Morgunblaðið - 17.12.2003, Page 58
ÍÞRÓTTIR
58 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Evrópubikarinn, Vesturdeild
Ovarense – Keflavík............................ 99:93
Stig Keflavíkur: Derrick Allen 27, Nick
Bradford 16, Arnar F. Jónsson 16, Gunnar
Einarsson 11, Jón N. Hafsteinsson 11, Fal-
ur Harðarson 10, Magnús Gunnarsson 3.
Staðan:
Ovarense 5 4 1 441:427 9
Keflavík 5 3 2 478:471 8
Toulon 5 2 3 424:424 7
Madeira 5 1 4 406:427 6
Gefin eru 2 stig fyrir sigur og 1 fyrir tap.
1. deild karla
Stjarnan – Skallagrímur...................... 71:82
Ármann/Þróttur – ÍS ........................... 83:63
Staðan:
Valur 9 8 1 789:728 16
Skallagrímur 9 8 1 846:710 16
Fjölnir 9 7 2 802:666 14
Stjarnan 9 5 4 722:707 10
Ármann/Þróttur 9 4 5 740:714 8
ÍS 9 4 5 729:745 8
Þór A. 9 4 5 749:800 8
ÍG 9 3 6 753:805 6
Höttur 9 1 8 622:768 2
Selfoss 9 1 8 734:843 2
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Minnesota – Boston.............................116:95
Indiana – Cleveland ..............................95:85
Dallas – Toronto ..................................111:94
San Antonio – Memphis........................78:67
LA Clippers – New Orleans ...............109:80
BLAK
Undanúrslit karla:
ÍS – Þróttur R........................................... 3:1
(21:25, 25:22, 25:16, 26:24)
ÍS mætir Stjörnunni í úrslitaleik í Aust-
urbergi 3. janúar.
KNATTSPYRNA
England
Deildabikarkeppnin, 8-liða úrslit:
WBA – Arsenal......................................... 0:2
Nwankwo Kanu 25., Jeremie Aliadiere 57.
Bolton – Southampton ............................ 1:0
Henrik Pedersen 115.
Bikarkeppnin, 2. umferð:
Barnsley – Bristol City ............................ 2:1
Cambridge – Macclesfield........................2:2
Macclesfield sigraði í vítaspyrnukeppni.
Mansfield – Wycombe.............................. 3:2
Þýskaland
Frankfurt – Hamburger SV................... 2:3
Ervin Skela 52., Markus Beierle 65. - Stef-
an Beinlich 17., Naohiro Takahara 51., Ser-
gej Barbarez 85. - 20.000.
Freiburg – Bayern München.................. 0:6
Roy Makaay 28., 67., Martin Demichelis 6.,
Hasan Salihamidzic 23., Claudio Pizarro
60., Piotr Trochowski 87. - 25.000.
Werder Bremen – Hansa Rostock ......... 3:0
Ailton 3., Valerien Ismael 77., Krisztian
Lisztes 89. - 33.754.
Köln – Hertha Berlín............................... 3:0
Andrej Voronin 46., Lukas Podolski 75.,
Matthias Scherz 87. Rautt spjald: Nano
Rafael (Hertha) 72. - 35.000.
Staða efstu liða:
Bremen 17 12 3 2 45:20 39
Bayern München 17 10 5 2 40:19 35
Stuttgart 16 10 5 1 22:4 35
Leverkusen 16 9 5 2 32:15 32
Bochum 16 7 4 5 28:21 25
Staða neðstu liða:
Kaiserslautern 16 5 2 9 19:30 14
Köln 17 3 4 10 15:26 13
Hertha 17 2 7 8 15:33 13
Frankfurt 17 3 3 11 16:28 12
Spánn
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Celta Vigo – Espanyol ............................. 3:1
Alaves – Real Sociedad ............................ 2:1
Algeciras – Villarreal ............................... 0:1
Cultural Leonesa – Atletico Madrid....... 0:1
Holland
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Sparta Rotterdam – Roosendaal ............ 2:0
Heracles Almelo – Hoek.......................... 4:1
PSV Eindhoven – Willem II.................... 2:0
Twente – Ajax-2........................................ 1:0
Ítalía
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit, síðari leikur:
Perugia – Chievo ...................................... 3:0
Perugia áfram, 4:2 samanlagt.
