Morgunblaðið - 24.12.2003, Side 1
Morgunblaðið/RAX
Gleðileg jól
STOFNAÐ 1913 349. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Ýmsum störfum þarf að sinna í kvöld
þótt heilagt sé orðið Daglegt líf
Fólkið í dag
Fólkið | Hringadróttinssaga og álfa-
kroppurinn mjói Liv Tyler Jól í
Færeyjum Áramótaskaupið
Á vakt
um jólin
Krakkar mín-
ir komiði sæl
Dansinn dunaði á jólaböllum
barnanna á aðventunni Miðopna
EINAR K. Guðfinnsson, alþingismaður Sjálfstæð-
isflokksins, segist telja að forsvarsmenn Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, skuldi
þingmönnum skýringu á samkomulagi sínu við
Kaupþing Búnaðarbanka um að bankinn eignist
sparisjóðinn. Einar segir samkomulagið mikið
högg fyrir sparisjóðasamstarfið. Í svipaðan streng
taka framsóknarþingmennirnir Kristinn H. Gunn-
arsson, varaformaður efnahags- og viðskipta-
nefndar, og Hjálmar Árnason.
„Mér finnst að forsvarsmenn SPRON skuldi
okkur, sem stóðum með þeim í baráttunni gegn
ásælni Búnaðarbankans þá, skýringar á því hvers
vegna þeir telji þetta þekkilegri yfirtöku nú,“ seg-
ir Einar. „Ég vil í þessu sambandi undirstrika það,
að þegar verið var að vinna að nýrri löggjöf um
fjármálastofnanir haustið 2002, þá kom mjög
skýrt fram að eitt markmiðið með löggjöfinni væri
að tryggja rekstur og rekstrarform sparisjóðanna.
Það hefur ekkert breyst í þeim efnum.“
Einar segir að í nefndaráliti, sem meirihluti
efnahags- og viðskiptanefndar hafi skrifað undir
ásamt þingmönnum Samfylkingar, komi fram að
breyting á stöðu stofnfjáreigenda, sem gerð var
með lagabreytingu í desember í fyrra, hafi verið
hugsuð til að stofnfjáreigendur yrðu jafnsettir fyr-
ir og eftir hlutafélagavæðingu sparisjóða.
Auðgast umfram það sem til stóð
Kristinn H. Gunnarsson segir um þá lagasetn-
ingu: „Markmiðið var að verja þetta fyrirkomulag
þannig að stofnfjáreigendur sneru sér ekki að því
að hámarka arð sinn með því að selja stofnfé sem
hlutafé og selja í því hlutafé aðgang að eigin fé um-
fram stofnfé. Stærsti veikleikinn í þessu máli er að
menn eru að auðgast umfram það sem til stóð eins
og við horfum á þetta núna.“
Samband íslenskra sparisjóða (SÍSP) lýsti því
yfir í gær að áform um að SPRON verði dótturfyr-
irtæki Kaupþings Búnaðarbanka feli í sér skýlaust
brot á lögum og jafnframt aðför að þeim grunni
sem starfsemi sparisjóða á Íslandi hafi hvílt á í
hartnær eina öld. Segist sambandið ætla að skora
á Alþingi og ríkisstjórn að sjá til þess að þessari
aðför að tilvist sparisjóðanna verði hrundið. „Ef
SPRON verður 100% í eignarhaldi viðskiptabanka
er eðlilegt að SPRON víki úr samstarfi spari-
sjóða,“ segir Jón Kr. Sólnes, formaður SÍSP.
Stjórnarþingmenn gagn-
rýna kaupin á SPRON
Hörð viðbrögð Sam-
bands sparisjóða
Kaup á SPRON/4/10
VLADIMÍR Pútín Rússlandsforseti gaf í
fyrsta sinn í skyn í gær að fyrirtæki sem gerð-
ust brotleg við lög í óreiðukennda einkavæðing-
arferlinu eftir hrun Sovétríkjanna kunni að
eiga það yfir höfði sér að verða endurþjóðnýtt.
