Morgunblaðið - 24.12.2003, Page 29
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 29
Mikill áhugi ríkir nú meðal starfs-manna Íslandspósts á heilsuátaki,sem nú fer fram innan fyrirtæk-isins. Af um eitt þúsund starfs-
mönnum, hafa 433 skráð sig til þátttöku og æfa
nú af kappi til að ná settum markmiðum. „Við
erum að taka fyrstu skrefin í átt að eigin lífs-
stílsbreytingu og þótt átakið spanni aðeins
fimm mánuði eru væntingarnar þær að menn
haldi áfram á sömu braut og komi markvissri
hreyfingu inn í stundarskrána, en allt frá stofn-
un fyrirtækisins 1998, hefur verið lögð mikil
áhersla á aukna vellíðan starfsmanna,“ segir
Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, fræðslustjóri
Íslandspósts. Átakið hófst með formlegum
hætti hinn 24. september síðastliðinn með fjöl-
sóttum fyrirlestrum Önnu Sigríðar Ólafsdóttur
matvælafræðings og Gauta Grétarssonar
sjúkraþjálfara. Forstjóri Íslandspósts, Einar
Þorsteinsson, reið síðan á vaðið, steig fyrstur á
vigtina að viðstöddu fjölmenni og setti sér það
markmið að losna við sjö kíló á átakstímanum.
Rúm 300 kíló fokin
Slagorðið „Vertu með“ var notað til að vekja
athygli starfsmanna á heilsueflingunni auk
þess sem samið var við nokkrar líkamsræktar-
stöðvar á landinu til þess að fylgja átakinu eftir
með æfingaplani og mælingum. Þjálfarar sjá
um fitu- og ummálsmælingar þátttakenda, út-
búa æfingaáætlanir og veita persónulega ráð-
gjöf. Allir þátttakendur hafa sett sér skýr og
ákveðin markmið og fengu í upphafi bol og
brúsa til að minna sig á mikilvægi hreyfing-
arinnar. Fjórar mælingar fara fram á átaks-
tímabilinu, sem stendur til 1. mars nk. og boðið
verður upp á endurskoðun æfingaáætlunar-
innar.
Fyrsta mæling fór fram í upphafi átaksins og
önnur mæling sex vikum síðar og kom þá í ljós
að rúm 300 kíló voru fokin af fólki. „Bestum ár-
angri náðu starfsmenn okkar í
Borgarnesi, en nýjustu tölur þaðan
herma að starfsmenn þar hafi
misst um þrjú kíló að meðaltali, en í
upphafi setti hver og einn starfs-
maður sér sín eigin markmið. Ef
þau ættu öll fram að ganga, lætur
nærri að um 700 kíló þyrftu að
hverfa af mannskapnum. Þetta er
hins vegar ekki ein allsherjar
megrun því þó sumir þurfi að léttast, þurfa aðr-
ir að þyngjast og allir þurfa að styrkja sig,“
segir Ingibjörg og bætir við að næsta mæling
fari fram í janúar að afloknu jólahaldi. Það þýði
ekkert að slá slöku við þótt mikið át sé fram
undan.
Bréfberar á fleygiferð
„Tilurð heilsuátaksins má rekja til hugdettu
sem lengi hefur verið inni á borði hjá okkur.
Segja má að vendipunkturinn, sem varð til þess
að við ákváðum að slá til nú, hafi verið í
tengslum við undirbúning stjórnendaþjálfunar
okkar í vor. Við ákváðum að grípa tækifærið
þegar við fundum fyrir afar sterkum vilja milli-
stjórnenda innan fyrirtækisins til að styðja
starfsmennina í að koma sér í betra form.
Í fyrstu var einkum horft til tveggja vinnu-
staða innan Íslandspósts, það er Póstmiðstöðv-
arinnar og aðalskrifstofanna, en þegar við fór-
um að kynna átakið, reyndist geysilegur áhugi
vera í öllum deildum fyrirtækisins úti um land
allt. Sérstaklega kom áhugi bréfberanna á
óvart sem við héldum að væru búnir að fá nóg
af hreyfingu eftir að hafa verið á fleygiferð í
vinnunni á degi hverjum,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg hefur ásamt Kristínu Fenger,
fræðslufulltrúa hjá Íslandspósti, unnið að
heilsuátakinu í samvinnu við Hilmar Gunn-
arsson, íþróttakennara og annars eiganda
Veggsports, sem heimsótt hefur ýmsa vinnu-
staði innan fyrirtækisins og haldið pistla um
markvissa hreyfingu og mataræði. „Fólk sem
vinnur við líkamlega erfið en einhæf störf, svo
sem bréfberar og múrarar, þarf ekki síður
hreyfingu en þeir, sem eru í kyrrsetustörfum.
