Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 32
Kristín Þóra Harðardóttirer matgæðingur og erugrænmetisréttir meðindversku ívafi í miklu
uppáhaldi. Hún segist elda af
ástríðu, líkt og aðrir stundi jóga
af ástríðu. Henni finnst grænmeti
besta hráefnið í matargerðina
enda má segja að grænmeti sé
henni í blóð borið þar sem for-
eldrar hennar áttu og ráku garð-
yrkjustöðina Lyngás í Laugarási í
Biskupstungum allt þar til fyrir
tveimur árum. „Mamma var mjög
dugleg við að prófa sig áfram í
gerð grænmetisrétta fyrir heimilið
og eins og nærri má geta er ég
góðu vön. Ég vandist á glænýtt og
ferskt grænmeti beint úr garð-
inum frá blautu barnsbeini og síð-
an hefur mér aldrei fundist græn-
metið í búðunum nógu ferskt. Mér
fannst til að mynda grænmetið,
sem stórmarkaðirnir voru að selja
fyrir jólin, alveg ferlega lélegt,“
segir Kristín Þóra. Kristín Þóra
er 38 ára að aldri, gift og móðir
þriggja barna, 15, 11 og 6 ára.
Hún er garðyrkjufræðingur frá
Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera-
gerði þar sem hún kynntist eig-
inmanninum, Jóni Júlíusi Elías-
syni, sem er lærður
skrúðgarðyrkjumeistari. Saman
reka þau nú skrúðgarðyrkjufyr-
irtækið Garðmenn ehf., sem tekur
að sér bæði viðhald og nýfram-
kvæmdir í verktakavinnu. Þrátt
fyrir að hafa í mörg horn að líta
lætur Kristín Þóra sér ekki ald-
eilis nægja stússið í kringum fyr-
irtækjareksturinn og fjölskylduna
því hún ákvað í haust að skella sér
í lögfræði í Háskóla Íslands þar
sem hún hefur verið við nám í vet-
ur. „Þetta er fyrst og fremst leti,“
segir hún og bætir við: „Ég nenni
ekki að vinna neina almennilega
vinnu svo ég dreif mig bara í
skóla.“
Tilraunir og útúrdúrar
Kristín Þóra segir að laug-
ardagarnir hjá sér séu gjarnan
undirlagðir í matarstússið. Þá
kaupi hún inn til vikunnar, und-
irbúi og eldi eitthvað gott. „Mér
finnst þetta bæði gaman og svo
slaka ég mjög vel á við
eldamennskuna.
Manninum mín-
um finnst, eins
og mér og
öðrum, gott
að borða
góðan
mat, en
hann er
ekki eins
mikið í elda-
mennskunni
og ég. Við höfum
þó farið tvisvar
sinnum saman í sýni-
kennslu í Tómstundaskólanum
sem var mjög skemmtilegt. Ég
skoða og pæli mikið í mat-
reiðslubókum og fæ úr þeim hug-
myndir, en sjálf styðst ég ekki svo
mikið við uppskriftir, nema við há-
tíðlegri tækifæri þegar vanda þarf
mjög til verka. Ég er miklu meira
í því að gera alls konar tilraunir
og útúrdúra og man svo ekki
stundinni lengur hvernig ég fór að
næst þegar ætlunin er að grípa til
sams konar réttar. Ég hef nefni-
lega ekki vanið mig á að skrifa
þessar tilraunir mínar niður að
þeim loknum.
Tvíréttað á borðum
Kristín Þóra segist líklegast
geta flokkast undir hálfgerða
grænmetisætu. „Ég borða ekkert
kjöt, en ég borða hins vegar fisk.
Ég er þó ekkert að leggja mig nið-
ur við að útbreiða fagnaðarerindið
til annarra fjölskyldumeðlima enda
borða allir aðrir í fjölskyldunni
kjöt. Oftar en ekki er því tvíréttað
á borðum á mínu heimili því bæði
þarf ég að elta eigin duttlunga og
svo duttlunga barnanna minna sem
kalla á einfaldan óbrasaðan mat.
