Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ TRAUST, heilindi, lipurð, einfald- leiki og eldmóður eru þau grunngildi sem Síminn vill standa fyrir í fram- tíðinni og kynnt voru á blaðamanna- fundi fyrirtækisins í Skautahöllinni í Laugardal, en gildin eru meðal niður- staðna einnar um- fangsmestu mörk- unarvinnu (branding) sem nokkurt íslenskt fyrirtæki hefur farið í. Síminn vill, samkvæmt hinni nýju stefnu, leiða mann inn í framtíðina, hann vill bjóða upp á allt á einum stað, eins og það er orðað, og auðga líf viðskipta- vina og annarra sem honum tengjast. Verkefnið tók tæpt ár í vinnslu og að því komu auk erlendra og íslenskra ráðgjafa og hönnuða, allir starfs- menn Símans. Á fundinum kom fram að breytt samkeppnisumhverfi Símans og til- koma verðugs samkeppnisaðila eins og það var orðað, væri helsta ástæða hinnar nýju mörkunar félagsins, þörf hefði verið fyrir það að staldra við og skerpa áherslur fyrirtækisins. Á fundinum kynnti Brynjólfur Bjarna- son, forstjóri Símans, nýtt merki fé- lagsins, en þegar hef- ur verið hafist handa við að setja það upp á öllum sölustöðum Símans. Í framhald- inu verða allar versl- anir Símans endurinnréttaðar í takt við hina nýju stefnumótun og ímynd. Brynjólfur sagði á fundinum að merkið ætti í grunninn að tákna S fyrir Símann, sem væri nafnið sem félagið vildi vera þekkt fyrir í fram- tíðinni. Jafnframt væri hægt að líta á merkið eins og stílfærða þvívídd- arteikningu af hnetti sem hnykkir þannig á alþjóðlegri skírskotun. Í merkinu má líka sjá tvo hlekki snú- ast hvorn um annan og minna þannig á hvers konar samskipti, að því er fram kom á fundinum. Ný stefna og nýtt merki hjá Símanum Í framtíðinni verð- ur unnið af eldmóði MAGNÚS Gunnarsson, stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands, segir að af sex við- skiptum fruminnherja með bréf Eimskipa- félags Íslands á árinu 2004 hafi fjögur þeirra verið tilkynnt fyrir fram til regluvarðar félags- ins. Tvö þeirra hafi verið tilkynnt eftir á til regluvarðar. Segir hann að stundum sé það þannig að viðskiptin eigi sér stað rétt fyrir lok- un og menn ekki náð saman. Segist hann telja að viðskiptin séu því öll með eðlilegum hætti. Magnús segir að viðskipti fruminnherja hafi verið rædd á stjórnarfundi í gær. Þar hafi verið ákveðið að loka fyrir innherjaviðskipti með fé- lagið fram yfir birtingu ársuppgjörs hinn 26. febrúar næstkomandi. Í lögum um verðbréfaviðskipti, lög nr. 33/ 2003, kemur fram að áður en fruminnherji á viðskipti með verðbréf útgefanda, sem hann er fruminnherji í, skal hann ganga úr skugga um að ekki liggi fyrir innherjaupplýsingar hjá út- gefanda. Sama gildir um fyrirhuguð viðskipti með fjármálagerninga sem tengdir eru slíkum verðbréfum og fyrirhuguð viðskipti aðila sem er fjárhagslega tengdur fruminnherja. Jafnframt skal fruminnherji, áður en hann, eða aðili fjárhagslega tengdur honum, á við- skipti með verðbréf útgefandans, tilkynna það til regluvarðar félagsins. En regluvörður hefur eftirlit með því innan félags að reglunum sé framfylgt og um skráningu samskipta sem fram fara á grundvelli reglnanna. Í leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlitsins 2/2001, sem voru endurskoðuð í júlí á síðasta ári, kemur fram að á fruminnherjum hvíli til- kynningarskylda til regluvarðar fyrir viðskipti og eftir að þau hafa átt sér stað. „Fruminn- herjar skulu þannig hafa samráð við regluvörð áður en þeir, eða aðilar fjárhagslega tengdir þeim, eiga viðskipti með bréf útgefandans eða fjármálagerninga þeim tengda,“ að því er segir í leiðbeinandi tilmælum FME. Þar segir ennfremur að regluvörður eigi að ráðleggja fruminnherja um fyrirhuguð við- skipti og aðstoða hann á þann hátt við að upp- fylla rannsóknarskyldu sína. Reglur eiga að takmarka innherjasvik Í ræðu Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, á ársfundi eftirlitsins í október sl. kom fram að á síðustu árum hafi Fjármálaeftirlitið lagt hart að útgefendum skráðra verðbréfa að skapa hjá sér umgjörð um starf sitt á verðbréfamarkaði sem m.a. eigi að takmarka verulega hættu á innherjasvikum ef rétt sé á málum haldið. Setning reglna um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipti frum- innherja eigi að skapa