Lét Pútín þessi ummæli falla stundu áður en
dómstóll í Moskvu ákvað að
framlengja um þrjá mánuði
gæzluvarðhaldsúrskurð yf-
ir Mikhaíl Khodorkovskí,
fyrrverandi forstjóra Yuk-
os-olíufyrirtækisins og rík-
asta manni Rússlands, og
leyfa honum ekki að losna
gegn tryggingu. Hann hafði
ekki farið leynt með fjár-
stuðning sinn við stjórnar-
andstöðuöfl í aðdraganda
þingkosninganna sem fram fóru fyrr í mánuð-
inum og flokkar hliðhollir Pútín sigruðu í.
Khodorkovskí sætir ákæru í sjö liðum um
skattsvik og fjármálamisferli sem hann á að
hafa gerzt sekur um frá því á miðjum tíunda
áratugnum, er hann og viðskiptafélagar hans
voru að byggja upp hið mikla orkufyrirtækja-
veldi sem Yukos er uppistaðan í. Hann á allt að
tíu ára fangelsisdóm yfir höfði sér, verði hann
fundinn sekur, og á á hættu að allur ráðandi
hlutur hans í fyrirtækinu falli í ríkissjóð.
Pútín ávarpaði fund hjá rússneska verzlun-
arráðinu í gær þar sem hann reyndi að hrekja
ásakanir manna á Vesturlöndum um að hann
væri að beita valdi sínu til að gera ýmsar um-
bætur síðustu ára afturreka.
„Við höfum ekkert slíkt í hyggju,“ sagði Pút-
ín með tilvísun til ásakana um meinta endur-
þjóðnýtingarstefnu. „En við erum ekki að tala
um menn sem brutu lögin [í hinni oft óreiðu-
kenndu sölu á arðvænlegustu fyrirtækjum Sov-
étríkjanna].“
Pútín – sem ekki nefndi Yukos á nafn – hefur
ítrekað varið rannsóknina sem yfirvöld hafa
staðið fyrir á olíurisanum og vísað á bug ásök-
unum um að pólitískar ástæður lægju þar að
baki.
Pútín ýjar
að hótun um
endurþjóð-
nýtingu
Moskvu. AP, AFP.
Vladimír Pútín
ÞÚSUNDIR hollenzkra við-
skiptavina skartgripasalans Johans
de Boer rífa nú hár sitt og skegg –
og róta í rusli – eftir að þeir fengu
sendingu frá de Boer, sem reyndist
innihalda ekta demant en margir
hentu óskoðaðri eins og hverjum
öðrum ruslpósti.
De Boer, sem í 10 ár hefur rekið
skartgripaverzlun í Apeldoorn,
skammt frá Amsterdam, sendi í til-
efni afmælis fyrirtækisins alls 4.000
viðskiptavinum sendingu, að sögn
fréttavefjar BBC. Í 200 þeirra var
ekta demantur en í hinum gervidem-
antur.
Í bréfinu sem fylgdi var viðtak-
andinn hvattur til að koma með dem-
antinn í búðina – ef hann reyndist
vera ekta mætti viðkomandi eiga
hann. Sendingarnar kostuðu de
Boer 48.000 evrur, um 4,3 milljónir
króna. Aðeins 35 af þeim 4.000 sem
fengu sendinguna skiluðu sér í búð-
ina til hans.
Demönt-
um fleygt
SUMIR hundar í Bandaríkjunum
bíða jólahátíðarinnar með eftirvænt-
ingu vegna þess að nú verður loksins
hægt að kaupa handa þeim rándýra
merkjavöru í jólagjöf. Að sögn Wall
Street Journal býður Ralph Lauren
til sölu Fair Isle-peysur og póló-
skyrtur handa hundum, einnig er
hægt að kaupa nafnskilti á ólina úr
ekta silfri.
Að auki er hægt að gefa þeim ilm-
vatn til að hressa upp á þefinn, meðal
annars Aramutts og Timmy Hole-
digger. Sumir hundaeigendur reyna
að koma ferfætlingunum í jólaskap
en það tekst ekki alltaf. Ken
Boschert í Seattle segir greifingja-
hunda heimilisins verða miður sín af
bræði þegar eiginkonan festir gervi-
hreindýrahorn á hausinn á þeim.
Merkjavara
fyrir hunda
♦ ♦ ♦