Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 61 UNDANFARIN ár hefur stundum komið fram sú hugmynd að sameina Glímufélagið Ármann og Knatt- spyrnufélagið Þrótt en ekkert hefur orðið af því. Á síðustu misserum hafa raddir innan þessara félaga orðið háværari um að rétt væri að sameina félögin enda hafa þau verið í góðu samstarfi undanfarin ár. Nokkrar þreifingar hafa átt sér stað að undanförnu um sameiningu, en of snemmt er að segja til um hvort af henni verður og þá hve- nær. Formenn félaganna sögðu í sam- tali við Morgunblaðið í gær að sam- starfið væri gott og félögin væru með ólíkar íþróttagreinar auk þess sem skrifstofa Ármanns væri í Þróttarheimilinu. Snorri Þorvaldsson, nýkjörinn formaður Ármanns, sagði við Morg- unblaðið að það lægi ljóst fyrir að Ármann yrði að fara úr Sóltúninu með aðstöðu sína vegna skipulags- mála borgarinnar. „Það er alveg ljóst hvert við vilj- um fara,“ sagði Snorri og vísaði til hugmynda innan félagsins um að flytja í Laugardalinn. Rætt um sameiningu Ármanns og Þróttar KR-ingar eru sem stendur íþriðja sæti 1. deildar kvenna, tveimur stigum á eftir ÍS og Kefla- vík, en Haukastúlk- ur eru í efsta sæti 2. deildar og hafa ekki tapað leik í deildinni það sem af er vetri. „Ef við skoðum í hvaða deildum lið- in leika á KR að hafa betur, en staðreyndin er einfaldlega sú að Haukar eru með eitt besta liðið á landinu. Ég er því nokkuð viss um að leikurinn verður KR-stúlkum ekki eins auðveldur og margir virð- ast halda,“ sagði Hlynur Skúli og bætti við að KR-liðið væri trúlega sterkara og ætti að hafa betur, en sagðist viss um að Haukar myndu standa sig vel. „Liðin léku í hinni bikarkeppn- inni og þar vann hvort lið um sig einn leik þannig að þau standa jöfn eftir leiki vetrarins. Haukar eru með gríðarlega skemmtilegt lið. Þetta eru ungar stelpur sem eru orðnar mjög góðar og það verður gaman að fylgjast með þeim í fram- tíðinni. Liðið leikur fína vörn og leikskilningur þess er mikill. Það stafar meðal annars af því að Hel- ena [Sverrisdóttir] kemur með bolt- ann í sóknina og hún er hávaxinn og sér því völlinn betur en margir smærri bakverðir sem koma með boltann fram. Hún er yfirveguð og finnur alltaf einhvern lausan sam- herja og svo lendir hún sjaldan í vandræðum með boltann þó svo leikið sé undir pressu. Hún er þó alls ekki ein í liðinu, það er hægt að nefna margar góð- ar, til dæmis Pálínu [Gunnlaugs- dóttur], en þessar tvær eru í lands- liðshópnum sem valinn var á dögunum. KR-stúlkur eru leikreyndari og það hjálpar í svona leikjum. Mér hefur líka fundist leikur liðsins smella saman að undanförnu. Er- lenda stúlkan virðist falla vel að leik liðsins og það háir Haukum núna að vera ekki með erlendan leikmann. KR-ingar hafa einnig þær Hildi [Sigurðardóttur] og Georgiu [Kristiansen] sem er einn besti varnarmaður landsins. Raunar er Pálína í Haukum einnig mjög góður varnarmaður og það verður frjóð- legt að sjá hvorri tekst betur upp á móti sínum manni í þessum leik. Ef liðin leika maður á mann væri gam- an að sjá Georgiu leika á móti Hel- enu og Pálínu á móti Hildi. Hins vegar eru KR-ingar veik- astir fyrir á móti svæðisvörn þannig að ég á von á að Haukar beiti slíkri vörn talsvert,“ sagði Hlynur Skúli. Meira býr í Keflavíkurliðinu „Þarna mætast tvö efstu liðin í deildinni og því verður vonandi um spennandi og skemmtilegan leik að ræða. Keflvíkingar eru að mínu mati sterkara liðið á pappírnum, en um það er auðvitað ekki spurt þeg- ar leikurinn hefst. Mér hefur fund- ist