Morgunblaðið - 24.12.2003, Side 28

Morgunblaðið - 24.12.2003, Side 28
DAGLEGT LÍF 28 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kertasníkir kom til byggða ínótt, en undanfarið hafabræður hans tólf komið dag- lega í heimsókn í Þjóðmenning- arhúsið. Sveinarnir eru vel klæddir og eru fötin þeirra íslensk yst sem innst. Fyrir nokkrum árum rann Grýlu til rifja hvað þeir voru illa til fara og með aðstoð íslenskra hönnuða og handverksfólks fengu þeir og for- eldrar þeirra nýjan alklæðnað frá hvirfli til ilja, úr vaðmáli, gærum, flóka og íslenskri ull. Sú sem hannaði klæðnaðinn á þessa „fjallmyndarlegu“ karla er Bryndís Gunnarsdóttir, kennari og leikbrúðuhönnuður. Fyrir tæpum fjórum árum vann hún samkeppni sem efnt var til af Þjóðminjasafni Ís- lands um nýjan klæðnað á sveinana. Ofin axlabönd og hnésokkar Búningarnir eru í sauðalitunum nema buxurnar sem unnar eru úr ís- lensku áklæði sem kallast túndra og eru jólasveinarnir ýmist í rauðum, bláum eða grænum buxum. Þeir klæðast ullarpeysum og prjónuðum hnésokkum, tvíþumla vettlingum og húfu. Svo eru þeir sumir með spjaldofin axlabönd. Punkturinn yfir i-ið eru tölur úr ým- iss konar efni, m.a. kindarhorni, hreindýrshorni, sauðarleggjum, hvalskíðum, lerki og tönnum úr gömlum útsel. Útlitið eins og jólaskreyting Engar nákvæmar eða samræmd- ar lýsingar eru til á útliti jólasveina eða klæðaburði þeirra. Jólasveinanna er fyrst getið á 17. öld og virðast þá vera tröllslegir. Í þjóðsögum frá 19. öld eru lýsingar á útliti þeirra bæði fáar, stuttorðar og mjög ólíkar og virðast sumar draga dám af jólaskreytingum annars stað- ar á Norðurlöndum. Á einum stað er sagt að þeir séu tómur búkur niður í gegn, en á öðrum að þeir séu klofnir upp í háls. Sumir telja jólasveinana koma af hafi og vera í skinnklæðum, en flestir virðast þó líta á þá sem stóra og luralega fjallabúa í bænda- fötum í 18. aldar stíl, og þau sýnast jafnvel hafa getað verið litrík. Fyrir þrettán árum tóku jóla- sveinarnir íslensku að heimsækja Þjóðminjasafnið síðustu þrettán daga fyrir jól við mikinn fögnuð ungra gesta og var árið í ár enginn undantekning, en að þessu sinni komu sveinarnir þó við Þjóðmenn- ingarhúsinu í stað Þjóðminjasafns. Fjallmyndarlegir og vel til fara  JÓLASVEINAR Morgunblaðið/Ásdís Hurðaskellir var mættur í Þjóð- menningarhúsið og gerði krökk- unum svolítið hverft við. he@mbl.is Nýjasta efnið á markaðnum er kall- að Superoxide Dismutase og er sagt líkja eftir andoxunarensími. David Gems, öldrunarfræðingur hjá University College London, sem stóð fyrir nýlegri rannsókn, segir hugmyndina um að neyta Superox- ide Dismutase og lengja þannig líf sitt sé beinlínis fyndin vegna þess að efnið fer beint í gegnum melting- arveginn án þess að gera neitt. Hann og samstarfsmenn hans prófuðu efn- ið á ormum. Í ljós kom að efnið hafði engin áhrif á líflengd þeirra, nema ef það var tekið í stórum skömmt- um, þá stytti það líf ormanna. Andoxunarefnin eru því ef til vill ekki sá æskubrunnur sem margir hafa haldið fram. Kannanir sýna að um 40% Breta taka að jafnaði inn vítamín og steinefni. Ragna Fróðadóttir, fata- ogtextílhönnuður, hefur núopnað vinnustofu sínafyrir almenningi, en í glænýju sýnirými við hlið vinnu- stofunnar í gamla vinnumanna- húsinu í Lundi í Kópavogi gefur að líta fatalínuna hennar, fylgihluti og aðra gjafavöru framleidda undir merkjum Rögnu, Path of Love, sem útleggst getur á íslensku sem Kær- leikur. Ragna segir að vel gangi að vinna fyrir sér sem fatahönnuður á Íslandi enda séu Íslend- ingar opnir fyrir nýj- ungum og hyggur hún svo á útflutn- ing á næsta ári. Lítil versl- un í New York hefur gert pöntun í bró- deraða bómullarboli, hannaða og framleidda af Rögnu, auk þess sem hún bindur vonir við frek- ari