Morgunblaðið - 17.12.2003, Qupperneq 62
62 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4.
Sýnd kl. 6. B.i. 10.
Sýnd kl. 5. B.i. 14.
Matrix No! Master Yes!
Rolling Stone
Roger Ebert
Chicago Sun-Times
Boston Herald
Washington Post
Los Angeles Daily News
Master-ful!
New York Post
Ein magnaðasta stórmynd ársins loksins
í bíó! Russell Crowe hefur aldrei
verið betri. Missið ekki af þessari!
HJ MBL
"Flott og vönduð
stórmynd"
ÞÞ FBL
Sýnd kl. 5.40.
Frábær, fyndin og fjörug unglingamynd um
ástina. Er sá eini rétti til eða ekki?
Fyrsta regla um ástina. Það eru engar reglur.
Sýnd kl. 4 og 6.Með íslensku tali.
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6. Með ísl. tali.
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
Matrix No! Master Yes!
Rolling Stone
Roger Ebert
Chicago Sun-Times
Boston Herald
Washington Post
Los Angeles Daily News
Master-ful!
New York Post HJ MBL
"Flott og vönduð
stórmynd"
ÞÞ FBL
Ein magnaðasta stórmynd ársins
loksins í bíó! Russell Crowe hefur aldrei
verið betri. Missið ekki af þessari!
Geggjuð gamanmynd með Ben Stiller og
Drew Barrymore í leikstjórn Danny DeVito.
Kl. 8.Kl. 10. B.i. 14.
HINIR mjög svo umdeildu grín-
þættir Limbó, sem sýndir voru í
Sjónvarpinu árið 1993, eru á meðal
efnis á mynddiskinum LimbóRad-
íusTvíhöfði sem var að koma út.
Einnig má þar finna valdar Radíus-
flugur og úrval þátta Jóns Gnarr og
Sigurjóns Kjartanssonar sem meðal
annars voru
sýndir undir
nafninu Tvíhöfði í
Dagsljósinu sál-
uga.
Limbóþættirn-
ir vöktu töluverða
athygli og umtal á
sínum tíma en
ekki eins mikla
hrifningu, að
sögn Davíðs Þórs
Jónssonar, sem var einn handrits-
höfunda og leikara í þáttunum. Und-
ir leikstjórn Óskars Jónassonar fór
hópur ungra grínista nýjar og djarf-
ar leiðir sem þjóðin var ekki alveg
tilbúin að samþykkja.
„Það varð allt vitlaust út af þess-
um þáttum. Ekki einasta var fólki
ekki skemmt heldur var því beinlínis
misboðið. Velvakandi fylltist af reiði-
legum lesendabréfum og fólk
hringdi unnvörpum í Þjóðarsálina og
kvartaði yfir þessari hneisu,“ segir
Davíð.
Einungis tveir Limbóþættir voru
sýndir og þrátt fyrir að búið væri að
skrifa handritið að þriðja þættinum
og tökur meira að segja hafnar var
hann snarlega tekinn út af dagskrá.
„Við urðum auðvitað hvekkt og héld-
um að ferli okkar sem grínara væri
lokið. Við létum samt ekki slá okkur
út af laginu og fengum uppreisn æru
síðar.“
Þeir sem fram komu í þáttunum
voru þau Davíð Þór, Steinn Ármann
Magnússon, Helga Braga Jónsdótt-
ir, Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson,
Pétur Pókus, Steinunn Ólafsdóttir,
Hjálmar Hjálmarsson og Óskar Jón-
asson. Mörg þeirra eru nú á meðal
vinsælustu grínista þjóðarinnar.
