Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MEÐALATVINNULEYSI á árinu 2003 var 3,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði samanborið við 2,5% ár- ið á undan. Að jafnaði voru 4.893 manns atvinnulausir í hverjum mán- uði. Atvinnuleysið hefur aukist tölu- vert frá árinu 2000 þegar það var að- eins 1,3%. Atvinnuleysi í desember var 3,1% en Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi í þessum mánuði verði á bilinu 3,5–3,9%. Atvinnuleysi í desember er heldur meira en í sama mánuði fyrir ári. At- vinnuleysi á landsbyggðinni jókst um 16% frá því í nóvember, en atvinnu- leysi á höfuðborgarsvæðinu jókst einnig talsvert. Mest atvinnuleysi er á Suðurnesjunum, eða 3,6%, en atvinnu- leysi á höfuðborgarsvæðinu er 3,3% Í árslok voru 5.272 án vinnu á land- inu öllu, en í gær var þessi tala komin í 5.654. Í lok desember voru 390 störf laus skráð hjá vinnumiðlunum, en það er talsvert fleiri störf en fyrir einu ári. Færri atvinnuleyfi gefin út Í fyrra voru gefin út 3.292 atvinnu- leyfi til útlendinga. Árið 2002 voru hins vegar gefin út 3.637 leyfi og 4.505 árið 2001. Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en í sex mánuði voru um 26% allra atvinnulausra í desembermán- uði. Þetta er umtalsverð fjölgun frá því sem var í upphafi árs þegar 20% hópsins hafði verið atvinnulaus í meira en sex mánuði. *+ *, #+ #, -+ -, .+ ., ,+ , / %  ,  @, 9 +4  .(( 0% .2+ 9,()   0%.$9   &,,, ,(4%% 80(%.$9   ( 0 -,,. -,,- -,,#  0  1  (   2  2   0  1  (   2  2   0  1  ( Atvinnuleysi fór úr 2,5% í 3,4% á árinu EYSTEINN Sigurðs- son, bóndi á Arnarvatni í Mývatnssveit, lést að- faranótt föstudags 16. janúar á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akur- eyri, 72ja ára að aldri. Eysteinn var fæddur 6. október 1931. Hann hafði ekki gengið heill til skógar síðustu miss- eri. Eysteinn var bóndi á föðurleifð sinni Arnar- vatni, fjárræktarbóndi og náði þar góðum ár- angri. Hann var mikill áhugamaður um íþróttir, einkum skíði og glímu og var glímudómari fram á síðasta ár. Hann var í mörg ár bryti við Laugaskóla og sinnti þá einnig kennslu þar. Eysteinn var mála- fylgjumaður og minn- ast margir hans sem forystumanns í Land- eigendafélagi Laxár og Mývatns þegar tekist var á um virkjun í Laxá fyrir rúmum 30 árum. Eftirlifandi eigin- kona hans er Halldóra Jónsdóttir. Þau eignuðust tvær dæt- ur, Bergþóru og Þórgunni. Andlát EYSTEINN SIGURÐSSON HEIMASÍÐA útlendingastofnunar var opnuð í gær, en henni er ætl- að að auka upplýsingaþjónustu stofnunarinnar. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Georg Kr. Lárusson forstjóri Útlend- ingastofnunar hleyptu heimasíð- unni formlega í loftið. Útlendingastofnun hefur enn- fremur endurskipulagt starfsemi sína í kjölfar ítarlegrar stefnu- mótunarvinnu. Meginmarkmið breytinganna er að öll starfsemi og verkefni miði að því að veita þjónustu, sýna jafnræði og traust í afgreiðslu og meðferð allra mála, segir í fréttatilkynningu. Hlutverk stofnunarinnar er að af- greiða umsóknir fólks til dvalar á Íslandi og framfylgja stefnu stjórnvalda í samskiptum Íslend- inga við útlendinga og auðga þannig samfélagið. Starfsemin deilist á þrjú svið, leyfasvið, stjórnsýslusvið og al- þjóðasvið. Heimasíða stofnunar- innar er utl.is Útlendingastofnun hefur opnað heimasíðu Morgunblaðið/Jim Smart Ýtt úr vör: Georg Kr. Lárusson og Björn Bjarnason opna heimasíðu Útlendingastofnunar í gær. ATLANTSOLÍA hefur kært til Samkeppnisstofnunar þá ákvörðun olíufélaganna að hafa eldsneytis- verð lægra á stöðvum sínum í næsta nágrenni við fyrirtækið í Kópavogi og Hafnarfirði en á öðr- um stöðvum félaganna. Hugi Hreiðarsson, markaðs- stjóri Atlantsolíu, segir að eitt olíu- félaganna hafi m.a. lýst því yfir op- inberlega að það lækki verð sérstaklega í nágrenni við Atlants- olíu. Þetta geti varla staðist sam- keppnislög í landinu. „Þetta er leið olíufélaganna til að viðhalda fá- keppni og hefta vöxt Atlantsolíu,“ segir Hugi. Guðmundur Sigurðsson hjá Samkeppnisstofnun segir kæru Atlantsolíu hafa borist og hún verði tekin til skoðunar. Hann seg- ir að vegna eðli málsins muni það fá forgang hjá stofnuninni, en sem kunnugt er hefur meint verðsam- ráð olíufélaganna verið til rann- sóknar um nokkurt skeið hjá Sam- keppnisstofnun. Von á nýjum birgðum Að sögn Huga var síðasti bens- índropinn seldur á miðvikudag en von er á nýjum birgðum um næstu mánaðamót. Atlantsolía flytur bensínið inn í 25 þúsund lítra