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Magdeburg – Lemgo............................ 33:30
LEIÐRÉTTING
Val Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafs-
sonar, landsliðsþjálfara í knattspyrnu, á
leikmönnum ársins, skolaðist til í gær hér á
síðunni. Rétt val þeirra er Pavel Nedved,
Tékklandi, í fyrsta sæti, Zidane í öðru og
Van Nistelrooy í þriðja.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, 16-liða úr-
slit kvenna:
Seljaskóli: ÍR - Keflavík ............................20
Í KVÖLD
STEFÁN Arnarson, landsliðsþjálfari kvenna í hand-
knattleik, heldur í vonina um að hann geti teflt fram
Önnu Yakovu, vinstrihandar skyttunni öflugu í liði Ís-
landsmeistara ÍBV, í leikjunum á móti Tékkum í um-
spili Evrópumótsins en þjóðirnar eigast við í tveimur
leikjum um laust sæti í úrslitakeppni EM næsta vor.
Yakova öðlaðist íslenskan ríkisborgarétt á mánudag-
inn, á síðasta starfsdegi alþingis, en þar sem reglur Al-
þjóðahandknattleikssambandins kveða á um að líða
þurfi þrjú ár frá því hún spilaði síðast með landsliði þar
til hún getur leikið með öðru landsliði liggur ekki ljóst
fyrir ennþá hvort hún verði gjaldgeng í leikina við
Tékka. Yakova spilaði síðast landsleiki fyrir Úkraínu í
ágúst 2001.
„Ég held svo sannarlega í vonina um að fá Yakovu og
það yrði gríðarlegur fengur fyrir okkur að fá hana í
liðið þar sem fyrirséð er að stór skörð verða höggvin í
okkar lið,“ sagði Stefán Arnarson við Morgunblaðið.
Yakova með ís-
lenska landsliðinu?
TVEIR af lykilmönnum landsliðsins undanfarin ár,
Harpa Melsted, Haukum, og Brynja Steinsen, Val,
verða ekki með í verkefnum landsliðsins og leika ekki
meira með liðum sínum á leiktíðinni. Ástæðan er sú að
þær eru báðar ófrískar og eiga von á sér næsta sumar.
Þetta er mikill missir fyrir íslenska landsliðið og ekki
síður fyrir Hauka og Val í baráttu liðanna við ÍBV um
Íslandsmeistaratitlinn en liðin þrjú hafa skarað fram úr
á leiktíðinni.
Eins og áður segir mætir Ísland liði Tékklands í um-
spili um sæti í úrslitakeppni EM. Þjóðirnar áttust við í
leik á móti í Póllandi fyrir einum og hálfum mánuði og
þar höfðu þær tékknesku betur, 30:28.
„Það liggur ljóst fyrir að Tékkar eru með sterkara
lið en við. Við veittum þeim hins vegar mjög harða
keppni í mótinu í Póllandi og ef við hittum á okkar allra
bestu leiki er aldrei að vita nema við getum haft betur á
móti Tékkunum,“ sagði Stefán.
Landsliðskonur í
barnsburðarleyfi
ÚRSLIT
Þetta leit nú ekki allt of vel útum tíma, en strákarnir tóku
sig á undir lokin og náðu að minnka
muninn verulega þannig að þetta
varð alls ekki alslæmt,“ sagði Guð-
jón Skúlason, þjálfari Keflvíkinga, í
samtali við Morgunblaðið eftir leik-
inn. Heimamenn byrjuðu með mikl-
um látum, léku stífa maður á mann
vörn og yfirdekkuðu gríðarlega,
sérstaklega á móti þriggja stiga
skyttum Keflvíkinga. Þeir gengu
svo hart fram í vörninni að menn
náðu hreinlega ekki að skjóta
þriggja stiga skotum framan af leik.
„Þetta var erfitt. Þeir léku mjög
stífa vörn og fasta – fullfasta á köfl-
um en við vælum ekkert yfir því.
