Morgunblaðið - 31.12.2003, Page 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð brautskráði
föstudaginn 19. desember sl. 94 stúdenta, 40 af
eðlisfræði- og náttúrufræðibrautum, 33 af fé-
lagsfræðibrautum, 21 af málabautum, 1 af al-
þjóðlegri námsbraut og 1 af tónlistarbraut.
Meira en helmingur lauk stúdentsnáminu á 3½
ári, fjórir með ágætiseinkunn.
Dúx var Líney Halla Kristinsdóttir stúdent af
náttúrufræðibraut, meðaleinkunn 9,82 sem er
sú hæsta í sögu skólans. Semidúx var Kári
Hólmar Ragnarsson stúdent af náttúrufræði-
braut. Flestum einingum lauk Áslaug Ein-
arsdóttir stúdent af málabraut og nátt-
úrufræðibraut, 188.
Tónlist fluttu Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
Strengjasveit nemenda MH og Víkingur Heiðar
Ólafsson nýstúdent (einleikur á píanó).
Í frétt segir að lokaorð Lárusar H. Bjarnason-
ar til nýstúdenta hafi verið eftirfarandi tilvitnun
í ræðu Stephans G. Stephanssonar sem hann
flutti í lestrarfélagi vestur í Albertafylki árið
1894: „Eftir mínu viti fer ekki menntun manns
eftir því hvort hann hefur gengið á nokkurn
skóla eða engan, eður hvort hann hefur lesið
þessa bók eður hina; hún fer einungis eftir því,
að hve miklum manni skólalærdómurinn hefur
gert hann, hve mikla andlega menningu bókin
hefir veitt honum; hún er ekki eingöngu stíll í
latneskri málfræði, vel af hendi leystur, né örð-
ugt dæmi í bókstafareikningi, rétt reiknað,
heldur er hún snilld og göfgi mannsins sjálfs,
aðgreinanleg frá því, sem hann hefir tekið til
láns frá skólum og bókum. Í fám orðum: mennt-
unin er inn andlegi uppvöxtur mannsins, en ekki
búningurinn, sem hlaðið er utan á hann.“
Morgunblaðið/Gunnar G. Vigfússon
94 stúdentar brautskráðir frá MH
ÞÓRUNN Eiríksdóttir,
húsfreyja á Kaðalstöð-
um í Stafholtstungum,
Borgarbyggð, er látin,
75 ára að aldri.
Þórunn fæddist á
Hamri í Þverárhlíð 20.
janúar 1928 og ólst upp
á Glitstöðum í Norður-
árdal. Foreldrar hennar
voru hjónin Eiríkur
Þorsteinsson, bóndi á
Glitstöðum, og Katrín
Jónsdóttir húsmóðir.
Þórunn stundaði nám
við Héraðsskólann í
Reykholti og Hús-
mæðraskólann á Varmalandi. Hún
bjó á Kaðalstöðum frá árinu 1951.
Þórunn tók virkan þátt í fé-
lagsmálum í Borgarfirði og stjórn-
málum og var fyrr á þessu ári sæmd
riddarakrossi fyrir störf að félags-
og byggðamálum. Hún var formaður
Kvenfélags Stafholtstungna og Sam-
bands borgfirskra kvenna um tíma
og var varaformaður
Kvenfélagasambands
Íslands. Hún átti í rúm
tuttugu ár sæti í skóla-
nefnd Barnaskóla
Mýrasýslu á Varma-
landi og í stjórn Skóg-
ræktarfélags Borgar-
fjarðar í tólf ár. Hún
ritaði sögu Varma-
landsskóla, Skógrækt-
arfélags Borgarfjarð-
ar, Sambands borg-
firskra kvenna og
Kvenfélags Stafholts-
tungna. Hún átti
nokkrum sinnum sæti
á framboðslistum Alþýðubandalags-
ins við alþingiskosningar og sat um
tíma í bankaráði Búnaðarbanka Ís-
lands. Síðustu árin hefur hún verið
formaður Félags aldraðra í Borgar-
fjarðardölum.
Eiginmaður Þórunnar var Ólafur
Jónsson trésmiður sem lést 1998.
Þau eignuðust þrjár dætur.
Andlát
ÞÓRUNN
EIRÍKSDÓTTIR
LÍNEY Halla Kristinsdóttir, nítján
ára stúdent frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð, var með meðalein-
kunnina 9,82 er hún brautskráðist
frá skólanum í
desember. Er það
hæsta með-
aleinkunnin í
sögu skólans.
Líney braut-
skráðist frá nátt-
úrufræðibraut og
lauk stúdenspróf-
inu á þremur og
hálfu ári. Hún
segist hafa mjög
gaman af námi
en bætir því við að hún gefist held-
ur ekki auðveldlega upp. „Stundum
er sagt að við systurnar séum með
fullkomnunaráráttu,“ útskýrir hún
en systir hennar Bjarnheiður Krist-
insdóttir brautskráðist frá Mennta-
skólanum í Reykjavík fyrir tveimur
árum með yfir níu í meðaleinkunn.
Líney ætlar að taka sér frí frá
námi eftir áramótin enda hefur hún
tekið að sér að verða Au Pair í Bad-
en-Baden í Þýskalandi. „Ég verð
þar fram í júlí,“ segir hún. Næsta
haust stefnir hún á nám í eðlisverk-
fræði en eðlisfræði og stærðfræði
eru uppáhaldsfögin hennar. Það
ætti reyndar ekki að koma á óvart
þar sem hún hefur tvisvar sinnum
verið í hópi íslenskra ungmenna
sem tekið hafa þátt í ólympíu-
leikunum í stærðfræði.