Keflavíkurliðið leika verr í vetur en búast hefði mátt við af því, það býr meira í Keflavíkurliðinu. Á sama tíma hefur ÍS leikið nær sinni getu. Liðin hafa mæst tvívegis í deildinni og ÍS haft betur í báðum leikjunum og ef liðið á góðan dag á sunnudaginn getur allt gerst, en ég held að Keflavík hafi betur,“ segir Hlynur Skúli. Hann segir Keflvíkinga vera með breiðari hóp og trúlega besta vara- mannabekkinn á landinu. „Ef Kefl- víkingar spila jafnt á öllum hópn- um, eins og þeir hafa gert mikið í vetur, er aldrei að vita hvernig fer. Ef það verður hins vegar frekar leikið á þeim sem eiga góðan dag þá vinna þær. Stúdínur eru hins vegar með skemmtilegt og reynt lið. Bæði lið munu væntanlega reyna bæði maður á mann vörn og svæðisvörn en það sem ég held að geti ráðið úr- slitum er hvernig Erla Þorsteins- dóttir spilar hjá Keflavík. Það hefur mikið að segja fyrir liðið að hún nái sér á strik undir körfunni. Stúdínur eru reyndar eitt af fáum liðum í deildinni sem hefur þokkalega hæð þannig að þetta verður spennandi,“ segir Hlynur Skúli. Hlynur Skúli Auðunsson á von á spennandi undanúrslitaleikjum Morgunblaðið/Þorkell Bryndís Guðmundsdóttir, 15 ára Keflavíkurmær, á fullri ferð í leik á móti KR. Keflavík mætir ÍS í bikarleik annað kvöld. Hefur trú á KR og Keflavík „ÞETTA verða bráðfjörugir leikir þar sem KR og Keflavík eiga að fara með sigur ef mark er tekið á leikmannahópunum. Það getur hins vegar allt gerst og hvorugur leikurinn er unninn fyrirfram,“ sagði Hlynur Skúli Auðunsson, þjálfari ÍR-stúlkna, um undan- úrslitaleiki kvenna í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar sem fara fram um helgina. Þar mætast KR og Haukar í dag og Keflavík og ÍS á morgun. Skúli Unnar Sveinsson skrifar KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, undanúrslit kvenna: DHL-höll: KR - Haukar .......................17.30 Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, undanúrslit karla: Grindavík: UMFG - Keflavík....................16 Stykkishólmur: Snæfell - UMFN.............16 1. deild karla: Egilsstaðir: Höttur - Þór A. ......................15 Grindavík: ÍG - Fjölnir ..............................18 Sunnudagur: Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, undanúrslit kvenna: Keflavík : Keflavík - ÍS .........................19.15 Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin: Sauðárkrókur: Tindastóll - KFÍ ..........19.15 HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: Áskorendakeppni Evrópu, konur: Vestmannaeyjar: ÍBV - Etar ...............16.30 1. deild kvenna: Ásgarður: Stjarnan - Víkingur .................16 Kaplakriki: FH - Grótta/KR.....................16 KA-heimilið: KA/Þór - Valur ....................16 Sunnudagur: Áskorendakeppni Evrópu, konur: Vestmannaeyjar: ÍBV - Etar ....................14 BLAK Bikarkeppni kvenna, úrslitaleikur: Grindavík: Þróttur R. - KA.......................14 GLÍMA Íslandsmótið, Leppinmótaröðin, 2. umferð, fer fram í Reynihlíð við Mývatn í dag, laug- ardag, kl. 14. KNATTSPYRNA Laugardagur: Norðurlandsmótið, Powerademótið: Boginn: Hvöt - KA ................................12.15 Boginn: Völsungur - Leiftur/Dalvík....15.15 Sunnudagur: Boginn: Tindastóll - KS ........................16.16 Boginn: KA - Þór...................................20.15 Reykjavíkurmót karla, A-riðill: Egilshöll: KR - ÍR......................................19 Egilshöll: Valur - Leiknir ..........................21 SUND Sundmót SH og KB banka fer fram í Sund- höll