Morgunblaðið - 24.12.2003, Qupperneq 50
50 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Clifton - Kóbrukossinn
Abrakadabra - galdraskólinn
framhald ...
HMM...
© DARGAUD
© DARGAUD
ÞÉR OG ÞESSAR FÁRÁNLEGU HUG-
MYNDIR YÐAR, ÞIÐ ERUÐ AÐ GERA
MIG BRJÁLAÐAN!
OFURSTI ...
ÞÉR AFSAKIÐ VONANDI ...
ÖRLÍTIL UPPÁKOMA...
EKKERT MÁL SÖR! ÉG OG MÆLIRINN
MINN ERUM TIL ÞJÓNUSTU REIÐU-
BÚNIR ...
VARIÐ YÐUR Á AÐ FARA EKKI Í NEÐANJARÐARLESTINA Í PARÍS ...
MAÐUR NÆR SÉR ALLS KYNS SÝKLA ÞAR ! ...
EINMITT ÞAÐ!
VERTU BLESSUÐ!
FRÚ MÓÐIR ÞÍN ER MJÖG UMHYGGJUSÖM
SÖR! .. ALVEG EINS OG MÍN SEM SEGIR
ALLTAF "JONNI, PASSAÐU ÞIG ..."
ÞETTA ER EKKI FRÚ MAMMA MÍN! OG
YÐAR ER ÞAÐ EKKI HELDUR! ... ÁFRAM
MEÐ YÐUR! ÉG ER OF SEINN! ...
- ... JÁ ..
EINMITT
,SÖR!
EINS OG MAMMA SEGIR ALLTAF: "JONNI, EF ÞÚ FÆRÐ
FÚLAN FARÞEGA ÞÁ ER HANN SAMT KÓNGURINN ... OG
ÞÚ BARA HIRÐFÍFLIÐ!"
HVAÐ..
ÚPS!
NEEEI!!!
HÆTTU STRAX! ´JA EN HERRA
ÉG VAR BARA AÐ
LÆRA HEIMA...
NÚ ER NÓG KOMIÐ!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ virðist ljóst að framsóknarmenn
ætli að koma í gegnum þingið 90%
íbúðalánum, þrátt fyrir mótmæli sér-
fræðinga, í anda byggðastefnunnar
illræmdu. Samkvæmt niðurstöðu sér-
fræðings í Evrópurétti má ríkið reka
sérstakan banka sem veitir efnuðu
fólki niðurgreidd lán til íbúðarkaupa
meðan þeir fátækari magna skulda-
klafann. Hins vegar heitir það ólög-
mæt ríkisaðstoð að færa útlánin til
banka í annarra eigu. Spyrja má
hvers vegna ríkisstjórnin þarf að
ákveða lánakjör á þessum markaði.
Hvers vegna geta þau ekki verið
samningsatriði? Ég hef lengi talið að
viðskiptabankar ættu að annast þessi
lán eins og önnur og þar gætu menn
samið um kjörin. Því hefur verið svar-
að að fátækara fólk fengi þá lakari
kjör en þeir ríku. Það getur verið rétt,
en ég er líka viss um að bankarnir
myndu aldrei lána öllu því fólki pen-
inga sem nú fær húsnæðislán. Hvers
vegna að lána fólki sem getur ekki
borgað án vandræða? Sagt er að við
eigum Evrópumet í gjaldþrotum.
Ekki fækkar þeim með hækkun lán-
anna. Nú eru skuldir heimilanna um
822 milljarðar kr., það eru um 3 millj-
ónir kr. á hvert mannsbarn eða 9
milljónir kr. á hverja þriggja manna
fjölskyldu að meðaltali. Fólk á van-
skilaskrá fær ekki lán og hvar er því
ætlað að búa? 1.100 manns eru á bið-
lista eftir félagslegu húsnæði í borg-
inni og engin úrræði fyrir fólk sem
lendir í útburði. Margrét Einarsdótt-
ir, lögfr. og varaborgarfulltrúi sjálf-
stæðismanna, lýsir ástandinu rétt í
Mbl. 22. nóv. sl.: „Stór hluti borgar-
búa hefur ekki lengur efni á að leigja
eða kaupa sér íbúð í Reykjavík.“
Halda menn virkilega að 90% lánin
muni leysa þann vanda? Eða er þeim
alveg sama? Hefur húsnæðisstefnan
ekki það markmið að fullnægja hús-
næðisþörfinni?
