Morgunblaðið - 24.12.2003, Qupperneq 20
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali.
Óskum viðskiptavinum okkar nær
og fjær og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Lesið í skóginn með skólum | Mánudaginn
8. desember s.l. var undirritað við hátíð-
lega athöfn utan dyra við Andakílsskóla
samkomulag Andakílsskóla og Land-
búnaðarháskólans á Hvanneyri um
grenndarskóg. Áður hafði samkomulag
Andakílsskóla, Skógræktar ríkisins,
Kennaraháskóla Íslands, Námsgagnastofn-
unar og Kennara-
sambands Íslands
verið undirritað.
Samstarf þessara aðila er hluti af lands-
verkefni, þar sem sjö skólar taka þátt,
ásamt fyrrgreindum samstarfsaðilum.
Skólar þessi kallast „Skógarskólar“. Gerð
er verkefnalýsing fyrir hvern skóla, þar
sem einstakir þættir í samstarfinu eru skil-
greindir nánar, uppeldis- og kennslu-
fræðileg markmið og útfærsla einstakra
þátta í verkefninu.
En skólarnir þurfa aðgang að skógi í ná-
grenninu, svonefndum grenndarskógi, og
því var gert samkomulag við Land-
hbúnaðarháskólan á Hvanneyri um afnot
Andakílsskóla af skjólbeltum kringum líf-
rænan ræktunarreit sunnan við veginn
heim að Hvanneyri. Magnús Óskarsson,
fyrrverandi kennari á Hvanneyri, á allan
heiðurinn af tilurð þessa skjólbeltis.
Í samkomulaginu segir meðal annars:
LBH heimilar Andakílsskóla að nýta garð-
inn í tengslum við skipulagða skólafræðslu
í verkefninu „Lesið í skóginn – með skól-
um.“
Skólinn greiðir ekki leigu fyrir afnotin
og ber ekki kostnað af almennum fram-
kvæmdum og skógarhirðu svæðisins.
Andakílsskóli sér um að merkja grenndar-
skóginn, og sér til þess að umgengni sé
eins og best verður á kosið.
Við athöfnina í skjóli jólatrés úr Skorra-
dal afhenti Birgir Hauksson skógarvörður
á Vesturlandi skólanum sérsmíðan raka-
mæli að gjöf.
Úr
bæjarlífinu
Við undirritun samkomulagsins, Ólafur Oddsson
verkefnisstjóri, Elísabet Haraldsdóttir skólastjóri
Andakílsskóla og Magnús B. Jónsson rektor LBH.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Lyftur verða opnar áskíðasvæði Ak-ureyringa í Hlíð-
arfjalli strax á milli jóla á
og nýars; lokað er í dag,
aðfangadag, á morgun,
jóladag, og annan í jólum,
en svo verður opið bæði á
laugardag og sunnudag
frá klukkan 11 til 16.
Stólalyftan Fjarkinn verð-
ur þá í notkun og Hóla-
braut verður líka opin.
Í tilkynningu frá for-
ráðamönnum í Hlíðarfjalli
er minnt á að árskortin
síðan síðastliðinn vetur
gildi ennþá. „Það er verið
að vinna að því að þeir sem
keyptu árskort í fyrra geti
greitt fyrir árskortin 2004
í gegnum heimabanka.
Það gerir okkur þá mögu-
legt að búa til kortin þann-
ig að þau verði tilbúin...“
Opið í Hlíðarfjalli
Borgarnes | Þessir jólasveinar hringdu bjöllunni hjá
fréttaritara og voru að dreifa jólapósti til Borgnesinga.
Þeir voru á vegum Sunddeildar Skallagríms sem eins
og undanfarin ár, sér um að dreifa jólapósti innanbæjar
í fjáröflunarskyni. Jólasveinarnir sögðust hafa gaman
að þessum útburði og þeim var ekkert orðið kalt. En
þeir máttu ekki vera að því að tefja lengi því þeir áttu
eftir að koma talsverðu af jólapósti enn til skila.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Jólasveinar dreifa pósti
Friðrik Stein-grímsson í Mý-vatnssveit leiddi
hugann að því að lands-
menn væru komnir langt
frá uppruna jólanna og
jafnvel búnir að gleyma
hvers vegna þau væru
haldin:
Sumt er enn með sama brag
og sést ef vel þú skoðar
því engill drottins enn í dag
okkur fögnuð boðar.
