Morgunblaðið - 17.01.2004, Síða 62

Morgunblaðið - 17.01.2004, Síða 62
ÍÞRÓTTIR 62 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ DANSKA dagblaðið Jyllandsposten gerði ekki mik- ið úr ósigri Dana gegn Íslendingum í handbolta- landsleiknum í Farum í fyrrakvöld. Í grein um leik- inn er sagt að þetta hafi verið æfingaleikur sem ekki skipti miklu máli. Danir hafi oft verið frægir fyrir að vinna æfingaleikina en tapa mikilvægu leikjunum, og það hefði því verið nánast léttir að horfa á þá tapa fyrir Íslendingum. Ekkert hafi ver- ið í húfi, Farum-höllin hafi aðeins verið setin að hálfu og það hafi sagt sitt um þýðingu leiksins að engin sjónvarpsstöð skyldi sýna beint frá honum. Sigfús Sigurðsson er þó til umfjöllunar hjá Jyl- landsposten eins og öðrum dönskum blöðum. „Þeg- ar níu mínútur voru liðnar rakst litla skyttan (Klavs Bruun Jörgensen) á risann Sigfús Sigurðs- son. Það var álíka og ef árabátur rækist á Óslóar- ferjuna,“ sagði meðal annars í grein blaðsins. Eins og árabátur rækist á Óslóar-ferjuna „ÞETTA var verra en ég átti von á, viðsýndum bara 50 prósent af okkar getu. Ég var að vonast eftir að fá fram 70–80 prósent gegn Íslendingum. En það var ekki bara þreyta í liðinu, það vantaði líka einbeitingu og ákveðni,“ sagði Tor- ben Winther, danski landsliðsþjálfarinn. „Fyrri hálfleikurinn var ágætur en ég verð líklega að taka á mig sökina varð- andi síðari hálfleikinn. Ég tók þá ákvörðun að leggja áherslu á að ná upp okkar rétta spili, í stað þess að halda áfram á þeirri braut sem við vorum komnir á seinni hluta fyrri hálfleiks. En við megum ekki missa móðinn eftir svona leik, það er þó þrátt fyrir allt ekki fyrr en í næstu viku sem við eigum að vera tilbúnir í slaginn,“ sagði Winther við danska fjölmiðla. „Verra en ég átti von á“ BENGT Johansson, þjálfari Svía, var ekki ánægður með Guðmund Þórð Guðmundsson, kollega sinn hjá íslenska liðinu, eftir leikinn. „Ég er vonsvikinn yfir því að hann skyldi ekki koma og þakka mér fyrir leik- inn. Stundum vinnast leikir og stundum tapast þeir og menn verða að geta tekið því,“ sagði þessi sig- ursæli þjálfari við Morgunblaðið. Íslenska liðið er mjög gott „Þetta var hörkuleikur þar sem bæði liðin vildu vinna, og hann var kannski einum of harður. Svona vill þetta þó þróast þegar baráttan er mikil þó að um æfingaleik sé að ræða. Íslenska liðið er mjög gott um þessar mundir og nýi leikmaðurinn [Garcia] átti virkilega gott kvöld. Það skipti miklu máli fyrir okk- ur að halda Ólafi Stefánssyni niðri, hann er besti leik- maður Íslands, og Sigfús Sigurðsson er líka alltaf erf- iður viðureignar, stór og sterkur,“ sagði Bengt Johansson. Bengt óhress með Guðmund ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Svíþjóð – Ísland Baltiska Hallen í Malmö, Svíþjóð, alþjóðlegt mót LK-bikarinn, föstudaginn 16. jan. 2004. Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 4:3, 7:3, 7:5, 9:5, 10:9, 11:10, 12:11, 14:11, 14:14, 16:15, 17:18, 18:19, 20:20, 20:22, 21:23, 24:23, 24:26, 27:26, 27:27, 29:27, 29:28. Mörk Svíþjóðar: Kim Andersson 7, Martin Boquist 6/3, Jonas Källman 3, Robert Arrhe- nius 3, Jonas Ernelind 3, Magnus Wislander 3, Staffan Olsson 2, Stefan Lövgren 2. Varin skot: Tomas Svensson 12/2 (þar af 4 aftur til mótherja), Peter Gentzel 6 (þar af 2 aftur til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 9/3, Jal- iesky Garcia 6, Sigfús Sigurðsson 4, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Einar Örn Jónsson 2, Patrekur Jóhannesson 2, Róbert Sighvats- son 1, Rúnar Sigtryggsson 1. Einnig léku: Snorri Steinn Guðjónsson og Ragnar Óskarsson. Gylfi Gylfason, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Gunnar Berg Viktorsson og Róbert Gunnarsson komu aldrei inn á. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 5, Reynir Þór Reynisson 6 (þar af 1 aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Jan Boye og Bjarne Munk Jensen frá Danmörku. Svíar nutu nokkurra vafaatriða sem vógu þungt. Áhorfendur: 3.912. Danmörk – Egyptaland .........................27:16 Mörk Dana: Boris Schnuchel 7, Claus Møll- er Jakobsen 3, Christian Hjermind 3, Lars Krogh Jeppesen 3, Morten Bjerre 2, Kasper Nielsen 2, Jesper Jensen 2, Michael Knud- sen 2, Søren Stryger 2, Torsten Laen 1.  