Morgunblaðið - 24.12.2003, Page 22
AKUREYRI
22 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UMFERÐ í kirkjugarða landsins
eykst mjög í desember og nær há-
marki á aðfangadag þegar mikill
fjöldi fólks kemur að vitja leiða lát-
inna ástvina sinna. Smári Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Kirkjugarða
Akureyrar, segir aðfangadag einn
skemmtilegasta dag ársins og hafi
lengi vel verið sá annasamasti. Það
hefur að nokkru leyti breyst eftir að
vefurinn www.gardur.is var tekinn í
notkun, en á honum er að finna að-
gengilegar upplýsingar um legstaði
látins fólks á Íslandi. Á vefnum er
hægt að fletta upp hvar í kirkjugarði
látnir ástvinir hvíla, auk upplýsinga
um fæðingar- og dánardægur.
Í Kirkjugarði Akureyrar eru um
7.000 leiði og hefur sá háttur verið á í
fjölmörg undanfarin ár að skátar í
St. Georgsgildinu hafa séð um lýs-
ingu á leiðunum. Nánast öll leiðin
eru upplýst og ljósadýrðin á Höfðan-
um þar sem kirkjugarðurinn er því
mikil.
Óvenju mikið um ljósakrossa
„Það er óvenju mikið af ljósum í
garðinum miðað við garða annars
staðar í landinu,“ segir Smári. Það
segir hann m.a. vegna þess hve ódýr
lýsingin er, „fjórum sinnum ódýrari
en í Reykjavík,“ segir hann og einnig
nefnir hann að fyrir leiðalýsingunni
sé löng og rík hefð. „Þessi siður hef-
ur breiðst út, menn sjá þetta á næsta
leiði og vilja þá líka setja upp svona
lýsingu hjá sínum. Þetta gerir að
verkum að garðurinn er einstaklega
fallegur yfir að líta í rökkrinu,“ segir
Smári. Hann segir að umferð fólks í
kirkjugarðinn fari að aukast fyrir
fyrsta sunnudag í aðventu, en þá er
kveikt á jólalýsingu garðsins og er
umferð jöfn og þétt alla sunnudaga í
aðventu. Á Þorláksmessu merkja
starfsmenn enn aukna umferð sem
nær svo hámarki á aðfangadag. „Það
er stanslaus straumur í garðinn frá
morgni og fram eftir degi og þetta er
einn skemmtilegasti dagurinn hér í
kirkjugarðinum. Það er yfirleitt létt
yfir fólki, það er meyrt, en í hátíð-
arskapi. Þetta er annar bragur en
vanalega. Það er mikið um að heilu
fjölskyldurnar komi saman og marg-
ir fylgja hefðum varðandi þessar
heimsóknir. Þegar maður verður var
við meðlimi ákveðinnar fjölskyldu
má gera ráð fyrir að klukkan sé að
verða 11, aðrir hafa fyrir sið að koma
á ákveðnum tíma um eftirmiðdaginn
og þannig mætti áfram telja,“ segir
Smári.
Vösk sveit félaga úr St. Georgs-
gildinu gengur svo um allan garðinn
á aðfangadag með tangir og er í því
að bjarga ljósakrossum og leiðum
frá logum friðarkertanna sem hvar-
vetna loga. „Ég man mest eftir 11
kertum á einu leiði, það var eiginlega
bara eins og varðeldur,“ segir
Smári. Ef snjór eða vatnsdropi
kemst í logandi friðarkerti er voðinn
vís, þá verður nokkurs konar
sprenging og stórir blossar mynd-
ast, „ég man eftir einum aðfangadegi
fyrir nokkrum árum, þegar gerði
rigningu og þegar kertin fóru að
springa var þetta bara eins og í Beir-
út,“ sagði hann. Vildi Smári því
beina því til fólks að setja kertin ekki
of nálægt legsteinum, margir þeirra
hefðu orðið fyrir skemmdum þegar á
þá slettist vax.
Vefurinn virkar
Áður en vefurinn var tekinn í
notkun voru starfsmenn garðsins í
óða önn allan daginn að vísa fólki til
vegar, aðstoða það við að leita leiða
ástvina sinna. „Það hefur minnkað
mjög mikið, greinilegt er að fólk fer
inn á vefinn og prentar upplýsing-
arnar út. Það má sjá fólk með blöð á
lofti og eins konar ratleik, þar sem
búið er að merkja bestu leiðina inn á
kortið. Það er því augljóst að vefur-
inn virkar mjög vel og fólk notar
hann,“ segir Smári. Hann nefndi
einnig því til staðfestingar að starfs-
fólk garðanna tæki eftir því að um-
ferð fólks með blöð í hendi eykst að
sumarlagi. „Þá eru ættarmótin í
uppsiglingu og fólk að vitja leiða og
leita upplýsinga um formæður og
-feður sína,“ segir Smári. Um 100 til
150 heimsóknir eru á vefinn daglega,
„en svo höfum við tekið eftir því að ef
á hann er minnst t.d. í fjölmiðlum
eykst umferðin og þannig komu um
eitt þúsund manns á vefinn eftir að á
hann hafði verið innst í útvarpi um
daginn.“
Nú gefst ættingjum og vinum
kostur á að varðveita minningu lát-
inna með því að koma upplýsingum
um þá á vefinn og hefur að sögn
Smára fengið mjög jákvæðar und-
irtektir. Gegn vægri greiðslu geta
þeir fengið birta á vefnum mynd af
viðkomandi og æviágrip með helstu
upplýsingum en samstarf þar um er
við Morgunblaðið þar sem finna má
margvíslegar upplýsingar um látna í
minningargreinum. „Fólk er mjög
ánægt með þessa þjónustu og sér-
staklega hafa ættfræðigrúskarar
tekið þessari nýjung fagnandi. Þeg-
ar fram líða stundir mun þarna á ein-
um stað verða að finna mikið magn
upplýsinga,“ segir Smári. Hann
bætti við að nú væri í vinnslu að taka
upp samstarf við Íslendingabók sem
virkar á þann veg að þegar fólk leit-
ar ættingja sinna látinna í Íslend-
ingabók á það að geta séð hvar við-
komandi hvílir. „Við vonumst til að
geta boðið upp á þessa þjónustu á
næsta ári,“ segir Smári.
