Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 49
HINIR mætustu skákmenn hafa
lent í því að fá aðeins lakara tafl út
úr byrjuninni með svörtu og svo
þegar taflið hefur jafnast þá er til-
finningin ennþá til staðar að hvítur
standi betur. Ofmat sem og van-
mat á eigin stöðu gerir það oft að
verkum að skákmaðurinn missir
þráðinn og glutrar ágætu tafli nið-
ur í tapaða stöðu í örfáum leikjum.
Eftirfarandi skák í fimmtu umferð
Corus-ofurskákmótsins minnir
mann óneitanlega á þetta fyrirbæri
þar sem hinn mikli Íslandsvinur
Ivan Sokolov mátti lúta í lægra
haldi fyrir Vladimir Akopjan.
Hvítt: Vladimir Akopjan
Svart: Ivan Sokolov
Breyer-afbrigðið í Spánska
leiknum
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0–0 Be7 6. He1 b5 7.
Bb3 d6 8. c3 0–0 9. h3 Rb8 10. d4
Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 c5
Boris Spassky, Svetozar Gligoric
og Alexander Beljavsky eru á með-
al þeirra skákmanna sem komið
hafa þessu afbrigði spánska leiks-
ins á kortið. Ivan hinn grimmi hef-
ur hins vegar ekki beitt því oft og
kannski af þeim sökum velur Ar-
meninn knái sjaldgæfan leik.
13. b3!? cxd4?!
Venjulega vill svartur bíða
átekta í þessu afbrigði og ekki gefa
upp fyrirætlanir sínar á miðborð-
inu fyrr en síðar. Af þessum sökum
kom 13. … He8 frekar til greina
þar sem eftir textaleikinn nær
hvítur þægilegu tafli.
14. cxd4 exd4 15. Rxd4 He8 16.
a4 bxa4 17. bxa4 Hc8 18. Rf5 Dc7
19. Bb3 Bf8 20. Bb2 d5!
Snjall leikur sem opnar línur
fyrir drottningu og biskup svarts.
Ekki gekk upp að taka peðið á e4
þar sem eftir 20. … Rxe4 21. Dg4
Rdf6 22. Bxf6 Rxf6 23. Rh6+ Kh8
24. Hxe8 stendur hvítur til vinn-
ings.
21. Hc1 Df4! 22. Hxc8 Bxc8 23.
g3 Dg5 24. h4 Dg6 25. h5 Rxh5
Einnig kom til álita að drepa
peðið með drottningu þar sem eftir
25. … Dxh5 26. Dxh5 Rxh5 27.
Bxd5 Re5! hefur svartur u.þ.b.
jafnað taflið.
26. Rh4
Hver skák hefur sín krítísku
augnablik og skiptir þá miklu máli
að vita að svo sé og hvernig bregð-
ast eigi við. Þó að svörtum hafi
tekist að halda frumkvæði hvíts í
skefjum hefur honum ekki fyllilega
tekist að jafna taflið. Hið svokall-
aða sýndarfrumkvæði er afar mik-
ilvægt þar sem sá sem það hefur á
miklu auðveldara með að taka allar
ákvarðanir. Næsti leikur svarts
ber þess merki að hann hefur ann-
aðhvort ofmetið eða vanmetið
möguleika sína.
26. … Dg5?
Eftir þessi mistök á svartur sér
ekki viðreisnar von þar sem f7-
punkturinn verður of veikburða
eftir að riddarinn á d2 kemst á f3
með leikvinningi. Ekki verður bet-
ur séð en taflið sé í jafnvægi eftir
26. … Dh6 27. Bxd5 Rb6.
27. Rdf3 De7 28. exd5 Dd8 29.
Hxe8 Dxe8 30. Rg5!
Sókn hvíts verður nú óstöðvandi
jafnvel þó að svartur tjaldi öllu til.
30. … Rxg3 31. d6! De2 32.
