Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 11
Smáralind, 1. hæð,
sími 553 6622
www.hjortur.is
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Búsetuóskir | Mikill tími fór í að
ræða búsetuóskir Reykvíkinga á
fundi borgarstjórnar á fimmtudag-
inn. Tvö sjónarmið tókust þar á;
annars vegar að mæta þeim óskum
borgarbúa, sem komu fram í nýlegri
könnun, að skipuleggja fleiri lóðir
undir sérbýli. Hins vegar vilji meiri-
hluta borgarstjórnar að þétta byggð
og efla almenningssamgöngur.
Fjölbýli | Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, oddviti D-listans, sagði ekki
langt síðan 52% Reykvíkinga bjuggu
í sérbýli og aðrir í fjölbýli. Nú sé
skipulagsstefna R-listans sú að 80%
borgarbúa búi í fjölbýli og 20% í sér-
býli. Vill hann fjölga lóðum undir
minni sérbýli.
Borgarþróun | Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, R-lista, sagði að ekki
hefði verið spurt um í hvernig sam-
félagi einstaklingurinn vildi búa.
Minnti hún á áhyggjur borgarbúa af
mikilli umferð og lítilli notkun stræt-
isvagna. Það hefði átt að spyrja bet-
ur út í ýmsa hluti eins og þróun
borgarinnar. Ný fjölbýlishús losi
líka um mörg fjölbýlishús.
Fráfall | Eftir umræður um barna-
verndarmál sagði Alfreð Þor-
steinsson, forseti borgarstjórnar, að
næstur á mælendaskrá væri Guð-
laugur Þór Þórðarson. Hann baðst
undan því að tala í þetta sinn og
sagði Alfreð þá: „Borgarfulltrúinn
fellur frá,“ og bauð Kjartan Magn-
ússon velkominn upp. „Ég vona að
forsetinn hafi átt við að þessi ágæti
borgarfulltrúi hafi fallið frá orðinu,“
sagði Kjartan þá.
Hjúkrunarheimili | Kjartan fagn-
aði því að Reykjavíkurborg hefði
orðið við óskum bæjarstjóra Sel-
tjarnarness um viðræður um bygg-
ingu hjúkrunarheimilis á Lýsislóð-
inni við Grandaveg. Hugmyndir séu
um 60 rými í nýju húsnæði. Jafn-
framt fagnaði hann framtaki Grund-
ar í þessum efnum. Þórólfur Árna-
son borgarstjóri þakkaði fyrir þessa
umræðu og upplýsti að viðræður
færu ágætlega af stað.
Varamenn | Óvenjumargir vara-
borgarfulltrúar sátu fund borg-
arstjórnar á fimmtudag. Fyrir R-
listann sátu Stefán Jóhann Stef-
ánsson, Helgi Hjörvar, Kolbeinn
Óttarsson Proppé og Þorlákur
Björnsson. Fjarverandi voru Stefán
Jón Hafstein, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Anna Kristinsdóttir og
Dagur B. Eggertsson. Þá sat Mar-
grét Sverrisdóttir fundinn fyrir Ólaf
F. Magnússon.
Hljóðkerfið | Eftir að Guðlaugur
hafði fallið frá orðinu bað hann aftur
um orðið og skammaði borgarfull-
trúa R-listans mikið vegna flótta
barnafjölskyldna til nágrannabæja.
Brást þá hljóðkerfið og ískraði hátt í
hátölurum inni í sal borgarstjórnar.
„Það eru ýmsar leiðir sem vinstri-
menn nota til að þagga niður í okkur
en þetta er alveg nýtt,“ sagði Guð-
laugur þá.
Viðtöl | Seinna hófust umræður um
Leikfélag Reykjavíkur og þótti
borgarstjóra miður hvernig oddviti
Sjálfstæðisflokksins talaði til hans í
viðtölum við blaðamenn um það mál.
Vitnaði hann í frétt Mbl.is þar sem
Vilhjálmur sagði borgarstjóra tala
„út úr korti eins og hann gerir
stundum blessaður“. Bað Þórólfur
menn að gæta aðeins að orðalagi.
Leiðtogi | Nokkuð var rædd staða
borgarstjóra þegar málefni LR voru
rædd. Sagði Guðlaugur Þór að borg-
arstjóri hefði lagt töluverða áherslu
á, þegar hann tók við embætti, að
hann væri pólitískur talsmaður eða
leiðtogi R-listans. „Leiðtogi sagði ég
ekki,“ sagði Þórólfur þá. „Talsmenn
hjá vinstrimönnum eru nú oftast
leiðtogar. Ég ætla ekki að fara í
söguskoðun hvað það varðar,“ svar-
aði Guðlaugur strax á fundi borg-
arstjórnar á fimmtudag.