Nauðsynlegt er að þjálfa upp þá líkamshluta,
sem ekki eru notaðir í vinnunni auk þess sem
taka þarf á ýmsum álagsmeiðslum
vegna vinnunnar. Bréfberar eru t.d.
að burðast daginn út og inn með
póstpoka á annarri eða báðum öxl-
um og eru þar af leiðandi læstir í
sömu axlarstellingunni þrátt fyrir
að vera á göngu. Mitt hlutverk er að
sannfæra fólk um að markviss
hreyfing skipti höfuðmáli til að ná
árangri. Mjög mismunandi er eftir
fólki hversu oft æskilegt er að það fari í ræktina
og hvað hentar því að gera, en aðalatriðið er að
fólk hafi fjölbreytni æfinga í fyrirrúmi, ætli sér
ekki um of heldur fari hægt af stað, og hafi
gaman af. Vinsælustu æfingatímarnir eru í há-
deginu og eftir að vinnudegi lýkur, en nokkuð
er um að starfsmenn mæti eldsnemma á
morgnana, enda opna margar stöðvarnar kl.
6.00 á morgnana.“
Jólakökur og risakleinur
Sjálfur segist Hilmar vilja forðast allt tal um
nokkurra mánaða átak þar sem menn séu að
stefna á viðvarandi lífsstílsbreytingu. „Við setj-
um eflaust upp einhvers konar framhaldsplan
til að veita starfsmönnunum áframhaldandi að-
hald. Þegar ég var fyrst að koma á morg-
unverðartíma inn á dreifingarstöðvarnar, voru
risakleinur og jólakökusneiðar á borðum, en nú
er algengara að sjá blómkál, gulrætur, epli,
banana og litlar svartar ólífur í skál sem kon-
fekt. Þetta fannst mér stórkostleg breyting.
Það er greinilega heilmikið að gerjast hjá
starfsmönnum Íslandspósts varðandi eigin
heilsueflingu,“ segir Hilmar.
Heilsuátaksteymið: Ingibjörg Sigrún fræðslustjóri, Kristín
fræðslufulltrúi, og Hilmar íþróttakennari.
Morgunblaðið/Eggert
Æfingaáætlun og mælingar: Allir þátttakendur setja sér skýr og ákveðin markmið og ofurkapp er lagt á fjölbreytta og mark-
vissa hreyfingu, sem felst í nákvæmri æfingaáætlun og mælanlegum árangri.
HEILSA| Starfsmenn Íslandspósts púla og svitna í þágu heilsueflingar
Stefnt á alhliða lífsstílsbreytingu
Ríflega 400 starfsmenn Ís-
landspósts vonast til að losa sig
við 700 kíló á fimm mánuðum
og styrkja sig síðan á alla
kanta. Jóhanna Ingvarsdóttir
fór í ræktina og ræddi við Ingi-
björgu Sigrúnu Stefánsdóttur,
fræðslustjóra Íslandspósts, og
Hilmar Gunnarsson, íþrótta-
kennara í Veggsporti.
join@mbl.is
Fólk, sem vinn-
ur við lík-
amlega erfið
en einhæf
störf þarf ekki
síður hreyfingu
en aðrir.
ÞÁ ER aðfangadagur runninn upp
og brátt gengur jólahátíðin í garð.
Aðventan er á enda. Orðið aðventa
er komið til okkar úr latínu og
merkir „koma“. Aðventa þýðir að
eitthvað sé að koma, eitthvað stór-
fenglegt sé í vændum. Og þá er auð-
vitað átt við hátíð jólanna.
Aðventan er þannig und-
irbúningstíminn fyrir jól-
in. Við getum undirbúið
okkur í margvíslegum
skilningi. Hið gamla ís-
lenska nafn aðventunnar
er jólafasta og vísar til
þess þegar menn föstuðu vikurnar
fyrir jólin.