Staðan í hálfleik var 12:8, Dönum í vil. Mót í Ungverjalandi Ungverjaland – Úkraína........................32:25 Mörk Ungverja: Mohacsi 7/6, Kertesz 5, Me- zei 4, Pasztor 4, Mocsai 3, Nagy 3, Ivancsik 2, Diaz 2, Gal 1, Ilyes 1.  Ungverjar eru í sama riðli og Ísland á EM. Undankeppni HM karla 1. riðill: Búlgaría – Litháen...................................17:35 4. riðill: Færeyjar – Rúmenía ...............................19:41 6. riðill: Belgía – Makedónía .................................21:29 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót karla, B-riðíll: Fylkir – Fjölnir.............................................4:0 Víkingur – Fram ..........................................3:0 KÖRFUKNATTLEIKUR Þór Þ. – Breiðablik Frestað Stefnt er að því að leikurinn fari fram klukk- an 16 á sunnudaginn. 1. deild karla: Skallagrímur – Selfoss ............................86:81 Staðan: Skallagrímur 12 11 1 1111:949 22 Fjölnir 11 9 2 1002:814 18 Valur 11 9 2 953:898 18 Ármann/Þróttur 12 7 5 996:915 14 Stjarnan 12 6 6 990:947 12 ÍS 12 5 7 948:1019 10 Þór A. 11 4 7 919:978 8 ÍG 11 3 8 883:997 6 Selfoss 12 2 10 964:1100 4 Höttur 10 1 9 706:855 2 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla Björninn – SR...............................................6:6  SIGFÚS Sigurðsson skoraði sitt 200. mark með landsliðinu í hand- knattleik gegn Svíum í Malmö í gær- kvöldi. Sigfús hefur skorað 202 mörk með landsliðinu frá því að hann skor- aði sitt fyrsta mark í sínum fyrsta landsleik – gegn Ástralíu í Kuma- moto í Japan 9. apríl 1996, 29:19.  DAGUR Sigurðsson var enn geymdur utan leikmannahópsins í gærkvöld þegar leikið var við Svía í Malmö. Það þótti ekki rétt að etja honum í þau átök en mögulegt er að hann komi eitthvað við sögu gegn Egyptum í dag. Björgvin Páll Gúst- avsson var líka meðal áhorfenda í Malmö.  SNORRI Steinn Guðjónsson fór af velli um miðjan fyrri hálfleik þegar meiðsli í nára gerðu vart við sig en Snorri hefur glímt nokkuð við þau að undanförnu. „Eftir að Elli (Elís Þór Rafnsson sjúkraþjálfari) hafði teygt vel á mér var ég aftur tilbúinn í slag- inn í seinni hálfleik og ég óttast þessi meiðsli ekkert,“ sagði Snorri Steinn.  SIGFÚS Sigurðsson fann ekkert fyrir bakmeiðslunum eftir leikinn – spilaði megnið af leiknum af fullum krafti í sókn og vörn.  ÓLAFUR Stefánsson nýtur greinilega mikillar virðingar í Sví- þjóð eins og annars staðar. Þegar landslið Íslands og Svíþjóðar voru kynnt með glæsibrag fyrir leikinn í Malmö í gærkvöld kynnti Íslands- vinurinn Krister Bromann, sem var þulur leiksins, Ólaf betur en aðra og áhorfendur í Baltiska Hallen klöpp- uðu duglega fyrir honum.  BROMANN lét líka áhorfendur klappa fyrir Ólafi í leiknum sjálfum þegar hann hafði sýnt sérstaklega góð tilþrif, og undir það var tekið í troðfullri höllinni, þar sem áhorfend- ur voru tæplega fjögur þúsund.  JONAS Källman, félagi Ólafs hjá Ciudad Real, lék í vinstra horninu hjá Svíum, og fékk það hlutverk að taka Ólaf úr umferð þegar Íslend- ingar voru manni færri. Källman er 22 ára og tveggja metra hár.    : ;<= : 3 >;??@;? 3:  A A  4   / .# . * - $ # ) # ) . + # 4   / ,* ,* / %( +- (/ *B +- *! "@ "@  ,, ,/ 6 +- %( (/ #) +B *B %ACD&> 4   ;  ; ! 5! +!$ . - FÓLK Ég er ekki vanur að kvarta yfirdómgæslu en þeir skoruðu mjög vafasöm mörk, eins og það síðasta í fyrri hálf- leik þegar leikmað- urinn var lentur fyrir innan Guð- mund í markinu þegar hann skoraði. Svona atvik vega þungt þegar leikur tapast með einu marki. En þó að við vær- um þremur mörkum undir í hálf- leik vorum við þá sterkari aðilinn. Við sköpuðum okkur fullt af dauða- færum en fórum afar illa með þau framan af. Sóknarleikurinn gekk vel upp allan tímann, virkilega vel smurður og hraðaupphlaupin flott, og mér finnst við vera á réttri leið. Vörnin var reyndar ekki alveg nógu góð en kom vel upp á köfl- um.