Morgunblaðið - 24.12.2003, Page 38

Morgunblaðið - 24.12.2003, Page 38
LISTIR 38 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ A ðfangadagur jóla er loksins runninn upp. Dagurinn sem lengi hefur verið beðið eft- ir. Í kvöld klæðast flestir sínu fínasta pússi, borða jólamatinn með sínum nánustu og að lokum eru jólagjafirnar dregn- ar undan jólatrénu og opnaðar. Þannig voru jólin í fyrra og þann- ig verða þau í ár. Í stórum drátt- um að minnsta kosti. Jólin byggj- ast því að mörgu leyti á ákveðinni hefð; þau eru fastur punktur í til- verunni; þau eru tíminn sem flest- ir bíða eftir með tilhlökkun og vilja njóta með sínum nánustu. Undirbúningur jólanna gengur að verulegu leyti út á að uppfylla þessa hefð og á sjálf- an að- fangadag á allt að vera „eins og það á að vera“. Jólatréð á að vera á sín- um stað, pakkarnir sömuleiðis, jólaseríurnar í glugganum, og um alla íbúð – ef út í það er farið – jólasteikin í ofninum, meðlætið á borðum og síðast en ekki síst: börnin eiga að vera hrein og strokin í nýjum flíkum. Og ekki má gleyma jólaskapinu. Þegar klukkan slær svo sex hefjast jólin formlega. Þótt flestir haldi jól hér á landi með sama sniði geta venjur verið mismun- andi frá einni fjölskyldu til ann- arrar. Margir leggja t.d. ríka áherslu á að fara í kirkju áður en jólamaturinn er borinn á borð en aðrir láta sér nægja að hlýða á jólamessuna í útvarpinu yfir jóla- borðinu. Og þegar ákveðin hefð hefur skapast er vart aftur snúið. Ég ólst til dæmis upp við þann sið að alltaf var lagt á borð fyrir einn aukagest á aðfangadag og sagði mamma að það væri fyrir húsálfa eða aðra þá sem við í mannheimum sjáum ekki. Með þessum hætti var þessum ósýni- legu gestum boðið að snæða með okkur á jólununum ef þeim sýnd- ist svo. Gleymdist hins vegar að leggja á borð fyrir þá gætu þeir tekið upp á því að láta hina og þessa hluti týnast yfir árið. Ekki veit ég nákvæmlega hvað- an þessi siður kemur, en mamma segir að amma, sem var uppalin á Austfjörðum, hafi haldið hann í heiðri. Sennilega hefur amma lært þetta af mömmi sinni og svo koll af kolli. En eitt er víst að sjálfri finnst mér hann ómissandi á jólunum. Og hefur stundum orð- ið uppi fótur og fit í fjölskyldunni í miðri jólamáltíð ef í ljós hefur komið að við höfum gleymt að leggja aukadisk á borðið. Já, venjur eru mismunandi og þær geta líka orðið mikið tilfinn- ingamál ef út í það er farið. Ég heyrði til dæmis af ungri konu um daginn sem var „alveg ómöguleg“ eftir að í ljós kom að sú tegund jólatrjáa sem hún var vön að kaupa var uppseld í bænum. Fylgdi sögunni að tegundin sem hún er vön að kaupa gefi frá sér sterka grenilykt sem henni finnst ómissandi á jólunum. Mér skilst þó að unga konan hafi fljótt tekið gleði sína á ný enda varla um stór- alvarlegt vandamál að ræða. Og svo ég nefni annað dæmi: Ein vinkona mín er mikil jólakona og finnst henni ekki annað hægt en að hafa alvöru jólatré í stof- unni. Hún átti heldur varla orð um daginn til að lýsa hneykslun sinni á þeim sem kaupa sér gervi- jólatré. „Og ofan á allt,“ sagði hún, „kaupa þeir sér sérstakt sprey með grenilykt til að sprauta yfir gervijólatréð, þannig að það lykti sem ekta.