Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 26

Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 26
Aðalsteinn Vilbergsson vinnur í gjald-skýli Spalar við Hvalfjarðargöng á að-fangadagskvöldi. Hann segir tiltölu- lega fáa fara um göngin þetta kvöld. Það sé þó reytingur af bílum framundir klukkan sex. „Það er öryggisatriði að hafa fólk hér í skýl- inu, því neyðarsímar ganganna og annar ör- yggisbúnaður er tengdur neyðarlínu og gjald- skýlinu. Hann segist einu sinni áður hafa unnið á að- fangadagskvöldi. „Mér þarf alls ekki að leiðast þótt lítið sé að gera. Í skýlinu er sjónvarp og myndbandstæki sem styttir manni stundir. Að sjálfsögðu er ég í mínu fínasta pússi, enda jól,“ segir hann þegar hann er spurður hvort hann sé í sparifötunum í vinnunni þetta kvöld. En borðar hann jólamatinn í vinnunni? „Nei ég tek alltaf með mér nesti sem eru oftast sam- lokur og ég bregð ekki út af þeim vana.“ Kona Aðalsteins, Erla Kjartansdóttir, verð- ur einnig að vinna á aðfangadagskvöldi, á sjúkrahúsi Akraness. „Við erum orðin ein í kotinu, það bíða því engin börn eftir okkur. Allt fjörið er eftir hjá okkur því þegar við kom- um heim þá fáum við okkur gott að borða og tökum upp pakkana, þannig að vinnan seinkar aðeins jólunum.“ Aðalsteinn Vilbergsson Morgunblaðið/Jim Smart Róleg vakt: Aðalsteini Vilbergssyni leiðist ekkert þó lítið verði að gera í gjaldskýli Spal- ar við Hvalfjarðargöng. Vinnan seinkar jólunum á Nicollet Mall og fórum út að borða um kvöld- ið. Það næsta sem við komumst skötunni var síldarsmakk á skandinavískum veitingastað. Út að borða á aðfangadagskvöldi Á aðfangadagsmorgni var ekkert loka- jólastress á okkur, allir pakkar komnir á sína staði og við héldum vel búin í morgunverð. Að honum loknum spókuðum við okkur um göt- urnar, glottum út í annað þegar við sáum „last minute shop- pers“ á hlaupum eins og þeir höfðu verið kallaðir í fréttatím- um morgunsins og eru víst 80% karlmenn. Við vorum komin í hið besta jólaskap áður en við vissum af. Seinni hluta dagsins eyddum við í bókalestur og sæl- gætisát, hringdum í fjölskyldu okkar sem hafði nýlokið við að útdeila möndlugjöfinni og héldum því næst í kvöldverð með áhöfninni. Við áttum pantað borð á mjög huggulegum veitingastað og héldum þangað öll í okkar fín- asta pússi. Það var ekki aðeins ég sem hafði tekið með mér fjölskyldumeðlim, annar flug- mannanna var með konuna og þrjú ung börn með sér og í för með annarri samstarfskonu minni voru tvær dætur og hinni sonur. Við Eftir að hafa starfað sem flugfreyja hjáFlugleiðum í næstum tólf ár upplifðiIngunn Kristín Ólafsdóttir í fyrsta skipti að vera að vinna um síðustu jól, hún flaug til Minneapolis á Þorláksmessu. „Ég verð að viðurkenna að það fylgdu því blendnar tilfinningar að eiga að dvelja erlend- is um jólin enda er ég mikið jólabarn og vil þá eins og flestir vera í faðmi fjölskyldunnar,“ segir Inga Stína eins og hún er kölluð. „Það bætti þó úr skák að eiginmaður minn, Sveinn Líndal Jóhannsson, fór með mér og ég vissi að ég væri að fara með ein- vala áhöfn. „Við hjónin ákváðum að pakka niður þeim jólapökkum sem litu út fyrir að innihalda bæk- ur, malti og appelsíni, konfekti og lakkrís og litlum rafhlöðuknúnum jólaljósum og halda okkar eigin litlu jól á hótelherberg- inu. Þegar við komum til Minneapolis var ólíkt jólalegra að litast um en í Reykjavík enda frost ytra meðan hér rigndi. Húsin og göturnar í Minneapolis voru listilega skreytt að amerísk- um sið, en skreytingin kannski dálítið ýkt að okkar mati. Við hjónin upplifðum Þorláksmessustemmn- inguna ekki á Laugaveginum þetta árið heldur fengum gómsæta máltíð og kvöldið var allt hið ánægjulegasta. Þegar við komum aftur á hót- elið kveiktum við á litlu jólaljósunum okkar, opnuðum þá pakka sem við höfðum tekið með og svifum svo inn í draumalandið sæl og ánægð með frábæran aðfangadag. Jóladagsmorgunn rann svo upp með sama frosti og kulda. Við ákváðum að