þessa umgjörð. Þar komi til skipan regluvarðar, skylda fruminn- herja til að ganga úr skugga um að ekki liggi fyrir innherjaupplýsingar áður en viðskipti fara fram og sérstakar varúðarráðstafanir þegar aðrir en fruminnherjar búa yfir inn- herjaupplýsingum. „Treglega hefur gengið að koma þessari um- gjörð á hjá öllum útgefendum skráðra verð- bréfa og hefur Fjármálaeftirlitið þurft að beita dagsektum í því skyni. Fjármálaeftirlitið hefur í nokkrum tilvikum haft afskipti af félögum sem ekki hafa náð að festa þessa fyrirbyggj- andi umgjörð nægilega í sessi. Dæmi um það eru viðskipti fruminnherja stuttu fyrir birtingu uppgjöra. Jafnframt hefur Fjármálaeftirlitið aukið stuðning við regluverði og skapað þeim aðhald með heimsóknum í tengslum við viða- mikil viðskipti, kynningarfundum o.fl. Þessar aðgerðir eru að mati Fjármálaeftirlitsins að skila sér hægt og bítandi,“ að því er fram kom í ræðu Páls Gunnars. Ekki kveðið á um lokuð tímabil Að sögn Sigríðar Hrólfsdóttur, fram- kvæmdastjóra fjármálasviðs Eimskipafélags Íslands, setti Eimskipafélagið sér ákveðnar reglur um innherjaviðskipti hinn 31. júlí sl. Þær reglur séu í samræmi við gildandi lög um verðbréfaviðskipti, l. 33/2003, og leiðbeinandi tilmæli frá Fjármálaeftirlitinu 2/2001 og hafa reglurnar verið samþykktar af Fjármálaeftir- litinu. Í Morgunblaðinu í gær sagði Magnús Gunn- arsson að engar sérstakar reglur giltu um við- skipti innherja hjá Eimskipafélaginu aðrar en þær almennu reglur sem gilda um félög sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Að sögn Sigríðar kveða reglurnar ekki á um svokölluð lokuð tímabil, en samkvæmt leið- beinandi tilmælum FME, er útgefendum verð- bréfa í sjálfsvald sett hvort þeir afmarki „lokuð tímabil“ til að mynda síðustu vikur fyrir birt- ingu ársreiknings eða milliuppgjörs þar sem öll viðskipti starfsmanna eða innherja eru bönnuð. „Það sem stjórnarformaður Eim- skipafélagsins, Magnús Gunnarsson, átti við með með ummælum sínum um innherjareglur félagsins var að félagið hefur ekki sett neinar sérstakar reglur umfram það sem leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins segja til um,“ að sögn Sigríðar. Gjörbreytt ásýnd Eimskipafélagsins Greiningardeildir viðskiptabankanna fjöll- uðu áfram um kaup fruminnherja í Eimskipa- félaginu í netfréttum sínum í gær. Í Morgun- korni Íslandsbanka í gær kemur fram að stöðutökur innherja í Eimskipafélaginu í gegn- um félög sem þeim tengjast veki enn meiri at- hygli eftir að fréttist að Eimskipafélagið hefði gengið frá sölu á Skagstrendingi og fest kaup á norsku fyrirtæki. „Í vikunni var jafnframt gengið frá sölu á HB og ÚA. Eftir er að selja Boyd Line í Bretlandi, sem var í eigu ÚA en fylgdi ekki með í sölunni. Þessi viðskipti gjör- breyta ásýnd Eimskipafélagsins og rekstri þess í framtíðinni. Upplýsingar um viðskiptin eru takmörkuð, nýjasta uppgjör Eimskipa- félagsins er fyrir 9 mánuði 2003 og inniheldur ekki lokauppgjör á þeim miklu hlutabréfavið- skiptum sem Burðarás átti aðild að í septem- ber. Nýjustu uppgjör ÚA, HB og Skagstrend- ing eru frá júní í fyrra,“ að því er fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka. Ekki markaðinum til framdráttar Þar segir ennfremur að vegna alls þessa sé illmögulegt að meta hvernig efnahagsreikning- ur Eimskipafélagsins stendur. „Þannig eru ekki forsendur til að meta vaxtaberandi skuld- ir (og þar með vaxtagreiðslur í framtíðinni), hlutfall skulda í efnahag (við mat á ávöxtunar- kröfu), áætla fjárfestingarþörf til framtíðar og meta þörf fyrir rekstrarfé svo dæmi séu tekin. Allt eru þetta mikilvægar upplýsingar sem fjárfestar þurfa á að halda við verðmat fyr- irtækja og ákveða hvort rétt sé að kaupa í þeim eða selja. Þessar upplýsingar liggja að öllum líkindum fyrir hjá stjórn félagsins, ásamt betri upplýsingum um samningaviðræður við kaup og sölu fyrrgreindra fyrirtækja Við þessar aðstæður er hætta á að almennir fjárfestar lesi í viðskipti innherja með þeim hætti að þar fari aðilar sem hafi mun meiri og betri verðmyndandi upplýsingar en aðrir. Þetta er óeðlilegt og ekki markaðinum til fram- dráttar. Í því samhengi má benda á að sam- kvæmt lögum um verðbréfaviðskipti er inn- herjum sem búa yfir mikilvægum upplýsingum