Við þetta féllum við út úr öllum
takti og því sem við ætluðum að
gera. Þessu fygldi líka slök hittni
enda held ég að við höfum bara
gert tvær þriggja stiga körfur í
fyrri hálfleik,“ sagði Guðjón.
Staðan eftir fyrsta leikhluta var
28:23 og þann næsta unnu heima-
menn einnig með fimm stigum,
24:19, og því 52:42 í leikhléi. Ekki
tók betra við í þriðja leikhluta því
þann hluta unnu heimamenn með
sex stigum, 22:16, og þegar síðasti
leikhlutinn hófst var staðan 74:58
en hafði verið 74:56 skömmu áður
og var það mesti munurinn í leikn-
um, 18 stig.
„Arnar Freyr kom sterkur inn í
lokin og keyrði óhræddur á vörn
þeirra. Það var í rauninni það sem
við þurftum því stífur varnarleikur
þeirra gerði það að verkum að við
áttum í erfiðleikum með að koma
boltanum á milli manna og því
þurftum við einhvern sem hafði
áræði og þor til að keyra með bolt-
ann inn að körfunni. Arnar Freyr
gerði það virkilega vel,“ sagði Guð-
jón.
Keflvíkingar minnkuðu muninn
hægt og rólega í síðasta leikhlut-
anum en gekk erfiðlega að komast
niður fyrir tíu stiga múrinn, en
Keflavík vann síðasta leikhlutann
35:25. „Ef við hefðum komið mun-
inum fyrr niður fyrir sjö til átta
stig er aldrei að vita nema við hefð-
um getað stolið sigrinum. En það
tókst ekki og nú er bara að fara
snemma í rúmið því við leggjum
snemma af stað í fyrramálið til Ma-
deira,“ sagði Guðjón í gærkvöldi.
Keflvíkingar byrjuðu á því að
leika maður á mann vörn, skiptu
síðan yfir í svæðisvörn undir lok
fyrri hálfleiks. „Við héldum því síð-
an áfram í seinni hálfleik og press-
uðum þá um leið og það gekk ágæt-
lega. Við enduðum síðan á því að
leika maður á mann um allan völl
og þá náðum við að minnka mun-
inn,“ sagði Guðjón og bætti við að
heimamann hefðu leikið maður á
mann vörn allan leikinn.
Í sókninni gekk illa framan af en
heimamönnum betur og mestu
munaði um stóru mennina inn í
teignum því ef leikmennirnir fyrir
utan lentu í vanda létu þeir boltann
detta inn í teiginn þar sem þeir
stóru höfðu plantað sér. „Dómar-
arnir hefðu að ósekju mátt dæma
nokkrum sinnum þrjár sekúndur á
þá stóru, en sáu ekki ástæðu til
þess. Þetta eru rosalegir trukkar
og erfitt að eiga við þá,“ sagði Guð-
jón.
Eins og áður segir átti Arnar
Freyr fínan leik, en annars voru
átta menn notaðir í leiknum. Derr-
ick Allen var grimmur, með 27 stig
og 10 fráköst, en skytturnar náðu
sér ekki á strik að þessu sinni enda
leikið stíft á móti þeim. Falur náði
þó aðeins að klóra í bakkann undir
lok leiksins. Þá átti Jón Nordal fín-
an leik um tíma í fyrri hálfleik.
Góður lokakafli
bjargaði miklu
KEFLVÍKINGAR töpuðu sínum öðrum leik í Bikarkeppni Evrópu í
körfuknattleik í gærkvöldi þegar þeir mættu Ovarense í Ovar í
Portúgal. Heimamenn voru yfir allan leikinn en Keflvíkingar náðu að
rétta úr kútnum á lokakaflanum og töpuðu 99:93. Sex stiga tap er
alls ekki slæmt því Keflavík vann Ovarense 113:99 í fyrri leik lið-
anna og stendur því betur verði liðin jöfn að stigum.
