Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÆR 68% landsmanna líst illa á þær
hugmyndir að SPRON verði selt
Kaupþingi Búnaðarbanka eða KB
banka eins og hann heitir nú og lið-
lega 70% telja óréttlátt að stofnfjár-
eigendur geti selt stofnfé við hærra
verði en núvirði stofnfjár. Þá telja
67% landsmanna það skipta miklu
máli að sparisjóðirnir verði áfram til
á íslenskum fjármálamarkaði og
rúmum 60% líst almennt illa á að
sparisjóðirnir séu í eigu banka.
Þetta er meðal helstu niðurstaðna
í markaðsrannsókn sem IMG Gallup
vann fyrir Samband íslenskra spari-
sjóða.
Af þeim sem tóku afstöðu leist
84% illa á sölu SPRON
Þegar aðeins er horft til þess hóps
sem tók beina afstöðu til spurning-
anna (þ.e. þeir sem svara hvorki né
eru teknir burt) eru niðurstöðurnar
enn meira afgerandi: 84% líst illa á
að SPRON verði selt KB banka, 78%
telja óréttlátt að stofneigendur geti
selt við hærra verði en núvirði stofn-
fjár, 79% líst illa á að sparisjóðir séu í
eigu banka og 74% finnst það skipta
miklu máli að sparisjóðir verði áfram
til á íslenskum fjármálamarkaði.
Þá var og spurt hvert menn hefðu
orðið varir við umfjölllun um sölu
SPRON til KB banka og svöruðu
57,4% að þeir hefðu mikið orðið var
við slíka umfjöllun, 23,4% nokkuð,
13,8% en aðeins 5,4% sögðust ekkert
hafa orðið vör við umfjöllun um mál-
ið. Tengsl voru á milli þess hve fólk
hafði mikið orðið vart við umfjöllun
um sölu á SPRON og afstöðu þess;
þannig var andstaðan gegn sölu
SPRON og því að selja megi stofnfé
við hærra verði en núvirði því meiri
sem menn höfði orðið meira varir við
umfjöllun um málið.
Meirihluti viðskiptavina
líst illa á sölu SPRON
Rúmum 69% viðskiptavina
SPRON líst illa á þær hugmyndir að
SPRON verði selt KB banka og sex
af hverjum tíu viðskiptavinum KB
banka líst illa á það. Þá töldu tæp
86% viðskiptavina SPRON það
skipta miklu máli að sparisjóðirnir
yrðu áfram til á íslenskum fjármála-
markaði og tæp 90% af viðskiptavin-
um annarra sparisjóða.
Rúmum 64% viðskiptavina
SPRON líst illa á að sparisjóðir séu í
eigu banka en 66,6% af viðskiptavin-
um annarra sparisjóða. Þegar horft
er til búsetu leist fólki á landsbyggð-
inni verr á þetta en munurinn var þó
ekki mjög mikill.
Könnun ING Gallup var gerð dag-
ana 2.–11. janúar og hringt var 1.700
manna slembiúrtak úr þjóðskrá.
Endanlegt úrtak var 1.616 manns og
var svarhlutfall 64,5%. Spurt var:
Líst þér almennt vel eða illa á að
sparisjóðir séu í eigu banka? Skiptir
það að þínu mati miklu eða litlu máli
hvort sparisjóðir verði áfram til á ís-
lenskum fjármálamarkaði? Líst þér
vel eða illa á þær hugmyndir að
SPRON verði selt Kaupþingi Bún-
aðarbanka sem núna heitir KB
banki? Telur þú réttlátt eða óréttlátt
að stofnfjáreigendur geti selt stofnfé
á hærra verði en núvirði stofnfjár?
Hefurðu orðið var/vör við umfjöllun
um sölu SPRON til KB banka?
„NIÐURSTÖÐURNAR sýna afger-
andi andstöðu þjóðarinnar við
þessar hugmyndir,“ segir Jón
Björnsson, sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Norðlendinga. „Við fengum
hlutlausan aðila til þess að kanna
þetta og þetta eru niðurstöðurnar.
Við teljum þetta vera mikla við-
urkenningu á starfsemi sparisjóð-
anna. Við viljum auðvitað vekja
athygli stjórnvalda á því að þetta
er ekki eitthvað sem þjóðin vill og
vilji löggjafans með lagasetning-
unni í fyrra var líka alveg ljós.
Það sem er ákaflega einfalt í
þessu máli er annars vegar það
sem snýr að stofnfjáreigendum.
Fólki finnst ósanngjarnt að það sé
hægt að fénýta sér sparisjóðina
með einhverjum
hætti, að menn
séu að taka til
sín peninga sem
viðskiptavinir
sparisjóðanna og
almenningur
hefur búið til í
gegnum tíðina
og fara með þá
út úr kerfinu.
Síðan finnst fólki líka vera full
þörf fyrir þjónustu sparisjóðanna
og óskar eftir henni og vill sjá
þetta fjórða afl á bankamark-
aðinum á Íslandi sem sparisjóð-
irnir eru. Þetta eru tvær meg-
inniðurstöður könnunarinnar,“
segir Jón.