Séra Hjálmar Jónsson
rýnir í framtíðina:
Lífið þiggur gefin grið,
góðar stundir veitast.
Hillir undir helgan frið,
heimurinn er að breytast.
Björn Ingólfsson sendir
jólakveðju:
Gleðji ykkur gjafirnar
og góðvild ýmiss konar,
einkum Halldór Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar.
Engill drottins
pebl@mbl.is
ÍBÚAR Hríseyjar fylltu samkomuhúsið Sæ-
borg í liðinni viku en þá frumsýndi Tinna
Gunnlaugsdóttir þar kvikmyndina „Mynd fyrir
afa“. Sú mynd var tekin upp í Hrísey á liðnu
sumri en verður sýnd í sjónvarpi á morgun,
jóladag.
Hríseyingar hrifust mjög af myndinni og
stóðu gestir upp að sýningu lokinni og klöpp-
uðu fyrir Tinnu og fylgdarliði hennar.
Hjónin Egill Ólafsson og Tinna framleiddu
myndina en í henni má t.d. sjá Árna Tryggva-
syni bregða fyrir. Hann leikur afann. Árni og
kona hans, Kristín, búa í Hrísey að sumarlagi
og teljast þar eflaust til vorboða.
Hríseyingar fjölmenntu á
frumsýningu myndarinnar í
félagsheimilinu Sæborg.
Hríseyingar hrifnir af Mynd fyrir afa
Frumsýning
Tinna Gunnlaugsdóttir, leikstjóri
myndarinnar Mynd fyrir afa, í
félagsheimilinu Sæborg.
Hvammstangi | Valgerður Kristjánsdóttir
tók við sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga hinn 8. desember.
Hún var valin úr hópi 19 umsækjenda.
Valgerður er Eyfirðingur, fædd og upp-
alin á Kaupangi í Eyjafirði. Hún er stúdent
af verslunarbraut Verkmenntaskólans á
Akureyri, nam viðskiptafræði í Háskóla Ís-
lands í Reykjavík og síðar í rekstrarfræði í
Háskólanum á Akureyri og lauk þar B.Sc.-
prófi. Hún nam fiskeldisfræði, bóknám á
Kirkjubæjarklaustri og verklega námið á
Hjaltlandseyjum og vann síðan hjá Silfur-
laxi í Hveragerði. Hún vann um skeið hjá
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri,
en réðst árið 1997 sem framkvæmdastjóri
til Fóðurverksmiðjunnar Laxár hf. á
Krossanesi á Akureyri.
Valgerður tók við starfi kaupfélags-
stjóra KVH nú í desember af Birni Elísyni,
sem hefur gegnt starfinu í um þrjú ár. Hún
telur sannarlega að tími kaupfélaga sé ekki
liðinn. Hún telur enn þörf fyrir samvinnu í
íslensku þjóðfélagi. Má nefna að í Dan-
mörku eru menn komnir í hring, m.a. með
fóðurstöðvar fyrir landbúnað og reka þær
nú í eins konar samvinnufélagsformi.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga á og rekur
öflugt sláturhús sem hefur útflutningsleyfi
bæði til Evrópu og Bandaríkjanna. Þar tel-
ur hún helstu sóknarfæri félagsins.
Nýr kaup-
félagsstjóri á
Hvammstanga
Morgunblaðið/Karl Ásgeir
Velkomin til starfa: Valgerður Kristjáns-
dóttir og Björn Elísson við tímamótin.
♦ ♦ ♦
Akureyri | Hjúkrunardeildinni Seli við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur
borist höfðingleg gjöf frá börnum Leós
Sigurðssonar, útgerðarmanns. Gjafaféð er
1,5 milljónir króna og skal varið til þess að
bæta aðstöðu og búnað sjúklinga og starfs-
manna í Seli. Hluta af gjafafénu hefur verið
ráðstafað nú þegar til kaupa á sjónvarpi,
rafmagnsorgeli, borði, stólum, garðbekk og
fleiru. Þetta kemur fram á heimasíðu FSA.
Höfðingleg gjöf