viðskiptasamninga í kjölfar sýninga, sem hún ætlar að taka þátt í erlendis á næsta ári. Hún fer til að mynda með fatalínuna sína á sýningu til Danmerkur í febrúar ásamt fleiri ís- lenskum hönnuðum og til Parísar í marsmánuði. Ragna lærði fatahönnun í einkaskóla í París. Eftir þriggja ára nám og út- skrift þaðan árið 1995, kom hún heim og settist í textíldeild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og hélt áfram á sömu braut með því að vinna með efni. Hún hefur komið að búningagerð fyrir leikhús og kvikmyndir og starfaði í fjögur ár með öðrum kvenhönnuðum í Kirsu- berjatrénu, en flutti eigin starfsemi alfarið í Lund síðastliðið haust þar sem í mörg horn var orðið að líta hjá Rögnu. Einstök samsetning „Ég er aðallega að hanna kven- fatnað og geri auk þess ýmsa auka- hluti, púðaver og dúka úr efnunum mínum, sem eru aðallega gegnsætt organza, ull, silki, hör og bómull. Bróderuðu bolirnir, sem fara munu á erlendan markað eftir áramót, eru líka seldir í versluninni 38 þrep á Laugaveginum, en öll efnin flyt ég inn sjálf frá Frakklandi og Sviss og bródera í þau sérstök mynstur, sem ég hef hannað.“ Segja má að í vörumerki Rögnu felist efnin hennar og litatónarnir. „Ég vinn með frekar einföld form, en efnin eru í aðalhlutverk- inu. Ég set gjarnan tvö eða fleiri efnislög saman í ólík- um litum og bródera svo saman með línum og hringjum, bugðum og vafningum. Ég er mjög hrifin af því að vinna með liti og þegar ég legg saman tvo ólíka liti, verður hver samsetning efna sér- stök.“ Pantað eftir máli Ragna segir að nýja sýnirýmið verði opið alla daga og um helgar á almennum verslunartíma og á kvöldin eftir samkomulagi. Stutt er fyrir Rögnu að skreppa í vinnuna ef svo verkast til því hún býr fyrir of- an vinnustofuna og nýja sýnirýmið að Lundi 1 við Nýbýlaveg, í sveit- inni mitt í borgarkjarnanum. Hægt er að spá og spekúlera í efnum og litum á staðnum yfir kaffibolla og panta fatnað eftir máli. Hver flík er því að heita má sérgerð, segir Ragna, en sem dæmi um verð á flíkum frá henni má nefna að síður ermalaus kjóll kostar frá 42 þús- undum króna. Morgunblaðið/Þorkell Fatahönnuðurinn: Ragna Fróðadóttir segir Íslendinga opna fyrir nýjungum. Starfsfólk ÍSPAN sendir viðskiptavinum sínum hugheilar jóla- og nýárskveðjur með ósk um farsæld á komandi ári. Jólin 2003 Gagnslaus- ar ynging- arpillur  HEILSA Reuters Leitin að eilífri æsku tekur á sig mörg birtingarform. BÆTIEFNI sem milljónir manna nota til að hægja á öldrun gera lík- lega ekkert gagn samkvæmt nýleg- um vísindalegum rannsóknum. Rajindar Sohal, prófessor við Há- skólann í Suður-Kaliforníu, er leið- andi í rannsóknum á öldrun. Í grein í Sunday Times heldur hann því fram að engar sannanir séu fyrir því að fólk geti lengt líf sitt með því að taka inn andoxunarefni. Bætiefni sem sögð eru hafa þessi andoxunaráhrif eru seld dýrum dómum og vill hann meina að verið sé að svindla á fólki. Markaðssetning á bætiefnunum er byggð á kenningu um að öldr- un stafi af sindurefnum og kom fram árið 1956. Þeir sem aðhyll- ast kenninguna halda því fram að þeir sem reykja og drekka og neyta mikillar fitu framleiði meira magn af sindurefnum. Þeir segja að neysla á C- og E- vítamínum eyði þessum sind- urefnum og lengi þar með líf fólks.  HÖNNUN | Ragna Fróðadóttir, fata- og textílhönnuður, færir út kvíarnar Efnin í aðalhlutverki join@mbl.is Ég er mjög hrifin af því að vinna með liti og þegar ég legg sam- an tvo ólíka liti, verður hver sam- setning efna sérstök. Flíkur Rögnu eru framleiddar undir merkinu Path of Love, eða Kær- leikur: F.v. stutt- ur, rauður kjóll, bróderaður bolur og pils í stíl, sítt pils og ermalaus toppur með hinni sérstöku munst- urgerð Rögnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.