Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KALLI SIGRAÐI
Kalli Bjarni úr Grindavík sigraði í
Idol stjörnuleitinni á Stöð 2, en úr-
slitin fóru fram í Smáralind í gær-
kvöldi. Fékk hann 49% atkvæða, en
alls voru atkvæðin 150 þúsund í
símakosningu.
Líst i l la á sölu SPRON
Tveimur af hverjum þremur Ís-
lendingum líst illa á þær hugmyndir
að Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis verði seldur Kaupþingi Bún-
aðarbanka eða KB banka eins og
hann heitir nú. Liðlega 19% líst
hvorki vel né illa á sölu SPRON en
13% líst vel á hana.
Ótilkynnt viðskipti
Tvenn af sex viðskiptum frum-
innherja með bréf Eimskipafélags-
ins á þessu ári voru ekki tilkynnt
fyrir fram til regluvarðar félagsins,
að sögn Magnúsar Gunnarssonar,
stjórnarformanns Eimskipafélags-
ins. Hann telur þó að viðskiptin séu
öll með eðlilegum hætti.
Hótar stofnanda Hamas
Aðstoðarvarnarmálaráðherra Ísr-
aels, Zeevs Boims, sagði í gær að
stofnandi Hamas-samtaka Palest-
ínumanna, Sheik Ahmed Yassin,
væri mikilvægt skotmark. Hann ætti
að fela sig djúpt neðanjarðar en Ísr-
aelar myndu finna hann og gera út
af við hann.
Veðurviðvörun
Veðurstofa Íslands beinir því til
skíða- og vélsleðafólks að vera ekki á
ferð, þar sem snjóflóð geta fallið.
Viðvörunin er gefin út vegna hvass-
viðris og ofankomu undanfarna daga
og ótryggra snjóalaga. Einnig er
fólki bent á að stöðva ekki farartæki
sín á vegarköflum, þar sem hætta
gæti verið á snjóflóðum.
Íhuga aðstoð
Frakkar íhuga hvort þeir eigi að
aðstoða við að stuðla að bættu ör-
yggi í Írak og til greina kemur að
Þjóðverjar komi þar að mann-
úðarstörfum. Báðar þjóðirnar voru
andsnúnar stríðinu gegn Írak og
hafa leiðtogar þeirra sagt að slík að-
stoð af þeirra hálfu verði ekki veitt
fyrr en innlendir aðilar hafa tekið við
stjórnartaumunum.
Vetrarhörkur
Miklar vetrarhörkur eru nú í aust-
urhluta Bandaríkjanna, 40 gráða
frost hefur verið í Boston og 17
gráða frost í New York. Skólar hafa
víða verið lokaðir og flugsamgöngur
legið niðri.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@m-
bl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is
Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Minningar 41/48
Viðskipti 11 Skák 49
Erlent 17/19 Kirkjustarf 48/49
Höfuðborgin 23 Myndasögur 56
Akureyri 23 Bréf 56
Suðurnes 26 Staksteinar 58
Árborg 26 Dagbók 58/59
Landið 27 Íþróttir 60/63
Listir 28/29 Leikhús 64
Daglegt líf 31/32 Fólk 64/69
Umræðan 34 Bíó 67/69
Forystugrein 36 Ljósvakamiðlar 70
Viðhorf 40 Veður 71
* * *
ÍBÚAR í Árneshreppi á Ströndum
fengu loks rafmagn um kl. 22 í gær-
kvöldi, en rafmagnslaust hafði verið
frá því að mánudagsmorgun. Flest-
ir hafa einhvers konar vararafstöð
en þrjár fjölskyldur í Norðurfirði og
tveir bæir voru algjörlega án hita
og rafmagns. Þá hefur ekki verið
flogið til Gjögurs í níu daga og er
farið að bera á mjólkurskorti á
svæðinu, en þar er enginn kúabú-
skapur. Vegna rafmagnsleysisins
hefur kennsla í Finnbogastaðaskóla
legið niðri frá því á þriðjudag.
Rafmagnið fór af klukkan 11.56 á
mánudag. Á fimmtudag fóru menn
frá Orkubúi Vestfjarða í Hólmavík
á vélsleðum og bíl til að leita bil-
unina uppi en þurftu frá að hverfa.
Heimamenn gerðu síðan við bilun á
Naustvíkurskörðum milli Trékyll-
isvíkur og Reykjarfjarðar. Það
dugði ekki til og virtist sem önnur
bilun væri á línunni. Það var svo
loks í gærkvöldi sem tókst að koma
rafmagninu á aftur, íbúunum til
mikillar gleði.
Nær sjö stiga hita
Jón. G. Guðjónsson, veðurathug-
unarmaður í Trékyllisvík, segir
þetta rafmagnsleysi með því allra
lengsta sem komið hafi í hreppnum.