„Sýnir afgerandi
andstöðu þjóðarinnar“
Jón Björnsson
!
"
#$ %&'()*+,*,-,./0 *1*. *'()2
23./0,
!,
$0,
4% 5
$ 6-,
04%(( 7,
,-,./0 7
-)
3(
'- 7
+,3
0 3847(& 9
0':";<
0
,9#-3 7
=2 0)
,( 24
#=)
>
'- 7
'
-30 3+ ((
0( 4
,-,./0
0 %(
+, ,
(
%. ( (
0>
'- 7
+,3
0 3847(& 9
0':";<
0
,9#-3 7
=2 0)
,( 24
#=)
>
'- 7
?32
0/ ,% %. 7 9
7,,% %
48
0
2
0
,% %. ,>
Tveir af hverjum þremur segja það
skipta miklu máli að sparisjóðir verði
áfram til á fjármálamarkaðnum
Mikill meiri-
hluti á móti
sölu SPRON
GENGIÐ hefur verið frá sölu Eim-
skipafélagsins á Skagstrendingi hf.
til Fiskiðjunnar Skagfirðings hf. á
Sauðárkróki. Söluverð fyrirtækisins
er 2,7 milljarðar króna. Kaupverðið
staðgreiðist í þessum mánuði eins og
í tilfelli sölu á hlutabréfum í Haraldi
Böðvarssyni hf. og Útgerðarfélagi
Akureyringa hf. sem kynnt voru fyrr
í vikunni. Áætlaður söluhagnaður
vegna þessara viðskipta er um 300
milljónir króna eftir skatta. Fyrir-
tækin verða áfram rekin sem sjálf-
stæðar einingar og áherzla lögð á efl-
ingu sjávarútvegs á þessi svæði.
Fiskiðjan Skagfirðingur á fjóra tog-
ara en leigir einn þeirra frá sér og
rekur fiskverkanir á Sauðárkróki og
Grundarfirði. Skagstrendingur gerir
út tvo frystitogara og rekur rækju-
vinnslur á Skagaströnd og Hólmavík
auk afurðavinnslu á Skagaströnd.
Sameiginlegur kvóti fyrirtækjanna
með aflaheimildum utan lögsögu er
ríflega 21.000 þorskígildistonn.
Heimamenn sáttir
Heimamenn höfðu einnig verið í
viðræðum um kaup á Skagstrendingi
undir forystu Adolfs Berndsen odd-
vita. Hann segist sáttur við niður-
stöðuna. „Þetta var unnið í samráði
við okkur í lokin og við erum sáttir
við Eimskipafélagið í þessu máli. Við
og Fiskiðjumenn höfum sameigin-
lega sýn á framtíð sjávarútvegs á
þessu svæði og markmið okkar
beggja er að styrkja hann. Það er
eindreginn vilji beggja að veiðum og
vinnslu verði skipað með svipuðu
sniði áfram og sóknarfæri, sem skap-
ast með samvinnu fyrirtækjanna,
verði nýtt til að styrkja svæðið í
heild. Við erum líka mjög sáttir við
að vera lausir með fyrirtækið af
hlutabréfamarkaðnum. Það um-
hverfi hefur ekki verið sjávarbyggð-
um hagstætt,“ segir Adolf Berndsen.
Sjálfstæðar einingar
„Það hefur ekkert verið ákveðið
hvort félögin verða sameinuð, svo
fyrst í stað verða þau rekin sem sjálf-
stæðar einingar,“ segir Jón E. Frið-
riksson, framkvæmdastjóri Fiskiðj-
unnar Skagfirðings.
„Skagaströnd og Skagafjörður
eru orðin eitt atvinnusvæði, það tek-
ur ekki nema 30 mínútur að keyra á
milli vegna nýrra samgöngubóta.
Með því að tengja þessi tvö fyrirtæki
saman erum bæði að styrkja þau og
atvinnulífið á svæðinu. Það þarf á öfl-
ugum fyrirtækjum að halda. Kvóti
fyrirtækjanna fellur einnig vel sam-
an þannig að þar er tækifæri til hag-
ræðingar og betri nýtingar á veiði-
heimildum en áður,“ segir Jón.
Hann segir enn fremur að verðið
kunni að virðast nokkuð hátt í ljósi
versnandi afkomu í sjávarútvegi, en
félagið hafi verið tilbúið að borga
þetta verð og þeir séu mjög sáttir við
niðurstöðuna.
Afskaplega sáttur
„Ég er afskaplega sáttur við þessa
niðurstöðu. Henni er náð í fullri sam-
vinnu við heimamenn,“ segir Magn-
ús Gunnarsson, formaður stjórnar
Eimskipafélagsins.
„Ég er einnig mjög sáttur við nið-
urstöðuna í heild. Við erum að ljúka
líklega stærstu viðskiptum Íslands-
sögunnar, en verðmæti þessara
þriggja félaga er yfir 30 milljarðar.