„HVER vill ekki vera ungur, sætur,
smart, ríkur og sexý og búa í einbýli í
Vesturbænum? Ég hugsa að allir
gætu svarað þeirri spurningu játandi
en það er ekkert endilega í samræmi
við raunveruleikann og í samræmi við
getu fólks til að standa undir óskum
sínum, væntingum og þrám,“ sagði
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borg-
arfulltrúi R-listans og formaður
skipulags- og byggingarnefndar, á
borgarstjórnarfundi á fimmtudag
þegar rædd var ný könnun á húsnæð-
is- og búsetuóskum Reykvíkinga.
Í könnuninni, sem unnin var af
Land-ráði og Bjarna Reynarssonar,
land og skipulagsfræðingi, kemur
meðal annars fram að um 70% borg-
arbúa kysu búa í sérbýli. Steinunn
Valdís sagði borgaryfirvöld ætla að
skoða betur ýmsa þætti sem þarna
koma fram, eins og óskir um sérbýli.
Þær upplýsingar verði hafðar til við-
miðunar við skipulagsvinnu á næst-
unni en halda verði ákveðnu samræmi
og jafnvægi milli húsagerða sem boð-
ið sé upp á. Þegar sé byrjað að vinna
að því að fjölga sérbýlum á reitum við
Jafnasel þar sem gert sé ráð fyrir 50
nýjum einbýlishúsum. Hún varaði
samt við að borgarfulltrúar fullyrtu
um of um einstök atriði sem eru í nið-
urstöðu könnunarinnar.
Ókurteisi við
viðhorf Reykvíkinga
„Í raun og veru þurfti enga sér-
staka húsnæðis- og búsetukönnun til
þess að átta sig á því að það er ekki
rétt stefna að skipuleggja hér síðast-
liðin fjögur ár með þeim hætti að 80%,
og takið eftir, 80% íbúða eru í fjöl-
býlishúsum,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokks-
ins. „Á síðustu fjórum árum, árin
2000, 2001, 2002 og 2003, ef talin er
saman sala borgarinnar á lóðum sem
hafa verið til staðar, þá hafa 80% ver-
ið í fjölbýli, 20% í sérbýli og þar af ein-
ungis 7% einbýlishús.“
Benti Vilhjálmur á að á síðustu
fjórum árum, í borg sem í byggju 112
þúsund manns, hefðu verið seldar ein-
ungis 167 lóðir undir einbýli. Skipu-
lagsstefna R-listans væri því kolröng
þar sem 70% borgarbúa kysu að búa í
sérbýli. Rifjaði hann upp bókun borg-
arráðsfulltrúa R-listans frá 6. janúar
þar sem sagði að könnunin gæfi
„fremur vísbendingar um óskhyggju
fólks frekar en getu“. Sagði Vilhjálm-
ur þetta hreina ókurteisi við viðhorf
Reykvíkinga. „Ég myndi kalla þetta
forræðishyggju að tala svona. Auðvit-
að eigum við að bera fulla virðingu
fyrir því sem borgarbúar segja og
hugsa,“ sagði Vilhjálmur.
Hrokinn verður ekki meiri
Stefán Jóhann Stefánsson, borgar-
fulltrúi R-listans, sagði málflutning
Vilhjálms og bókun borgarráðsfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins fela í sér
misskilning á stefnu Reykjavíkurlist-
ans. „Bókunin endurspeglar hins veg-
ar þá hegðun margra sjálfstæðis-
manna að líta fremur til hagsmuna
þeirri eignameiri fremur en eigna-
minni,“ sagði Stefán.
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði
vinstri meirihlutanum ekki taka mark
á niðurstöðum könnunar þar sem það
hentaði ekki borgarfulltrúunum.
„Hrokinn verður ekki meiri,“ sagði
Guðlaugur eftir að hafa lesið upp bók-
un R-listans í borgarráði.
Könnun á búsetuóskum Reykvíkinga rædd í borgarstjórn
Spurði hver vildi ekki
vera sætur og ríkur
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
að fólk sem vilji búa í sérbýli hafi
ekki fengið nógu mörg tækifæri til
þess í Reykjavík undanfarin ár.
Skipulagsyfirvöld hafi farið þvert á
þessar óskir fólksins. „Það sem
menn hafa séð er einfaldlega þetta,
að fólk hefur eðli málsins samkvæmt
greitt atkvæði með fótunum,“ sagði
hann á fundi borgarstjórnar. Það
hafi því í auknum mæli flutt til ná-
grannasveitarfélaga borgarinnar.