Flestir bændur, eða átta af tíu, hafi
dísilrafstöðvar. Þá séu einnig þrjár
fjölskyldur í Norðurfirði án dís-
ilrafstöðvar en hafi þó gas. „Þeir
sem hafa dísilrafstöðvar geta eldað
mat og annað, aðrir hafa gas, það
hafa nú flestir eitthvað. Það er eig-
inlega verra með hitann og einnig
með ísskápa og frystikistur sem
ekki er hægt að keyra aukalega,“
segir Jón. Hefur hann lítinn olíuofn
sjálfur og nær hitastiginu heima hjá
sér upp í sjö stig á daginn. Frá því
rafmagnið fór hefur Jón gist heima
hjá bróður sínum á næsta bæ en þar
er hitað með eldivið. Aðspurður
segir Jón að það gangi ágætlega hjá
bændum í rafmagnsleysinu. Þeir
sem hafi vararafstöðvar geti haft
ljós í útihúsum. „Hér er enginn
kúabúskapur, þannig að það þarf
ekkert að hugsa um mjaltir og
slíkt,“ segir Jón. En það er farið að
skorta mjólkurvörur og aðrar nauð-
synjar á svæðinu þar sem ekki hefur
verið flogið til Gjögurs í níu daga. Á
Jón von á því að reynt verði að
fljúga í dag, nauðsynlegt sé að raf-
magn verði þá komið á svo hægt
verði að nota radarvita í flugstöð-
inni sem sé nauðsynlegur í blind-
flugi og kveikja ljós við flugbraut-
ina.
Íbúar í Árneshreppi á Ströndum fengu loks rafmagn í gærkvöldi
Morgunblaðið/Sigursteinn
Jón G. Guðjónsson, veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík, kuldalega klæddur
sendir veðurathuganir í 5–6 stiga hita heima hjá sér í fyrradag.
Nauðsynjar hafa
ekki borist íbúun-
um í níu daga
EINS og alþjóð veit var færeyska
söngkonan Eivör Pálsdóttir sig-
ursæl á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum. Er hún kom til Færeyja á
fimmtudaginn var henni vel fagn-
að, og þegar hún steig til jarðar á
flugvellinum í Vágum færði Magni
Arge, forstjóri Atlantic Airways í
Færeyjum, henni blóm.
Ljósmynd/Jens Kristian Vang
Eivöru var fagnað sem þjóðhetju
GÖTUVERÐ á kókaíni hefur
hækkað um 30% ef marka má nýj-
ustu verðkönnun SÁÁ frá 30. des-
ember. Hass hefur hins vegar
lækkað um 25%. Verðkönnun SÁÁ
sýnir að eitt gramm af kókaíni
kostar 13.750 krónur og hefur ekki
verið hærra í áraraðir. Undanfarin
fjögur ár hefur grammið kostað
um 9 til 11 þúsund krónur ef frá er
talinn verðtoppur í ágúst 2003
þegar grammið fór í 13.500 krón-
ur.
Önnur fíkniefni s.s. amfetamín
og e-töflur hækka einnig. Þannig
hækkar grammið af amfetamíni úr
3.880 kr. í 4.180 kr. og e-taflan úr
1.940 kr. í 1.970 kr. Grammið af
hassi lækkar hins vegar úr 2.340
kr. sem var óvenjuhátt, í 1.750 kr.
Verðkönnun SÁÁ er unnin á
grundvelli upplýsinga innritaðra
sjúklinga sem hafa keypt fíkniefni
sl. 2 vikur. Allir innritaðir sjúk-
lingar, sem hafa heilsu til, taka
þátt í könnuninni.
Kókaín
hækkar
um 30%
Könnun SÁÁ
ARNFRÍÐUR Einarsdóttir, for-
maður málskotsnefndar Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna, LÍN,
segir að nefndin muni taka mál
Harðar Sveinssonar, lesblinds
námsmanns, fyrir að nýju óski
hann þess, en málskotsnefndin
hefur áður neitað honum um lán
fyrir skólagjöldum við erlendan
skóla.
Morgunblaðið fjallaði um mál
Harðar fyrir rúmu ári en þar kom
fram að Hörður hefði ítrekað sótt
um undanþágur frá reglum LÍN
um greiðslu skólagjalda í erlend-
um háskólum á grundvelli þess að
hann sé lesblindur. Stjórn LÍN og
síðar málskotsnefnd LÍN töldu
hins vegar að Hörður hefði ekki
lagt fram næga staðfestingu á því
að lesblinda hans ylli honum veru-
legri fötlun í skilningi úthlutunar-
reglna sjóðsins. Hörður taldi hins
vegar að hann hefði lagt fram full-
nægjandi gögn frá sérfræðingum
máli sínu til stuðnings.
Gengu lengra
en lög leyfa
Hörður kvartaði til umboðs-
manns Alþingis og komst umboðs-
maður að þeirri niðurstöðu að
málskotsnefndin hefði gengið
lengra en lög leyfa í því að krefja
Hörð um framlagningu læknis-
fræðilegra gagna til staðfestingar
á fötlun hans. Beindi umboðsmað-
ur þeim tilmælum til nefndarinnar
að hún tæki mál hans fyrir að nýju
kæmi fram ósk um það frá honum
og leysti þá úr því í samræmi við
sjónarmið umboðsmanns.
Taka mál lesblinds
nema fyrir að nýju