“ Já, tilfinning- arnar eru greinilega miklar – en sitt sýnist auðvitað hverjum. Hefðirnar tengjast þannig ólík- um þáttum; þær tengjast mat, fólki, kirkjuferðum og jafnvel lykt, eins og hér hefur komið fram. Ég á til dæmis móðursystur sem hefur búið í Bandaríkjunum í yfir fjörutíu ár. Hún segist enn muna vel eftir lyktinni sem var á heimilinu um jólin; lyktinni af rauðkálinu sem amma sauð á að- fangadag. Og þegar hún hugsar til jólanna heima á Íslandi eða sér myndir frá íslenskum jólum finn- ur hún lyktina! Og þeirri lykt tengjast góðar minningar frá fyrstu jólum ævinnar. Jólin eru þó ekki bara hefð eða venjur. Þau eru svo ótal margt annað, þau eru m.a. tími kærleiks- ins, gleði og gjafa. Með gjöfunum sýnum við hug okkar, ást og vin- áttu. Innihald gjafanna skiptir, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki svo miklu máli heldur það hugarfar sem að baki þeim býr. Og áfram um kærleikinn. Því margir segja að jólin snúist ein- mitt fyrst og síðast um hann. Sá kærleikur komi þó ekki aðeins fram með gjöfunum sem við kaup- um eða gjöfunum sem við þiggj- um. Hann komi í ljós með jóla- kortunum sem við sendum (eða ætlum að senda), með sam- verustundum fjölskyldnanna, með vinsamlegum jólakveðjum til vina og vandamanna og með öllu því sem við gerum til að gera að- fangadag jóla sem bestan og eft- irminnilegastan. Því má þó ekki gleyma að jólin geta verið mörgum erfið. Ekki síst vegna þess að þau byggjast á ákveðinni hefð, eins og hér hefur verið vikið að. Þeir sem hafa misst ástvini sína á þessu ári eiga til dæmis um sárt að binda. Sömu- leiðis þeir sem hafa þurft að þola breytingar á sínum högum; s.s. börn sem hafa horft upp á fjöl- skylduna splundrast í kjölfar skilnaðar foreldranna, svo annað dæmi sé nefnt. Jólin geta þannig ýtt undir söknuð yfir því sem var og ótta yfir því sem á eftir að koma. Einhvern tíma var mér þó sagt að á slíkum tímum ætti mað- ur að hugsa um það jákvæða og fallega í lífinu; um góðu stund- irnar og hve dýrmætt það er að hafa átt slíkar stundir. Á þeim orðum ætla ég að ljúka þessum jólapistli. Og, jú eitt í við- bót (þar sem ég er ekki enn búin að senda jólakortin): Ég óska öll- um vinum mínum og vandamönn- um, til sjávar og sveita, gleðilegra jóla. Og einnig þeim sem hafa nennt að lesa viðhorfin mín í ár! Gleðileg jól! Tími kær- leiks, gleði og gjafa „Jólin eru m.a. tími kærleiksins, gleði og gjafa, því með gjöfunum sýnum við hug okkar, ást og vináttu.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is TILGANGUR þýðandans er auð- vitað fyrst og fremst að kynna Ís- lendingum samíska ljóðlist en þar að auki að minna á samískt mál og menningu sem vissulega stendur höllum fæti. Samar eru fáir. Þeir eru norðurbyggjar. Heimkynni þeirra liggja langt fyrir norðan miðstöðvar valdstjórnar og menntasetra. Og þeir eru dreifðir um skandínavísku löndin þrjú, Noreg, Svíþjóð og Finn- land. Þeir eiga sér því hvorki þjóð- ríki né höfuðborg með viðeigandi menntasetrum og stofnunum til að kynna tungu sína og menningu. Þar sem þeir eru hvarvetna minnihluta- hópur hefur menning þeirra setið á hakanum, stundum með vitund og vilja yfirvalda, að ætla má. Einar Bragi, sem hefur ferðast um lönd þeirra, kynnst skáldum þeirra og menntamönnum, kveður fáa daga líða svo að hann hugsi ekki til þeirra og þess vanda sem þeir eiga við að glíma. Og hann gerist allharðorður í garð þeirra »skandínavísku ráða- manna sem þykjast geta kennt fjar- lægum þjóðum lýðræðislegar leik- reglur en láta þvílíkt og annað eins viðgangast í sínum eigin ranni.« Fjórtán skáld eru kynnt í bókinni, skipað í aldursröð, hið elsta fætt 1936, hið yngsta 1974, þar af aðeins þrír karlar. Af því leiðir að sjónarmið kvenna eru fremur ríkjandi í ljóðun- um. Það markar í raun svipmót safnsins því sýnt er að konurnar eru næmari fyrir hvers konar félagslegri stöðu sinni, finna fremur fyrir þeim aðstöðumun sem þær eiga við að búa, að ógleymdri árauninni sem því fylgir að stíga í sömu andrá út úr samískri fortíð inn í skandínavíska nútíð, en reyna jafn- framt að halda sínu. Inghilda Tapio, fædd 1946, lýsir þessu prýði- lega í inngangi, en hún segir svo frá: »Þegar ég kom í skólann 7 ára kunni ég ekki orð í sænsku. Allt var ann- arlegt. Aldrei fyrr hafði ég séð svo slétt uppbúin rúm. Ég gat ekki með nokkru móti ímyndað mér hvernig væri að sofa undir þessu hvíta líni. Aldrei fyrr hafði ég étið brún- ar baunir eða fiskboll- ur. Aldrei fyrr hafði ég þurft að lifa eftir klukku. Það var þannig sem Hið Nýja í lífi mínu hófst.