Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 6
Betri sala en í fyrra og gott hljóð í kaupmönnum víða um land varðandi verslun fyrir jólin
Morgunblaðið/Ásdís
Margir lögðu leið sína í verslanir í höfuðborginnni á Þorláksmessu.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Líf og fjör hefur verið í verslunum á Ísafirði undanfarna daga og hefur salan verið svipuð og í fyrra.
GOTT hljóð er í kaupmönnum víða
um land varðandi verslun fyrir þessi
jól og virðist sem verslun sé ívið betri
hjá allflestum en á síðasta ári. Þó
virðist sem jólaverslunin hafi farið ró-
lega af stað í byrjun desember en síð-
an tekið kipp um miðjan mánuðinn.
Pálmi Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Smáralindar, segir verslunina
hafa gengið prýðisvel. „Við erum
mjög ánægð með þróun mála. Fjöldi
þeirra gesta sem koma í Smáralind er
15% meiri það sem af er desember
miðað við sama tíma í fyrra. Þá gefa
bráðabirgðatölur varðandi verslun í
húsinu til kynna að ætla megi að
heildaraukningin sé á svipuðu róli, þó
það sé auðvitað mjög misjafnt eftir
verslunum. En þorri allrar verslunar
er vel yfir meðallagi og dæmi eru um
að verslun hafi aukist um og yfir 50% í
stærri verslunum hérna. Við erum
mjög ánægð með þessa þróun og
þetta er ívið betra en við áttum von
á,“ sagði Pálmi.
Verslunin tók kipp
um miðjan desember
Fáa mánuði ársins er verslað meira en í desember þegar lands-
menn undirbúa jólahald með gjöfum og góðum mat.
Þetta árið virðist engin undantekning, nema ef vera skyldi að
landsmenn ætli sér að njóta jólanna enn betur en áður.
Hann segir að síðustu dagana fyrir
jól komi um og yfir 30.000 gestir dag-
lega í Smáralind og síðustu vikuna
fyrir jól megi búast við að fjöldi gesta
verði um 200.000.
Að sögn Pálma var fyrsta vika
mánaðarins mjög góð í versluninni
miðað við sömu viku í fyrra. Síðan
hafi verslunin dregist saman í annarri
vikunni en síðasta vikan fyrir jól hafi
verið þeim mun kröftugri. „Þannig að
í heildina jafnar þetta sig út og mánu-
dagurinn var t.d. stærri en Þorláks-
messa í fyrra.“
Framhald af aukinni
neyslu síðustu mánaða
Örn Kjartansson, framkvæmda-
stjóri Kringlunnar, segir desember
hafa verið góðan verslunarmánuð fyr-
ir kaupmenn í Kringlunni. „Í heildina
litið hefur verið meiri verslun en í
fyrra og aðsóknin er örlítið meiri en
var í fyrra, miðað við þriðjudags-
morgun. Ég hugsa að aðsóknin verði
með svipuðu móti og í fyrra, enda erf-
itt að gera eitthvað meira í því, nema
fá einhverja nýja Íslendinga til lands-
ins,“ segir Örn.
Hann segir að greinilega megi
merkja meiri jólaverslun nú en í fyrra
og í heildina hafi veltan aukist í
Kringlunni. „Það er kannski fram-
hald af því sem við höfum verið að sjá
síðustu fjóra til sex mánuði, þegar
verið hefur aukning í neyslu og meiri
verslun. Þannig að kaupmenn hér eru
sáttir og ég veit að gjafavöru- og fata-
kaupmenn hafa verið mjög sáttir
hérna í Kringlunni,“ segir Örn.
Jónas Gunnlaugsson, kaupmaður
hjá Bókhlöðunni – Pennanum á Ísa-
firði, segir að verslun hafi gengið
ágætlega síðustu dagana fyrir jól en
hafi farið rólega af stað. „En frá miðri
síðustu viku hefur þetta bara verið
gott. Það var rólegt fyrri part mán-
aðarins, maður var pínulítið smeykur,
en við höfum alveg náð okkur á strik
núna síðustu dagana hvað það áhrær-
ir og við erum á mjög svipuðu róli og í
fyrra,“ sagði Jónas.