Bxf7+ Kh8
33. Db1!
Svartur er nú varnarlaus gagn-
vart máthótunum hvíts en hann
barðist engu að síður til síðasta
blóðdropa.
33. … Re4 34. Dxe4 Dd1+ 35.
Kh2 Bxd6+ 36. f4 Dd2+ 37. Kg3
og svartur gafst upp enda fátt til
varna. Dæmi um snotur lok eru
37. … Rf8 38. Dxh7! Rxh7 39.
Rg6#.
Corus-skákmótið er eitt allra
sterkasta skákmót ársins og ávallt
gaman að fylgjast með þeim gríð-
arlegu átökum sem eiga sér stað á
slíku móti. Nú er fimm umferðum
lokið á mótinu og enn er ómögu-
legt að segja fyrir um sigurveg-
arann, enda deilir tæpur þriðjung-
ur keppenda efsta sætinu með þrjá
vinninga. Úrslit fimmtu umferðar:
P. Leko – M. Adams ½–½
V. Akopian – I. Sokolov 1–0
L. van Wely – V. Topalov ½–½
V. Bologan – J. Timman 0–1
P. Svidler – V. Anand ½–½
A. Shirov – V. Kramnik ½–½
Z. Zhong – E. Bareev ½–½
Timman náði þarna að vinna
sína fyrstu skák á mótinu, en mikið
var um jafntefli. Staðan á mótinu:
1.–5. V. Topalov, P. Leko, V.
Kramnik, V. Anand, M. Adams 3 v.
6.–9. V. Akopian, L. van Wely, P.
Svidler, E. Bareev 2½ v.
10.–14. I. Sokolov, V. Bologan,
A. Shirov, Z. Zhong, J. Timman 2
v.
Níu efstir og jafnir á Skák-
þingi Reykjavíkur
Skákþing Reykjavíkur er nú haf-
ið og eins og ávallt áður er það
Taflfélag Reykjavíkur sem sér um
framkvæmd mótsins. Teflt er í
opnum flokki og þátttakendahóp-
urinn er breiður, allt frá byrjend-
um til margra okkar öflugustu
skákmanna. Tveimur umferðum er
lokið á mótinu og er staða efstu
manna þessi:
1.–9. Jón Viktor Gunnarsson,
Bragi Þorfinnsson, Björn Þor-
steinsson, Dagur Arngrímsson,
Helgi E. Jónatansson, Sævar
Bjarnason, Júlíus Friðjónsson,
Jónas Jónasson og Heimir Ás-
geirsson 2 v.
10.–12. Kjartan Maack, Kristján
Örn Elíasson og Davíð Kjartans-
son 1½ v.
Þátttakendur eru 44. Mótið fer
fram í húsnæði TR í Faxafeni.
Teflt er á miðvikudags- og föstu-
dagskvöldum kl. 19 og á sunnudög-
um kl. 14.
Að grafa sína
eigin gröf
SKÁK
Wijk aan Zee
CORUS-SKÁKMÓTIÐ
9.–29. jan. 2004
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
dadi@vks.is
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barnastarfið hefst
aftur sunnudaginn 18. janúar kl. 11. Nýtt
fræðsluefni. Kvöldguðsþjónusta kl. 20
með gospelsveiflu. Fermingarbörn og for-
eldrar þeirra eru hvött til að koma og eiga
góða stund saman. Prestur Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir. Organisti Örn Falkner. Kór
Grindavíkurkirkju leiðir söng.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Krakkar, foreldrar: Verið með frá byrj-
un. Nýtt og spennandi efni. Sissa, Baldur
og Julian.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Kirkjudagur Faxa-
félaga og Rótarýmanna. Samkirkjuleg
guðsþjónusta kl. 14 í stærri sal Kirkju-
lundar í upphafi samkirkjulegrar bæna-
viku sem ber yfirskriftina: Minn frið gef ég
yður. Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór
Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og
söngstjóri: Hákon Leifsson. Meðhjálpari:
Leifur Ísaksson. Sjá: keflavikurkirkja.is
HVALSNESKIRKJA: Laugardagurinn 17.
janúar: Safnaðarheimilið í Sandgerði.