Hafnarfjarðar. Úrslitasund verða í dag kl. 16.50 og á morgun, sunnudag, kl. 15.45. BORÐTENNIS Stigamót í borðtennis fer fram í Íþrótta- húsi TBR á morgun. Reiknað er með að úr- slitaleikir í karla- og kvennaflokki hefjist um kl. 15. UM HELGINA Staffan Johansson landsliðsþjálf-ari skipuleggur æfingabúðirnar og með honum verða golfkennararn- ir Hörður Arnarson, Derrick Moore, Úlfar Jónsson og Ingi Rúnar Gísla- son auk Gauta Grétarssonar sjúkra- þjálfara sem sjá mun um þrek- og styrkleikaþjálfun. Þeir kylfingar sem teljast framtíð- arkylfingar og fara í þessa æfinga- ferð eru: Alfreð Kristinsson GR, Arna Rún Oddsdóttir GH, Axel Ásgeirsson GR, Axel Bóasson GK, Ásta Birna Magnúsdóttir GK, Björgvin Sigur- bergsson GK, Birgir Leifur Haf- þórsson GKG, Birgir Már Vigfússon GR, Björn Guðmundsson GA, Björn Þór Hilmarsson GR, Elfar Halldórs- son GA, Guðni B. Ólafsson GKj, Guð- jón Henning Hilmarsson GKG, Guð- mundur Ingvi Einarsson GR, Gunnar Þór Gunnarsson GKG, Haukur Már Ólafsson GKG, Heiðar Davíð Bragason GKj, Helena Árna- dóttir GA, Helga Rut Svanbergs- dóttir GKj, Kristín Rós Kristjáns- dóttir GR, Kristján Þór Einarsson GKj, Kristján V. Þórarinsson GK, Magnús Lárusson GKj, María Ósk Jónsdóttir GA, Nína Björk Geirs- dóttir GKj, Ólafur Björn Loftsson NK, Ólafur Már Sigurðsson GK, Ólöf María Jónsdóttir GK, Pétur Óskar Sigurðsson GR, Pétur F. Pét- ursson GR, Rúnar Óli Einarsson GS, Sigmundur Einar Másson GKG, Sig- urbergur Sveinsson GK, Sigurður Jónsson GS, Sigurður P. Oddsson GR, Snorri Páll Ólafsson GR, Stefán Orri Ólafsson GL, Stefán Már Stef- ánsson GR, Sunna Sævarsdóttir GA, Tinna Jóhannsdóttir GK, Tómas Sal- mon GR, Vera Einarsdóttir Vajö Svíþjóð, Þórður Gissurarson GR og Örn Ævar Hjartarson GS. Kylfingar til æfinga í Flórída FRAMTÍÐARKYLFINGAR Íslands, alls 44 að tölu, halda á mánudag- inn til Flórída í Bandaríkjunum þar sem þeir munu dvelja við æfing- ar í tíu daga. Ferðin er farin í samvinnu við Icelandair og dvalið verður á Orange County National þar sem eru tveir 18 holu golf- vellir auk 9 holu æfingavallar og gott æfingasvæði. Morgunblaðið/Arnaldur Björgvin Sigurbergsson  ANDRI Steinn Birgisson, knatt- spyrnumaður úr Fylki, er genginn til liðs við Fram og hefur samið til þriggja ára við Safamýrarliðið. Andri Steinn er tvítugur og lék með Fjölni þar til í fyrra, þegar hann fór til Fylkis, en þaðan var hann lánaður um sumarið til Aftur- eldingar og spilaði með Mosfell- ingum í 1. deildinni.  ÓMAR Jóhannsson, markvörður Keflvíkinga og 21-árs landsliðsins undanfarin tvö ár, hefur gengið frá félagaskiptum yfir í sænska 2. deildar liðið Bunkeflo frá Malmö, en hann hafði áður samið við félag- ið. Ómar var í nokkur ár í röðum Malmö FF og var þá lánaður eitt tímabil til Bunkeflo, svo hann kann- ast við sig þar.  THEODÓR Elmar Bjarnason, fyrirliði drengjalandsliðsins í knatt- spyrnu, hefur gengið frá félagskipt- um yfir í KR en hann hefur dvalið í Noregi í nokkur ár og spilað með unglingaliðum Molde.  SARA Jónsdóttir og Ragna Ing- ólfsdóttir féllu úr leik í 1. umferð í einliðaleik á alþjóðlega sænska meistaramótinu í badminton í Stokkhólmi í gær. Sara tapaði fyrir Önnu Rice frá Kanada 11:6 og 11:2 og Ragna fyrir Elisabeth Cann frá Englandi 11:6 og 11:0.  WEST Ham fékk í gær sænska markvörðinn Rami Shaaban lánað- ann frá Arsenal í einn mánuð. Hann verður varamarkvörður í leik liðsins gegn Sheffield United í dag, þar sem Stephen Bywater verður í markinu. FÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.