Hyggur á
nám í eðl-
isverkfræði
Líney Halla
Kristinsdóttir
„EES-SAMNINGURINN hefur ekki veikst,“
segir Þórunn J. Hafstein, forstöðumaður
skrifstofu hjá starfsstöð EFTA í Brussel.
„Lagasamræmingin innan EES, sem samn-
ingurinn stefnir að, virðist hvorki hafa liðið
fyrir stækkun ESB né þróun grundvallarlaga
ESB frá því samningurinn var gerður.“
Ágæt samskipti
Stækkun Evrópusambandsins (ESB) verð-
ur að raunveruleika í maí á næsta ári og verða
ESB-ríkin þá 25 en EES-EFTA-ríkin þrjú,
Ísland, Noregur og Liechtenstein, standa
jafnframt að EES-samningnum. Þórunn segir
að stækkunin eigi ekki að leiða til þess að
EES-samningurinn veikist, því nýju aðildar-
ríkin komi að samningnum sem slíkum, þau
verði ný EES-ríki og taki þátt í samstarfinu á
þeim forsendum sem hafi stofnast til og skilað
ágætis árangri.
„Ég tel að samningurinn og framkvæmd
hans hafi gengið það vel og sé kominn í fastar
skorður. Samskiptin við framkvæmdastjórn
ESB eru ágæt og ákveðið verklag er komið á
og ferli varðandi framkvæmd
samningsins sem dugar vel. Ég
sé ekki að stækkun Evrópusam-
bandsins sem slík eigi eftir að
breyta því á nokkurn hátt og
áfram standa tveir aðilar að
samningnum, ESB-ríkin og EES-
EFTA-ríkin þrjú. Kerfið helst
eins og þetta er og samnings-
grundvöllurinn er sá sami.“ Þór-
unn bætir við að stækkunin geti
styrkt samninginn. „Ég held að
við getum náð sambandi við fleiri
ríki og eignast fleiri bandamenn
innan Evrópusambandsins ef vel
er á málum haldið. EES-EFTA-
ríkin hafa átt góð viðskipti við
nýju aðildarríkin og þau viðskipti
eru nú komin í góðan farveg,“
segir hún.
Þórunn hefur starfað hjá
EFTA síðan um mitt ár 2001, en
á skrifstofu hennar er fjallað um
öll málaflokkasvið EES-samn-
ingsins nema frjálsa vöruflutn-
inga, það er frjálsan flutning
þjónustu, fjármagns og fólks, og
síðan allar samstarfsáætlanir
ESB. Vegna stækkunar ESB
hafa komið upp álitamál varðandi
frjálsa för fólks á ESB-EES-svæðinu og segir
Þórunn að aðlögunartímabil séu tilgreind í
samningum hinna nýju aðildarríkja við ESB.
„EES-EFTA-ríkin munu hafa hliðsjón af
þeim aðlögunarákvæðum við framkvæmd á
frjálsri för fólks á næstu árum,“ segir hún.
Hafa ekki gert upp hug sinn um beit-
ingu heimildarákvæðanna
Í því sambandi nefnir Þórunn að á fyrstu
tveimur árunum eftir að stækkunin tekur
gildi í maí 2004 sé heimilað að beita lands-
lögum og framlengja megi þetta tímabil í þrjú
ár til viðbótar og svo aftur í tvö ár. „Samtals
geta þetta orðið allt að sjö ár sem núverandi
EES-ríkin takmarka eða beita landslögum um
aðgang fólks frá hinum nýju aðildarríkjum
EES.“
Þórunn segir að aðlögunarákvæðin sem séu
nú til skoðunar gefi kost á fyrrnefndu svig-
rúmi í tíma en einstök aðildarríki hafi ekki
gert upp hug sinn hvernig þau ætli að beita
þessum heimildarákvæðum og hversu langan
aðlögunartíma þau ætli að nýta sér.
Þórunn J. Hafstein, forstöðumaður hjá starfsstöð EFTA, telur stækkun ESB geta styrkt EES
EES-samningurinn
hefur ekki veikst
Þórunn J. Hafstein.
ÞEIRRAR vertíðar sem verið hefur
í kringum hlutabréfakaup einstak-
linga í lok desember á síðustu árum
gætti ekki í ár. Ástæðan er sú að í ár
er fyrsta árið sem ekki er veittur
skattaafsláttur vegna hlutabréfa-
kaupa.
Starfsmenn fjármálafyrirtækja
sem þekkja vel til í viðskiptum ein-
staklinga á hlutabréfamarkaðnum
segja að þrátt fyrir þetta hafi við-
skipti einstaklinga með hlutabréf
aukist í ár miðað við tvö síðustu ár.
Áhugi á að fjárfesta í hlutabréfum sé
greinilega meiri í ár og skýringar á
því séu meðal annars þær miklu
hækkanir sem verið hafi á hluta-
bréfamarkaði og lækkandi innláns-
vextir í bönkum.
Áhugi einstaklinga á hlutabréfa-
kaupum var mikill skömmu fyrir
aldamótin, sérstaklega á árunum
1999 og 2000, en mynstrið í viðskipt-
unum mun vera annað nú en þá var.
Spákaupmennska var meira áber-
andi fyrir aldamót, en nú er algeng-
ara að einstaklingar fari gætilegar í
fjárfestingar og hugsi þær til lengri
tíma en þeir gerðu þá. Þrátt fyrir
aukinn áhuga einstaklinga á hluta-
bréfaviðskiptum á þessu ári miðað
við tvö síðustu ár er það álit þeirra
sem til þekkja að stærri fjárfestar
hafi mun meiri áhrif á verðmyndun
hlutabréfa en einstaklingar.
Viðskipti einstaklinga
með hlutabréf aukast
Morgunblaðið/Golli
Engin hluta-
bréfavertíð í lok
desember