halda okkur innan dyra enda fátt hægt að gera í borginni – alls staðar harðlokað. Hvergi hægt að fá svo mikið sem einn kaffibolla og ekki sála á ferli. Okkur fannst þetta nú svolítið sérstakt í millj- ónaborg og hugsuðum til þess að litla Reykja- vík er gagnrýnd fyrir að hafa lítið opið þennan dag. Meira að segja herbergisþjónustan á hót- elinu okkar hafði lokað dyrum sínum. Okkur tókst þó að væla út tvær beyglur og appelsínu- safa til að seðja sárasta hungrið um morg- uninn. Eftirminnileg jól Eftir hádegi var svo komið að jólaboði sem okkur var boðið í. Jessica, stöðvarstjórinn okk- ar í Minneapolis, var svo sæt við okkur að bjóða okkur öllum í hádegismat til sín og mannsins síns. Þau komu að sækja okkur á stórum húsbíl og fannst okkur mjög fyndið að sitja í húsbíl og drekka kampavín á leið til hennar, hugsandi til fjölskyldunnar í hangi- kjötsáti á Íslandi. Heima hjá þeim hjónum beið okkar veislu- borð sem svignaði undan kræsingum og áttum við einkar ánægjulega stund og góðan jóladag á heimili þeirra. Það var alveg frábært að komast út af hótelinu og fara inn á alvöru heimili og fá að halda jól með þeim. Jólaboðunum var ekki alveg lokið þennan dag því eins og svo oft á Íslandi þurftum við að hraða okkur úr einu boði í annað. John Magn- usson, sem er flugstjóri hjá NorthWest- flugfélaginu og á ættir að rekja til Íslands, bauð okkur í kaffi til sín um kvöldið. John er ákaflega stoltur af íslenskum rótum sínum og hefur mikla ánægju af að hitta landa sína. Það var afar notalegt að heimsækja John en hann er höfðingi heim að sækja. Á annan dag jóla var svo komið að því að halda heim. Það var enn sami suddinn hér í Reykjavík. Ég sem hafði kviðið svolítið fyrir þessu öllu var alsæl með skemmtileg og eftir- minnileg jól. Væri ég alveg til í að endurtaka þetta síðar þó að heima sé alltaf best.“ Ingunn Kristín Ólafsdóttir Losnaði við jólastressið Morgunblaðið/Kristinn Mikið jólabarn: Ingunn Kristín vill helst vera í faðmi fjölskyldunnar á jólunum. Okkur tókst þó að væla út tvær beygl- ur og appelsínu- safa til að seðja sárasta hungrið um morguninn. DAGLEGT LÍF 26 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ  VINNA | Á meðan flestir gæða sér á jólasteikinni í faðmi fjölskyldunnar þurfa sumir að sinna sínum störfum Á vaktinni um jólin Auðvitað væri skemmtilegra að veraheima hjá sér á aðfangdagskvöldi. Enþegar ég byrjaði hjá Alcan gerði ég mér grein fyrir að þetta gæti komið upp á,“ segir Hallfreður Einarsson, vaktmaður í steypuskála Alcan á Íslandi. Hann á að mæta í vinnuna klukkan fjögur á aðfangadag og vera til miðnættis á vaktinni. Þetta er ekkert nýtt fyrir Hallfreði því fyr- ir nokkrum árum var hann á vakt á þessu eina helgasta kvöldi okkar kristinna manna og veit því við hverju er að búast. „Reynt er að hafa skipulagið þannig hér í Álverinu að hluti af mannskapnum sem er að vinna á að- fangadagskvöldi geti farið fyrr heim. Þegar ég var á vakt fékk ég að fara heim til fjöl- skyldunnar um níuleytið enda höfðum við þá lokið að mestu við það sem lá fyrir að gera á vaktinni.“ En gera menn sér eitthvað til tilbreytingar í Álverinu á aðfangadagskvöldi? „Við fáum þríréttaðan hátíðarkvöldverð. Seinast þegar ég var að vinna á aðfangadags- kvöldi fengum við hreindýrakjöt í aðalrétt en ég veit ekki hvað verður í matinn núna. Menn koma líka eitthvað fínni í vinnuna en við erum í sérstökum öryggisklæðnaði við okkar störf. Annars gengur vinnan sinn vanagang á þessum degi eins og öðrum.“ Hallfreður og eiginkona hans Kristín Björg Hákonardóttir eiga fjögur börn og þeim finnst vitaskuld verra að pabbi skuli ekki vera heima. „Fjölskyldan borðar án mín en ég býst við að vera kominn heim áður en þau taka upp pakkana,“ segir hann. Hallfreður Einarsson Morgunblaðið/Kristinn Stendur vaktina: Ekkert nýtt fyrir Hallfreð Einarsson að vinna á aðfangadagskvöldi. Fékk að fara fyrr heim

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.