Kirkjuskólinn kl. 11. Allir velkomnir. Ferm-
ingarfræðsla fer fram í Gerðaskóla í Garði
frá kl. 9.30–12. Sunnudagurinn 18. jan-
úar: Guðsþjónusta kl. 17 í Hvals-
neskirkju. Kór Hvalsneskirkju syngur. Org-
anisti Steinar Guðmundsson. NTT-starfið
er í safnaðarheimilinu á mánudögum kl.
16.30. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn 17.
janúar: Safnaðarheimilið Sæborg. Kirkju-
skólinn kl. 14. Allir velkomnir. Ferming-
arfræðsla fer fram í Gerðaskóla í Garði frá
kl. 9.30–12. Sunnudagurinn 18. janúar:
Guðsþjónusta kl. 14. Kór Útskálakirkju
syngur. Organisti Steinar Guðmundsson.
Garðvangur: Helgistund kl. 15.30. NTT-
starfið – níu til tólf ára-starfið – er safn-
aðarheimilinu Sæborgu á fimmtudögum
kl. 16.30. Sóknarprestur.
HNÍFSDALSKAPELLA: Sunnudagaskóli
kl. 13. Sóknarprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa og alt-
arisganga kl. 11. Kór Ísafjarðarkirkju
syngur. Kirkjuskóli á sama tíma í safn-
aðarheimilinu. Sóknarprestur.
STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA: Taizé-
guðsþjónusta kl. 14.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta verður fyrir allt prestakallið á
sunnudag kl. 11:00. Léttur söngur fyrir
alla fjölskylduna. Allir velkomnir. Sókn-
arprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Björn
Steinar Sólbergsson. Sunnudagaskóli kl.
11. Fyrst í kirkju, síðan í safnaðarheimili.
ÆFAK kl. 20.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og
messa. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjón-
ar. Félagar úr kór Glerárkirkju. Organisti
Hjörtur Steinbergsson. Kyrrðarstund í
kapellu þriðjudag kl. 18.10. Hádeg-
issamvera miðvikudag kl. 12. Opið
fræðslukvöld miðvikudag kl. 19.30. Ferm-
ingarfræðsla hefst frá og með mánudeg-
inum 19. jan. Ath. sömu tímasetningar og
fyrir áramót.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Kl. 11
sunnudagaskóli. Kl. 16.30 bænastund.
kl. 17 almenn samkoma.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Kl.
16.30 er vakningasamkoma. Jóna Salm-
ína Ingimarsdóttir prédikar. Mikill söngur,
lífleg þátttaka og frábært guðsorð. Bæna-
stund mánudag kl. 20. Beðið fyrir öllum
innsendum bænarefnum.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenivíkurkirkja.
Kirkjuskóli laugardag kl. 14. Nýtt fræðslu-
efni, nýjar bækur. Kyrrðarstund þriðjudag-
inn 20. jan. kl. 20. Ath. breytta dagsetn-
ingu. Grenilundur. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 16.
Ljósavatnsprestakall: Þorgeirskirkja.
Kyrrðarstund mánudagskvöld kl. 20.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 14. 19. jan: Kyrrðarstund
kl. 18. Sóknarprestur.
VÍKURKIRKJA í Mýrdal: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Kór Víkurkirkju leiðir
söng undir stjórn Kristínar Waage, org-
anista. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra. Fjölmennum og tökum með okk-
ur gesti. Sr. Haraldur M. Kristjánsson.
SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal: Guðs-
þjónusta sunnudag kl. 14. Kór Skeiðflat-
arkirkju leiðir söng undir stjórn Kristínar
Björnsdóttur, organista. Fermingarbörn
lesa ritningarlestra. Fjölmennum og tök-
um með okkur gesti. Sr. Haraldur M. Krist-
jánsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta í Ólafsvallakirkju sunnudag kl. 14.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
sunnudag 18. janúar kl. 11. Sókn-
arprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Létt-
ur hádegisverður að messu lokinni. Morg-
untíð sungin þriðjudag til föstudags kl.
10. Kaffisopi á eftir. Foreldrasamvera
miðvikudag kl. 11–12. Æskulýðsfundur
miðvikudag kl. 20. Kirkjuskóli í Valla-
skóla, útistofu nr. 6 fimmtudag kl. 13.30.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: HNLFÍ: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kotstrandarkirkja. Guðsþjón-
usta kl. 14. Hjúkrunarheimilið Ás. Guðs-
þjónusta kl. 15.30. Jón Ragnarsson.
18. jan. Hvalfjarðargangan
(H-1) Leiðhamrar - Brautar-
holt
Gengið með ströndinni frá Leið-
hömrum við norðanverðan
Kollafjörð að Brautarholtsborg á
Kjalarnesi. Fararstjóri: Gunnar
H. Hjálmarsson. Brottför frá BSÍ
kl. 10:30. Verð 1800/2100 kr.
18. jan. Gönguskíðaferð
Snóalög ráða hvert verður
farið. Fararstjóri: Tómas Þröstur
Rögnvaldsson. Brottför frá BSÍ
kl. 10:30. Verð 1.900/2.300 kr.
30. jan.–1. feb. Þorrablót Úti-
vistar
Þorrablót Útivistar verður haldið
á Hótel Dyrhólaey. Á laugardeg-
inum verður gengið í nágrenni
Dyrhólaeyjar en jeppamenn fara
á Mýrdalsjökul. Fararstjórar:
Fríða Hjálmarsdóttir og Sylvía
Kristjánsdóttir en Jón Tryggvi
Þórsson mun fara fyrir jeppa-
hópnum. Farið á einkabílum frá
Hlíðarenda á Hvolsvelli kl. 20:00.
Verð 4.700/5.500 kr.
2. feb. Fyrsta myndakvöld
ársins. Nánar auglýst síðar.
Sjá nánar á www.utivist.
Auglýsing um afgreiðslu
bæjarráðs Kópavogs á auglýstri tillögu
að deiliskipulagi.
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
er hér með auglýst afgreiðsla bæjarráðs Kópa-
vogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögu:
Vesturvör 32, 34 og 36. Deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarráð
Kópavogs þann 20. nóvember 2003 samþykkt
tillögu að breyttu deiliskipulagi við Vesturvör
32, 34 og 36. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir
þremur nýjum lóðum fyrir 1-2 hæða atvinnu-
húsnæði á landfyllingu við Vesturvör, yst á Kárs-
nesi. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv.
1:2000 dags. 18. ágúst 2003 og auglýst í samræmi
við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/
1997 frá 3. október til 31. október 2003 með at-
hugasemdafresti til 17. nóvember 2003. Engar
athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulags-
stofnun hefur yfirfarið málsgögnin sbr. bréf dags.
3. desember 2003 og gerði ekki athugasemd við
að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipu-
lagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildis-
töku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíð-
inda 16. janúar 2004.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda
deiliskipulagsáætlun og afgreiðslu hennar er
hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs,
Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00
frá mánudegi til fimmtudags og á föstudögum
frá kl. 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
TILKYNNINGAR
Samkoma í kvöld kl. 20.30. Frank
Menhart frá USA predikar.
www.krossinn.is
Gvendur dúllari
Full búð af bókum,
gott úrval af ættfræði.
Opið í dag 11-17.
Gvendur dúllari — alltaf góður
Klapparstíg 35, sími 511 1925
RAÐAUGLÝSINGAR
mbl.is
ATVINNA