Í sænska liðinu eru gamlir refir,tveir þeirra Staffan Olsson og
Magnus Wislander eru fertugir en
þeir ásamt markverðinum Tomasi
Svensson, voru í heimsmeistaraliði
Svía á heimsmeistaramótinu í
Tékkóslóvakíu árið 1990. Í bland við
gömlu refina eru fjórir nýliðar en
meðalaldur sænska landsliðsins er
28 ár og meðalleikjafjöldi 131 leikur.
Það er skarð fyrir skildi fyrir Svía að
í liðið vantar miðjumanninn smáa en
knáa, Ljubomir Vranjes, en hann er
meiddur í öxl og getur ekki leikið
með á mótinu. EM-hópur Svía lítur
þannig út:
Markverðir:
Tomas Svensson, Hamburg
Peter Gentzel, Nordhorn
Útileikmenn:
Martin Boquist, Kiel
Magnus Wislander, Redberglid
Robert Arrhenius, Nordhorn
Kim Andersson, Sävehof
Jonas Källman, Ciudad Real
Mathias Franzén, Barcelona
Johan Pettersson, Kiel
Stefan Lövgren, Kiel
Jonas Ernelind, Hamburg
Marcus Ahlm, Kiel
Staffan Olsson, Hammarby
Sebastian Seifert, Kolding
Jonas Larholm, Sävehof
Joacim Ernstsson, Redbergslid
Svíar leika sjö æfingaleiki fyrir
Evrópumótið. 2.–9. janúar mæta
þeir Túnis, Frakklandi og Tékklandi
á móti í Túnis. 13. janúar mæta þeir
Egyptum í Svíþjóð og 15.–17. leika
þeir á móti ásamt Íslendingum,
Egyptum og Dönum.
Svíar halda síðan til Slóveníu hinn
20. janúar en þeir eru í riðli með
Rússum, Úkraínumönnum og Sviss-
lendingum.
MAGDEBURG hleypti aukinni
spennu í toppbaráttu þýsku 1.
deildarinnar í handknattleik í
gærkvöld með því að sigra
Lemgo, 33:30, frammi fyrir 8 þús-
und áhorfendum á heimavelli sín-
um. Flensburg er með 28 stig á
toppnum, Lemgo 26 og Magde-
burg 25 en Lemgo hefur leikið
einum leik meira en hin tvö liðin.
Sigfús Sigurðsson skoraði 4
mörk fyrir Magdeburg í leiknum
en lærisveinar Alfreðs Gíslasonar
voru með yfirhöndina allan tím-
ann en síðast var jafnt 14:14. Stað-
an var 19:16 í hálfleik og Magde-
burg komst í 30:24.
Auk Sigfúsar skoruðu mest fyr-
ir Magdeburg þeir Grzegorz
Tkaczyk, 9 mörk, og Stefan
Kretzschmar 6. Þeir Markus Baur
og Florian Kehrmann voru at-
kvæðamestir hjá Lemgo með 6
mörk hvor.
Magdeburg lagði
meistara Lemgo
Svíar búnir að velja EM-hópinn
BENGT Johansson landsliðs-
þjálfari Svía í handknattleik hef-
ur valið landsliðshóp sinn sem
leikur á Evrópumótinu í Slóven-
íu í janúar en þar eiga Svíar Evr-
ópumeistaratitil að verja.
RÓBERT Gunnarsson, línu-
maður Århus GF, er annar
markahæsti leikmaður dönsku
úrvalsdeildarinnar í hand-
knattleik þegar 13 umferðum
er lokið. Róbert hefur skorað
99 mörk en markahæstur er
Micke Næsby hjá Frederica
með 106 mörk en hann gerði
sér lítið fyrir og skoraði 14
mörk fyrir lið í 26:26 jafntefli
á móti Tvis Holstebro um síð-
ustu helgi.
Hinn hálfíslenski Hans Ótt-
ar Lindberg, sem leikur með
Team Helsinge, er sjötti
markahæsti leikmaður deild-
arinnar með 73 mörk en Hans
lék sína fyrstu landsleiki fyrir
Dani fyrr á þessu ári, meðal
annars gegn Íslendingum hér
heima í maí.
Róbert í
öðru sæti