Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 23
Létt & laggott er viðbit með litlu fituinnihaldi og bragðast líkt og smjör. Nú á 20% afslætti í næstu verslun.
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
1
1
2
7
/ sia
.is
AKUREYRI
Raforkuframleiðsla hefst ínýrri virkjun við Djúpa-dalsá í Eyjafjarðarsveit ílok næsta mánaðar, gangi
allar áætlanir eftir. Framkvæmdir
hófust í apríl á síðasta ári en um er að
ræða stærstu einkavirkjun landsins.
Fyrirtækið Fallorka ehf., sem er í
eigu Aðalsteins Bjarnasonar og fjöl-
skyldu, byggir virkjunina og verður
framleiðslugeta hennar 1,8 MW. Fall-
orka hefur gert samning við Norður-
orku um kaup á rafmagni frá virkj-
uninni, sem fyrirtækið afhendir á
Botni í Eyjafjarðarsveit. Þá eru upp
hugmyndir að byggja aðra minni
virkjun við ána, innar í Djúpadal en
ekki liggur endanlega fyrir hvenær af
þeim framkvæmdum gæti orðið.
Franz Árnason, forstjóri Norður-
orku, sagði að stefnt væri að því að
Norðurorka keypti alla raforku frá
báðum vikjunum Fallorku við Djúpa-
dalsá í framtíðinni, auk þess sem sam-
komulag hefði við undirritað, með fyr-
irvara um samþykki stjórna
fyrirtækjanna, um að Norðurorka
eignaðist allt að 40% hlut í Fallorku
ehf. „Verðið sem við komum til með
að borga fyrir rafmagnið er báðum
aðilum hagstætt.“
Franz sagði að ný raforkulög væru
að skella á og að allir þeir sem eru að
framleiða, dreifa, kaupa og selja raf-
orku gerðu lítið annað en að reyna að
fóta sig í þeim málum þessa dagana.
Landsvirkjun, sem fram til þessa hef-
ur selt Norðurorku raforku, hefur
boðið framhald þeirra viðskipta og
eru samningar á lokastigi. Auk þess
leitaði Norðurorka til fjögurra fyrir-
tækja sem framleiða raforku, Hita-
veitu Suðurnesja, Orkuveitu Reykja-
víkur, RARIK og Orkubús Vestfjarða
um kaup á raforku en Franz sagði að
ekkert þeirra treysti sér til þess að
selja fyrirtækinu raforku, í bili að
minnsta kosti. Hann sagði að þessir
aðilar væru fyrst og fremst að hugsa
um hag sinna viðskiptavina og sína
eigin sölustarfsemi. „Við erum því
ekki alveg klárir á því hvar sam-
keppnin í raforkuframleiðslunni á að
vera.“
Franz dregur í efa að ný raforkulög
hafi mikil áhrif á svæðinu önnur en
þau að hugsanlega hækki raforku-
verð til almennings. „Ég held að það
sé heldur ekki við því að búast að raf-
orkuverð til iðn- og framleiðslufyrir-
tækja lækki fyrr en þau fara að nýta
sín mannvirki og tæki betur yfir sól-
arhringinn. Það á að vera til nóg af
ódýrri raforku eftir kl. 8 á kvöldin og
til kl. 6 á morgnana.“
Forsvarsmenn Norðurorku hafa
verið skoða þann möguleika að virkja
Glerá á nýjan leik. Virkjunin kemur
þó ekki til með að hafa teljandi áhrif
fyrir fyrirtækið vegna þess hveru lítil
hún verður en framleiðslugeta henn-
ar verður 200–300 KW. Virkjunin
mun þó standa undir sér. Franz sagð-
ist hafa áhuga á því að ráðist yrði í
framkvæmdir á þessu ári, á 100 ára
afmæli rafvæðingar á Íslandi. „Þetta
væri ágætis tækifæri til að minnast
þess og virkjunin á Glerá er fyrsta
virkjun Akureyringa.“ Stíflan á Glerá
var byggð 1921, stöðvarhúsið 1922 og
virkjunin tekin í notkun það ár. Stífl-
an var endurbyggð árið 1986 og gegn-
ir því hlutverki að hefta sand- og mal-
arburð ofan eyrarinnar. „Við höfum
líka verið að bora eftir jarðhita á
Þeistareykjum til að framleiða raf-
orku. Þar hafa menn verið að hugsa
um stóra virkjun en það er einnig
hægt að byggja minni virkjun og selja
raforku t.d. til Húsavíkur og Akur-
eyrar.“ Franz sagði framkvæmdir á
Þeistareykjum á áætlun, borun á holu
númer tvö væri lokið og að beðið væri
eftir að sjá hversu öflug hún væri.