Soðinn fiskur eða soðið slátur með
kartöflum er í miklu uppáhaldi hjá
þeim. Við hjónin höfum tekið slát-
ur á hverju hausti síðan við byrj-
uðum að búa og hafa þau öll vanist
á það. Ég er hins vegar ekkert
viss um að fólki, sem smakkar slát-
ur í fyrsta sinn, finnist það gott.
Þetta er öllu heldur spurning um
hvað maður venur börnin sín á.“
Grænmeti í áskrift
Kristín Þóra er nú hætt að fá
ferska grænmetið úr foreldra-
húsum. Þess í stað hefur hún kom-
ið sér upp sínum eigin grænmet-
isgarði við húsið sitt þar sem hún
ræktar m.a. spínat, rucolakál,
spergilkál og kryddjurtir. Auk
þess segist hún kaupa lífrænt
ræktað grænmeti í áskrift af
garðyrkjustöðinni Akri í Laug-
arási. „Þetta er rosalega gott fyr-
irkomulag. Ég panta á Netinu á
föstudegi, sæki svo grænmet-
ispakkann minn á næstu Olís-stöð
næsta fimmtudag og borga fyrir í
netbankanum. Hægt er að panta
vikulega eða sjaldnar, allt eftir
þörfum hvers og eins. Verðlagið
sýnist mér svipað og í búðunum,
en stóri munurinn er ferskleikinn.
Eins og gefur að skilja liggur þessi
þjónusta niðri á veturna, en gúrk-
ur, tómatar, krydd og fleira fer að
koma á markaðinn fyrripart sum-
ars og svo fylgir garðgrænmetið í
kjölfarið þegar líða tekur á sum-
arið.“
Þegar garðyrkjufræðingurinn
Kristín Þóra er að lokum spurð
hvort það hafi ekkert kitlað að
gerast garðyrkjubóndi eftir að for-
eldrarnir ákváðu að bregða búi
svarar hún því til að vissulega hafi
það hvarflað að sér. „En það er
erfitt að standa í garðyrkju á Ís-
landi og ætla að vera samkeppn-
isfær við blóm og grænmeti sem
ræktað er suður í Evrópu eða í
Afríku.“
Kartöflukarrý með
mústarðsfræjum
4–6 kartöflur
Krydd:
1 ferskur chili
3–5 hvítlauksrif
1 msk svört mústarðsfræ
1 msk túrmerik
1 msk kúmenfræ
1 tsk kúmenduft (ground cumin)
1 tsk paprikuduft
safi úr einu lime
1 msk sesamolía
matarolía
Kartöflurnar eru flysjaðar og
skornar í hæfilega munnbita. Síðan
eru bitarnir soðnir þar til þeir eru
mátulega mjúkir, passa að sjóða
ekki of mikið. Öllu kryddinu er
blandað saman, chili og hvítlaukur
annaðhvort skorið smátt eða rifið í
matvinnsluvél. Bæta við sesamolíu
og steikja svo kryddið í matarolíu á
pönnu smástund. Setja kartöflurn-
ar á pönnuna, bæta olíu ef þarf
þannig að kryddið hjúpi kartöflurn-
ar vel. Steikja í nokkrar mínútur,
setja svo í eldfast fat og kreista
limesafa yfir. Stinga að lokum í
180°C heitan ofn í 10 mínútur. Bor-
ið fram með góðum hrísgrjónum,
raitu, chutney og chapati-brauði.