“ Var þetta ekki að sumu leyti betri leikur en gegn Dönum? „Dan- ir eru alls ekki mikið slakari en Svíar en munurinn á leikjunum var sá að gegn Dönum spiluðum við svakalega vörn í 25 mínútur í seinni hálfleiknum, og unnum á því. Þessi leikur var miklu jafnari af okkar hálfu og sárt að tapa honum eins og þetta þróaðist. En við leggjumst ekki í neitt volæði yfir því, undirbúningurinn er mjög fínn og getur í raun vart verið betri. Þetta er frábær ferð, við höfum verið í friði í viku, dvalið í róleg- heitum á hóteli, æft og spilað gegn mótherjum í hæsta gæðaflokki. Það eru einmitt svona leikir sem bíða okkar í Slóveníu, þar byrjum við á að mæta mjög góðu liði Slóvena fyrir fullu húsi, þar sem verða miklu meiri læti en voru hér í Malmö í kvöld. Við bíðum spenntir eftir því, en fyrst eru það Egypt- arnir á morgun,“ sagði Guðjón Val- ur. Féll ekki okkar megin Með sigri gegn Egyptum stend- ur íslenska liðið uppi sem sigurveg- ari á mótinu, ef Danir vinna Svía með eins til átta marka mun. Sví- um nægir jafntefli til að vinna mót- ið. „Það var svo sannarlega tæki- færi fyrir hendi til að vinna Svíana í kvöld, og svekkjandi að tapa fyrir þeim einu sinni enn. Við vorum með undirtökin og með leikinn í höndunum um tíma og það var ekki gott að missa það frá sér. En í kvöld réð úrslitum hvort boltinn fór í stöngina inn eða stöngina út á réttum augnablikum, og það féll ekki okkar megin,“ sagði Patrekur Jóhannesson, sem spilaði meira en í undanförnum leikjum. Hann leysti Snorra Stein af sem leikstjórnandi talsverðan hluta leiksins. „Ég var ánægður með minn hlut í gær og aftur í dag og held að ég sé að ná mér á strik á ný. Þetta er mjög gott fyrir sjálfstraustið. Ég geri mér grein fyrir því að ég kom ekki vel út úr leikjunum við Sviss og hefði viljað fá aðeins meira traust en svona er þetta. Maður verður að vinna sér það inn á ný og ég ætla að berjast af krafti fyrir sæti í liðinu. En það sem skiptir höfuðmáli er að liðið virkar vel þrátt fyrir þenn- an ósigur. Við gerðum margt gott, þetta var æfingaleikur og góður undirbúningur fyrir Evrópukeppn- ina. Liðið er í góðu líkamlegu standi, andinn er frábær eins og alltaf og allir stefna í sömu átt. Það er aðalatriðið og ég er því bjart- sýnn á framhaldið,“ sagði Patrekur Jóhannesson. Thommy Nyhln / SCANPIX Svínn Kim Anderson hefur brotist framhjá Guðjóni Val Sigurðssyni og Snorra Steini Guðjónssyni og freistar þess að skora framhjá Reyni Þór Reynissyni í leiknum í Malmö í Svíþjóð í gærkvöldi. Svíar eru ekkert betri en Danir „OKKUR tókst því miður ekki að vinna Svíana að þessu sinni þó að við værum betri en þeir allan leikinn, á þeirra heimavelli fyrir fullu húsi áhorfenda. Við höfum enga ástæðu til að bera virðingu fyrir þessu sænska liði þó að það sé búið að vera mjög sigursælt, og get- um vel unnið það. Þetta er aðeins spurning um að ná því einu sinni, og þá er þetta komið,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, hornamaður íslenska landsliðsins, við Morgunblaðið eftir ósigurinn nauma gegn sænsku Evrópumeisturunum í Malmö í gærkvöld. Víðir Sigurðsson skrifar frá Malmö KEPPNI í úrvalsdeild karla í hand- knattleik hefst 6. febrúar, fimm dögum eftir að Evrópukeppni landsliða lýkur í Slóveníu. Þar leika þau átta félög sem urðu í fjórum efstu sætum hvors riðils í forkeppn- inni fyrir áramótin. Föstudagskvöldið 6. febrúar verða fjórir leikir í deildinni. Stjarnan – KA, Fram – ÍR, Haukar – HK og Valur – Grótta/KR. Önnur umferðin verður leikin strax á sunnudeginum, 8. febrúar, en þá mætast KA – Fram, HK – Stjarnan, Grótta/KR – ÍR og Valur – Haukar. Leikin er tvöföld umferð í deild- inni en henni lýkur hinn 4. apríl og þá tekur við úrslitakeppnin um Ís- landsmeistaratitilinn. Í loka- umferðinni mætast Stjarnan – ÍR, Haukar – KA, Grótta/KR – Fram og Valur – HK. Hin sjö félögin leika í 1. deild og þar hefst keppnin 5. febrúar og lýk- ur 4. apríl. Úrvalsdeild- in hefst 6. febrúar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.