leigu- tönkum, sem koma með Atlants- skipum frá Rotterdam. Hugi segir að þannig verði eldsneytið flutt inn á meðan Atlantsolía sé aðeins með eina bensínstöð starfandi. Önnur stöð er í byggingu við Óseyrar- braut í Hafnarfirði, og hefur Ístak lokið við að steypa fyrsta áfanga að stöðinni. Varðandi hækkanir og lækkanir hinna olíufélaganna síðustu daga vill Hugi aðeins segja það eitt að samkeppni virðist ríkja þar sem Atlantsolía „drepi niður fæti“. Við- skiptavinir hafi einnig sýnt mjög sterk en jákvæð viðbrögð í garð Atlantsolíu. Þannig hafi hvatningar borist í tölvupósti og andúð verið lýst á aðgerðum hinna olíufélag- anna. Atlantsolía kærir til Samkeppnisstofnunar GENGIÐ hefur verið frá endanlegum kaupsamningi vegna kaupa Pharma- co á 90% hlut í tyrkneska lyfjafyrir- tækinu FAKO. Áreiðanleikakönnun er lokið og öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt. Í tilkynn- ingu frá Pharmaco segir að FAKO muni koma inn í samstæðuuppjör fé- lagsins frá 1. janúar 2004. Róbert Wessman, forstjóri Pharmaco, segir að kaupin á FAKO séu liður í yfirlýstri stefnu Pharmaco um áframhaldandi ytri vöxt, samlegð- aráhrif séu töluverð og markaðsstaða fyrirtækisins muni styrkjast. Stefnt sé að því að skrá fjölda lyfja Pharma- co á Tyrklandsmarkað í framtíðinni auk þess sem tækifæri skapist til að markaðssetja lyf FAKO á mörkuðum Pharmaco. Í byrjun desember síðastliðnum greindi Pharmaco frá því að samning- ar um kaup félagsins á FAKO, sem er sjöunda stærsta lyfjafyrirtæki Tyrk- lands, væru á lokastigi. Þá kom fram að kaupverðið er um 63 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 4,4 milljarða íslenskra króna, fyrir utan árangurstengdar greiðslur sem mið- ast við að tiltekin markmið náist í rekstri félagsins árin 2004 og 2005. Samkomulagið felur einnig í sér að Pharmaco veiti FAKO lán að fjárhæð allt að 15 milljónum Bandaríkjadala til að endurfjármagna hluta af skammtímaskuldbindingum félags- ins. Starfsmenn FAKO eru um 1.300 talsins og er félagið með söluskrifstof- ur á 10 stöðum í Tyrklandi. Fyrirtæk- ið starfrækir lyfjaverksmiðjur sem framleiða fullbúin lyf og virk lyfjaefni. Gengið frá kaupum Pharmaco á FAKO EIMSKIPAFÉLAG Íslands efnir til afmælishátíðar í dag í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Afmælishátíðin fer fram í Há- skólabíói og hefst kl. 16. Magnús Gunnarsson, stjórnarformaður Eim- skip, og Erlendur Hjaltason fram- kvæmdastjóri Eimskips hf. munu ávarpa samkomuna og sýnd verður heimildarmynd um sögu félagsins. Afmælishátíð Eimskips HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað- Sparisjóð Ólafsfjarðar af kröfu bróður fyrrverandi sparisjóðs- stjóra um greiðslu 54 milljóna króna, en um var að ræða ábyrgð- ir sem sparisjóðsstjórinn hafði tekist á hendur í starfi sínu án heimildar og bróðir hans greiddi. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður dæmt sparisjóðinn til að greiða hluta kröfunnar eða nærri 14 milljónir króna. Bróðir sparisjóðsstjórans fyrr- verandi innti af hendi fjórar greiðslur vegna slíkra ábyrgða gegn loforði um að sparisjóðurinn legði ekki fram kæru á hendur bróður sínum vegna þeirra. Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands vísaði málinu til opinberrar rann- sóknar og var sparisjóðsstjórinn ákærður og dæmdur fyrir brot í starfi sínu sem sparisjóðsstjóri. Náði sakarefnið meðal annars til veitinga þriggja af þeim fjórum ábyrgðum sem bróðir sparisjóðs- stjórans greiddi. Greiðslurnar lán til sparisjóðsstjórans Bróðirinn krafði sparisjóðinn um endurgreiðslu umræddra fjár- muna og vísaði til samningalaga og sjónarmiða um brostnar for- sendur. Hæstiréttur taldi að greiðslurnar hefðu verið lán til sparisjóðsstjórans fyrrverandi til að greiða þessar skuldbindingar og að ekki hefði stofnast löggern- ingur milli bróðurins og spari- sjóðsins sem unnt væri að ógilda á grundvelli þessa lagaákvæðis. Ekki var heldur fallist á að sjón- armið um forsendubrest gætu átt við í málinu og var sparisjóðurinn því sýknaður. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlends- dóttir, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein. Hrafn Bragason, skilaði sératkvæði og vildi stað- festa dóm héraðsdóms. Lögmaður Spariðsjóðs Ólafsfjarðar var Árni Pálsson hrl. og lögmenn gagn- áfrýjanda Jón Steinar Gunnlaugs- son og Reimar Pétursson hdl. Sparisjóður Ólafsfjarðar sýknaður af bótakröfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.