Nú heyrist orðið jólafasta æ
sjaldnar, enda lítið fastað í und-
irbúningi jólahátíðar. Þvert á móti
einkennist aðventan í stöðugt ríkari
mæli af hvers konar gleði og hátíða-
höldum í mat og drykk. En hún ein-
kennist einnig af fjölbreyttu helgi-
haldi í kirkjum landsins,
margskonar uppákomum í listalífinu
og síðast en ekki síst jólaversluninni
sem mönnum gengur misvel að
höndla. Á margan hátt getur að-
ventan verið yndislegur
tími, ef menn hlaupa
ekki útundan sér, heldur
setja sér þess í stað það
markmið að reyna að
njóta lífsins með ástvin-
um sínum. Mikill áróður
hefur verið rekinn gegn
óhóflegri áfengisneyslu á aðventu
og jólum og er það vel því oft getur
áfengi spillt gleðinni og þannig kast-
að skugga á sjálfa hátíðina.
Jólin eru hátíð ljóssins. Á jólunum
fögnum við fæðingu Jesú, sem var
lagður í jötu og vafinn reifum, en er
samt sonur Guðs. Sjálfur kallaði
hann sig síðar „Ljós heimsins“. Í
guðspjalli jólanna flytur engill
Drottins okkur þennan boðskap:
Sjá, ég boða yður mikinn fögnuð.
Yður er í dag frelsari fæddur. Þann-
ig er boðskapur jólanna fagn-
aðarboðskapur. Hann er boðskap-
urinn um Guð sem elskar okkur
hvert og eitt það mikið að hann
gerðist maður til að ekkert gæti
komið upp á milli okkar og kærleika
hans. Við erum dýrmæt í hans aug-
um. Um leið hvetur þessi boðskapur
jólanna okkur til að elska hvert ann-
að eins og Guð hefur elskað okkur.
Það skyldum við hafa í huga núna
þegar jólahátíðin er að ganga í garð.
Gefum hvert öðru þá jólagjöf í kvöld
að sýna hvert öðru elsku.
Það eru margir sem eiga um sárt
að binda á jólum. Margir hafa þurft
að leita til presta og hjálparstofnana
fyrir jólin vegna fátæktar. Aðrir
glíma við sorg og einsemd. Enn aðr-
ir kvíða óvissri framtíð þegar kaldir
vindar blása um mannfélagið. Um
leið og við gefum hvert öðru jólagjöf
kærleikans skulum við hugsa til
allra þeirra. Réttum þeim hjálp-
arhönd, hver eftir sinni getu. Þann-
ig verður fagnaðarboðskapur
jólahátíðarinnar lifandi og virkur í
lífi okkar.
Um þessar mundir fögnum við
ekki aðeins fæðingu frelsarans held-
ur líka því að sól er aftur tekin að
feta sig upp á himininn. Brátt mun
vetrarmyrkrið flýja og ljósið sigra á
landinu okkar bláa. Göngum til móts
við hækkandi sól með gleði í hjarta.
Og þá mun myrkrið víkja úr huga
og sálu og vorið taka völdin á ný
fyrr en við er litið.
Guð gefi þér og þínum gleðileg
jól.
Sr. Þórhallur Heimisson
FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU
Sigur ljóssins
Morgunblaðið/Jim Smart
Jólafasta vísar
til þess þegar
menn föstuðu
vikurnar fyrir
jólin.
JÓLATÓNLIST getur verið þreytandi fyrir
afgreiðslufólk í verslunum, að því er aust-
urrísk athugun leiddi í ljós. Verslunarmanna-
félag í Austurríki lét gera athugun á því
hvernig félagsmenn upplifa jólatónlistina
sem leikin er í hátalarakerfum verslana í des-
ember. Margir þoldu hana illa, að því er
greint er frá í Aftenposten.
Verslunarmannafélag í Svíþjóð hefur kraf-
ist þess að jólatónlist sé ekki leikin meira en
tvo tíma á dag í verslunum þar í landi. „Marg-
ir félagsmenn þola þetta ekki. Ímyndaðu þér
að þú þyrftir að hlusta á sama gargið daginn
út og daginn inn og á sama tíma reyna að
koma til móts við viðskiptavini og veita góða
þjónustu,“ segir Ninel Jansson, formaður
verslunarmannafélagsins Handels í Svíþjóð.
Talsmaður norskra verslunarmanna segist
hafa skilning á vandamálinu og ráðleggur
starfsmönnum að spila a.m.k. fjölbreytta jóla-
tónlist. Ef það dugir ekki, hvetur hann þá til
að tala við atvinnurekandann.
Morgunblaðið/Júlíus
Jólaverslun: Jólatónlist er kannski ekki
órjúfanlegur hluti af jólaversluninni?
Tónlistin
óþolandi
JÓL