Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 21

Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 21 Heiðmörk | Rúmlega 1.000 manns lögðu leið sína í Heiðmörk í des- ember til að höggva sitt eigið jólatré á vegum Skógrækt- arfélags Reykjavíkur, og frábært að sjá hversu gaman fólki finnst að koma og velja sitt eigið jólatré, segir Ólafur Ólafsson skóg- arvörður. Ólafur segir menn komast í mikla jólastemningu við það að sækja sér tré út í skóg. „Tréð lít- ur líka allt öðruvísi út fyrir fólki þegar heim er komið, það snýst bara um það að þetta er þeirra tré, og skiptir ekki öllu máli hvernig það lítur út. Þetta er orð- in hefð hjá mörgum.“ Hann segir að einn af kostunum við þetta fyrirkomulag sé líka að þá sé fólk visst um að fá nýhoggið tré. Tíu starfsmannahópar komu í Heiðmörkina, sá minnsti um 20 manns, en þeir stærstu um 100. Að auki komu um 600 manns þeg- ar félagsmönnum og velunnurum Skógræktarfélagsins var boðið nú rétt fyrir jól. Samtals tók þessi hópur á bilinu 200 til 300 tré heim með sér. Heitt kakó og jólasveinn Fyrirtækjahóparnir sem koma taka oft með sér jólasvein eða tvo, og að sjálfsögðu heitt kakó, enda gott að fá eitthvað hlýtt í kropp- inn þegar tré er sótt í frosti og kulda. Ólafur segir þó að veðrið hafi í raun leikið við þá sem komu, veðrið í desember hafi aldrei verið leiðinlegt, og smá- kuldi sé bara jólalegur. „Þetta hefur vakið svo mikla lukku að það er þegar farið að spyrjast fyrir um næsta ár og í síðustu viku var athugað hvort hægt væri að troða inn einum hópi til viðbótar fyrir jólin,“ segir Ólafur. Hann segir þó að ekkert verði bókað fyrr en næsta haust og því liggi ekkert á að ákveða hvar sækja eigi jólatré fyrir næsta ár. Vinsælt að höggva sér jólatré í Heiðmörk Skemmtileg stemmning: Jólasveinar hafa verið duglegir að hjálpa til við að velja jólatré. Vesturbær | Íbúar í Vesturbæ hafa margir hverjir nokkrar áhyggjur af óhóflegri breidd Suð- urgötunnar, sem liggur neðan úr miðbæ yfir í Skerjafjörð. Þykir þeim gatan allt of breið miðað við þá umferð sem um hana fer og þann mikla straum gangandi veg- farenda sem á leið yfir hana á dag- inn enda liggur hún í gegnum mitt háskólasvæðið. Breidd götunnar þykir leiða til allt of mikils um- ferðarhraða og hættu fyrir gang- andi vegfarendur auk þess sem verðmætt byggingarými þykir fara til spillis. Hafa sumir kallað Suð- urgötuna hraðbraut í þéttbýli. Þörfin fyrir tvær akreinar ekki fyrir hendi Sigurður Helgason, sviðsstjóri Umferðaröryggissviðs hjá Um- ferðarstofu, segir liggja ljóst fyrir að í nútímalegri umferðarumræðu sé lögð sífellt meiri áhersla á að- skilnað gangandi og akandi um- ferðar. „Einn liður í því er að draga úr hraða þar sem gangandi vegfarendur eru á ferðinni,“ segir Sigurður og bætir við að menn hafi í allt of ríkum mæli sett bílinn og akstur bíla sem forgangsverk- efni. „En minna hefur verið hugs- að um óvarða vegfarendur. Það er nákvæmlega þetta sem þarf að hugsa um bæði hvað varðar skipu- lag og stundum með því að endur- skoða eldri mannvirki til að draga úr hraða. Það á svo sannarlega við á þessum stað af því að þörfin fyr- ir tvær akgreinar er í raun og veru ekki fyrir hendi. Það ætti því að vera mönnum í lófa lagið að lag- færa þetta. Það eru komnir ýmsir góðir kostir og aðgengi bæði að Háskól- anum og Reykjavíkurflugvelli hef- ur batnað með tilkomu tengingar frá Vatnsmýrarvegi upp á Sæ- mundargötu og þar með Háskóla- svæðið og einnig við flugvallar- svæðið,“ segir Sigurður að lokum. Hraðbraut í þéttbýli Morgunblaðið/Júlíus Suðurgata í Reykjavík státar af fjórum akreinum sunnan Melatorgs. Við götuna er m.a. Háskóli Íslands með sínum fjölmörgu byggingum, stúd- entagarðar, Þjóðminjasafnið og íbúðir aldraðra. Mjög lítil en aftur á móti hröð umferð er oft og tíðum á Suðurgötunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.