Morgunblaðið - 17.12.2003, Side 17
UN TIL ÁFANGASTA‹AR
VISA RA‹ ER SKYNSAMLEG LEI‹ TIL A‹ VERSLA
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 17
Á FYRSTU ellefu mánuðum ársins
voru farþegar Flugleiða til og frá
landinu ámóta margir og á síðasta
ári. Farþegar Icelandair, dóttur-
félags Flugleiða, um Ísland, á leið
milli Bandaríkjanna og Evrópu, voru
hins vegar 14,8 % færri og munar þar
mest um hrun á Norður-Atlantshafs-
markaðinum á fyrri hluta ársins
vegna Íraksstríðs og bráðalungna-
bólgu.
Í heild eru farþegar 6,2% færri en
á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Flugleiðum.
Farþegum í millilandaflugi Ice-
landair í nóvember fjölgaði um 6,4% í
samanburði við nóvember á síðasta
ári. Farþegum á leiðum til og frá Ís-
landi fjölgaði um 3,7%, en farþegum
Icelandair sem ferðast yfir Norður-
Atlantshafið með viðkomu á Íslandi
fjölgaði um 12,2%. Í heild voru far-
þegar rúmlega 70 þúsund í mánuðin-
um, en 66 þúsund í fyrra. Sætafram-
boð var 2,1% meira en í nóvember á
síðasta ári, þannig að sætanýting
batnaði um 3,8% og var 62,4%.
Í innanlandsflugi Flugfélags Ís-
lands fjölgaði farþegum um 8,8% og
sætanýting var nánast hin sama og í
nóvember í fyrra eða 70,1%. Farþeg-
um í innanlandsflugi hefur fjölgað um
7,2% á árinu.
Flutningar Flugleiða Fraktar voru
mjög svipaðir því sem var í nóvember
á síðasta ári. 1,8% samdráttur varð í
heildarflutningum, en 2,8% aukning í
flutningum til og frá landinu.
Farþegum
Flugleiða
fækkar á
árinu
KÖGUN hf. hefur gert Iðu hf., sem á
43,5% hlutafjár í Landsteinum-
Streng hf., kauptilboð í hlutaféð. Áð-
ur hafði Kögun gert 16–18 lífeyris-
sjóðum, eigendum 56,5% hlutafjár í
Landsteinum-Streng, kauptilboð í
þeirra eignarhluta í félaginu. Í til-
kynningu frá Kögun segir, að vonast
sé til að samningaviðræður gangi
hratt fyrir sig og að þeim ljúki jafn-
vel í þessari viku. Verði kauptilboð-
inu tekið eignast Kögun allt hlutafé í
Landsteinum-Streng.
Að sögn Gunnlaugs Sigmundsson-
ar, forstjóra Kögunar, er Iða í eigu
um tvö hundruð einstaklinga,
áhættufjárfestingarsjóðs í Svíþjóð,
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins,
Kaldbaks og Brúar, dótturfélags
Straums. Hann segir að einstakling-
arnir, sem margir séu búsettir í Sví-
þjóð, hafi áður átt hlut í hugbúnaðar-
fyrirtækinu GoPro, sem á sínum
tíma sameinaðist Landsteinum.
Hluthöfum í Kögun muni því geta
fjölgað töluvert, ef hluthafar í Iðu
samþykkja að taka hlutabréf í Kög-
un í skiptum fyrir bréf sín í Land-
steinum-Streng. Það segist hann
mjög gjarnan vilja sjá, því hluthöfum
í Kögun hafi fækkað nokkuð frá því
félagið var skráð í Kauphöll Íslands.
Ástæða sé því til að líta á þessi við-
skipti af bjartsýni.
Kögun gerir
tilboð í Land-
steina Streng
♦ ♦ ♦
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Gömul dönsk
postulínsstell
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is