Kaupverðið er 19,1 milljarður og við
eigum eftir að selja Boyd Line í
Bretlandi. Hagnaðurinn af sölunni er
á milli 2,8 og 2,9 milljarðar króna, svo
ég er afskaplega ánægður fyrir hönd
Eimskipafélagsins og hluthafa þess.
Ég er ekki síður sáttur við það hve
vel hefur tekizt að selja þessi fyrir-
tæki í sátt við heimamenn og taka
þannig þátt í að byggja jafnframt
upp þrjú mjög öflug sjávarútvegs-
fyrirtæki, sem með þessu verða
sterkari en áður, byggðirnar verða
sterkari og staða sjávarútvegsins í
heild verður sterkari. Það er ljóst að
sameining Granda og HB styrkir
sjávarútveginn við Faxaflóa mikið,
það er mikill styrkur að samvinnu
Skagstrendings og Fiskiðjunnar
Skagfirðings, enda eru bæði fyrir-
tækin á sama atvinnusvæði og loks
hlýtur það að vera styrkur fyrir ÚA
að fá inn þrjá menn með jafn djúpar
rætur í íslenzkum sjávarútvegi og
feðgana frá Rifi, sem hafa að auki yf-
ir að ráða aflaheimildum sem nema
um 10.000 þorskígildistonnum. Ég
trúi ekki öðru en Akureyringar verði
fljótlega sáttir við þessi málalok,“
segir Magnús Gunnarsson.
Fiskiðjan Skagfirðingur kaupir
Skagstrending á 2,7 milljarða
!"
#
!"#!$$%
! #%
&'()* #
+ %&
$%
!
-.
%
--%
%
/%
0
1
2
+
1
34+
5#
34+ +!
'(
$")!)$%
! #%
&'6-)* #
+ %&
$%
!
.6/6%
%
Kaupin gerð í
samráði við
heimamenn á
Skagaströnd
Íslenskir
frumkvöðl-
ar áfram
framarlega
ÍSLAND er áfram með hæsta
hlutfall frumkvöðlastarfsemi í
Evrópu, samkvæmt ársskýrslu
alþjóðlegrar og árlegrar rann-
sóknar á slíkri starfsemi, svo-
nefndri GEM-rannsókn. Um
11% einstaklinga á aldrinum
18–64 ára segjast taka þátt í
frumkvöðlastarfsemi hér á
landi, sem er svipað hlutfall og
í Bandaríkjunum og Ástralíu,
en mun hærra en á hinum
Norðurlöndunum.
Dr. Rögnvaldur J. Sæ-
mundsson, forstöðumaður
Rannsóknamiðstöðvar Háskól-
ans í Reykjavík á sviði ný-
sköpunar- og frumkvöðla-
fræða, segir að þessar
niðurstöður sýni að aðstæður
hér á landi séu að mörgu leyti
hliðhollar stofnun nýrra fyr-
irtækja. Einnig sé áhugavert
að sjá áhrif menntunar. Nið-
urstöðurnar bendi til að aukin
menntun og reynsla af frum-
kvöðlastarfsemi sé líkleg til
þess að skila betri og verð-
mætari viðskiptatækifærum.
Viðamikil rannsókn
GEM-rannsóknin er sú
viðamesta og virtasta sem
gerð er í heiminum á sviði
frumkvöðlastarfsemi, segir
Háskólinn í Reykjavík í til-
kynningu sinni. Er rannsóknin
unnin í 40 löndum og henni
stýrt frá London Business
School og Babson College. Um
árlega rannsókn er að ræða og
er Ísland með í annað sinn.
Háskólinn í Reykjavík er
rannsóknaraðili fyrir Íslands
hönd og nýtur til þess stuðn-
ings frá forsætisráðuneytinu,
Nýsköpunarsjóði og Samtök-
um atvinnulífsins.
SÖFNUNARREIKNINGUR
hefur verið stofnaður til styrkt-
ar börnum Kristínar Ólafsdótt-
ur frá Tálknafirði sem lést svip-
lega fyrr í þessum mánuði.
Kristín hefði orðið 45 ára á
árinu og lætur eftir sig fjögur
börn, það elsta 25 ára og það
yngsta 12 ára. Faðir barnanna
og eiginmaður Kristínar lést af
slysförum fyrir nokkrum árum.
Kristín verður jarðsungin frá
Tálknafjarðarkirkju í dag. Þeir
sem vilja styðja börn Kristínar
geta lagt inn á reikning þeirra í
Sparisjóði Vestfirðinga, 1118-
18-645050, kt. 300979-4329.
Söfnun hafin
vegna
fráfalls
foreldra
INNLENT
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð-
herra, og Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs, hittust á
fundi í Stjórnarráðinu í gær.
Illugi Gunnarsson, aðstoðar-
maður Davíðs, segir að Jón Ás-
geir hafi opinberlega beðið um
fund með forsætisráðherra og
orðið hafi verið við þeirri ósk,
en hins vegar yrði hvorki greint
frá lengd fundarins né umræð-
unum.
Davíð og
Jón Ásgeir
funduðu