Davíð bendir á að á þessum tíma
hafi grínhefð landsmanna verið
Spaugstofan, Laddi og Ómar Ragn-
arsson. Þeir Steinn Ármann hafi
hins vegar verið undir áhrifum frá
uppistandi og Monthy Python sem
fáir Íslendingar þekktu. „Þrátt fyrir
að meirihlutinn hafi tekið okkur
vægast sagt illa var þó ákveðinn hóp-
ur sem tók ástfóstri við þættina og
skapaðist ákveðið költ í kringum þá.“
Hann segir að það sem gekk svo
fram af fólki í þá daga þyki fremur
pent nú til dags. „Á þessum tíma
ríktu miklu ákveðnari hugmyndir
um hvað var viðurkennt og hvað af-
brigðilegt en nú, ekki bara hvað við-
kemur húmor heldur bara í öllu,
tísku, kvikmyndum og tónlist. Núna
er þjóðfélagið orðið miklu fjölbreytt-
ara sem er mjög gott.“
Davíð starfar nú við að þýða
barnaefni til talsetningar fyrir kvik-
myndahús og sjónvarp. Hann segist
hafa fengið nóg af neikvæðri athygli
þegar hann fór út í fjölmiðlabrans-
ann og ritstýrði tímaritinu Bleiku og
bláu. „Ég er ánægður með að geta
verið í skapandi og skemmtilegu
starfi án þess að þurfa að vera inni í
stofu allra landsmanna. Maður getur
líka fengið nóg af því.“
Mynddiskurinn LimbóRadíusTvíhöfði kominn út
„Það varð allt vit-
laust í þjóðfélaginu“
Davíð Þór og Steinn Ármann Magn-
ússon vel klæddir á góðri stundu í
Limbó.
LimbóRadíus
Tvíhöfði
ÁSTARSAMBAND landans við Ást
í reynd (Love Actually) varir enn og
dafnar vel. Þessi breska gaman-
mynd var vinsælasta myndin í bíó-
húsum landsins aðra helgina í röð
og dró óvenjulítið úr aðsókninni
eða einungis sem nemur 22%.
Það hefur líka margsýnt sig að
þessar bresku rómantísku gam-
anmyndir ganga áberandi vel í ís-
lenska bíóunnendur og nægir að
nefna velgengni mynda á borð við
Fjögur brúðkaup og jarðarför,
Notting Hill og Dagbók Bridget
Jones því til stuðnings. Svo vill ein-
mitt til að höfundur allra þessara
mynda er einmitt maðurinn á bak
við Love Actually, Richard Curtis.
Um 3.500 manns sáu myndina um
helgina og hafa nú alls rúmlega 12
þúsund séð hana.
Tölvuteiknimyndin Leitin að
Nemó gengur líka prýðilega. Hún
heldur öðru sætinu og hefur nú
dregið að rétt um 16 þúsund áhorf-
endur á rúmum tveimur vikum.
Myndirnar sem frumsýndar voru
á föstudag, hrollvekjan Kofakvilli
(Cabin Fever) og unglingamyndin
How To Deal (Að höndla hlutina)
náðu 3. og 15. sæti listans.
! " #$%
" & '
!
" $
& ' (!&
)*
+
$')%,&
-
.
/ 0*
(
)
*
+
,
-
.
(/
0
1
((
(+
(-
()
(*
(0
(,
(.
!
)
*
(
*
-
)
+
-
+
,
*
0
+
(
1
*
((
+
1
(,
!"
##$ %
2345 '2!!67 68! 67 ' 3!69:!4 234
2345 '2!!67 68!67 '69:!4 2346:234
9:!4 23465 '2!!
:2346; 26234
:2346 :23423468!
:2346; 2 2348! 69:!4 234
:23467 ' 3!
:234
9:!4 2346% !'<=
69'<=
9:!4 234
; 269> 3!
:23462348! :234
; 26
'<=
2347 ' 3!67 :2346
:!4!6? < :2346234
9:!4 234
2345 '2!!67 Love Actually enn vinsælasta mynd landsins
Colin Firth er einn af fjölmörgum þekktum leikurum í Love Actually.
Ástin
dugir enn