Guðlaugur tók saman tölur frá
Hagstofunni sem sýndu að á síðasta
ári fluttu alls tæplega 400 fleiri frá
Reykjavík en til borgarinnar. Lang
fjölmennasti hópurinn var fólk á
aldrinum 30 til 40 ára. 214 fleiri
börn fluttu frá Reykavík í fyrra en
til borgarinnar, sem borgarfulltrú-
inn sagði sýna að fjölskyldufólk
valdi sér frekar búsetu í nágranna-
sveitarfélögunum. Ástæðan væri
meðal annars sú, eins og fram kom í
nýrri búsetukönnun, að meirihluti
fólks kysi að búa í sérbýli en fjölbýli
eins og skipulagsstefna vinstri
meirihlutans byði upp á.
Sagði Guðlaugur að hægt væri að
snúa út úr skoðanakönnunum og
skýrslum en ekki tölum frá Hagstofu
Íslands, „sem sýni svart á hvítu að
barnafólkið er að fara úr Reykjavík
yfir í nágrannasveitarfélögin“. Von-
aði hann að borgarfulltrúar R-
listans tækju hressilega við sér og
verði við óskum borgarbúa.
Barnafjölskyldur flytja frá Reykjavík
! "#$
%&#
! "#$
%&#
'
(
' ' '
( '
'
' '
'
)*+
,
*+
- * . */
! "#$
%&#
! "#$
%
A/
,% 7("&
.
+
7
,
% 7 4$%0)7,
80 '
- 7%9
VERKEFNIÐ Fyrirspurnarsöngl –
úrvinnsla sönglaðra fyrirspurna í
tónlistargagnagrunninum hlaut ný-
sköpunarverðlaun forseta Íslands
2003 á Bessastöðum á fimmtudag.
Það voru fjórir nemendur á tölv-
unarfræðibraut í Háskólanum í
Reykjavík sem hönnuðu kerfi sem
gerir notanda þess kleift að leita að
ákveðnum lagbút úr lagasafni með
því að söngla hluta lagsins í hljóð-
nema. Kerfið sér svo um samanburð
á sönglinu og tónverkunum í gagna-
safninu og finnur þau tónverk sem
eru svipuð.
Að verkefninu stóðu Freyr Guð-
mundsson, Gunnar Einarsson, Jó-
hann Grétarsson og Ólafur Guð-
jónsson, en leiðbeinandi hópsins var
dr. Björn Þór Jónsson, dósent við
tölvunarfræðideild Háskólans í
Reykjavík.
Háskólinn á Akureyri gaf verð-
launin, 100.000 krónur auk verð-
launagripa, og afhenti Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands,
verðlaunin.
Fyrirspurnarsöngl vann
nýsköpunarverðlaunin 2003
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti nýsköpunarverðlaunin á fimmtudag.
Á FUNDI Sænsk-íslenska
verslunarráðsins á Grand hót-
eli föstudaginn 23. janúar nk.
verða til umræðu nýir
straumar í heilbrigðismálum
á Norðurlöndum.
Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra mun setja fundinn.
Ræðumenn verða Birgir Jak-
obsson, forstjóri St. Göran
spítala í Stokkhólmi, en
sjúkrahúsið er rekið sem
hlutafélag í eigu einkaaðila.
Otto Nordhus mun segja frá
reynslu sinni af rekstri fyr-
irtækis síns, Nordhus Medi-
cal, sem sérhæfir sig í heil-
brigðisþjónustu milli landa.
Þá mun Anna Birna Jensdótt-
ir, hjúkrunarforstjóri Sóltúns
og framkvæmdastjóri Öld-
ungs hf., fjalla um einkafram-
kvæmd á Íslandi og Matthías
Halldórsson aðstoðarland-
læknir mun fjalla um lagaum-
hverfi einkaframkvæmdar á
Íslandi og eftirlitshlutverk
landlæknisembættisins.
Fundarstjóri verður Inga
Jóna Þórðardóttir.
Fundurinn verður haldinn
á Grand hótel Reykjavík og
hefst kl. 14. Hann er öllum
opinn en fyrirfram skráning
er nauðsynleg. Fundurinn er
haldinn í samstarfi við Versl-
unarráð Íslands og upplýsing-
ar um hann má finna á
heimasíðu ráðsins,
www.verslunarrad.is.
Rætt um
einkarekst-
ur á heil-
brigðissviði