Mikil umferð um kirkjugarða á aðfangadag
Annasamasti dagur ársins
Morgunblaðið/Kristján
Smári Sigurðsson í Kirkjugarðinum á Akureyri.
Fólk er farið að nýta sér aðgengilegar
upplýsingar um legstaði látinna á vefnum
www.gardur.is. Margrét Þóra Þórsdóttir
ræddi við Smára Sigurðsson, framkvæmda-
stjóra Kirkjugarða Akureyrar.
20 ára afmælis VMA
minnst með ýmsum
hætti á vorönn
Líkneski af
Eyrarlands-
Þór vígt
HALDIÐ verður upp á 20 ára afmæli
Verkmenntaskólans á Akureyri með
ýmsum hætti að því er fram kom hjá
Hjalta Jóni Sveinssyni skólameistara
við brautskráningu og sagði hann það
mikið tilhlökkunarefni að halda upp á
þennan áfanga í sögu skólans sem
næsta vor hefur starfað í tvo heila
áratugi. Viðburðir af ýmsu tagi verða
á vorönn til að minna á tímamótin,
m.a. verður opinn kynningardagur í
mars, afmælisrit verður gefið út og þá
verður líkneski af Eyrarlands-Þór
vígt, en því verður komið fyrir á stalli
framan við austurinngang skólans.
„Þrumuguðinn Þór hefur verið talinn
til heilla fyrir skólann frá upphafi,
enda mun hið forna Þórsnisti, sem
margir þekkja, hafa fundist hér á
Eyrarlandsholtinu um miðja 19. öld,“
sagði Hjalti Jón. Hann nefndi að
Bernharð Haraldsson fyrrverandi
skólameistari hefði haft forgöngu um
að stofnaður var sjóður á fyrstu árum
skólans í því skyni að um síðir yrði
smíðuð afsteypa af gripnum í hæfi-
legri stærð og komið fyrir utan við
skólann. Kristinn E. Hrafnsson
myndlistarmaður var skólanum til
fulltingis, „og varð endirinn sá að
gerð var forkunnarfalleg afsteypa af
Þór með hamarinn í Englandi síðast-
liðinn vetur,“ sagði skólameistari.
Hún er nú í anddyri skólans en verður
komin á stall sinn úti við næsta vor.
Jólakonsert | Hljómsveitin Helgi
og hljóðfæraleikararnir heldur árleg-
an jólakonsert sinn á laugardag, 27.
desember í Deiglunni og hefst hann
kl. 22. Leyndardómsfull skemmti-
atriði verða í boði að því er fram kem-
ur í tilkynningu um tónleikana.
♦ ♦ ♦
HEIMSPEKIMESSA: Ritgerðir
handa Mikael M. Karlssyni prófess-
or sextugum er heiti á bók sem hef-
ur að geyma greinar um fjölbreytt
heimspekileg efni eftir sextán höf-
unda.
Bókin geymir ágóðann af tveggja
daga heimspekiráðstefnu sem hald-
in var dagana 28.-29. mars 2003 í
Lögbergi. Þar fluttu 14 íslenskir
heimspekingar (þar af þrír starf-
andi erlendis) og tveir erlendir er-
indi. Ráðstefnan kallaðist „Mikj-
álsmessa“ og var haldin í tilefni af
sextugsafmæli Mikaels M. Karls-
sonar, prófessors í heimspeki við
Háskóla Íslands og nýráðins deild-
arforseta félagsvísinda- og laga-
deildar Háskólans á Akureyri.
Mikael M. Karlsson er einn af
feðrum akademískrar heimspeki á
Íslandi. Hann er virtur heimspek-
ingur á alþjóðavettvangi og hefur
ritað um mörg ólík sérsvið heim-
speki en hefur auk þess verið
óþreytandi velgjörðarmaður ís-
lenskrar heimspeki og heimspek-
inga.
Ritgerðirnar í þessari bók, sem
margar skírskota beint eða óbeint
til skrifa Mikaels, gefa góða mynd
af íslenskri heimspeki samtímans
eins og hún gerist best segir í frétt
um útkomu bókarinnar.
Ritstjórar hennar eru heimspek-
ingarnir Kristján Kristjánsson og
Logi Gunnarsson. Útgefandi er Há-
skólaútgáfan.
Heimspekimessa handa Mikael
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kristján Kristjánsson, annar
tveggja ritstjóra bókarinnar Heim-
spekimessa, afhendir Mikael M.
Karlssyni prófessor fyrsta eintak
bókarinnar.