Grænmetiskarrý með
kókosmjólk
Grænmeti:
1 blómkálshaus
1–2 pakkar strengjabaunir og/eða
belgbaunir
1 stór laukur
1 kúrbítur
Krydd:
hvítlauksrif
engiferrót (1–2 cm bútur)
2 chili (ferskur eða þurrkaður)
1 msk kardemommur
1 msk turmerik
1 msk kúmenduft
1 tsk kanelduft
búnt ferskt koríander
nokkrir saffranþræðir
1 dós kókosmjólk
1–2 dl vatn
(cashew-hnetur muldar)
Hvítlaukur, engifer og chili rifið
í matvinnsluvél eða skorið smátt.
Kardemommubelgir steyttir í mor-
téli til að ná fræjunum úr. Korían-
der er saxað. Síðan er öllu krydd-
inu (nema saffrani og hluta af
koríander) blandað saman ásamt
matarolíu þannig að úr verður
karrýmauk. Maukið steikt í olíu dá-
litla stund og söxuðum lauk bætt í
og steikt þar til hann mýkist. Þá er
hinu grænmetinu, sem er skorið
frekar gróft, bætt út í.
Steikt svolitla stund og kryddið
látið hjúpa allt grænmetið vel. Þá
er kókosmjólkinni hellt á pönnuna
ásamt vatninu. Látið malla þar til
grænmetið er orðið mjúkt.
Ef karrýið verður of þunnt er
gott að mala cashewhnetur og setja
út í. Saffranið er svo sett út í undir
lokin og afganginum af kóríander
stráð yfir um leið og rétturinn er
borinn fram. Borið fram með góð-
um hrísgrjónum, raitu, chutney og
chapati-brauði.
Vel má nota annað grænmeti en
er í uppskriftinni, eftir því sem
hentar. Til dæmis gulrætur, gulróf-
ur, spergilkál og fleira, en með
sterkum karrýréttum er nauðsyn-
legt að hafa raitu. Að sama skapi
er chutney alveg ómissandi með.
Hægt er að kaupa alls konar chut-
ney, en Kristín Þóra ætlar hér að
gefa uppskrift að heimatilbúnu
döðlu-chutney.
Raita
3–4 dl AB-mjólk
hálf gúrka
1 búnt fersk mynta
1 msk kúmenfræ
salt
Gúrkan skorin smátt og myntan
söxuð, öllu blandað saman. Gott er
að láta sósuna standa nokkra tíma
áður en hún er borin fram.
Döðlu-chutney
250 g döðlur
vænn bútur af engifer
hvítlauksrif
1 ferskur grænn chili
1 tsk kúmenduft
1 tsk kóríanderduft
Döðlurnar eru settar í bleyti í
volgt vatn í tvær klst. Hellið svo af
döðlunum en geymið hluta af vatn-
inu. Maukið döðlurnar í mat-
vinnsluvél.
Engifer, hvítlaukur og chili er
rifið og blandað ásamt hinu krydd-
inu við döðlumaukið. Bætið vatni af
döðlunum við þar til maukið verður
mátulega þykkt.
Chapati-brauð
Saman við hveiti og örlítið af salti
er hnoðað vatni þar til deigið er
mátulegt til að fletja út. Það er
flatt út í kökur, heldur minni en
pönnukökur, og þær síðan steiktar
á olíuborinni pönnu. Þegar loftból-
ur myndast á kökunni og hún er
orðin ljósbrún á neðri hlið er mátu-
legt að snúa henni við. Úr 300 g af
hveiti má fá 10 kökur.
MATARKISTAN|Er vön glænýju grænmeti frá blautu barnsbeini
Eldar af ástríðu
Matgæðingurinn Kristín Þóra Harðardóttir ákvað
að skella sér í lögfræði þrátt fyrir þrjú börn og fyr-
irtækjarekstur. Hún sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur
að matargerðin væri hennar leið til að slaka á.
Morgunblaðið/Eggert
Kristín Þóra Harðardóttir: Er mikið
fyrir tilraunastarfsemi í eldhúsinu.
join@mbl.is
Grænmetiskarrý: Með kókosmjólk
DAGLEGT LÍF
32 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