Djúpadalsá stífluð ofan við gljúfrið og ofan stíflunnar myndast uppistöðulón. Vatninu er veitt eftir skurði að inn-
taksmannvirki og þaðan verður 900 m fallpípa að stöðvarhúsinu, sem í verða tvær vélar til rafmagnsframleiðslu.
Norðurorka eignast allt að 40% hlut í Fallorku ehf. sem
byggir stærstu einkavirkjun landsins við Djúpadalsá
Raforkuframleiðsla
hefst í lok febrúar
Fótboltadagur | Fótbolti fyrir
stelpur, er yfirskrift fótboltadags,
sem Þór og KA standa fyrir í
Boganum á morgun, sunnudaginn
18. janúar. Dagskráin hefst kl. 13
og stendur fram eftir degi. Félög-
in hafa boðið öllum stúlkum í 1.–
10. bekk í grunnskólum bæjarins
til þátttöku. Félögin gáfu út bækl-
ing, þar sem æfingatöflur þeirra
eru kynntar, sem og dagskrá fót-
boltadagsins og dreifðu í skól-
unum. Dagskráin hefst með knatt-
spyrnuleik milli 3. flokks kvenna
en síðan gefst stúlkunum kostur á
að taka þátt í ýmsum knatt-
þrautum. Kl. 14 hefst æfing hjá
stúlkum af Norður- og Austur-
landi, undir stjórn Helenar Ólafs-
dóttur, landsliðsþjálfara A-
landsliðs kvenna. Hjá Þór og KA
æfa um 160 stúlkur á sumrin en
um 100 yfir vetrartímann og fer
fjölgandi. Þá æfa um 30 stúlkur
með sameiginlegu liði Þórs/KA/KS
í 2. flokki og meistaraflokki.
Roðkæling fisks| Fundur Rann
sóknastofnunar fiskiðnaðarins og
Skagans hf. um roðkælingu fisks,
sem féll niður vegna veðurs sl.
þriðjudag, verður haldinn á Hótel
KEA, Akureyri, nk. mánudag, 19.
janúar, kl. 13–15.
Skemmtikvöld| Aglow-samtökin á
Akureyri halda fund næstkomandi
mánudagskvöld, 19. janúar, kl. 20 í
félagsmiðstöðinni í Víðilundi 22. Þar
verður boðið upp á söng, bæn og
hugleiðingu í umsjá Önnu Höskulds-
dóttur hjúkrunarfræðings.
Miðbær | Íslenskir fornbókaunn-
endur og aðrir bókaormar brugðust
vel við því þegar fornbókasalarnir í
Bókavörðunni ákváðu að ljúka
bókamarkaði sínum sem haldinn
var á Laugavegi 105 með því að gefa
þær bækur sem eftir voru, en þar
var um að ræða á bilinu sjö til tíu
þúsund bækur sem höfðu hin ólík-
ustu umfjöllunarefni. Þar var að
finna ævisögur, fjölfræðirit, skáld-
sögur og ljóð og alls kyns skemmti-
leg rit um allt milli himins og jarðar.
Að sögn Ara Gísla Bragasonar,
sem rekur Bókavörðuna ásamt föð-
ur sínum, Braga Kristjónssyni, hef-
ur bókagjöfin gengið afar vel og
fólk sýnt þessu nýmæli mikinn
áhuga.
