hefur sérþjálfaða
fíkniefnaleitarhunda sér til aðstoðar
og segir Kári að smyglarar reyni
ýmis brögð til að sleppa í gegn.
„Það er reynt að villa um fyrir toll-
gæslunni og hundunum á allan
mögulegan og ómögulegan hátt, og
það væri skemmtilegt að greina frá
því hvernig það er reynt, en það
leyndarmál verðum við að hafa fyrir
okkur af skiljanlegum ástæðum. Við
reynum að standa okkur og sjá við
smyglurunum.“
Verulegar breytingar hafa orðið á
smyglaðferðum á síðustu árum og
mun meira er reynt að smygla fíkni-
efnum innvortis, þrátt fyrir þá hættu
sem því er samfara. Það sem af er
desember er nálega helmingur
þeirra mála sem tollgæslan hefur
komið upp um svokölluð „innvort-
ismál“. Aðrir hafa reynt að komast í
gegn með fíkniefni límd á líkamann
eða í farangri sínum.
Eitt smyglmál á dag
STEFÁN Haukur Jóhannesson,
sendiherra og fastafulltrúi Íslands
hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni,
WTO, hefur verið skipaður formaður
vinnuhóps vegna aðildar Rússa að
stofnuninni. Í tilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu segir að aðild
Rússa sé eitt stærsta verkefni stofn-
unarinnar hingað til og verða við-
ræðurnar þær umfangsmestu síðan
aðildarviðræður við Kína fóru fram.
Hlutverk formanns er m.a. að
bera ábyrgð á framvindu viðræðn-
anna, leita sátta og miðla málum.
Rússar stefna að aðild að stofnuninni
árið 2005, segir í tilkynningunni.
Formaður
vinnuhóps
WTO vegna
aðildar Rússa
KONA og tvö börn hennar voru
flutt á slysadeild með reykeitrun
eftir að kviknað hafði í út frá kerta-
skreytingu í íbúð við Jórufell í
Breiðholti í Reykjavík um klukkan
hálffimm í fyrrinótt. Að sögn lög-
reglunnar náðu íbúar að slökkva
eldinn áður en slökkviliðið kom á
vettvang. Mikill reykur var í íbúð-
inni og í stigaganginum og þurfti
slökkviliðið að reykræsta bæði íbúð
og stigagang.
Á slysadeild
með reykeitrun
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