« Ailo Gaup var í heiminn borinn »undir steini til fjalla« eins og hrein- kálfur. Vegna hrakninga var hann sendur suður eftir Noregi hinum langa, eins og hann kemst að orði. »Ég ólst sem sagt upp sem rótslitið samískt barn á frjólendi norskra bænda. Mér fannst ég vera sem heimilislaus hundur,« segir skáldið. Reynslusögur þessar er vafalaust dæmigerðar fremur en einstæðar. Erfiðasta hindrunin var að sjálf- sögðu tungumálið á annan hvorn veginn. Þegar Ailo Gaup sneri heim kunni hann aðeins tvö orð í móður- máli sínu sem hann vissi þó ekki hvað þýddu! Skandínavar – eins og reynd- ar Vesturlandabúar yfirhöfuð – voru þá svo vissir um ágæti sitt að þeir vildu ólmir hjálpa öðrum að verða eins. Minnihlutahópi, sem færi á mis við borgaraleg þægindi, hlyti að líða illa. Vel megandi borgurum þótti því sjálfsagt að kippa þessu í lag. Og það sem fyrst. Bernskuminningarnar í ljóðum þessara samísku skálda benda þó til hins gagnstæða. Fátt bendir til annars en börnunum hafi liðið vel í sínu frjálsa umhverfi í skjóli aldagamalla hefða. En um þeirra álit var aldrei spurt. Ekki bætti úr skák að sú skoðun var löngum ríkjandi meðal ráða- manna að miður heppi- legt væri að óskyldar þjóðir deildu með sér einu og sama landinu innan sama þjóðríkis. Það var talið pólitískt varhugavert. Samísku skólabörnin, sem töl- uðu sitt móðurmál, voru því strax drifin í að læra norsku eða sænsku til að þau mættu sem fyrst samlagast heild- inni. Ekki verður farið út í það hér að gera upp á milli skálda né ljóða. Skáldin eru að vísu mörg og mis- munandi, en þýðandinn er einn. Og hann setur auðvitað sitt mark á ljóð- in. Augljóst er að hann hefur unnið verk sitt af alúð og vandvirkni. Stíll- inn – málfarið og framsetningin – er því nokkuð svo samur og jafn. Þar sem skáldin nálgast yrkisefni sín með mjög svo svipuðum hætti kemur það lítt að sök. Öll eiga skáldin djúp- ar rætur í umhverfi því sem þau eru sprottin úr, aldagömlum samískum lífsháttum á norðurslóð. Þar með eiga þau sameiginlegt að hafa lifað tímana tvenna. Framtíð tungu þeirra, menningar og lífsmynsturs er þeim ofarlega í huga. Sum ljóðin eru beiskju og ádeilu blandin. Samar líta augljóslega svo til að óviðkom- andi öfl hafi ruðst inn í líf sitt til að stjórna þeim. Allt um það er óþarft að lesa ljóð þessi með einhverri yfirdrifinni sam- úð, að maður ekki segi meðaumkun! Þau standa fyllilega fyrir sínu. Ljóðlist norðursins BÆKUR Ljóðaþýðingar Samísk ljóð. Einar Bragi þýddi. 167 bls. Ljóðbylgja. Prentun: Steinholt ehf. Reykjavík, 2003. UNDIR NORÐURLJÓSUM Einar Bragi Erlendur Jónsson ENDURÚTGÁFA á söng Guð- rúnar Á. Símonar var orðin löngu tímabær, þegar nýr geisladiskur með söng hennar kom út nú í haust. Þar er að finna allt það besta, – og vinsælasta í söng Guðrúnar frá löngum og athyglisverðum starfs- ferli hennar. Það er vafamál hvort nokkur ís- lenskur söngvari fyrir daga Guðrún- ar hafi notið jafnmikillar og góðrar söngmenntunar. Eftir nám hér heima hélt hún til London þar sem hún nam við hinn virta skóla Guild- hall School of Music and Drama, sem margir íslenskir söngvarar hafa sótt síðar. Þar lét hún ekki staðar numið; fór til Ítalíu, til að nema ítalska fagið af einni