Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vildarpunktar með! Verð á mann frá 19.500 kr. All taf ód‡rast á netinu ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 22 35 0 1 0/ 20 03 SUMARBÚSTAÐURINN Litli- Lundur í Austur-Fljótum eyði- lagðist í snjóflóði í óveðurshamn- um síðustu daga. Bústaðurinn er á jörðinni Lundi í Stíflu og var timburhús. Bústaðurinn stóð skammt fyrir ofan Ólafsfjarðarveg. Ekki er vit- að hvenær snjóflóðið féll en mað- ur á vélsleða sem fór þarna um í gær sá hvað gerst hafði. Allbrött og löng fjallshlíð er ofan við bú- staðinn og hefur eflaust orðið mikil snjósöfnun í brúnina efst í fjallinu í norðaustanáttinni sem verið hefur alla vikuna. Að sögn Jóns Númasonar, bónda á Þrasastöðum, sem kom á vettvang, er bústaðurinn rústir einar eftir. Hann hefur borist tugi metra niður á sléttlendi og hluti af brakinu stöðvast á þjóðvegin- um. Hann telur að snjóflóðið sé um 100 metrar á breidd. Það fór yfir Stíflurétt, skilarétt Austur- Fljótamanna sem stendur rétt neðan vegarins. Jón sagði ekki hægt að gera sér grein fyrir hvort verulegar skemmdir væru á rétt- inni, en hún er byggð úr stein- steypu og er nánast á kafi í flóð- inu. Ekki er vitað til að þarna hafi fallið snjóflóð áður. Allt fór úr skorðum Afleitt veður var í Fljótum á þriðjudag og miðvikudag og fóru samgöngur úr skorðum og er gríðarlegur snjómokstur fyrirsjá- anlegur til að koma þeim í horf. Öflugur snjóblásari aðstoðaði mjólkurflutningabíl á fimmtudag og tókst með hans aðstoð að ná mjólk hjá öllum framleiðendum í sveitinni en þá voru mjólkurtank- ar víða orðnir fullir. Hvorki náð- ust útsendingar sjónvarps né út- varps í tvo sólarhringa nema langbylgjusendingar. Skólahald í sveitinni lá niðri í þrjá daga en hófst aftur á föstudag þrátt fyrir ófærð. Langt er síðan álíka óveð- urskafli hefur komið í Fljótum, snjókoman var með því mesta sem menn þekkja þannig að óvenjumikinn snjó setti niður á tiltölulega stuttum tíma. Sumarbústaður í Fljót- um eyðilagðist í snjóflóði Fljótum. Morgunblaðið. OLÍUFÉLÖGIN Esso og Olís lækkuðu stað- greiðsluverð á bensíni og dísilolíu á þjónustu- og sjálfsafgreiðslustöðvum þeirra á höfuðborgarsvæð- inu í gær, degi eftir að verðið var hækkað en viku eftir að það var lækkað þegar Atlantsolía hóf sölu á bensíni í Kópavogi. (Skeljungur hafði í gærkvöldi ekki tilkynnt um verðbreytingar hjá sér.) Segja tals- menn félaganna að fullt tilefni hafi verið til hækk- unar á fimmtudag vegna þróunar á heimsmarkaði en félögin vilji bjóða samkeppnishæft verð og góða þjónustu við viðskiptavini sína. Í tilkynningu frá Esso segir m.a. að á undanförn- um viku hafi verið „talsverðar sveiflur“ í eldsneyt- isverði á Íslandi. Í gegnum árin hafi Olíufélagið allt- af tekið mið af heimsmarkaðsverði við verðákvarðanir á eldsneyti, sem hafi „þar af leiðandi verið trúverðugar og gegnsæjar.“ Magnús Ásgeirsson hjá Olíufélaginu segir félagið hafa rekið ábyrga verðstefnu þar sem heimsmark- aðsverði hafi verið fylgt á hverjum tíma. „Við erum með tiltekna verðstefnu þar sem við bjóðum sam- keppnishæft verð hverju sinni. Vildarviðskiptavinir okkar, sem eru með kort, eiga þá ekki að þurfa að greiða hærra verð en sem nemur 30 aurum á lítrann en það sem best er boðið á hverju markaðssvæði fyrir sig. Í því skyni höfum við verið með margs kon- ar tilboð á stöðvum okkar víða um land.“ Samúel Guðmundsson hjá Olís segir að fullt til- efni hafi verið til að hækka verðið í vikunni, miðað við þróun á heimsmarkaðsverði, en Olís hafi þá stefnu að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt sam- keppnishæft verð og góða þjónustu. Augljós tengsl við Atlantsolíu Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda (FÍB), segir það ljóst að ol- íufélögin séu að bregðast við sölu Atlantsolíu á einni bensínstöð. Hann segir augljós tengsl hafa verið milli þess að ákveðið var að hækka verðið á fimmtu- dag þegar birgðir kláruðust hjá Atlantsolíu. Þó að heimsmarkaðsverð hafi hækkað síðustu vikur sé hækkunin ekki það mikil að hún réttlæti svona skyndileg viðbrögð. Gengi dollars sé einnig lágt „Þetta sýnir okkur að ekki veitir af auknu aðhaldi á markaðnum. Nýr aðili, þótt lítill sé, getur greini- lega haft veruleg áhrif á þetta samkeppnisumhverfi- .Við vonum bara að þessi nýi aðili fái þann vind í seglin sem heldur markaðnum á tánum, umfram það sem við höfum þekkt fram að þessu. Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum þurfa líka að skapa nýj- um aðilum þannig skilyrði að þeir komist inn á markaðinn,“ segir Runólfur og vísar þar til lóðaút- hlutana sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu eftir þessa breytingu hjá Esso og Olís er 93,70 kr. og verð á dís- illítranum 35,90 kr. Verð á Esso Express sjálfsaf- greiðslustöðvum og ÓB-stöðvum er 92,50 kr. á bens- íni og 34,90 kr. á dísilolíu. Er þetta sama verð og í „bensínstríðinu“ svonefnda er Atlantsolía hóf bens- ínsölu í síðustu viku. Orkan breytti ekki verði hjá sér í vikunni en þar er bensínlítri á 92,40 kr., nema 90,80 kr. á Akureyri, en dísilolía er alls staðar á 34,80 kr. Bensínið lækkaði aftur í gær eftir hækkun í fyrradag Segjast vilja bjóða samkeppn- ishæft verð JÓN Kristjánsson heilbrigðisráðherra seg- ir ekkert annað í spilunum en að stjórn- endur Landspítala – háskólasjúkrahúss þurfi áfram að laga starfsemi spítalans að fjárlögum ársins. „Ég get ekki gefið nein loforð um annað heldur en það sem fjár- lögin kveða á um,“ sagði ráðherra við Morgunblaðið síðdegis í gær. Áður höfðu forystumenn ASÍ, BHM, BSRB og Læknafélags Íslands, auk starfs- mannaráðs spítalans afhent honum ályktun þar sem niðurskurði á þjónustu og upp- sögnum innan heilbrigðisþjónustunnar er harðlega mótmælt. Er í ályktuninni skorað á ráðherra að taka þær ákvarðanir til end- urskoðunar. Eins og fram hefur komið þurfa stjórnendur spítalans að spara um 800 til 1000 milljónir í rekstri spítalans á þessu ári. Jón sagði þegar hann tók við álykt- uninni að verulegum fjármunum hefði ver- ið varið til heilbrigðismála síðustu árin. Þrátt fyrir það væru „menn að glíma við vaxandi fjárþörf,“ bætti hann við. „Sú til- vera sem ég bý við núna er að laga starf- semi spítalans að þeim fjárveitingum sem fyrir liggja á tveimur árum. Þetta setur auðvitað forsvarsmenn spítalans í mjög vandasama stöðu.“ Hann lagði þó áherslu á að sparnaðurinn kæmi sem minnst niður á þeirri þjónustu sem spítalanum bæri að veita, öryggi spítalans og starfsfólki hans. Kvaðst hann að síðustu myndu kynna rík- isstjórninni ályktunina og ræða hana á fundi hennar. Þjóðarsátt ríki um stefnuna Jón sagði í samtali við Morgunblaðið að honum fyndist mikið úr því gert að það vantaði stefnumörkun fyrir LSH. „Ég lít svo á að það sé þjóðarsátt um það sem spítalinn eigi að gera í stórum dráttum; þetta er hátæknispítali og kennsluspítali og þetta er endastöð í heilbrigðiskerfinu. Sú stefnumörkun hefur alltaf legið fyrir.“ Hann sagði einnig að honum fyndist of mikið gert úr starfi þeirrar nefndar, sem hann hefði skipað á síðasta ári, og hefði það hlutverk að skilgreina nánar hlutverk LSH. „Nefndin sem Jónína Bjartmarz [al- þingismaður] stýrir á m.a. að draga mörk- in milli einkaframtaksins og spítalans,“ segir hann og ítrekar að heildarstefnu- mörkun fyrir spítalann hafi alltaf legið fyr- ir. „Ég hef ekki orðið var við að deilt væri um hana.“ Inntur eftir því hvort hann telji að þjóðarsátt ríki um sparnaðaraðgerðir LSH segist hann ekki geta ætlast til þess. „Því fylgja alltaf mjög erfiðar aðgerðir þegar hreyft er við þessum málaflokki. Og ég get ekki ætlast til þess að allir séu sammála um þær.“ Fram kom í máli forystumanna fyrr- greindra stéttarfélaga, er þeir afhentu ráðherra ályktunina, að þeir hefðu miklar áhyggjur af því að sparnaðaraðgerðir myndu koma illa niður á þjónustu spít- alans við sjúklinga. Sömuleiðis kváðust þeir hafa miklar áhyggjur af þeim stóra hópi starfsmanna sem til stæði að segja upp. Þá sagði Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB, að hann teldi að með þess- um aðgerðum væru stjórnvöld að fara bak- dyramegin að því að einkavæða heilbrigðiskerfið. „En við vitum jafnframt að heilbrigðisráðherra hefur stundum sýnt góðan vilja til að standa vörð um sam- félagslega rekna heilbrigðisþjónustu og væntum þess að hann beiti sér af alefli þannig að þessar ákvarðanir verði teknar til baka.“ Jón Snædal, varaformaður Læknafélags Íslands, benti á að nú væru tillögur stjórn- enda spítalans að taka á sig endanlegar myndir þótt enn væri eftir að útfæra þær nákvæmlega. „En eftir því sem við, sem eigum að veita þjónustu á spítalanum, sjáum best eru tilllögurnar í raun og veru óframkvæmanlegar; við sjáum ekki hvern- ig hægt er að hrinda þeim í framkvæmd.“ Hann sagðist ennfremur ekki geta ímynd- að sér afleiðingarnar yrði tillögunum öll- um, þrátt fyrir allt, hrint í framkvæmd. Morgunblaðið/Jim Smart Forystumenn stéttarfélaga hittu heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, í gær. Við borðið sitja einnig Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varafor- seti ASÍ, Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og Einar Oddsson, formaður starfsmannaráðs LSH. Vilja endurskoðun á fyrirhuguðum samdrætti hjá LHS Heilbrigðisráðherra segist bundinn af fjárlögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.