Hann segir tíðarfar hafa verið
mjög gott í desember og undirbún-
ingur jólanna gengið vel á Ísafirði.
Snjóföl hefur verið yfir jörðu og gert
sitt til að jólaljósin njóti sín betur.
„Mér heyrist almennt vera létt yfir
fólki. Menn hafa verið í jólaskapi og
sótt samkomur í kirkjum og
skemmtihúsum, jólahlaðborð og ann-
að. Þannig að ég held að óhætt sé að
fullyrða að jólin fari bara vel í fólk hér
fyrir vestan.“
Góð færð aukið verslun
á Akureyri
Ragnar Sverrisson, kaupmaður hjá
Herradeild JMJ á Akureyri, segir
jólaverslunina hafa gengið vel nyrðra.
„Þetta fer mikið eftir tíðarfari og það
er búið að vera fært um allra trissur.
Fólk er að koma hingað frá Fáskrúðs-
firði og frá Hólmavík og öllum stöðum
þar á milli. Færðin er mikið atriði fyr-
ir okkur og samgöngur hafa batnað
mikið, þannig að þetta hefur bara ver-
ið eftir bókinni og gengið alveg ljóm-
andi vel,“ sagði Ragnar.
Hann sagðist telja kaupmenn á Ak-
ureyri heilt yfir sátta, sumir væru
með svipaða verslun og í fyrra á með-
an aðrir væru með aukningu. „Það
má segja að það sé engin stórsveifla,
hvorki upp né niður og alls ekki niður,
heldur frekar upp á við.“
Hann segir verslunina auðvitað
vera langmesta síðustu dagana, þá
versli fólk mest, nema kannski þeir
sem komi langt að til að versla.
„Fólk sem kemur lengra að kemur
mjög mikið seinast í nóvember og í
byrjun desember og er hérna heilu
helgarnar. Í því sambandi erum við
búin að vera mjög heppin varðandi
veður. Það hefur verið góð færð og
góðar samgöngur sem hafa stækkað
markaðssvæðið til muna á Akureyri.
Þannig að við erum bara ansi brött
hérna fyrir norðan.“
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Opið 10 - 13
Gjafakort Kringlunnar
er frábær jólagjöf.
Vínbúð opin kl. 9-12...
. e
r
m
eð
a
llt
f
yr
ir
jó
lin
Gleðileg jól
HÓTEL Keflavík hefur boðið fólki
ókeypist gistingu á hótelinu í des-
ember sl. þrjú ár gegn því að fólk
versli fyrir ákveðna upphæð í
Reykjanesbæ. Að sögn Steinþórs
Jónssonar, hótelstjóra, hefur þetta
uppátæki hótelsins gengið vonum
framar og skilað sér í aukinni versl-
un og jákvæðara viðhorfi í bænum.
„Það sem stendur upp úr í mín-
um huga eftir þetta þriðja ár er
áberandi jákvæðara andrúmsloft í
bænum, sérstaklega hjá verslunar-
eigendum. Þeir eru mjög ánægðir
með jólaverslunina og mér finnst
átakið hafa skilað ákveðnum við-
skiptum og breyttu hugarfari,“
segir Steinþór.
Hann segir það hafa verið gaman
að fá hótelgesti inn á skrifstofu til
að þakka fyrir gistinguna og vel
heppnaða verslunarferð. „Þá hefur
fólk talað um að það sé sérstaklega
góð aðstaða hérna, bæði á hótelinu
og í bænum. Fólk á ekki von á því
að upplifa svona glæsihótel og
glæsilega verslunargötu fyrir utan
Reykjavík.