„Það eru mörg hundruð manns
sem komu hér við í dag og skemmtu
sér. Við verðum hér í allt kvöld að
snyrta til og bæta bókum við á borð-
in, svo það verður fínt úrval bóka
hér bæði á laugardag og sunnudag
og jafnvel á mánudag,“ segir Ari
Gísli og bætir við að auðvitað verði
þeir að hætta þessu bráðum, „en
það hafa verið svo góð viðbrögð að
við viljum halda þessu áfram.
Við höfum verið hér í góðri sátt
að leigja af Íslandsbanka, en þeir
eru búnir að selja húsnæðið, svo við
verðum að yfirgefa það fljótlega.
Við erum að gefa um tíu þúsund
bækur en á einu borði erum við að
selja bækur á hundrað kall bókina,
en þar er að finna þjóðlegan fróðleik
og ættfræðibækur. Við seljum þar
til að hafa upp í pokana.“
Grisja lagerinn
Það má segja að það sé lítill „bis-
ness“ í því að gefa bækurnar, en Ari
segir það ósköp eðlilegt að grisja
lagerinn örlítið. „Það eru svo marg-
ir viðskiptavinir hjá okkur og þeir
þekkja það að við erum búnir að
vera í tuttugu og fimm ár á mark-
aðnum og erum búin að viða þvílíku
magni bóka að okkur að við þurfum
hreinlega að hreinsa til. Þetta er
líka tilvalið tækifæri fyrir unga
safnara að koma sér upp stofni bóka
og byrja að safna,“ segir Ari. Hann
segir stóra aðdráttaraflið við forn-
bókasöluna vera hina endalausu leit
að einhverju áhugaverðu. „Leitin til
dæmis í ljóðum eða fræðibókum og
einnig í skemmtilegri þjóðfélags- og
mannlífssögu sem felst í þessum
gömlu heimildum og skrifum höf-
unda á öllum sviðum. Þetta end-
urspeglar svo mannlíf og þjóðlíf
fyrr á öldum.
Þess má líka geta að við erum
með mikið magn erlendra bóka eftir
tugi eða hundruð höfunda sem gæti
verið áhugavert fyrir grúskara,“
segir Ari og bætir við að lokum að
fólki er guðvelkomið að kíkja við og
taka með sér bækur alla helgina.
Morgunblaðið/Sverrir
Það er ýmislegt að finna á bókamarkaði Bókavörðunnar, sérstaklega fyrir
forvitna grúskara sem vilja öðlast betri skilning á þjóðfélagi liðinna tíma.
Bókavarðan gefur bækur á bókamarkaði
Hafsjór fróðleiks um
mannlíf og þjóðlíf
KAREN Björk Björgvinsdóttir og
Adam Reeve dansarar voru útnefnd
Íþróttamenn ÍR 2003 við athöfn í ÍR
heimilinu síðasta þriðjudag.
Karen og Adam eru hjón og
heimsmeistarar í 10 dönsum. Þau
eru félagar dansdeildar ÍR og
keppa fyrir hönd félagsins.
Íþróttamennirnir nýkrýndu náðu
þeim glæsilega árangri að sigra á
heimsmeistaramóti í 10 dönsum
sem haldið var í Tokyo í Japan 22.
júní 2003 og verða þar með heims-
meistarar. Með þessum glæsilega
árangri hafa þau náð mesta árangri
sem íþróttafólk getur náð á sínum
ferli. Þetta er einnig besti árangur
sem Íslendingar hafa náð í dans-
íþróttinni hingað til og hafa ÍR-
ingar eignast sína eigin heims-
meistara.
Dansarar á heimsmælikvarða: Þau
Karen Björk og Adam Reeve hafa
svo sannarlega haldið uppi merki
Íslands í dansheiminum.
Karen Björk og
Adam Reeve hlut-
skörpust