Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 65
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 65
STÓRDANSLEIKUR
Harmonikufélags Reykjavíkur
„Komdu í kvöld.........“ Dúndrandi harmonikuball í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima í Reykjavík laugardagskvöldið 17. jan. frá kl. 22.
Fyrir dansi leika 5 hljómsveitir: Suðurnesjamenn, Stormurinn og
hljómsveitir Corina Cubid, Hildar Friðriksdóttur og Ulrics Falkner.
Fjölbreytt dansmúsik við allra hæfi.
Góður vettvangur fyrir dansáhugafólk.
Aðgangseyrir kr. 1.200.
ÚRSLITAVIÐUREIGNIN íIdol-Stjörnuleit fór framí Vetrargarðinum íSmáralind í gærkvöld
frammi fyrir fullu húsi með rífandi
stemmningu. Idol-samkvæmi voru
haldin um allt land, þau stærstu á
heimavígstöðvum keppendanna.
Aðdáendur sjómannsins Kalla
Bjarna skemmtu sér og studdu sinn
mann í félagsheimilinu Festi í Grind-
vík, Norðlendingar hvöttu Önnu
Katrínu í Sjallanum á Akureyri og
aðdáendur Jóns Sigurðssonar komu
saman á NASA á Austurvelli. Það
var sama hvar ljósmyndari Morg-
unblaðsins bar niður, alls staðar var
rífandi stemmning og tilfinningahit-
inn ætlaði allt um koll að keyra.
Það fór ekki fram hjá neinum sem
kom inn á NASA við Austurvöll í
gærkvöld með hverjum fólkið þar
hélt. „Jón, þú ert stjarna“ og „Jón,
við fílum þig“ stóð m.a. á vegg-
spjöldum sem aðdáendur héldu á
lofti. Jón söng lagið „Words“ eftir
BeeGees-bræður og þótti standa sig
með mikilli prýði.
Varla sála á ferli á Akureyri
Varla var sála á ferli á Akureyri
meðan á keppninni stóð. Bæjarbúar
virtust annaðhvort límdir við sjón-
varpið eða staddir í Sjallanum þar
sem aðdáendur Önnu Katrínar
komu saman. Var greinilegt að
Anna Katrín, sem og söng lagið
„Imagine“ eftir John Lennon, átti
hug og hjörtu norðanmanna. Var
stemmningin gríðarleg og þótti hún
hafa staðið sig vel þrátt fyrir um-
ræðu um erfiðleika í röddinni und-
anfarna daga. Vakti þó athygli ein-
hverra að Kalli Bjarni átti
aðdáendur á tveimur borðum í hús-
inu. Úlfar í sauðargæru myndu
kannski sumir segja en ungu menn-
irnir sögðust taka hæfileikana fram
yfir landshlutann.
Vissu ekki að svo margir Grind-
víkingar væru til
Það var brjáluð stemmning í fé-
lagsheimilinu Festi í Grindavík þar
sem Grindvíkingurinn Kalli Bjarna
var hvattur áfram. Höfðu menn orð
á því að þeir vissu ekki að það væru
til svo margir Grindvíkingar, en
keppnin var sýnd á tveimur tjöldum
í húsinu. Mikið var um fjöl-
skyldufólk og var greinilegt að jafnt
ungir sem aldnir studdu Kalla
Bjarna sem söng lagið „Mustang
Sally“.
Hörðustu stuðningsmennirnir,
sjálfur bæjarstjórinn Ólafur Örn
Ólafsson þar með talinn, klæddu sig
í sjógalla til að styðja sinn mann.
Ætlunin var að Kalli Bjarni kæmi í
partíið þar sem átti að veita honum
peningaverðlaun frá Grindavík-
urbæ, en í gærkvöld var óljóst hvort
Grindvíkingurinn kæmist heim þar
sem veður var mjög vont á suðvest-
urhorninu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það var hörkustemmning í Vetrargarðinum í Smáralind þar sem keppnin fór fram í gærkvöld. Uppselt var á keppnina fyrir löngu og fengu færri miða en vildu
Rífandi stemmning á Stjörnuleit
Morgunblaðið/Garðar
Gríðarleg stemmning var í félagsheimilinu Festi í Grindavík þar sem hörðustu stuðnings-
mennirnir klæddust sjógöllum. Að lokinni var slegið uppi balli í Festi.
Morgunblaðið/Kristján
Akureyringar fjölmenntu í Sjallann á Akureyri í gærkvöld til að fylgjast
með úrslitakvöldinu í Idol stjörnuleit og eins vænta mátti var það Anna
Katrín Guðbrandsdóttir sem átti stuðning þeirra.
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðrún Árný, María Ósk og Íris Anna horfðu á Idol-Stjörnuleit á NASA og voru ekki í neinum
vafa um hvern þær studdu. Fjölmargir voru mætti á NASA til þess að styðja Jón Sigurðson.