um framtíðaráform félags bannað með afdrátt- arlausum hætti að eiga viðskipti undir slíkum kringumstæðum, án tillits til þess hvort um ásetning væri að ræða. Af þessu sést að fullt tilefni er til að eftirlitsaðilar kanni málin frek- ar,“ að því er segir í Morgunkorni Íslands- banka. Tímasetningin óheppileg Í markaðsyfirliti Landsbanka Íslands kem- ur fram að greiningardeild Landsbankans telji að tímasetning innherjaviðskipta með bréf Eimskipafélagsins sé óþægileg þar sem stjórn félagsins kunni að hafa búið yfir upplýsingum um kaupin þegar innherjaviðskiptin áttu sér stað. „Afar mikilvægt er fyrir trúverðugleika markaðarins að leikreglum hans sé fylgt, til að tryggja að allir fjárfestar sitji við sama borð,“ að því er segir í markaðsyfirliti Landsbankans í gær. Verð hlutabréfa Eimskipafélags Íslands héldu áfram að hækka í Kauphöll Íslands í gær. Alls voru viðskipti með bréf félagsins fyr- ir tæpar 727 milljónir króna og nam hækkun dagsins 1,2%. Hafa bréf félagsins því hækkað um rúm 16% frá því um áramót, úr genginu 7,10 í 8,25. Ekki var tilkynnt um viðskipti fruminnherja í Eimskipafélaginu til Kauphallarinnar í gær. Viðskipti fruminnherja í Eimskipafélagi Íslands ekki öll tilkynnt fyrirfram til regluvarðar Meirihluti við- skipta tilkynnt- ur fyrirfram Lokað fyrir viðskipti innherja fram að uppgjöri Morgunblaðið/Jim Smart MUNURINN á hæstu verðhug- mynd Kaupfélags Eyfirðinga (KEA) og feðganna af Snæfellsnesi hjá Út- gerðarfélaginu Tjaldi fyrir Útgerð- arfélag Akureyringa (ÚA), sem Eim- skipafélagið hefur selt þeim síðarnefndu, var 600 milljónir króna. Verðhugmyndir KEA fyrir ÚA voru á bilinu frá 7 til 8,5 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Andra Teitssyni, framkvæmdastjóra KEA. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru verðhugmyndir feðg- anna af Snæfellsnesi hins vegar á bilinu frá 8,7 til 9,1 milljarður. Þriðja fyrirtækið sem lýsti form- lega yfir áhuga á að kaupa ÚA var Skinney-Þinganes. Verðhugmynd fyrirtækisins hljóðaði upp á 8,5 millj- arða króna, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, þ.e. sömu fjárhæð og hæsta verðhugmynd KEA. ÚA af var selt á 9 milljarða króna. Andri Teitsson segir að þótt Landsbankinn hafi í yfirlýsingu sagt að öllum áhugasömum aðilum um kaup á ÚA hafi verið kunnugt um þær leikreglur sem um söluna ættu að gilda, þá hafi það ekki átt við um hann. Honum hafi ekki verið ljóst hvernig ferlið yrði. Hann segist hafa heyrt yfirlýsingu Eimskipafélagsins um að það yrði rætt við heimamenn. Þeir sem hafi haft áhuga á viðræðum hafi verið beðnir um að senda hug- myndir. Það hafi KEA gert og búist við að verða boðið til viðræðna í framhaldinu. Það hafi hins vegar komið KEA í opna skjöldu að málið skyldi klárað með þeim sem hafi lagt fram hæstu hugmyndirnar. Bjuggust við viðræðum Andri segir að KEA hafi talað op- inberlega í þrjá mánuði um áhuga sinn á ÚA. Ekki hafi hins vegar verið vitað um áhuga annarra á félaginu. KEA hafi ekki frétt af þeim áhuga fyrr en í símtali þar sem tilkynnt hafi verið að áhugaverðari hugmyndir hafi borist um kaup á ÚA og að tekn- ar hafi verið upp samningaviðræður við viðkomandi aðila. Þetta ferli hafi komið KEA í opna skjöldu. Í yfirlýsingu bankastjórnar Landsbankans, sem birt var í Morg- unblaðinu í gær, segir að allir aðilar sem skiluðu hugmyndum um ÚA hafi uppfyllt þær grunnforsendur, að rekstur félagsins yrði með sem lík- ustum hætti og áður. Því hafi verið gengið til viðræðna við þann aðila sem var með hagstæðasta verðið að öðrum skilyrðum uppfylltum. „Landsbankinn hafði hins vegar um- boð til að veita heimamönnum for- gang hefðu hugmyndir þeirra verið metnar áþekkar þeim hagstæðustu. Öllum áhugasömum aðilum var kunnugt um þessar leikreglur,“ sagði í yfirlýsingu Landsbankans. Guðmundur Kristjánsson, útgerð- armaður og einn Snæfellinganna sem Eimskipafélagið hefur selt ÚA, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki vilja tjá sig um þessi mál frekar en hann hefði gert til þessa. Aðalsteinn Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Skinneyjar-Þinga- ness, vildi heldur ekki ræða þessi mál. Munur á hæstu verðhug- myndum 600 milljónir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.