Ég veit að margt er athugavert við
verklag bankanna, eins og Verslunar-
ráðið hefur bent á. Þar á ég ekki síst
við uppáskriftirnar og hið siðlausa
ábyrgðarmannakerfi. Þegar ég
reyndi að komast í Verkamannabú-
stað á sínum tíma þurfti ég að fá lán
fyrir útborguninni. Mér var sagt að
það gæti ég fengið með uppáskrift
„fasteignaeiganda“. Því neitaði ég og
var því áfram á leigumarkaðnum. Sá
markaður hefur raunar aldrei verið
mönnum bjóðandi. Því þarf að leggja
sérstaka áherslu á að byggja upp boð-
legan leigumarkað eins og hjá öðrum
þjóðum. Þar getur Íbúðalánasjóður
haft stórt hlutverk. Í þetta þarf að
beina allri orku hins opinbera og láta
bankana um hitt. Setja þarf bönkun-
um skilyrði um siðrænt verklag.
Styrkja þarf stofnun félaga og leigu-
fyrirtækja og efla þau sem fyrir eru.
Ef Íbúðalánasjóður lánaði með u.þ.b.
3% vöxtum til byggingar leiguíbúða
og húsaleigubætur væru tvöfaldar
sýnist mér að leigan gæti orðið 30–40
þúsund kr. á mánuði, sem væri boð-
legt. Hækka þarf örorku- og ellilaun
svo fólk ráði við þetta. Haldi menn að
húsnæðiskerfið geti staðið undir sér
er það hrein fáfræði eða annað verra.
Gera þarf leigufyrirtækjum kleift að
leysa til sín mjög skuldsettar íbúðir í
stað þess að senda fólk í útburð og
leigja síðan fólkinu íbúðirnar. Með
þessu er hægt að útrýma fátæktinni
sem orðin er stórt vandamál.
Íslendingur sem vann í Kaup-
mannahöfn spurði félaga sína hvar fá-
anleg væru lán til íbúðarkaupa. Þeir
vísuðu honum á viðskiptabanka hans.
Undrandi fór hann í bankann og þar
var honum vísað á þjónustufulltrúa,
sem spurði um nafn og kennitölu, og
sá að komumaður var viðskiptamaður
bankans. Ég athuga stöðuna, sagði
fulltrúinn, komdu eftir þrjá daga.
Maðurinn kom á réttum tíma á fund
fulltrúans, sem sagði bankann tilbú-
inn að lána honum sem svaraði sjö
milljónum ísl. kr. Finnir þú þægilega
íbúð á þessu verði getur þú komið aft-
ur. Get ég ekki fengið meira? spurði
hinn sanni Íslendingur. Nei, sagði
fulltrúinn, þá gætirðu lent í erfiðleik-
um með greiðsluna og það viljum við
ekki. Er maðurinn hafði fundið íbúð-
ina kom hann aftur í bankann. Hve-
nær fæ ég peningana? spurði hann.
Þú færð ekki peningana, sagði fulltrú-
inn. Við borgum íbúðina og drögum
svo af þér mánaðarlega upp í verðið.
Komdu með eigandann eða sölu-
manninn og við göngum frá þessu
hér. Engin útborgun, normal vextir.
Sjötug kona á Akureyri fékk bréf
frá Kaupmannahöfn, móðir hennar
hafði búið þar en var nýlega látin. Í
bréfinu er sú sjötuga spurð hvort hún
vilji endurnýja leigusamning móður
sinnar til 99 ára, eins og hún eigi rétt
á. Sem erfingi hinnar látnu hafði hún
forgangsrétt.
Er þetta ekki munur? Enginn
skuldaklafi, engin hætta á geðþótta-
uppsögn. Þar er frjálst val. Ég hef
alltaf talið það sjálfsagða kröfu að
geta lifað venjulegu lífi án þess að
taka lán. Burt með braskið og fé-
lagslegt öryggi í staðinn.
JÓN KJARTANSSON
frá Pálmholti, fyrrv. form.
Leigjendasamtakanna.
Afnám fátæktar
Frá Jóni Kjartanssyni:
Ó, – leitum – finnum jólin jól
í Jesúbarnsins nafni,
sem guðdómleg vor geislar sól
allt gott á jörð svo dafni.
Þar „Faðir vor“, sem ætíð er,
sig opinberað hefur
í Kristi Jesú komnum hér
hans kærleik mestan gefur.
Hnattræn er sú gjafa gjöf,
að geta öðlast friðinn
með iðrun – von er eigi töf
að eignast kristna siðinn.
Þá er það lífsins mála mál
að miðla efnisgæðum
þeim nógu jafnt – fær nóg hver sál
er nægð sem blóð í æðum.
Boðar fegins fögnuðinn
Frelsarinn – þann góða.
Hann sæluboðskap byrjar sinn
í bestu ræðu þjóða.
PÉTUR SIGURGEIRSSON
biskup.
Gleðileg jól!
Frá Pétri Sigurgeirssyni: