Morgunblaðið - 17.01.2004, Síða 26
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
26 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Risahús áður á dagskrá |
Stórhýsi frá Butler sem nú er
verið að reisa fyrir BYKO vekur
upp minningar um að fyrir ríflega
áratug kom til greina að reisa hús
frá sömu aðilum á Selfossi sem
íþróttahús og byggja yfir mal-
arvöllinn á Selfossi. Þau áform
komust það langt að teikningar
voru komnar og málið var í alvar-
legri skoðun en ekki varð af fram-
kvæmdum. Margur hugsar að
gaman hefði nú verið að eiga
svona stórt knattspyrnuhús og
vera samstiga höfuðborgarsvæð-
inu í aðstöðu.
Riftun samnings | Bæjarráð
Árborgar tók sl. fimmtudag fyrir
álit frá Lögmönnum Suðurlandi,
minnisblað um riftun kaupsamn-
ings um lóðirnar Sigtún 5 og 5a. Í
framhaldi af því samþykkti bæj-
arráðið að nýta heimild til rift-
unar á kaupum á lóðunum Sigtún
5 og 5a samkvæmt heimild í kaup-
samningi.
Skólamál | Ráðning skólastjóra
að Suðurbyggðarskóla kom fyrir
bæjarráð á fimmtudag en skóla-
nefnd hefur ekki lokið umfjöllun
um málið þar sem ráðgjafar
nefndarinnar hafa verið fjarver-
andi. Stefnt er að því að afgreiða
álit skólanefndar á aukafundi bæj-
arráðs. Aukafundur í bæjarráði
verður haldinn fyrir bæjarstjórn-
arfund miðvikudaginn 21. janúar
2004.
Náttúran | Bæjarráð samþykkti
á fundi sínum á fimmtudag að
Sveitarfélagið Árborg verði sam-
starfsaðili FnS við framkvæmd
ráðstefnunnar. Ráðstefna
Fræðslunets Suðurlands – Nátt-
úran í ríki markmiðanna – sem
haldin verður á Selfossi vorið
2005.
Sýnir í Listagjánni | Jón Ingi
Sigurmundsson, tónlistarkennari
og listamaður á Selfossi, sýnir
vatnslita- og pastelmyndir í jan-
úar í Listagjánni sem er nýlegur
sýningarstaður á neðri hæð Bæj-
ar- og héraðsbókasafnsins. Mynd-
irnar eru frá árinu 2003. Jón Ingi
hefur haldið fjölda einkasýninga
hérlendis og erlendis. Sýningin
stendur út janúar og er opin á af-
greiðslutíma Bæjar- og héraðs-
bókasafnsins.
Bæjarmál
í Árborg
SUÐURNES
Selfoss | Stórhýsi BYKO á Sel-
fossi rís hratt við Langholt aust-
ast í bænum. Um er að ræða
4.400 fermetra hús sem hýsa mun
byggingavöruverslun og timb-
urlager. Hin nýja verslun verður
opnuð á vordögum. Það er fyr-
irtækið Borgarafl sem reisir hús-
ið sem er frá fyrirtækinu Butler í
Skotlandi en Íslenskir að-
alverktakar eru aðalverktakar að
byggingunni.
Á myndinni vinna starfsmenn
Borgarafls, þeir Bergsveinn
Magnússon og Aðalsteinn Grét-
arsson, við að ganga frá járnbit-
um áður en þeir eru settir á sinn
stað í húsinu.
Stórhýsi BYKO rís hratt
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Selfoss | „Við smíðuðum sérstakan brunahana
sem slökkviliðið getur tengt sig við og dælt úr.
Þessir hanar hafa verið settir ofan í holurnar og
síðan má dæla úr þeim,“ segir Ólafur Snorrason
framkvæmdastjóri en fyrirtæki hans, Ræktunar-
samband Flóa og Skeiða, hefur borað eftir köldu
vatni á nokkrum stöðum á Selfossi, sett niður rör
og síðan er vatni dælt upp úr holunum.
Ólafur segir mikið vatn í Þjórsárhrauninu sem
er allt upp í 20 metrar á þykkt og Selfosskaup-
staður stendur á en hraunið gengur fram í sjó eins
og kunnugt er. Það verður ekki sagt annað en það
sé nokkuð sérstakt að geta borað beint niður og
síðan bara tengt brunahanann við holuna án þess
að leggja að honum neinar vatnsleiðslur.
Í kynningu á þessu verkefni spyr Ræktunar-
sambandið hvort Flóamenn sitji á vatni en fyr-
irtækið hefur borað holur ofan í berggrunninn og
mælingar hafa sýnt að þar mé fá 20 – 30 lítra á sek-
úndu úr hverri holu.
„Þetta er langhagkvæmasta leiðin til að ná í
slökkvivatn,“ segir í kynningunni. Ólafur segir
fyrirtækið líka hafa borað ofan í hraunið eftir vatni
fyrir fyrirtæki sem þurfi á miklu kælivatni að
halda fyrir vélar og losnað þannig við að taka vatn
frá vatnsveitu bæjarins. „Það er klárt að vatnið
rennur hér undir fótum okkar. Vatnsborðið í án-
um, Hvítá og Þjórsá, hefur þarna mikil áhrif.
Vatnið rennur hérna í hrauninu og kemur svo und-
an því langt úti í sjó,“ segir Ólafur Snorrason.
Hann segir einnig að þetta geti verið tilvalin lausn
á vatnsöflun fyrir bændur.
Einn brunahananna er við Húsasmiðjuna, sem
er stór bygging. Þar var lausn Ræktunarsam-
bandsins beitt og líka í iðnaðarhverfi við Gagn-
heiði þar sem eru fyrirtæki á báðar hendur.
Einföld lausn í brunavörnum á Selfossi
Smíðuðu brunahana til
að setja ofan í borholur
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Aðstæður nýttar: Ólafur Snorrason fram-
kvæmdastjóri Ræktunarsambands Flóa og
Skeiða við brunaholuhana í Gagnheiði á Selfossi.
Stokkseyri | Íslandspóstur hefur
lokað afgreiðslu sinni á Stokkseyri og
samið við Shellskálann á Stokkseyri
um að annast póstþjónustu og aðra
þá starfsemi sem Íslandspóstur sinnti
hér áður fyrr.
Þessi breyting hefur það í för með
sér að þjónustan eykst í formi þess að
afgreiðslutíminn lengist til muna eða
úr því að vera á milli 13 og 16 virka
daga í að vera frá kl. 9 til 22 alla daga
vikunnar.
Það má segja að Jón Jónsson og
Elsa Gunnþórsdóttir hafi gert Shells-
kálann að þjónustumiðstöð fyrir
Stokkseyringa þar sem boðið er upp
á allar helstu nauðsynjar til heimilis-
ins,vörur fyrir bílinn, veitingar, vide-
oleigu og umboð fyrir happdrættin
svo eitthvað sé nefnt. Þegar ut-
anaðkomandi aðilar hafa ákveðið að
skera niður þjónustu á Stokkseyri
hafa þau bætt henni við hjá sér.
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
Þjónusta: Jón Jónsson og Elsa
Gunnþórsdóttir á Stokkseyri.
Pósturinn
flytur um set
Grindavík | Helgasport heitir líkams-
ræktarstöð sem Helgi Jónas Guð-
finnsson körfuknattleiksmaður hef-
ur opnað í Grindavík.
Stöðin er í húsi sem kennd er við
Lagmetið vegna þeirrar starfsemi
sem þar hefur verið. Áður var lík-
amsræktarstöð í húsnæði sundlaug-
ar Grindavíkur en Helgasport er í
tvöfalt stærra húsnæði, á um 200
fermetrum. Möguleikar eru á stækk-
un um 100 fermetra til viðbótar. Þá
hefur tækjum verið fjölgað.
„Þetta fer mjög vel af stað og
„spinning“ hefst samkvæmt stunda-
skrá eftir helgi. Við erum með fimm-
tán hjól. Ég er mjög bjartsýnn á
reksturinn þrátt fyrir að markaður-
inn sé óljós enda rennslið þessa
fyrstu daga mjög fínt,“ sagði Helgi
Jónas.
Helgi Jónas opnar líkamsræktarstöð
Morgunblaðið/Garðar Páll VignissonStarfsemi er hafin af krafti í líkamsræktarstöð Helga Jónasar Guðfinnssonar.
Suðurnes | Atvinnuleysi var hlut-
fallslega mest á Suðurnesjum á síð-
asta ári. Þó voru atvinnulausir færri
í desember en í sama mánuði 2002.
Skráð atvinnuleysi var að með-
altali 4% af mannafla á Suðurnesj-
um á árinu 2003, samkvæmt yfirliti
Vinnumálastofnunar. Er það nokk-
uð umfram landsmeðaltal sem var
3,4% og meira en í öðrum lands-
hlutum. Samsvarar þetta því að 339
Suðurnesjamenn hafi verið atvinnu-
laustir að meðaltali allt árið.
Í desember voru 317 skráðir at-
vinnulausir á Suðurnesjum og hafði
þeim fjölgað nokkuð frá nóvember.
Atvinnulausum körlum fjölgaði um
nítján og konum um tólf. Hins veg-
ar voru færri atvinnulausir í desem-
ber en í sama mánuði á árinu 2002.
Í lok desember voru 380 án vinnu
á Suðurnesjum, 164 karlar og 216
konur. Heldur virðist hafa fjölgað á
atvinnuleysisskránni síðan því á vef
Vinnumálastofnunar kemur fram að
í gær voru 416 á skrá og er öll
aukningin vegna fjölgunar karla á
skrá.
Mesta atvinnuleysið á Suðurnesjum
Að meðaltali 339
án vinnu allt árið
Reykjanesbær | Foreldrafélög leik-
skólanna í Reykjanesbæ efna til op-
ins fundar í sal Njarðvíkurskóla
næstkomandi mánudagskvöld
vegna hækkunar leikskskólagjalda
nú um áramótin. Fundurinn hefst
kl. 20.
Gjaldskrá leikskólanna í Reykja-
nesbæ hækkaði um áramót, sam-
kvæmt ákvörðun bæjarstjórnar.
Tímagjaldið hækkaði um 23% en
matur og hressing um 3–7%. For-
eldri barns á leikskóla þarf að
greiða 27 þúsund krónur á mánuði
fyrir átta tíma vistun, hádegismat
og hressingu, en á síðasta ári var
gjaldið fyrir sömu þjónustu tæplega
22.800 kr. Hækkunin er því liðlega
4.200 krónur á mánuði eða 18,5%.
Á fundinum skýra talsmenn for-
eldrafélaganna gagnrýni sína og
Árni Sigfússon bæjarstjóri situr
fyrir svörum af hálfu bæjaryf-
irvalda.
Mótmæla hækkun leikskólagjalda