mestu Puccini- söngkonu sinnar tíðar, Carmen Mel- is. Með tónleikaferðum um Norður- lönd, Sovétríkin og Kanada safnaði hún reynslu og þekkingu, en um- fram allt aðdáun og virðingu þeirra sem á hlýddu. Þá var hún þegar vinsæl dægur- lagasöngkona hér heima, – hafði gert garðinn frægan með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar, og gefið út hljómplötur með hljómsveit Johnnys Gregorys á Lundúnaárum sínum. Guðrún Á. Símonar hóf feril sinn sem dægurlagasöngkona, en hafði metnað til að verða óperusöngkona, og þann metnað ræktaði hún á besta mögulega veg. Nýi geisladiskurinn sýnir okkur Guðrúnu í öllum sínum hlutverkum. Dægurlögin með Johnny Gregory eru fyrir löngu orðin að sígildum perlum, hún syngur íslensku söng- lögin frá hjartarótum þess sem þekkti þau og unni þeim, og óperu- tónlistina hafði hún fullkomlega á valdi sínu. Lagavalið á diskinum er vel heppnað að þessu leyti. Þó má spyrja hvort ekki hafi verið nægt efni til að gefa út tvöfaldan disk. Það hefði svo gjarnan mátt vera meira af lögum, til dæmis af sólóplötunni hennar sem Svavar Gests gaf út 1972. Af rauðum vörum er plata sem loðir lengi við geislaspilarann; – mann langar einfaldlega til að hlusta á Guðrúnu aftur og aftur og enn aft- ur. Það er sárast að ekki skuli vera neinar upptökur frá áratugs tíma- bili, – 7. áratugnum, þegar Guðrún bjó í New York og ræktaði ketti. Það er sérstaklega áhugavert að heyra hvernig rödd hennar þroskast frá því að vera engilbjört og tær í elstu upptökunum, til þess að verða dramatísk og fullþroskuð, eins og í upptökunum frá 1972. Lag Carls Stutz, Little Things Mean a Lot, er óneitanlega í mestu uppáhaldi, eins og sjálfsagt hjá mörgum sem á diskinn hlýða. Guð- rún Guðrún túlkar lagið samkvæmt orðanna hljóðan, – það smáa hefur mikla þýðingu; – hún beitir röddinni á öllu litrófi veikra tóna, og svo und- urblítt, að varla verður þetta lag bet- ur og músíkalskar sungið. Aríurnar fimm sýna vel hve hæfi- leikarík Guðrún var á óperusviðinu. Þar stendur upp úr Voi lo sapete úr Cavalleria rusticana, stórkostlega sungið, og ekki síður aría Mímíar úr fyrsta þætti La bohéme, þar sem Guðrún túlkar feimnu, hlédrægu bóhemstúlkuna af hlýrri tilfinningu og miklu næmi. Um miðbik aríunn- ar, þegar Mímí fer að lýsa högum sínum, áhugamálum, saumaskapn- um, sem á hug hennar, og draumum, verður túlkun Guðrúnar örari og söngurinn ákafari og bjartari. Það er einstaklega fallega gert. Íslensku sönglögin bera þess merki hvert öðru betur hve strengur hennar til þeirra var sterkur. Þar stendur lag Sigvalda Kaldalóns, Svanasöngur á heiði, upp úr, en það hefur áður verið endurútgefið á safndiski íslenskra söngvara. Í túlk- un Guðrúnar og píanóleikarans Fritz Weisshappel er píanóið í hlutverki hestsins sem ber ljóðmælandann yf- ir eyðilega heiði á björtum íslensk- um sumaraftni, en Weisshappel ýkir rytma lagsins og Guðrún syngur af tilfinningaþrunginni áfergju; eins og knapann þyrsti bókstaflega í þann einverunnar helgidóm sem sungið er um. Þarna er ekki farið fetið, eins og flestir söngvarar láta sér nægja í túlkun lagsins, heldur á stökk um óræðar víðáttur landsins. Betlikerl- ing Kaldalóns er líka nánast hroll- vekjandi í magnþrunginni túlkun Guðrúnar, og Guðrúnar Á. Kristins- dóttur píanóleikara. Þessi dæmi sýna Guðrúnu eins og hún var best; og þau tilþrif átti hún alltaf í hand- raðanum, jafnt í upphafi ferils síns sem í lok hans. Tilfinningaheit söngstjarna TÓNLIST Geisladiskur Endurútgáfa á söng Guðrúnar Á. Sím- onar. Útgefandi: Íslenskir tónar. AF RAUÐUM VÖRUM Guðrún Á. Símonar Bergþóra Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.