Það er búið að vera virkilega
gaman að upplifa hversu vel þessi
hugmynd hefur skilað sér og sjá
það sjálfur hversu mikið er hægt að
gera með því að leggja sig fram og
sýna jákvæða viðleitni. Það kemur
svo margfalt til baka.“
Hann segir það líka hafa verið
áberandi að þessu sinni að fólk hafi
ekki eingöngu komið til að versla
og gista á hótelinu, heldur líka til
að nýta sér ýmsa aðra þjónustu í
bænum, m.a. farið út að borða á
veitingastöðum. „Þetta hefur bæst
við frá því sem verið hefur,“ sagði
ánægður hótelstjóri í Reykjanesbæ.
Frí gisting skapað jákvætt
viðhorf og aukna verslun
FLEIRI hafa leitað aðstoðar til
Mæðrastyrksnefndar fyrir þessi jól
en í fyrra, skv. upplýsingum sem
fengust á skrifstofu nefndarinnar í
gær. Endanlegar tölur liggja ekki fyr-
ir en í gær fór fram síðasta jólaút-
hlutun hjá Mæðrastyrksnefnd til bág-
staddra fyrir þessi jól. Ekki verður
um úthlutun að ræða milli jóla og ný-
árs.
Úthlutun matvæla hjá Hjálpar-
starfi kirkjunnar hefur gengið vel að
undanförnu að sögn Jónasar Þóris
Þórissonar framkvæmdastjóra. Búið
er að afgreiða rúmlega 1.000 umsókn-
ir um aðstoð innanlands í jólamánuð-
inum. Ekki verður um skipulagða að-
stoð að ræða milli jóla og nýárs en
opið verður hjá Hjálparstarfinu á
virkum dögum og reynt að aðstoða
eftir föngum. Jónas Þórir segir að
umsóknir fyrir þessi jól séu heldur
færri en í fyrra en greinilegt sé þó að
margir þurfi á aðstoð að halda.
Aðstoð hefur
gengið vel
RÁÐUNEYTISSTJÓRI í landbún-
aðarráðuneyti segist ekki kannast
við margítrekaðar fyrirspurnir til
landbúnaðarráðherra um slátrun á
matdúfum eins og fram kom í
blaðinu á sunnudag. Bergur Rögn-
valdsson, framkvæmdastjóri Hafur-
fells, segist hafa margítrekað sent
ráðherra fyrirspurnir þar sem þess
er óskað að hann hlutist til um að
eitthvert sláturhús taki við fram-
leiðslunni, en ekkert hefur gengið að
fá sláturhús til að slátra dúfunum.
„Hann var í sambandi við ráðuneyt-
ið í haust, og fékk þau svör hjá okk-
ur að sláturhúsin séu ekki á okkar
vegum og lúta ekki neinu fyrirmæla-
valdi héðan. Svo um það gat ekki
verið að ræða að ráðuneytið kæmi
með beinum hætti að þessu máli. En
við höfum vissulega samúð [með
þessu máli], öll nýmæli í landbúnaði
eru þakkarverð,“ segir Guðmundur
B. Helgason, ráðuneytisstjóri í land-
búnaðarráðuneytinu. Hann segist
ekki hafa heyrt af því að Bergur hafi
haft samband eftir að honum var
svarað símleiðis í september sl.
„Það er eigenda sláturhúsa að
meta stöðuna, hvort þeir vilji taka
matdúfurnar til slátrunar,“ segir
Guðmundur. Hann segir að Bergi
hafi verið bent á að kynna sér mögu-
leika í tengslum við úreldingu sauð-
fjársláturhúsa, en sá möguleiki hafi
greinilega ekki gengið.
„Það má auðvitað segja að áður en
stofnað er til kostnaðar og rekstrar
þurfi að sjá fyrir endann á því, nú er
það lykilatriði að geta slátrað þess-
um fuglum,“ segir Guðmundur.
Hann segir þó að sér skiljist að
Bergur hafi verið búinn að fá inni í
sláturhúsi, en svo hafi það ekki
gengið eftir þegar eigendaskipti
urðu.
Ekki hlutverk ráðherra
að hlutast til um slátrun